Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1982, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1982, Blaðsíða 36
NÝJA AGFAFILMAN ÓTRÚLEGA SKÖRP OG NÆM FYRIR LITUM ÓDÝRARI FILMASEM FÆST ALLS STAÐAR 86611 RITSTJÓRN SÍOUMÚLA 12—14 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA 33 SMÁAUGLÝSINGAR SKRIFSTOFA ÞVERHOLTI 11 27022 MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ1982. Skákmótid íBiel: Jón L. aftur á sigurbraut Jón L. Ámason er aftur á sigurbraut í opna skákmótinu í Biel í Sviss. I 8. umferð sem var tefld í gær vann hann Greenfeld frá Israel og hefur því hlotið 6 vinninga og er í 3. sæti ásamt nokkrum öðrum af 120 keppendum sem taka þátt í mótinu. Jón sagðist hafa teflt Sikileyjarvöm í gær og fljótlega unniö peö. And- stæðingur hans taldi sig fá mótspil sem ekkert reyndist vera. Jón vann síðan annað peð og þegar biskup Greenfelds var að falla gafst Israels- maðurinn upp eftir 32 leiki. Júgóslavinn Nemet gerði jafntefli í gær og er enn efstur með 6,5 vinninga. Jafn honum í 1.-2. sæti er Israels- maðurinn Gutman sem í gær vann góð- kunningja Islendinga frá síðasta Reykjavíkurmóti, Júgóslavann Sahovic. Þrjár umferðir eru nú eftir af mótinu. Margeir Pétursson tekur nú þátt í alþjóðlegu móti í Kaupmannahöfn og í 1. umferð vann hann sigur á sovézka alþjóðlegameistaranumKozlov. -GAJ. „Viðreisn” á Akranesi Á bæjarstjórnarfundi á Akranesi í morgun fékk Ingimundur Sigurpálsson viðskiptafræðingur í Framkvæmda- stofnun stuðning 5 bæjarfulltrúa af 9 sem næsti bæjarstjóri. Sjálfstæðis- flokkur og Alþýöuflokkur studdu hann. Fulltrúi þriðja meirihlutaflokksins, Al- þýðubandalags, bar fram tillögu um Rúnar B. Jóhannsson endurskoöanda, fulltrúa ríkisins í stjórn Flugleiða hf. Hann fékk einnig stuðning Framsókn- arflokksins, alls 4 atkvæði beggja flokka. 10 sóttu um stöðuna. Fulltrúi Alþýðubandalagsins kvaðst ekki taka afstöðu til frekari þátttöku í meirihlutanum. Það yrði gert á fundi bandalagsins. B.Á./HERB Banaslys í N-Múlasýslu Ingvar Halldórsson, 78 ára gamall bóndi á bænum Kóreksstöðum í Hjalta- staðahreppi í Norður-Múlasýslu, beið bana í vinnuslysi í fyrradag. Ingvar heitinn hafði verið að vinna við heybindivél og lent í henni með þeim afleiðingum að hann lézt. Hann hafði haldið í heyskap um morguninn og þegar hann kom ekki heim í há- degismat fór ráðskona hana að svipast um eftir honum og fann hann örendan við heybindivélina. Ingvar var ókvæntur og bamlaus. -GAJ. LOKI Það or breht bakið á Gunnari nú á ári a/draðra. KONA TYNDIST VIÐ MÝVATN — b jörgunarsveit fann hana í nótt Björgunarsveitin Stefán í Mývatnssveit var kölluð út um kl. 1.30 í nótt vegna konu sem týndist á tjaldstæðinu við Reykjahlíö. Konan fannst þó fljótlega en hún hafði brot- ið eða týnt gleraugum sír.um og átti erfitt með gang af þeim sökum. Konan, sem er islenzk og rétt um sextugt, hvarf af tjaldstæðinu á milli kl. 20 og 21. Þar sem hún var ekki komin aftur er klukkan var að ganga í tvö haföi eiginmaður hennar sam- band við Hörð Sigurbjamarson, for- mann björgunarsveitarinnar. Hann kallaði svo sveitina út til leitar. Mættu 19 manns og vora tveir sendir til leitar í Stórugjá en hinir héldu út að tjaldstæðunum, rétt við flugvöll- inn í Reykjahlíð. Þegar björgunar- sveitarmenn komu út úr bílunum sáu þeir mannveru á gangi í hrauninu þar skammt frá. Reyndist þar konan vera á ferð. Hún hafði farið í kvöld- göngu en dottið og brotið eða týnt gleraugunum en án þeirra sér hún illa. Hélt hún kyrru fyrir lengi vel en fór síðan af stað aftur og datt þá nokkrum sinnum. Var hún skrámuð á hendi og í andliti er björgunar- sveitarmenn fundu hana en að öðru leyti við sæmilega heilsu. -Finnur, Reykjahlið. Hún var Ijót