Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1982, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1982, Side 14
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR12. JUNI 1982. 14 Jám brautnrferö um SkotUmd er ódýr og þægilegur ferðamáti: Shotar eru ósparir á aes trisni ogalúö „Hér eru feðgar á ferð, sýnist mér. Og hvert er erindið til Glasgow? Ferðast um Skotland, já. Það lízt mér vel á og veriöi hjartanlega velkomn- ir.” Fulltrúi útlendingaeftirlitsins á flug- vellinum í Glasgow, ungur og glaöleg- ur maður, skellti stimpli ofan í passa okkar feðga og ítrekaði óskir sínar um heillarika ferðokkurtilhanda. Alúöleg framkoma mannsins kom mér ekki á óvart, því Skotar eru hiö bezta fólk. En ég hafði aldrei komiö til Skotlands áður og þaö kom mér á óvart hve flugstöðvarbyggingin var glæsilegt hús. En það átti fleira eftir að koma á óvart, þægilega á óvart, á nokkurra daga ferð um landið. Það er bezt að taka þaö fram strax að þegar talaö er um okkur feöga hér á eftir er átt viö undirritaðan og 14 ára gamlan son hans, Val, sem búsettur er á Akureyri. Þetta var hans fyrsta utanlandsferð og þótt noröanmenn láti sér ekki allt fyrir brjósti brenna, enda Akureyri merkisbær eins og þeir vita bezt er þar búa, þá fór ekki hjá því að honum kom líka ýmislegt á óvart í Skotlandi. Mjög margt var meira að segja enn stórkostlegra en á Akureyri, og er þá mikið sagt. Brezka ferðamálaráðið (British Tourist Authority, skammstafað BTA) og Flugleiðir höföu lagt sig fram um að kynna okkur þá kosti sem í boði væru til aö sjá sem mest á f jögurra til fimm daga ferö og gert áætlun sem við fylgdum í stórum dráttum. En við höfðum ákveöiö aö nota lestir til að flytja okkur milli staöa og AA Drive- away kerfi við gistingu. Rétt erað láta nánari skýringu fylgja. Brrtrai/Pass Mér finnst einn stærsti kosturinn við að ferðast með járnbrautarlest um Skotland vera sá að hægt er aö njóta útsýnis ótrufaður í stað þess að þurfa að hafa augun á veginum ef ferðast er á bíl. Auk þess er að sjálfsögðu hægt aö taka bílaleigubíl í bæjum, þar sem staldrað er við, og skoða nágrenniö eins og hver vill. Þar fyrir utan er skemmtilegt aö virða fyrir sér sam- ferðafólkið. Yfirleitt er það reiðubúiö til aö skrafa um allt milli himins og jarðar ef maöur gefur sig á tal viö það. AUa vega er það mín reynsla af Skotum. Brezku lestirnar eru um 16 þúsund talsins og fara milli tvö þúsund stöðva á Bretlandi öllu á degi hverjum, svo ekki eru vandkvæði á að komast milli staða. Brezku jámbrautimar bjóða ýmis- konar afslátt frá venjulegu fárgjaldi. En langhagkvæmasti kosturinn fyrir útlendinga eraðkaupa Britrail Pass. Hann er ekki til sölu á Bretlandi og veröur því að kaupa passann áöur en lagt er af stað. Söluskrifstofur Flug- leiða annast alla • fyrirgreiðslu í því sambandi. Britrail Pass er seldur með 8, 15, 22 eöa eins mánaðar gildistíma. Ekki þarf aö ákveða fyrr en út er komið hvaða daga passinn skal gilda. Með þennan passa í höndum má ferðast ótakmarkað á öllum leiðum. Sem dæmi um hve Britrail Pass er hagkvæmur kostur má nefna að átta daga passi kostar svipaö og lestarfar- gjald frá London aö landamærum Skotlands og afturtil baka. Svo er það gistingin og þar er AA Driveaway kerfiö eitt það bezta sem völ er á. Áður en fariö er aö heiman er ákveöið hve margar nætur er áætlað að gista og keyptir gistimiðar (vouchers). Þeir eru greiðsla fyrir hótelherbergi með baði og morgun- veröi á miklum fjölda hótela á Eng- landi, Wales og Skotlandi. Börn innan Fátt er skozkara en Skotar i skotapilsum með sekkjapipurnar ómissandi. Þetta er þó ekki dagleg sjón i Skotlandi. 