Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1982, Síða 13
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR12. JtJNl 1982.
Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir
Sjaldan hefur rmynt eins mikið á ofurhugana og við gerð Ben Hur myndanna, 1926 og 1959.
var einmitt það sem gerðist, og því
bara bjánaskapur hjá Fairbanks að
ætlaaðreyna þetta sjálfur.”
Lrtíð um æfíngar
Á upphafsárum kvikmyndanna
var ekki auðvelt að gabba áhorfend-
ur með tæknibrellum því tækni-
byltingin í kvikmyndagerð var ekki
farin aö sjá dagsins ljós. Þegar
áhorfendur sáu hetjur sínar standa
uppi á þaki lestar á fullri ferð, eða
klifra miiii flugvéla hátt uppi í
skýjum, sáu þeir í flestum tilvikum
raunverulega hluti framkvæmda af
ofurhugum, en ekki tæknibrellur.
Lítið var um æfingar og á þessum
tima gilti þaö, aö eftir að
kvikmyndatökuvélin fór í gang var
hún ekki stöðvuð, hvað sem á gekk.
Kom því fyrir að áhorfendur urðu
vitni aö síöustu augnablikum i lífi
ofurhuga, án þess aö hafa hugmynd
um það. Og allt sem þessir menn
fengu í sinn hlut á þessum tíma, fyrir
að hætta lífi sínu, voru 5 dollarar.
Eddie Sutherland er einn af þeim
ofurhugum sem byrjaði fyrir hálf-
geröa tilviljun að leika ofurhuga.
Hann var að vinna sem leikari við
gerð myndarinnar THE
HAZARDS OF HELEN. I einu atriði
myndarinnar er söguhetjan ásamt
ástmey sinni stödd uppi á þaki lestar
sem er á fullri ferð, og þar að auki
hlaðin dýnamíti. Þau þurftu að
komast ofan af lestinni og var
ákveðið að útfæra það á all ævintýra-
iegan máta. Reipi var strengt milli
simastaurs og trés þvert yfir lestar-
sporið sem lestin átti að fara um.
Síðan voru ofurhugar látnir gripa í
reipið þegar lestin fór undir það og
hanga þar meðan lestin brunaöi
áfram. Svo illa tókst til að báðir
ofurhugarnir misstu takið og annar
hruflaði sig svo illa á fæti að hann
varð óvinnufær.
Lestin sprakk
í/oftupp
Sutherland fór beint til
leikstjórans og sagðist vita hvemig
ætti að framkvæma þetta svo vel
færi. Leikstjórinn bað um nánari
útlistun, en Sutherland neitaöi aö
láta nokkuö uppi nema hann fengi að
reyna sjálfur. Hafði hann séð að
ofurhugamir stukku beint upp til aö
ná í reipið en taldi sjálfur að eöli-
legra væri að kasta sér örlítið fram á
við til að vega upp á móti því að
lestinvaráferð.
Sutherland sannfærði leikstjórann
og fékk að reyna þetta. Hann náöi
góðu taki á kaölinum og tókst að
hanga þar meðan lestin bmnaði
áfram. En nokkrum tugum metmm
neðar var lestin sprengd í loft upp og
við þaö myndaðist svo mikill loft-
þrýstingur að Sutherland missti tak-
ið, datt og brákaðist þaö mikið að
hann varð að leggjast á sjúkrahús.
Hér sést Lloyd / myndinni Safety Last (19231. Hór er um engar brellur
að ræða og aðeins öryggisnet var milli hans og götunnar.
Á fyrstu ámm kvikmyndanna var
engin starfsgrein til sem nefndist
ofurhugar. Leikarar í aukahlutverk-
um fengu um 15 dollara á viku i laun
og var algengt að þeir tækju að sér
að framkvæma ýmsa hættulega hluti
fyrir 5 dollara aukaþóknun til að
drýgja tekjurnar.
A/drei skortur
á ofurhugum
Aldrei var skortur á sjálfboðalið-
um til að stökkva af lest á ferð yfir á
hestbak eða færa sig miili flugvéla
sem voru á flugi. En þegar fram liðu
stundir fóm leikstjórarnir að leita æ
meira til sömu mannanna sem höfðu
sýnt og sannað að þeir kunnu vel til
verka og skorti ekki kjarkinn.
Þannig myndaðist harður kjarni í
þessari atvinnugrein.
