Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1982, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1982, Side 27
DAGBLAÐIÐ & VISIR. LAUGARDAGUR12. JUNI 1982. arr Þær fjórar almennu skrár, sem þegar hafa verið taldar, munu vera helztar þeirra er gefnar hafa verið út erlendis og varða Island, íslenzk málefni og bókmenntir að verulegu leyti. Vmsar smærri skrár eða bóka- listar eru þó vel þess virði að þeim sé haldið fram og verður nú getið nokkurra. Die Literatur fiber die Polar-Regionen| der Erde. Von Dr. Josef Chavanne, Dr. Alois Karpf, Franz Ritter v. Le Monnier. Herausgegeben von der k.k. Geographischen GesellschaR in Wicn. (XIV, (2), 355, (1) s.). Wien, 1878: (SamhljóAa tltilblað einnlg á ensku). I formála þessa rits er frá því greint að Dr. Chavanne hafi lengi haft uppi áform um að safna saman hinum ýmsu ritum um pólarsvæði jarðar og skrá þau á kerfisbundinn hátt. Hinsvegar hafi mjög árangurs- ríkur austurrísk-ungverskur rann- sóknarieiðangur í norðurhöf orðið honum hvatning að hrinda þeirri hugmynd í framkvæmd. Víða var leitað fanga eftir efni og varð árang-. urinn 6617 skráningar, hvert rit skráð á númer en aftast registur yfir höfunda þar sem vísað er til rita þeirra. Sérstakur kafli (VII.) er yfir Island, númerin 2128—2758 eða þar alls 631 titill en auk þess eru á öðrum stöðum ýmis rit varöandi Island að meira eöa minna leyti. Hér er þvi um allviöamikla heimild eldri bóka og ritgerða að ræða, sem m.a. oft er vísað til í erlendum bóksöluskrám. Thomas William Lidderdale. Catalogue of the Books Printed in Ice- land from A.D. 1578 to 1880, in the Library of the Brithsh Musernn. Londonl885. (50) s. Eins og nafn bókaskrár þessarar sýnir hefur hún að geyma bækur prentaðar á Islandi og því að lang- mestu leyti íslenzkar bækur í eigu safnsins fram til 1880. Hinsvegar er enginn vafi á, að þjóðarbókhlaðan hefur þá átt fjölda bóka á íslenzku og um Island á öðrum málum, prentaðar erlendis, sem hefur ekki verið ætlaður staður hér. Telst mér að hér séu skráðir 360 titlar tímarita og bóka sem að sjálfsögðu er verulegt magn í erlendu safni á þessu tímabili. Er ritunum raðað eftir útgáfutíma auk þess er ítarleg höfunda- og ritaskrá þar sem vísað er til aðalskrárinnar. Þá hefur skráin að geyma nöfn prentara frá upphafi og prentstaði, sem þeir störfuðu á, svo og biskupa landsins eftir siðaskiptin, en á þeirra vegum var prentun hér á landi frá upphafi og fram ef tir öldum. Daniei Willard Fiske. Bibilographicai Notices. I, IV-VI. Books Printed in Ice- land 1578—1844. First-fourth Supple- ment to the British Museum Catalogue. Florence 1886, 1889,1890, Itahaca, New York 1917. (Alls voru bæklingar þessir sex talsins, en tveir þeirra, H.-III., f jalla um annaA efni.) Augljóst er aö Willard Fiske hefur hrifizt af hinni ágætu bókaskrá British Museum, sem getið er hér næst á undan, enda kemur það fram í formála fyrsta heftis. Um þetta leyti stóð söfnun hans yfir af miklum krafti og við samanburð hefur honum orðið ljóst að verulega mætti bæta við skrá B.M. meö upplýsingum úr hans eigin safni. Ákvað hann því að gefa út slikan viðbótarlista sem reyndist ekki lítill alls 139 titlar. Eins og fram hefur komið urðu listarnir alls fjórir og höfðu þeir að geyma samtals 565 titla til viðbótar þeim sem skráðir voru hjá B.M. Athyglis- vert er einnig að Fiske taldi ekki þörf á aö taka meö bækur