14 ára fá fría gistingu í herbergi með foreldrum. Með því aö nota þessa gistimiða fæst æskilegt frjálsræði með ferðatilhögun. Þaö er nóg að panta gistingu fyrirfram fyrir fyrstu nótt. Til dæmis ef flogið er til Glasgow er pöntuð gisting þar fyrir- fram. Eftir það ræður ferðalangurinn sjálfur ferðahraðanum. Eftir einnar nætur dvöl eða fleiri í Glasgow er ákveðið hvert skuli fara næst, hafi það ekki verið gert áður. Hótelið í Glasgow sér um að panta gistingu á þeim stað sem óskaö er eftir samvkæmt AA Driveaway. Næsta hótel sér um að panta gistingu á þar næsta stað og svo koll af kolli. Þaö er því óþarfi að ríg- binda sig ákveöinni áætlun áður en lagt er af staö aö heiman. Ef margt er að skoða á einum staö þá dvelur maður kannski í þrjár nætur, en kemst af með eina nótt á öðrum stað. Gist er á góðum hótelum og þetta kerfi veitir verulegan afslátt frá venjulegu gistiverði. The City Chambers er ráðhús Glas- gowbúa. Hvarersótið og sk'rturinn? En látum þetta nægja um kerfið. Það er hvort sem er svo einfalt og þægilegt að engar áhyggjur þarf af því að hafa. Eg sagði i upphafi að okkur hefði kom- iö margt þægilega á óvart í Skotlandi/ Glasgow til dæmis. Satt bezt aö segja stóð ég í þeirri trú að Glasgow væri heldur leiðinlegur bær, hafði heyrt sögur um að þar væri sót og skítur, slömm og umhverfið heldur óyndislegt. En þaö var nú eitthvað annaðsem blasti viðsjónum: Fallegar breiögötur, hver skrúðgarðurinn eftir annan, golfvellir, reisulegar bygg- ingar og hreinlæti á háu stigi. En hvemig stóð á þessu? ,,Á síðustu árum hefur orðið gjör- breyting á borginni. Við erum búnir að þvo sótið af gömlu húsunum og það er bannaö að kynda með kolum. Það er búiö að rífa mest af gömlu hverfunum og stórátak gert í að fegra umhverfiö á allan hátt,” sagði Chris Day, DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR12. JUNI iM?. 15 stendur við George Square. Viktoria drottning opnaði húsið með mikilli viðhöfn árið 1888. Það er byggt í ítölsk- um renaissancestíl og ítalskir meistar- ar önnuðust skreytingar, meðal annars með ítölskum marmara. Glæsileg og sérstæð bygging sem allir ættu aö skoða. Og Chris fór með okkur í „The Museum of Transport”. Þar mátti sjá einstætt safn gamalla bíla, jám- brautarvagna, strætisvagna, reiðhjóla og vélhjóla að ógleymdum skipalfkön- um. Við fómm líka á „Pollok House”. Þetta er gamalt óðalssetur og hefur að geyma mikið af gömlum málverkum, meðal annars eftir meistara eins og E1 Greco, Goya og Murillo. Ennfremur eru þama dýrindishúsgögn, silfur og postulín. Garðar em margir í Glasgow, eða samtals um 70. Þar em litlir golfvellir, blómaskrúð og ýmis tæki til afþreyingar, enda era garðamir mikið sóttir af borgarbúum og gestum. Ogrynni verzlana og veitingastaða er að finna í Glasgow. Þótt af sé sú tíð er Islendingar fóm hópum saman í sérstakar verzlunarferðir til Glasgow má enn gera þar góð kaup. I nágrenni borgarinnar er mikið af sögufrægum byggingum og fallegum stöðum sem vert er að heimsækja. En sjón er sögu ríkari og þeir sem vilja vita meira verða bara að drífa sig á stað. Aviemore Centre og /nverness Við vomm snemma á fótum næsta morgun. Lestin til Invemess