Flestir ofurhugar voru ekki nema 5
ár í þessu því að þá höfðu þeir,
annaöhvort unnið sér inn þaö mikia
peninga aö þeir sáu engan tilgang í
því aö hætta lífi sinu fyrir peninga,
eöa þeir höföu slasast það illa að þeir
voru ófærir um aö sinna ofurhuga-
starfi sinu. Samt sem áður gefa tölur
frá þessum tíma til kynna aö dauðs-
föli í þessari grein hafi ekkert verið
hærri en í öðrum greinum.
Hlutverk ofurhuga við gerð kvik-
mynda hefur tekið miklum stakka-
skiptum frá því sem áður var. Nú era
yfirleitt viöhafðar strangar öryggis-
kröfur um búnað og aðstööu svo
áhættan hefur verið minnkuð til
muna. Einnig kemur hin aukna
tækni til hjálpar sem auðveldar leik-
stjórum og tæknimönnum að plata
áhorfendur upp úr skónum. Samt
sem áður era ofurhugar alltaf að
reyna að koma fram með stórkost-
legri og hættulegri atriði og eru
sumar kvikmyndir, eins og t.d.
James Bond myndimar, iítið annaö
en samansafn áhættuatriða sem eiga
að vera stórfenglegri og hættulegri
en nokkuð annað sem sést hefur á
hvíta tjaldinu. En einhvern veginn er
það nú svo þegar horft er á ofurhuga
þöglu myndanna, að manni finnst
brögð þeirra, sem nú stunda þessa
atvinnugrein hálf innantóm miðað
viö þá ofurhuga sem miklu oftar
lögðu líf sitt í hættu án öryggisbúnað-
ar eða æfinga og það fyrir litla
fimmcfollara.
Baldur Hjaltason
*
Kimball verksmiðjumar í Bandaríkjunum balda upp á 125
ára afmcelisitt um þessar mundir.
Við bjóðum þesst fallegu og vönduðu píanó á sérlega hag-
stæðu verði. 10 ára ábyrgð á p|||l
hljómbotni og bekkur í stíl
fy/gir öllum píanóum.
Allar nánari upplýsingar
FRAKKASTÍG 16 - SÍM117692
Verðlækkun
á nýjum og notuðum mótorgarðsláttuvélum.
Verðfrá kr. 1.500.-
Sláttuvélaviðgerðir og leiga
Skemmuvegi 10 M — Simi 77045
Til sölu
Scout Terra, árg.
1979, ekinn 10.000
km.
Kom á götuna i desember
1981. Frábær bíll. Upplýs-
ingar í síma 82843 e.kl. 118 á
virkum dögum.
Dalvík - bæjarstjóri
Starf bæjarstjóra á Dalvík er laust til umsóknar.
Upplýsingar veitir undirritaður á skrifstofu
bæjarins eða í síma 96-61370. Umsóknir skulu skil-
ast á bæjarskrifstofuna Dalvík og þurfa að hafa
borizt fyrir 25. júní 1982.
Dalvík 9. júni 1982
Bæjarstjóri
10. landsmót
sambands íslenzkra lúðrasveita.
12. júní 1982 Hafnarfirði
Dagskrá:
Laugardagurinn 12. júní:
kl. 13.30
Safnazt saman við gatnamót Reykjavíkurvegar og Flata-
hrauns og gengið þaðan um Flatahraun, Sléttahraun, Amar-
hraun, Smyrlahraun og Hverfisgötu að'Lækjarskóla.
kl. 13.3C
Safnazt saman við gatnamót Hvammabrautar og Hringbraut-
ar og gengið þaðan um Hringbraut, Selvogsgötu, Suðurgötu og
Lækjargötu að Lækjarskóla.
kl. 14.00 Mótssetning: Eiríkur Rósberg form. S.í. L.
Tónleikar
Lúðrasveit Hafnarfjarðar, stj. Hans Ploder
Lúðrasveit Akraness, stj. Lárus Sighvatsson
Lúðrasveit Akureyrar, stj. Atli Guðlaugsson
Lúðrasveit Selfoss, stj. Ásgeir Sigurðsson
Lúðrasveit Stykkishólms, stj. Daði Þór Einarsson
Lúðrasveitin Svanur, stj. Sæbjörn Jónsson
Lúðrasveit verkalýðsins, stj. EliertKarlsson
Lúðrasveit Vestmannaeyja, stj. Hjálmar Guðnason
Allar lúðrasveitir saman.