Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1982, Qupperneq 35

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1982, Qupperneq 35
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. LAUGARDAGUR12. JÚNI 1982. 35 Ég læt „Helgarvísur” hefjast aö þessu sinni meö stökum eftir Stefán frá Hvítadal, sem nefnast „Fram til heiða”. Síöasta vísan er kunn flestum, sem eitthvaö þekkja til skáldskapar. En hinar eru einnig slík listaverk, aö ég tel vel þess viröi aö birta allar í heild: Vœngir blaka, hefjast hátt, lieidi taka, þrárnar seióa. Sólheit vakir sunnanátt, svanir kvaka franx til heida. Blána fjöll og birtir nótt, brak og sköll unx heiöarlendur. Vatnaföllin vaxa ótt, vetur höllum fœti stendur. Týnast rökin — vonlaus vörn. Vor kann tökin, fannir sjatna. Sveimar vökull auónarörn yfir þökum silungsvatna. Gott um veiði, gnœgðir þar, grœnar breiður undan fönnum. Eilt sinn heiðaauðnin var eina leiðin sekum mönnum. Þessum hlóðu örlög óð, einir stóðu, lögin fengu. Drifnir blóði daggarslóð dalsins hljóðu synir gengu. Óskamiðið oftast var efslu rið í fjallasalnum. Opnast hliðin þöglu þar þeim, sem friði týna i dalnum. kangt til veggja, heiði hátt. Hugann eggja bröttu sporin. Hefði' ég tveggja manna mátt, mundi ’ eg leggjast át á vorin. Sjálfsagt þykir mér, aö eitthvað af léttara tæinu komi á eftir kvæði Stefáns. Ymsir hafa gaman af að taka þekktar ljóðlínur stórskáldanna og yrkja viö þær. Þetta finnst mér nú bara saklaust gaman, og held ég, að engum finnist slíkt nein misþyrming á góöum og frægum kvæöum eða vísum. „Kumpán” sat yfir glasi og kvað, heiU- aður af kvæöinu „Skjaldbreiður”. ,,Mjög þarf nú að mörgu að hgggja,' meyjan hvílir fögur hér. Ef hxin skyldi eitthvað þiggja. ,,engin vœttur grandar mér. " Prófessor nokkur (ekki má ég láta nafns hans getið) var eitt sinn á ferða- lagi um Miöjaröarhafsströnd og kom til Kaprí. Uppi á loftinu heima hjá honum hér á Islandi bjó góð vinkona hans. Prófessorinn sendi henni póst- kort meö þessari vísu á; hann söng þetta undir laginu Steinka Rasín: Vel er ort og vel er sopið, vel er etið og gert hitt. Miðjarðarhafið mcenir opið minnandi á yndið þitt. Andrés Björnsson útvarpsstjóri er vel hagmæltur. Eitt sinn sátu tveir full- trúar í útvarpsráöi og fóru þeir mjög í pirrurnar á Andrési. Eftir einn út- varpsráösfund, þar sem mikið leiöindaþras var, orti Andrés: Leiðist mér og likar ei að lifa meðal varga. Aflur geng ég, er ég dey, og ætla ’ að drepa marga. Eitt sinn fóru blaðamenn (og líklega nokkrir alþingismenn) til Þýzkaiands. Þeir voru með Gullfossi og komu að landi í hafnarborg nokkurri. Á þessum tímum voru þjónar Gullfoss mjög frægir fyrir „mannelsku”. Um kvöldiö fóru blaöamennirnir á einhvern ákveö- inn skemmtistað, en þar voru þjónarn- ir af Gullfossi fyrir og „knúsuöu” hver annan í vangadansi. Stefán Jónsson fréttamaöur útvarpsins var meöal blaöamannanna og orti þessa vísu, en hann sagði mér, að hann heföi alls ekki verið einn um hana: íslendingum Amor stríður ýmsar fremur glennur. Enginn veit hver öðrum. . ., áður en dagur rennur. Þótt Páll Olafsson yrkti margt fag- urt og vel gert, hefur hann verið tals- verður prakkari í yrkingum og eru ófá- ar „snyrtilegar” vísur til eftir hann. Eitt sinn voru hjú hjá honum, sem hétu EinarogGunna. Pállkvaö: Vá fer Einar upp i hús að elta Gunnu. Setur spons i sina tunnu. Hjá Páli hafa verið vinnuhjú, sem voru kölluð Ormur og Lauga. Og Páll kvaö: Hc Iffttrvísur Mun nú ekki mál ad lauga Midgards-Orniinn. Mér finnst sárt ad sjá hann garminn svona rétt vid laugarbarminn. Eftir svona eina viku eda átta daga muntu med þann orm í auga allar nœtur dansa Lauga. Og Páll orti þessa vísu um heilsufar sitt: Aldrei bilar beitiharkan í besefanum. Eg er frá í útlimonum