átti að fara klukkan 7.40. Það var bót í máli að það ágæta hótel sem við gistum, North British, Hotel, er fast við jámbrautar- stöðina. Ekki mátti þó tæpara standa aö við næðum lestinni, en þaö tókst og við hreiðruðum um okkur í þægilegum klefa. Farþegar voru fremur fáir svo við höfðum klefann út af fyrir okkur. Á leið til Invemess ætluðum við að staldra við í Aviemore, en þar er mikil ferðamannamiðstöð sem var byggð upp af engu ef svo má segja. Eftir tveggja tíma ferð um akra og engi, þorp og bæi gerði lestin óvæntan stanz. Kom í ljós að eimvagninn hafði bilað og varð klukkutíma bið meðan annar eimvagn var sóttur. En viö létum þaö ekki á okkur fá frekar en aörir farþegar. Fengum okkur snarl í veitingavagninum og biðum rólegir. Til Aviemore komum við um hádegi, settum töskurnar í geymslu á járnbrautarstöðinni og röltum að Aviemore Centre. Allt fram til ársins 1960 var Aviemore bara smáþorp á landakorti. Þá var hafizt handa um að byggja annan bæ, ef svo má segja, rétt við þorpið. Og þessi bær er sérbyggður fyrir ferðamenn sem þangaö sækja jafnt sumar sem vetur. Þama em hótel, veitingahús, verzlanir, ráð- stefnusalir, sundlaug, skautahöll og hver veit hvað. Mörg leiksvæði eru fyrir börn, þar á meðal jólasveinaland, bílabrautir og raunar flest sem nöfn- um tjáir að nefna. Heimamenn tjáöu okkur að allmargir Islendingar hefðu dvalizt þama um lengri eða skemmri tíma á liönum ámm. Meðal annars við skíðaiðkanir á vetrum og þótti þeim það kyndugt að Islendingar sæktu til útlanda á skíöi. Er við vorum þama á ferð var frekar fátt gesta, enda sumarumferðin ekki hafin, en skíöafólk löngu fariö heún. Allmargt fólk var þó í skautahöllinni og lék leik þann er það nefndi „curling”. Hann er í því fólginn að þungu hringlaga stykki á stærð við meðalpotthlemm er ýtt úr vör frá öömm enda salarins. I hinum endan- um er svo málaður hringur. Galdurinn er fólginn í því að hitta í hringinn eða sem næst honum. En ef einhver heldur að þetta gerist án tilþrifa þá er sá illa svikinn. Einn sér um að ýta stykkinu á stað, en síðan eru einn eða tveir í því að hlaupa með því vopnaðir nokkurs konar kústum. Þeir fægja svellið eins og óðir menn þá leið sem hlemmurinn rennur og reyna þannig að sjá til þess að hann renni alla leið í mark. Virtist þetta óhemjuvinsæll leikur sem bæði ungir og gamlir tóku þátt í af lífiogsál. Já það var svo sannarlega nóg við að vera í Aviemore, en við ætluöum til Invemess og héldum því áfram ferð- inni eftir að hafa fengiö okkur risahamborgara á góðum veitingastað í Aviemore. inverness Leiðin lá áf ram í norður fram hjá ám Golfvöllurinn iSt. Andrews er velþekktur meðalgolfmanna víða um heim. og vötnum, skógum og bændabýlum. Til Invemess komum við um kvöld- matarleyti, en sá bær er óopinber höfuöstaður skozku Hálandanna. Invemess er einstaklega fallegur gamall bær sem stendur við ána Ness. Þama er allt morandi í sögulegum minjum og menn reiðubúnir að fræöa gesti og gangandi um orrastur fýrri daga þegar Cromwell og aörir kappar riðu sem hetjur um hérað. Það er nóg um að vera í og við bæinn, hvort sem menn vilja leika golf, renna fyrir fisk, skoða sig um á göngu eða fara í lengri eða skemmri ferðir um nágrennið. Frá Invemess em allar leiðir greiðar um Skotland, meira að segja allt norður í Orkneyjar. Og ekki er langt að fara ef menn vilja freista þess að berja skrímslið í LochNess augum. En þótt fagurt