Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1982, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1982, Blaðsíða 32
32 DV. IvOÐVIKUDAGUR 28. JUU1982. Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið KARÚLINA SKEMMTIR SÉR KONUNGLEGA EN GRACE FINNST ÞETTA EKKERT FYNDIÐ Foreldrar Karólínu prinsessu af Mónakó eru alveg í rusli þessa dagana út af ástarævintýrum hennar og argentínsku tennisstjömunnar Guill- ermo Vilas. Grace flutti fyrir nokkrum árum til Parísar til þess-' aö geta fylgzt betur meö hinum óstýrilátu dætrum sínum. Rainer fursti tekur þessu þó rólegar og heldur kyrru fyrir í dvergríki sínu Mónakó. Grace er ákaflega áhyggjufuU út af því hversu hátt Karólína lifir þessa dagana. Hún er á stanzlausu djammi með Vilas og þá hafa birzt af henni myndir þar sem daman er ákaflega fá- klædd. Á daginn flatmagar Karólína í lúxus- íbúö móöur sinnar í Paris en á næturaar læðist hún í nærliggjandi íbúö þar sem Vilas býr. Mónakóhjónin hafa líka átt í vand- ræöum meö örverpið sitt hana Stefan- iu, sem nú er orðin 17 ára. Hún var rekin úr virtum ríkisbubba- skóla vegna þess aö hún var löt og reykti eins og strompur. Hiö kaþólska hjarta mömmu hennar titrar af kvöl og angist. Helztu slúöurlúöar Parísar segja aö enginn vafi leiki á því aö hjóna- band Rainers og Grace sé lítiö oröiö annaö en nafnið tómt sökum þessarar erfiöleika. Sagt er að Rainer hafi ofdekraö Karólinu en Grace hafi veriö alltof ströng viö hana. Stelpan viti ekkert í hvora fótinn hún eigi aö stíga. Eftir aö Grace flutti sig yfir til París- ar sér hún ekki kallinn sinn nema á hálfsmánaðar fresti og er þetta orðið algerlega óviðunandi ástand fyrir Rainer. Þó hefur hann ekkert kvartaö opinberlega sjálfur þannig aö lítið er vitað hvað hæft er í þessum sögusögn- um. „Sally Hay er saklaus og ung stúlka" — segir gamli glamúrgæinn um ný/ustu kærustu sína. Richard Burton og Sally Hay gengu hönd í hönd í London á dögun- um. Hann leit ástúðlega til hennar og segir „okkar sambanderafarnáið.” Þau voru á leiðinni út í einkaflugvél kappans sem beiö þeirra á Heathrow flugvelli. Vinir hans velta því nú fyrir sér hvort Sally veröi næsta eiginkona hans. Svar Burtons viö þessu er: „hún er svo ung og saklaus. En ef ég giftist aftur þá veröur það Sally Þau hittust í Feneyjum þegar veriö var aö filma myndina „ Wagner í Vin” en í þeirri mynd leikur Burton aðalhlutverkið. Sally Hay sem er 34 ára gömul er, afar ástfangin af Burton kallinum og segir aö hann sé allt öðruvísi en fólk haldi aö hann sé. Hvað svo sem það þýðir! Því verður og ekki neitað að Sally Hay svipar mikið í útliti til Elisabetar Taylor þegar hún var upp ásittbezta. Britt Ekland hefur haldið sig við sama gæjann í næstum eitt ár. Sá heit- ir Da vid Morris, 33 ára og er sagður al- veg ægilega ástfanginn af Britt. En það tók hann langan tíma til þess að ná ástum hennar, hún leit ekki við kappanum fyrst í stað. Nú geta þau ekki fengið nóg hvort af ööru. Síöast sáust þau í sumarfríi á Ibiza og Britt sem heldur sér í góöu formi meö þvi aö iöka jassballett og likamsrækt er enn fallegri en áður. Britt segir aö þaö sé allt David aö þakka aö hún skyldi komast yfir það að missa Rod Stewart. Og nú segist hún gjörsamlega vera hætt sinni fyrri iðju aö daöra við unga ríkisbubba. Enn- 0 >MX' I fremur segist hún ætla að skrifa nokk- urs konar framhald af ævisögu sinni „Hin sanna Britt”. En sú bók olli því aö peningaveski Britt þykknaöi til muna. I haust verður Britt 40 ára en hún segist nú ekki hafa miklar áhyggj- ur af því. Enda viröist lífiö blasa viö Britt Ekland um þessar mundir. DEMANTS BRÚÐKAUP Hjónin Björn Björasson og frú Hulda Björnsson áttu demantsbrúökaup (60 ára hjúskaparafmæli) í gær, þriðju- daginn 27. júlí. Þau hjón eru mörgum kunn, en hafa búið um árabil í Eng- landi og þar eru dætur þeirra einnig. Meðfylgjandi mynd er af þeim hjónum Bimi og Huldu ásamt dætrum þeirra tveimur, Ingunni (til vinstri)|og Kristínu(til hægri). FORSETI KIWANIS Á ÍSLANDI Hörður Helgason á Hvolsvelli var nýlega kjörinn forseti Kiwanisklúbbs- ins á Islandi. Þessi atburöur átti sér staö á Kiwanisráöstefnu sem haldin var í Minneapolis í Bandaríkjunum í júní sl. Forseti Kiwanisfélaga um heim allan Mr. John T. Roberts kunngeröi þessi úrslit á ráöstefnunni. Ámyndinni má sjá Mr. Roberts þar sem hann afhendir Herði umboösskjal Kiwanis- hreyfingarinnar. Með þeim á mynd- inni eru eiginkonur þeirra Mrs. Patsy Roberts og Maria Helgason.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.