aðkoman að fjörunni útí A Granda i gær aftír að vörubílstjóri hafði sturtað þar fiskúrgangi. Svartbakurinn lók að visu á als oddi en mannskepnan var ekki eins ánægð með verknað bíistjórans. Var lögreglan kölluð tíl og kom þá i Ijós að biistjórinn hafði sturtað úrganginum í fjöruborðið i óþökk vinnu- veitenda sinna. Hefur biistjórinn ekki sáð ástæðu til að framfylgja fyrirmælum þeirra. enda mun hann hafa verið að fiýta sórí sund. DV-mynd: S Kjarasamningar farmanna: „Lokatilraun gerðámorgun” „Þetta gengur voða erfiðlega,” sagði Guðlaugur Þorvaldsson ríkis- sáttasemjari þegar samningafundi farmanna og útgeröa lauk klukkan átta í morgun eftir samfellda setu í 22 tíma. „Við gerum lokatilraun eftir há- degi á morgun. Ef hún ber ekki árangur, verður bara að skella á verkfall,” sagði Guðlaugur ennfremur. Það eru ýmis atriði sem virðast illleysanleg í þessum samningum. Þar á meðal eru lífeyrismál og tilhögun vinnutíma. Að óbreyttu veröur allsherjar- verkfall á kaupskipaflotanum hér heima 3. og 4. ágúst að undangengnu staðbundnu yfirvinnubanni. Farmenn hafa ekki ákveðið frekari verkfalls- aðgerðir enn. -HERB. Ríkissáttasemjari færenga hvfld: Fundir með BSRB hefj- ast í dag „Það er engin miskunn, ég skauzt heim til þess að búa mig undir næstu lotu og núna með BSRB og viðsemjend- um,” sagði ríkissáttasemjari, Guðlaugur Þorvaldsson, þegar DV ræddi við hann árla í morgun. Þá var hann nýkominn af farmannafundinum sem stóð frá því í gærmorgun. Guðlaugur bjóst við talsverðum fundi í dag, því á morgun verður hald- inn fundur með fulltrúum starfs- mannafélaga sveitarfélaganna og viðsemjendum. Þar verða rædd mál sem leysa þarf í samhengi við BSRB- samningana. Og eftir þann fund á morgun ætlar Guðlaugur að halda áfram þreif ingum í farmannadeilunni. Með meginkröfum BSRB er launa- jöfnuður við starfsmenn á almennum vinnumarkaði og 8 þúsund króna lág- markslaun á mánuði. Þá er þess kraf- izt að nýr og réttur vísitölugrunnur verði tekinn upp og verðbætur verði greiddar óskertar á laun. HERB. ÞÓRSMERKURGESTIR GRQÐA GJALDIÐ MEÐ GLÖDU GEÐI — Björgunarsveitin til aðstoðar um helgina „Með tilliti til góðrar reynslu af störfum björgunarsveitarinnar Dag- renningar í Þórsmörk undanfamar helgar höfum við ákveðið að hafa gæzlu þar um næstu helgi. Björg- unarsveitin hefur staöið sig með prýði og veitt mörgum ferðamannin- um aðstoð og leiöbeiningu,” sagði Valgeir Guðmundsson lögregluþjónn á Hvolsvelli í samtali við DV. Hann sagði einnig aö fólk heföi verið mjög fúst að greiða það gjald sem björgunarmenn innheimta af ferðamönnum fyrir inngöngu í Mörk- ina. Ekki heföi komið til neinna árekstra vegna innheimtunnar. Eins og greint var frá í DV kom til ágreinings um gjaldtökuna þegar rúta frá Ferðafélaginu fór í Þórs- mörk fyrir tveimur helgum. Neitaði Ámar i Þórsmörk hafa oft reynzt ferðamönnum þungar i skautí. Björgunarsveitín Dagrennlng á Hvolsvelli hefur undanfarið haldið uppi gæziu á svæðinu. Ákveðið hefur verið að svo verði einnig um næstu helgi, með tíllití tí! góðrar reynslu. þá einn farþeganna fyrir hönd hinna að gjaldið yrði greitt. Var það látið átölulaust. ,,Fólk hefur flest skilning á því aö mikla nauðsyn ber til þess aö gæzla sé þama á staönum. Ámar geta verið hættulegar, eins og margoft hefur sýnt sig. Á föstudagskvöldið síöasta festust tvær rútur i Krossá i Langadal, sem oít hefur reynzt ferðamönnum þung í skauti. Viö búumst við miklum mannsöfn- uöi í Þórsmörk um verzlunarmanna- helgina og teljum því brýna nauösyn á að björgunarsveitin verði á svæð- inu. Það er gott fyrir fólk að geta leit- að til kunnugra, ef eitthvað bjátar á,” sagöi Valgeir að lokum. -GSG.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.