eftir 1844 þar sem auðvelt væri að afla upplýsinga um rit eftir þann tíma og raunar bók- anna sjálfra. Taldi hann þá (1886) að í safni sínu væri næstum allt sem prentað hefði verið á Islandi á þessu tímabili og heföi sú viðbót orðið of mikil. Fyrstu fimm bæklingana i þessari ritröð samdi W.F. sjálfur en við hinn síðasta lauk Halldór Hermannsson aö honum látnum og samdi registur yfir þá fjóra sem um ræðir. Uno von Troil. Brei rörande en resa tíl Island. MDCCLXXII. Uplagde af Magnús Swederus, Bokhandl. I Upsala MDCCLXXVn. ((2), 20, (2), 376, (2) s., kort, 11 myndir, 1 tafla). I lok ágúst 1772 kom hér skip að landi í Hafnarfjörð, „Sir Lawrence” og með því nokkrir sænskir og brezkir vísinda- og menntamenn. Var leiðangursstjóri og raunar kostnaöarmaöur ferðarinnar Sir Joseph Banks, enskur hefðarmaður, sem oft síðar tengdist íslenzkum málum en um það verður ekki nánar fjallað hér. Hinsvegar var með í ferðinni ungur sænskur mennta- er um aö ræða nokkrar skrár yfir söfn einstaklinga, aö vísu mikilla bókasafnara, og aöeins eina sem gerð er hliðstætt þeim erlendu er nefndar hafa verið. Á þessu verður hinsvegar ráöin mikil bót, áður en langt um líður, með útgáfu nýrrar skrár á vegum Landsbókasafns Islands um allar kunnar íslenzkar bækur frá upphafi til 1844 en það ár var eina þáverandi prentsmiðja landsins flutt úr Viðey til Reykja- víkur, sem almennt eru talin mikil tímamót í íslenzkri prentsmiðju- sögu. Vona allir bókamenn, að síðan verði skammt í næsta áfanga islenzkrar þjóðbókaskrár. I Helgafelli — tímariti um bók- menntir og önnur menningarmál, II. árg., 4.-6. hefti, apríl-júní 1943, birtist grein eftir Þorstein Þorsteinsson, sýslumann: Bókasöfnun og bókamenn (bls. 186— 194). Er þar gefið glöggt yfirlit yfir ýmsa mestu bókamenn landsins frá fyrstu tíð og fram til samtímamanna Þorsteins. Að vísu eru hverjum einstökum gerð mjög lausleg skil, en þó er mikill fengur að upplýsingum þessum, sérstaklega varðandi afdrif hinna ýmsu safna. Þá hafa núlifandi í bókamenn við lestur þessarar greinar Þ.Þ. tækifæri til að rifja upp og kanna afdrif þeirra bókasafna sem á hans tima þóttu hvaö mest og merkilegust. Hinsvegar verður nú vikið að þeim bókaskrám sem boð- aðarhöfðuverið. Skrár yfir bókasafn Jóns Þorkelssonar, rektors. Reykjavík. PrentsmiAja Reykjavíkur. 1904.176 s., k. I fyrmefndri grein Þ.Þ. um safn þetta segir svo: „Jón Þorkelsson (1822—1904), rektor latinuskólans, mun hafa átt stærst bókasafn hér búsettra manna á 19. öld en allmikill hluti þess voru útlendar bækur, og — Böðvar Rvaran skrlfar um bækur og bókmenntlr maður, Uno von Troil, er ritaði merka bók um f erðina. V ar hún fljót- lega þýdd á helztu tungumál Evrópu- lailda, ensku, frönsku, þýzku og holl- ensku en á íslenzku kom hún fyrst í þýðingu Haralds Sigurðssonar, Rvk. 1961. Því er þessarar bókar getið að í sænsku frumútgáfunni var birtur listi yfir 105 rit varðandi Island frá upphafi til þess tíma og í öllum fjórum ensku útgáfunum, London 1780 (tvær úg.), og 1783, ennfremur Dublin 1780, var sami listi en nokkru lengri eða 120 rit. Var þess jafnframt getið að þessi listi næði til allra höf- unda er nokkurt gildi hefðu fyrir Island eða málefni sem á einhvern hátt tengdust því landi. Þegar hér er komið sögu hefur verið minnzt á flestar helztu almennar skrár útgefnar erlendis sem ekki eru bundnar við ákveðin afmörkuð tímabil eöa