öllum nema bara honum. Stefán Stefánsson frá Móskógum orti: Um ágirnd mannsins oft er rœtt og ýms hann medul noti: Gydingur í adra œtt, en í hina Skoti. Egill á Húsavík Jónasson er líklega höfundur þessarar vísu um Karl heit- inn Sigtryggsson: Upp laukþyrstur auguni tveim, ekki lystarsnaudur. Med kjaftinn fyrstan kom í heim Kommúnistaraudur. Vilhjálmur Hulter kvaö þessa vísu: Veröld fláa sýnir sig, sú mér spáir hördu, flest öll stráin stinga mig stór og smá á jördu. Níels skáldi Jónsson mun hafa ort þessa vísu, og held ég að hún sé úr rím- umeftir hann: Ég ad öllum háska hlæ á hafi Sóns óþröngu. Mér er sama nú hvort næ nokkru landi'eda öngu. Sigurbjörn á Fótaskinni kvaÖ: Hér ég bíö vid hættuslríö, heimskan þýdist vana, lífsþví kvídi langri tíö, langtum sídur bana. AldraÖur maöur skrifar ,,Helgarvís- um”: ,,Eftirfarandi vísu læröi ég ungur og var hún kölluö húsgangur. Ég mun hafa veriö kominn fast á fimmtugsald- ur, þegar fróöur maöur benti mér á, aö jvísan væri úr „Gunnarsrímu” og höf- lundur Siguröur Breiöfjörö. Rímuna hef aldrei heyrt eöa séö.” Vísan, sem lér um ræöir, er þessi: Og Björg botnar: Ymislegt ég á mér finn, sem eykur hroll og kvíóa, samt er heidur himinninn, hlýja og sumarblída. Vor í lofti lífgar sál, landid fer ad risa. Svona dýrdleg sumarmál sælt er ad þakka og prísa. /lalda velli herrar enn, liorn þótt skelli á nösum. Ef ad kellur angra menn þeir í sig hella úrglösum. Meira virdi audsæld er innri ró og fridur. Ad geraþad, sem gera ber, gengur upp og nidur. Eg þakka Björgu innilega þennan kveðskap hennar og biðst afsökunar á, að hann skuli ekki hafa verið birtur fyrr. „Kennari” skrifar: „Fyrir nokkrum árum gekkst Davíð Oddsson og fleiri fyrir því, að Indriða G. Þorsteinssyni yrði falið aö skrifa ævisögu Jóhannes- ar Kjarvals. Indriði átti sjálfur aö til- greina, hve mikinn tíma ævisöguvinn- Þegar talað var mikið um það, að Framsókn væri opin í báða enda, fóru fram kosningar. Þá kvað Böðvar Guö- laugsson: Flest þykir nú til fjörugra kosninga benda, flokksvélar allar löngu komnar af stað. Maddama Framsókn er opin i báða enda og ætlast að sjálfsögöu til að menn noti sérþað. Og alltaf eru til vísur eftir Harald Hjálmarsson: Aftilhlökkun titrar minn barmur, ég trúi, að sálinni hlýni, er hátt lyflirhœgri armur heilflösku ’ af brennivlni. Og enn kveður Haraldur: Það er vandi að velja sér vífi slandi þrifa, en ólánsfjandi, ef illa fer i því bandi að lifa. I vísunni er sennilega átt við það, er Gunnar kvæntist Hallgerði. Sami maður segir ennfremur: „Flestir kannast viðgátuna: „Hver er sá veggur víöur og hár”. En hve marg- ir munu vita, að hér er upprunalega um enga gátu að ræða heldur gamalt rímnaerindi, þar sem kveðið er um múra Miklagarðs. Veggurinn bæði viður og hár, vœnum settur röndum, gulur, rauður, grænn og blár, gerður af meistarahöndum. Hátt og hvelft er á þér enni og ekki’erþér um málið tregt, en að þú sért mikilmenni mér Finnst það nú ótrúlegt. örn Arnarson kvaö, og eiga orö hans ekki sízt við nú á dögum: Hljótast lítil höpp afþví: heimskan nýtir frónska hvern þann skít, sem okkur í ú t lend grýt ir flónska. Og Örn Arnarson kvaö: Mér vard allt ad ís og snjó. Oft var svalt í förum. Ekki skaltu undrast, þó andi kalt lír svörum. Meistararnir, sem þarna er talað um, voru að sjálfsögðu byggingar- meistarar, sem í þann tíð nutu vegs og viröingar.” -0- En nú er komið að aðsendu efni. Björg Bjarnadóttir, Freyjugötu 49 (hún segir: „ekki full undirskrift”) sendi mér ágæta sendingu, en af klaufaskap hefur dregizt hjá mér að birta það, sem hún sendi þættinum. Björg kveöur: Hlónxin fölna og missa mátt. mjötlin þekur sporin. Sjaldan fylgir sunnanátl sólinni á vorin. an tæki og fá kaup eftir því.” Um þetta. kveður sá er kallar sig „kennara”. Yfirtók hann íhaldsstefnan, er honum þvi biti vís. Eftir þetta ýtar nefna ’ ’hann ekki, .