Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1982, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1982, Síða 16
16 DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR12. JUNI 1982. Eyjamenn fjölmenna jafnan á bryggjuna er bátarnir koma að landi með þátttakendur og afla þeirra úr hvitasunnumóti sjóstangaveiðimanna. D V-myndir (juðmundur Sigfusson. „Þó þótti ehhi vei Aishapu r að veiða þorsh á stöng... en viðhorfin hafa mthlð breytzt” — rætt við ferska reiðihappa á sjóstangaveiðimðtinu er fram fór í Vestmannaeyjum um hvítasunnuna Sjóstangaveiðimenn í Vestmanna- eyjum héldu um liöna hvítasunnu sitt árlega sjóstangaveiðimót. Veður var mjög óhagstætt mótsdagana, eða suöaustan átta til tíu vindstig. En sægarpamir létu það ekkert á sig fá og sóttu stíft báða dagana sem mótið stóð yfir. Hvitasunnumót sjóstar.gaveiði- manna er orðið árviss viðburður í Eyjum. Fjöldi þátttakenda mætir ávallt til leiks, víðs vegar af landinu. Að þessu sinni voru þátttakendur fimmtíu talsins og var róið á átta bátum. Gaman að koma til Eyja „Þaö er ákaflega gaman að koma hingaö til Eyja. Hér er gott fólk og staöurinn heillar mig,” sagði Andri Páll Sveinsson frá Akureyri. Hann reyndist aðalsigurvegari mótsins að þessu sinni. „Við stundum þetta sport grimmt fyrir norðan. Erum enda með öflug- asta sjóstangaveiðifélag landsins. Mótin hjá okkur fara fyrirleitt fram út frá Dalvík og er aðallega veitt í kringum Hrísey. Dalvíkurmótin eru alltaf á haustin og eru ein tuttugu ár frá því þauhófust. Hér í Eyjum eru mun fleiri fisk- tegundir veiddar en nyrðra og gerir það mótin hér eftirsóknarverðari,” sagði Andri ennf remur. „Eg stunda einnig laxveiðar, en það er ekki hægt að líkja þessum tveimur greinum saman. Þaö er auövitað mjög gaman aö veiöa laxinn, en maður fær keppnina að auki á sjóstangaveiði- mótum. Þar er oft mikil keppni, jafn- vel viö erfiöar aðstæður eins og til dæmis að þessu sinni — vitlaust veöur allan tímann.” Evrópumót hérlendis é næstunni Á hvítasunnumótunum í Eyjum er keppt um ýmsa titila. Er keppni bæði milli einstaklinga og sveita. Aflahæsti báturinn fær einnig sín verðlaun. Þá eru veitt verðlaun fyrir stærsta fiskinn sem veiðist, auk þess stærsta fiskinn af hverri tegund. Andri var spurður hvað væri fram- undan hjá sjóstangaveiðimönnum á næstunni. „Það sem er efst á baugi hjá okkur er aö fá hingað til lands Evrópumót einhvem tíma á næstunni. Mótið yröi væntanlega haldiö á Eyja- fjarðarsvæöinu. Þess má geta að þrjú Evrópumót hafa þegar farið fram hér á landi, síðast hérlendis árið nítján hundruð sjötíu og fjögur. En þá fór það fram á Akureyri. Það er því kominn tími tO að glíma við það verkefni á ný,” sagði Andr; PáU Sveinsson aö lokum. Maöurinn á bak við hvítasunnumót sjóstangaveiöimanna undanfarin ár er án efa Magnús Magnússon í Eyjum. DV náði tali af honum í glæsilegu lokahófi sjóstangaveiðimótsins sem haldiö var að kvöldi hvítasunnudags- ins. Bæjarbúar hlógu að tiltækinu... „Eg byrjaði í þessu áriö nítján hundruð sextíu og eitt. Þá hélt Flugfélag Islands hér mót og e'innig á árunum par á eftir. Þau mót voru fyrst og fremst auglýsingar- herferö hjá Flugfélagsmönnunum. Aðalskipuleggjendur þá voru þeir Njáll Símonarson og Sveinn Sæmunds- son, þá starfsmenn hjá Flugfélaginu. I beinu framhaldi af þessu móti, eöa vorið nítján hundruð sextíu og tvö, var stofnað hér Sjóstangaveiðifélag Vest- mannaeyja. Það er óhætt að segja að sá hópur er stóð aö stofnuninni hafi ekki verið tekinn alvarlega í fyrstu, Englendingurinn Rex Fearnehough sá ekki aðra leið færa til að komast inn fyrir tvö hundruð mílurnar en að taka þátt i sjóstanga veiðimótinu. Texti: Friðbjörn O. Valtýsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.