Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1982, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1982, Blaðsíða 25
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR12. JUNI 1982 hnsveit er éins. ítddarflokk99 Ian: „Þetta er ein ástæðan fyrir því að við erum alveg ópólitískir í textum okkar.” Ætlaði í lögguna Textinn aö laginu „I am the law” fær sérstaka umfjöllun og Philip segist hafa ort hann til fólks sem gagnrýnir lögregluna án þess að hugsa út í það hvemig ástatt væri án hennar. „Ég er ákaflega ábyrgur piltur og ætlaði meira að segja að ganga í Lundúnalög- regluna.” „Þessi er nú alveg nýr,” segir Jo- anne og hlær lengi. Ian bætir við að ef ætti að yrkja um þá ósk, að best væri að lögreglumanna gerðist ekki þörf, yrði kvæðið bæði langt og flókiö. „Við erum öll raunsæ,” segir Philip „og það eykur samstöðuna í hljóm- sveitinni. I flestum hljómsveitum er til fólk sem ekki getur haldið sig á jörð- inni ” „Strákamir komu heim til pabba og mömmu,” segir Joanne, „Philip var málaður og með hárið sítt öðrum meg- in, en þeir töluðu lengi við foreldra mína og þeim fannst þetta indælis stráklingar. Foreldrar okkar Sus- anne töluðu við kennara okkar og öll- um fannst að við myndum hafa gott af aö sjá okkur um í Evrópu. Við fórum svo aftur í skólann til að ljúka próf- um.” Allir hljómsveitarmeðlimir em sam- mála um að rík geti þau ekki talist enn þrátt fyrir mikla sölu á plötunum. Stelpumar búa enn hjá foreldrum sín- um og strákamir leigja. Joanne segir foreldrana vera orðna vana heimshornaflakki sínu en auðvit- að vilji allir foreldrar sjá dætur sinar í aðstoðarmaður, sem mættur er til skrafs og ráöagerða, segist þess full- viss að Kláus láti sig ekki vanta á hljómleikana. „Eg hafði heyrt um þorskastríðin,” segir Philip og Ian bætir við að frétta- flutningurinn af þeim hafi bent ein- dregið til þess að hér væri fólk haldiö þó ndíkurri drápsfýsn. I ljós kemur að Adrian, sem sér meðal annars um myndræna hlið hljómleikahaldsins, er menntaður í kvikmyndagerð. Honum sýnist væn- legt að gera kvikmynd á Islandi. Hér segist hann hafa séð eyðimörk á leið- inni frá Keflavík og hún hafi sem betur fer verið laus við símastaura og annað sem þvælist fyrir við gerð kvikmynd- ar. Spennandi vikur og erfíð tímabil Á milli þeirra sést ian og fyrir aftan hann eru Jo, Susanne og Joanne. Hvað um hárgreiðslu Philips, sem lengi vel var stuttklipptur öðmm meg- inn en með sítt hár í hinni hliðinni? Var hún ekki stæling á Screaming Lord Sutch? Philip: „Hef aldrei heyrt á manninn minnst.” Adrian: „Manngreyiðhefur ekki unnið sér neitt til frægðar síðan 1963, og var reyndar ekki mikill bógur í rokkinu þá. Þegar Alice Cooper kom fram á sjónarsviöiö sagðist Sutch hafa gert ailt sem Cooper gerði áður. Nú reyndi hann bara að fleyta sér á frægð Philips.” Innblásturúr ýmsum áttum Skrifið þið tónlistina eöa textana fyrst? „Það er allur gangur á því,” segir Philip og Adrian kinkar kolli til sam- þykkis. Eru textarnir hlaönir boðskap og tjáningu eöa er þetta bara orðagjálf- ur? Philip: „Ég held að í eyrum hlustenda séu þetta ekki annaö en orð.” Joanne: „Viö erum mjög ósammála um þetta. Eg sat oft heima viö plötu- spilarann með plötuumslag í höndun- um og samdi mínar eigin sögur um Ieiö og ég hlustaði og las textana. Oft emð' þið strákarnir líka að skrifa um eigin tilfinningar.” Ian: „Þessum textum er ekki ætlað að hrífa fólk neitt sérstaklega. Þetta er ekki skáldskapur á borð viö gríska harmleiki. Textamir eru bara skáld- skapur frá brjósti okkar hér í hljóm- sveitinni og hefur merkingu fyrir okk- ur, — þetta höf ðar ekki til allra. ’ ’ Adrian: „Don’t you want me” er um kvikmynd, „Seconds” er um Lee Harwey Osvald, sem skaut Kennedy. Allir textarnir fjalla um ákveðiö efni nema ef til víll „Open your heart” sem Philip samdi í einum hvelli. I viðlaginu skellti hann bara inn einhverju