sé á þessum slóðum stefndi hugur okkar feðga áfram í norður og hærra í Hálöndin. Næsta dag stigum við upp í lest sem flutti okkur vestur yfir þver Hálöndin allt til bæjarins Kyle of Lochalsh. Isle ofSkye Lestin silaðist upp Hálöndin og þræddi dali og skorninga þar sem því var við komið. Eftir því sem ofar dró minnti landslagiö meira á Island, heiðar og hálsar,klettarog mýraflákar á víxl, lækir og ársprænur. Þarna var víða fagurt um að litast og nægur tími til að virða fyrir sér útsýnið. Ekki höföum viö langa viðdvöl þegar til Kyle of Lochalsh kom. Fengum okkur bilaleigubil og ókum rakleitt niður að ferjulæginu. Eyjan Skye var þama skammt undan landi og þangað höföum við ætlað okkur áður en kvöld- aði. Brátt lagði ferjan að, en hún er í stöðugum ferðum þama á milli og tekur siglingin innan viö hálfa klukku- stund. Við ókum rakleitt til þorpsins Broadford, þegar út í eyjuna kom, en þar áttum við pantaða gistingu á Broadford Hotel. Þetta var gott hótel en gestagangur ekki byrjaður. Fyrir utan okkur feðga virtust einu gestimir vera öldruð brezk hjón með hund sinn. Isle og Skye er af mörgum talin feg- ursta eyja Skotlands og ég hefi enga ástæðu til að rengja þaö. Þama em nokkur þorp og bæir og flest húsin virð- ast ævagömul. Við ókum norður til bæjarins Portree þar sem höfnin er umlukin háum klettum og minnti helzt á þær hafnir er smyglarar fyrri daga sóttust eftir að hafa bækistöðvar í, samkvæmt þeim ævintýrabókum sem Valurkunni utanað. Náttúrufegurð er víða einstök á Skye og auðvelt að ferðast þarna um. Áætlunarbifreiðar ganga milli staða og nóg er af litlum og þægilegum hótelum fyrir nú utan tjaldstæði, nánast hvar sem er. Eyjaskeggjar stunda búskap og fiskveiðar og virðast lítt gefnir fyrir að taka nýjustu tækni í þjónustu sína á öllum sviðum. En þeir eru gestrisnir og stoltir af eyjunni sinni. Hótelhaldar- inn á Broadford Hotel sagði aö straum- ur feröamanna færi minnkandi, að minnsta kosti um stundarsakir. Hann tilgreindi einkum þrjár ástæður: Hátt bensínverð (hvað megum við þá segja!) mikið atvinnuleysi, sem drægi úr feröalögum, og svo var eitt til við- bótar: Sú gamla kynslóð Breta sem hafði það fyrir sið að koma norður til Skotlands á hverju sumri og dvelja þar vikum saman, er að deyja út. Yngra fólkið hefur ekki tíma til slíks eða sækir annaö. En þaö var auöséö að hótelhaldarinn var ekki á þeim buxun- um aö leggja árar i bát og vann að endurbótumá hótelinu af kappi. „Afhvorju ti/London?" Nú var runninn upp fjórði dagur Skotlandsheimsóknar, fimmtudagur. Við feðgar ákváðum að reyna að ná til London um kvöldið og eiga þar einn dag áður en flogið yrði heimleiðis. En þaö er löng leiö frá Isle of Skye suöur til London. Við skildum bílinn eftir í Broadford og ókum með áætlunarbíl um fögur sveitahéruð til ferjustaðarins Arma- dale.ÞaðanvarsigltyfirtilMallaig á vesturströnd Skotlands og eim stigið upp í lest sem flutti okkur til Fort William. Þaðan ætluöum við að taka aðra lest til Glasgow eða alla leið til Lundúna. Leiöin frá Mallaig til Fort William er einstaklega fögur. Skógi klæddar hlíöar, stöðuvötn og firðir þar sem f jöllin spegluðust í víkum og vogum. Þama hefði verið gaman að dóla um á bíl og stanza þar sem hugurinn gimt- ist. En lestin hélt sínu striki þótt hægt færi. Ég gaf mig á tal við lestarvörð og spurði um líkur á að ná til London um kvöldið. Vöröurinn, sem var maður nokkuð