bókmennta- svið og því nánar tengdar öðrum við- fangsefnum en þessu. Liggur því næst fjTÍr að gera lauslega að umræðuefni nokkrar hliðstæðar íslenzkar bókaskrár en þar er enn sýnum fátæklegra umhorfs. Er staðan raunar þannig nú að einungis bar þar einkum mikið á hinum róm- versku og grisku höfundum. I safni hans var einnig mjög margt fágætra íslenzkra bóka, en ekki virðist þó rektor hafa safnað íslenzkum bókum markvisst, nema málfræði. Átti hann hið ágætasta safn orðabóka og íslenzkrar eða norrænnar málfræði og málfræði annarra tungna sem Islendingar höfðu gefið út. Bókasafn þetta var selt á uppboð nokkru eftir aldamót (1909), og hygg ég, að flest betri bókasöfn hér, opinber og ein- staklinga, eigi fleiri eða færri bækur úr því búi, og sumar þeirra eru þær, sem þar þykja einna merki- legastar.” Um bókaskrána er það að segja, að henni er skipt í tvo megin flokka; I. Islenzk og norræn rit og n. Utlend rit. Er fyrri flokknum síðan skipt í 10 undirflokka og þeim aftur flestum í nokkrar greinar. Er sá hluti alls 1749 titlar en síðari megin hlutinn 1147 titlar eða alls 2896 skráðar bækur og verk. Skrá þessi ber öll einkenni þess að hafa verið samin vegna sölu safnsins, enda kom hún út sama ár og eigandi þess lézt. . Böðvar Kvaran. 27 GARÐPRÓFASTAR Stöður garðprófasta fyrir stúdentagarðana Gamla Garð og Nýja Garð, svo og Hjónagarða, eru lausar til umsóknar. Umsóknir skulu berast framkvæmdastjóra Félagsstofnunar stúdenta fyrir 1. júlí nk. Rannsóknastofnun landbúnaðarins auglýsir eftir ritara. Enskukunnátta æskileg. Laun skv. launakerfi ríkisstarfsmanna. Umsóknir sem tilgreini fyrri störf sendist fyrir 22. júní nk. Upplýsingar í síma 82230. ö Dagskrá Llstahátíður , íReykjfavík, Laugardagur 12. júni kl. 16.00 Norræna húsið TRÚÐURIIMN RUBEIU Siðari sýning sænska trúðsins Rubens. UPPSELT kl. 20.00 Þjóðleikhúsið BOLIVAR RAJATABLA-leikhúsið frá Venezuela. Leikstjóri: CARLOS GIMÉNEZ Síðari sýning. kl. 21.00 Laugardalshöl! HLJÓMLEIKAR Brezka popphljómsveitin THEHUMAN LEAGUE Siðari hljómleikar. Sunnudagur 13. júní kl. 15.00 Hóskólabió TÓNLEIKAR KAMMERSVEIT LISTAHÁTÍÐAR skipuð ungu islenzku tónlistarfólki er leikur undir stjórn Guðmundar Emilssonar. kl. 21.00 GAMLA BÍÓ AFRICAN SANCTUS Passíukórinn ó Akureyri Mánudagur 14. júní kl. 20.00 Þjóðleikhúsið FORSETI LÝÐVELDISINS Rajatabla-leikhúsið frá Venezuela. Leikstjóri CARLOS GIMÉNEZ Fyrri sýning. kl. 20.30 Laugardalshöll SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS Stjórnandi: DAVID MEASHAM. Einleikari: IVO POGORELICH. Rossini: Forleikur. Chopin: Pianókonsert nr. 2 i F-moll. Joseph Haydn: Sinfónia nr. 44 í E-moll. Francic Poulenc: Dádýrasvita. KLÚBBUR LISTAHÁTÍÐAR í FÉLAGSSTOFNUN STÚDENTA VIÐ HRINGBRAUT. i Matur frá kl. 18. Opið til kl. 01.00. 5 Sunnudagur: Rajatabla — suður-amerísk tónlist. ✓ Mónudagur: Tríó Jónasar Þóris. 4- V) 8 H- k. (0 Midasalan í Gimli vid s ♦3 '<ö Lækjargötu Opinalla s (0 dagafrá kl. 14.00-19.30 □ ‘W I- Sttiti Listohótíöar O) (0 Q 29055 \RALLYl CROSS Islandsmeistarakeppni i Rallycross hefst sunnudaginn 13.6. kl. 14.00 i landi Móa á Kjalarnesi. Aðgöngumiði (kr. 35.00) gildir sem happdrættismiði. Hinn heppni gerist keppandi ó Railycross-bil BÍKR. Dregið kl. 13.50. Verður þú með? (Ath. börn 12 óra og yngri fó ókeypis aðgang í fylgd með fullorðnum). IVjAVVS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.