Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1982, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1982, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIÐ & VISIR 169. TBL. 72. og 8. ARG. — MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 1982. RITSTJÓRN SÍMI 86611 • AUGLÝSINGAR OG AFGREIDSLA SÍMI 27022 Vanskil í bönkum hafa aukizt mjög - áberandi hve margir láta lán sín liggja unz allt er komið í þrot Bankastjórar reyna að vera liprir „Jú, það er rétt aö vanskil hafa farið vaxandi að undanförnu, meira en verið hefur. Sérstaklega er áberandi hversu margir láta lánin liggja ógreidd án þess aö reyna að semja fyrr en allt er komið í þrot,” sagði Stefán Gunnarsson, bankastjóri í Alþýðubankanum, í samtali við DV. „Við erum alltaf reiðubúnir að liðka til fyrir þeim sem áhuga hafa á að semja. Ymist er þá borgað inn á eða lánin lengd eftir því sem hentar hverju sinni. Það er afar sjaldan að farið sé út í það að selja ofan af fólki. Þó kemur þaðfyrir.” Kristján Oddsson, bankastjóri í Verzlunarbankanum, taldi vanskil ekki áberandi mikið meiri nú en veriö hefur. „Viö reynum að gera fólki grein fyrir því þegar það sækir um lánin að lánskjör eru erfið í dag. Það er auðveldast fyrst, en þyngist svo þegar líða fer á afborganirnar. Við reynum að vera liprir, enda greinilegir efna- hagslegir erfiðleikar jafnt hjá ein- staklingum sem öðrum. „Ég vil nú ekki viöurkenna að nein stórkostleg aukning hafi orðið á vanskilum, en hún er einhver,” sagði Helgi Bergs, bankastjóri Lands- bankans. „Fólk er auðvitað alltaf að koma hér og biöja um breytingar á lánum. Enda er það bönkunum fremur áhugamál að hjálpa viðskiptavinum sínum en að hanka þá.” -JB. Einn kemur þá annar fer. Togari Bæjarútgerðar Reykjavíkur kom inn í gmr- morgun með afia en fyrr i nótt var Jón Baidvinsson dreginn út til Noregs. Til hiiðar við Ottó er togarinn Vigri sem einnig kom inn i morgun. Vigri nu emr að hafa komið með annan feng inn nýverið, skuttogarann Ými frá Hafnarfirði. DV-mynd S. Jón Baldvinsson til Noregs Jón Baldvinsson, togari Bæjarút- gerðar Reykjavíkur, hélt í nótt áleiðis til Noregs til viðgerðar hjá Wichmann- vélaverksmiðjunum. Togarinn verður dreginn til Noregs af björgunarskipinu Goðanum og er áætlað að ferðin taki fimmsólarhringa. Einar Sveinsson, framkvæmda- stjóri BtJR, sagðist ekki geta sagt hvemig tilboð verksmiðjanna hljóðaöi. „Við fengum þau orð frá samninga- mönnum okkar í Noregi að fengizt hefði viðunandi tilboð og var sagt að senda skipið af stað.” -ÖEF. Einvígisáskor■ unáSvein Egilsson — sjá bls. 3 Forsetinnfær nýjan Cadillac — sjá bls. 5 Égspáikyn- slóðaskiptum ískákinni — segir Margeir Pétursson — sjábls. 11 Þurfum að víg- búastgegn þessari Chicago- stemmningu — segja gullsmiðir — sjá bls. 2 Engar aögeröir veriö ákveönar — segir formaður Sjómannasambandsins eftirfund með sjávarútvegsráðherra „Ráðherra gerði grein fyrir þeim til- lögum sem hann hefur lagt fram í ríkisstjóminni um lausn á vanda togaraútgeröarinnar en við vorum að leita eftir því á hvem hátt þær snerta okkar umbjóðendur,” sagði Oskar Vig- fússon, formaður Sjómannasambands- ins, um fund þann sem hann átti með Steingrimi Hermannssyni sjávarút- vegsráðherra í gær. Oskar vildi ekki greina frá í hverju tiUögur þessar væru fólgnar en rætt hefur verið um að þær geri ráö fyrir 6,5% fiskverðshækkun sem ekki kæmi inn í skiptahlutfall sjó- manna. , .Ráðherra lofaði því að við myndum fá að fylgjast með framvindu mála og tók undir það að við ættum eðlilega kröfu á því.” Oskar sagði ennfremur að í framhaldi af þessum fundi þyrftu aðildarfélög Sjómannasambandsins að ræða sín mál en engar aðgerðir hefðu verið ákveðnar enn. Samningar sjómanna renna út 1. september en ef þeim er ekki sagt upp fyrir næstu mánaðamót framlengjast þeir um 6 mánuði. Stjóm Sjómanna- sambandsins hefur leitað eftir umboöi til að segja þeim upp. ÓEF.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.