við aldur, horfði á mig undr- andi og spurði: „Hvað ætlið þið að gera til London? Er eitthvað að því að vera hér? Ekki sjáið þið þessa fegurð í London,” og hann benti út um glugg- ann. En ég sagði að við þyrftum nú samt að komast til London því þaðan færam við fljúgandi heim. Vörðurinn hristi sitt gráhærða höfuð og sagði með samúöarsvip: „Þið getiö tekið kvöld- lest í Fort William og veriö komnir til London snemma í fyrramálið. Það hlýtur að nægja ykkur. Þetta er brjáluð borg,” sagði Skotinn og dæsti. En við ákváöum að breyta til. Stigum upp í áætlunarbíl í Fort William og ókum með honum til Glasgow. Þar náðum við síðustu flug- vél til London um kvöldið. Ekki gafst tími til að skoða Fort William þennan vinalega bæ sem kúrir undir fjallinu Ben Nevis en það er hæsta fjall Bret- lands. Heimsókn þangaö verður að bíða betri tíma. Skotiand ferðamannsins Skotland hefur flest að bjóða sem ferðamenn sækjast eftir. Þar er úrval gististaða, mikil náttúmrfegurö, urmull veitingastaða og sérstætt mannlíf, ekki sízt til sveita. Islend- ingar eru sérstaklega velkomnir í Skotlandi og litið á þá sem vini og jafn- vel frændur. Sú ákvörðun Flugleiða aö hefja aftur flug milli Keflavíkur, Glasgow og Kaupmannahafnar hefur vakið mikla ánægju skozkra feröa- málamanna. British Airways höfðu bolað Islendingum burt af leiðinni frá Glasgow til Kaupmannahafnar, en gáfust svo upp á að halda uppi flugi þarna á milli. Góðir golfvellir Skotlands eru þekktir um allan heim. En það er hægt aö gera miklu meira en leika golf. Það er hægt að sigla, veiða, fara í útreiðartúra, skoða náttúruna, spjalla við innfædda á vinalegum krám og yfirleitt láta sér líða vel á hvem þann hátt er menn kjósa. Sennilega er leitun að jafnglæsilegum sveitahótelum eins og sjá má í Skotlandi, gamlar bygging- ar með stórum herbergjum þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en jafnframt séð fjrir öllum þægindum nútímans. Skotlandsferð verður öllum ógleymanleg. Það var skemmtileg tilviljun, að þegar við komum heim og afhentum f öggur okkar til tollskoðunar sagði toll- vörðurinn brosandi: „Er þaö sem mér sýnist, feðgará ferð?” -SG. . M, INVERNESS Chris Day, ferðamálafulltrúi i Glas- gow. Þeir sem hafa komið á skozku vikurnar á Hótel Loftleiðum muna eflaust eftir Chris, iklæddum skota- pilsi. Ferðamál Sæmiindur Guðvinsson ferðamálafulltrúi í Glasgow, er hann sýndi okkur borgina. En Glasgowbúar hafa ekki bara rifiö niöur og skúraö., Þeir hafa líka gætt þess að raska ekki heildarsvip borgarinnar. Gamlar reisulegar byggingar eru rifnar niður innan frá, en forhliðin látin standa óbreytt. Til dæmis mátti sjá ákaflega virðulegt hús við eina aöalgötuna, en þegar nær kom sást að það var framhliðin ein sem uppi stóð eins og leiktjöld. Bak við hana var verið að undirbúa byggingu á nýju húsi, en nota átti sömu framhlið. Ef einhver heldur að Skotar geri þetta af annálaöri spar- semi þá er það á misskilningi byggt. Þetta kostar meira, en Glasgowbúum er annt um að varðveita það bezta af því sem gefur borginni gamla reisn og erþaðvel. Svipazt um íGlasgow Það er innan við tveggja klukku- stunda flug frá Keflavík til Glasgow sem er stærsta borg Skotlands. Það er því ekki vegalengdinni fyrir að fara. Við dvöldum daglangt í borginni og reyndum að sjá sem mest. „The City Chambers” er ráðhús borgarinnar og

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.