þjófi Paradis' ’. Það skal tekið fram, að umsjónar- manni „Helgarvísna” er með öllu ókunnugt mál þetta. Margrét Olafsdóttir skrifar mér ágætt bréf. Hún segir, að eitthvað hafi misritazt hjá sér í botni, sem ég fann að, við fyrripartinn: Vor í lofti lífgar sál/landið fer að rísa. Hún segist hafa ætlað að leggja Jóni Hreggviðssyni orö í munn (sjá: landiö fer að rísa), og hefði vísan þá átt að vera svona: Vor í lofti lífgar sál, landið fer að rísa. ..Loksins fæ ég mat í mál og mjöðinn franska prísa. ” (Þetta höföar auövitað til þess, er þeir drukku og átu saman nafnarnir Hreggviösson og Marteinsson í Kristínar doktors kjallara.) En Margrét bætir viö (ég sagöi i þættinum, að mér virtist á skriftinni, að hún væri mjög ung að árum): Og Skúli minn, þú gerir nú vitleysur líka, sem sjá má á þessari: Hnekkireiþitt skriftarskyn skrxxmbans vissu kaldri: ,, Unga stúlkan ", elsku vin, er á fimmtugsaldri. Nú Margrét hefur heillað mig og villt um fyrir mér með skrift sinni, svo að ég klambra þessu saman: Þínum beitturþrungnum galdri þoli ég enga bið. Nettum frúm á fimmtugsaldri fúlsa ég ekki við. Og Margrét botnar: Nefið kitlar löngum létt lítil dægurfJuga. Tizkuhölda fiýgur frélt frárri nokkrum huga. Og Margrét botnar enn: Ríkir neyð í heimi hér, þótt hugann leiði að þvi fáir. Illa meiður mannkyns fer, marga deyða hungttrljáir. lí) gefa út blað er býsna golt, bara ef vel það dugar lil að færa vizkuvolt veröld annars hugar. Meira rirði auðsæld er innri ró og friður. Von og gleði víða ber vorsins þýði kliður. Ennþá riða vísnasmíð vekur lýðiint gaman. Þvgar liðin brosir blið. bögur riðum saman. Svona botnar Margrét og virðist henni ekki láta illa að kveða dýrt. Bréfin frá lesendum berast nokkuð skrykkjótt til mín, t.d. fékk ég samtim is tvö bréf frá Margréti nú meö tveggja daga millibili, þótt iangt liöi á milli, aö hún skrifaði. Ekki skal ég fullyröa. hverju um er aö kenna, en hér kemur ein vísa úr síðara bréf i hennar: Hugsunar- er háltur klúr hátt á siðgæðisins vegitm, ef að lesti leslu úr lausavísum snyrlilegiim. En Margrét Olafsdóttir er ekki eina skáldkonan, sem sendir „Helgarvís- um” stökur. Það viröist svo, aö konur viröi mig og þáttinn meir en karlar. Guðrún Siguröar., Hvolsvelli, sendir mér vísur, og birti ég hér tvær þeirra, þar sem hún á varpar mig: Skeltiþvíáþíniim liuppi þekkur sófl hins nrðaslynga. létti þér að leita tippi ..landsins bezlu liagyrðinga." Skúli, elskan, ekki fyrtasl, égþótt svariþér sem léllast. Kostir málsins mestir birtasl, markviss orð er saman fléltast. Svo koma hér fyrripartar, hinn fyrsta gerir Guörún Siguröar: Ljúfra stunda liðin kynni Ijónia vefja ævidaga. Margrét Olafsdóttir gerir þennan fyrripart: Viltu láta Ijósið þitt lýsa mér um veginn. Margrét gerir og þennan fyrripart (hringhenda): Vísnasóðinn verður æ vondur Ijóðasmiður. Og Margrét ætlast til að einhverjir lesenda geti ort sléttubönd, því að hún sendir þennan fyrripart: Landið sólin kyssir kát, kemur tíðin bjarta. Þetta held ég, að reynist mörgum erfitt viðfangs. Umsjónarmaður „Helgarvísna” hefur aldrei fyrr dirfzt að reyna við aö yrkja sléttubönd. En samt ríður hann á vaðiö með þessum lélega botni: Vandið hólið. gefið gát göfgu, blióu hjarta. Margrét Olafsdóttir segir eitthvaö á þá leiö, að fyrst mínar „snyrtilegu” vísur séu að verða uppurnar, þá láti hún mér eftirfarandi vísu í té. Hún segir tilefni vísunnar vera uppsteyt kvenna viö karlmenn (sennilega á hún við kvennaframboöið o.fl.). En vísa hennar er afbragðsgóð og hljóðar svo: Þó að linni ekki enn uppistandi, öllum konum eru menn áriðandi. 4. júní Skúli Ben.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.