sem passaöi við laglínuna.” Philip: „Við setjum nöfnin okkar við textana því þeir eru mjög persónuleg- ir. Við erum ekki sammála um neitt nema það sem allir með heila geta ver- ið sammála um. Þaö eru alltaf tvær hliðar á hverju máli, og ef eitthvað er slæmt þá er það fólk sem sér ekki nema einn punkt og tekur harða af- stöðu út frá honum.” Hefur frægð og f rami reynst meðlim- um hlj ómsveitarinnar erf iður? Jo: „Nei, viö höfum aldrei gert neitt sem viö vildum ekki gera.” Philip: „Auðvitað hljóta þeir sem kom- ast eitthvað áfram að geta gert hluti sem þeir hafa gaman af.” Adrian: „Við héldum nú einu sinni hljómleika með alveg hryllilegri bandariskri hljómsveit. Eg vil helst gleymaþví.” Philip: „Það er spennandi að vera í hljómsveit. Áður vann ég í fjögur ár á spítala, og starfið var ágætt, en ívið andlaust, svo ég fór að hugsa um fram- tíðina. Eg get sagt það satt að síðan ég byrjaði í Human League hefur hver vika verið spennandi. ” Jo: „Þú leggur ekki af stað með fram- ann í huga, heldur feröu af stað vegna þess að þig langar til að gera hlutina. Við myndum halda áfram með hljóm- sveitina þó okkur yrði ekkert ágengt. Annað væri tímasóun. En auövitað koma erfið timabil hjá okkur.” Philip getur ekki stillt sig um að hnýta því aftanvið aö viss tímabil séu alltaf erfið hjá Jo. Til dæmis hver ein- asti morgunn. Ekki síst fyrir þá sök að morgnar hans hefjast að jafnaði klukk- an tvö eftir hádegL íhljómsveit með leyfípabba ogmömmu Frægðin kom reyndar beint upp í hendurnar á Susanne og Joanne, eins og Joanne lýsti í upphafi viötalsins. Fyrir þær var erfiðast að fá samþykki foreldranna til að ganga í hljómsveit og að f á sig lausar úr skólanum. Susanne hefur um tíma verið orðuð við Mike Noian i Bucks Fizx en óvist mun hvort hún er á leið i höfn hjónabandsins. öruggri höfn hjónabandsins. Susanne tekur hjartanlega undir og Philip segir þetta ekki gilda um stúlkur eingöngu; svona hafi foreldrar sínir líka alltaf lit- ið á málið. Við þessi orð skella allir uppúr og milli hláturskviðanna segir Ian að Philip hafi ekki haft langa við- dvöl í þeirri höfn. Sannleikurinn er nefnilega sá að Philip var giftur en hjónabandið fór útumbúfur. Sánkti Kláus áhljómleika í Höllinni Nú er kominn galsi í mannskapinn. Þegar umboösmaðurinn vindur sér inn á Vínlandsbarinn, og segist hafa tekið flugvél á leigu til útsýnisflugs og skoð- unarferða, færist enn meira f jör í liðiö. Þau vilja ræða um ísland og Joanne segist hafa haft áhuga á að koma hing- að vegna þess aö hún hafði aldrei séð skerið. „Hér eru líka heimkynni jóla- sveinsins og þegar ég var lítil hélt ég að hér byggju eskimóar.” Philip mótmælir þessum ummælum Joanne og segir Sánkti Kláus búa á Norðurpólnum. Skoðun hennar verður hins vegar ekki haggaö og íslenskur íslandi veitt athygli Plata Human League komst snemma hátt á vinsældalista hjá Bretum, en Islendingar voru fljótir að taka við sér og platan komst hér á toppinn á eina opinbera vinsældalist- anum, lista Dagblaðsins og Vísis. Vinsældimar á Islandi segir Philip hafa verið góð tíðindi fyrir hljómsveit- ina og vakið áhuga hennar á landinu. Löngu og ströngu hljómleikaferða- lagi Human League lýkur í Laugar- dalshöll. Að tónleikunum hér loknum liggur leiðin heim til Sheffield. Lokaspurningin er hvort ekki hafi margt breyst í lífi fólks sem verður allt í einu að stórstjörnum. „Eg held að við tökum ekki eftir um- skiptunumsjálf,” segir Joanne. „Mörg smáatriði hljóta að hafa tekiö breyt- ingum. Líklega taka aðrir en við betur eftir þessu.” „Bræður mínir verða oft fyrir því að smástelpur banka uppá hjá þeim, ein- göngu vegna þess að þeir eru bræður mínir,” segir Philip. Við vonum að bræðurnir fyrirgefi Philip þetta ónæði sem hann veldur þeim og viötökumar heima í Sheffield verði góðar. -SKJ. ^lllupP. ,» Vidtal: Solveig K. Jénsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.