Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1982, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1982, Blaðsíða 12
12 Útgéfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. sgómarformaflur og útgéfuatjóri: SVEINN R. EYJÚLFSSON. Framkvœmdaatjórí og útgéfuatjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritatjórar: JÚNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aflatoflarritatjóri: HAUKUR HELGASON. Fréttaatjóri: JÚNAS HARALDSSON. Auglyaingaatjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P: STEINSSON. Rltatjóm: SlDUMÚLA 12-14. SÍMI 88811. Auglýalngar: SÍDUMÚLA 33. SiMI 27022. Afgralflala, áakrittlr. améauglýalngar, akrifatofa: PVERHOLT111. SÍMI27022. Siml ritatjómar 88811. Satning, umbrot, mynda- og piötugarfl: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA 12.Prentun: ARVAKUR HF., SKEIFUNN119. Aakriftarverð é ménufli 120 kr. Varð i lauaaaölu 9 kr. Halgarblað 11 kr. _ Offors Grænfriðunga Alvarlegir hlutir eru aö gerast varöandi hvalveiðar íslendinga. Fyrst samþykkir Alþjóðahvalveiðiráöið al- gjört bann viö hvalveiðum frá og með 1986, síðan lýsir Bandaríkjastjórn því yfir að gripið verði til refsiaðgerða gagnvart þeim þjóðum sem virða hvalveiðibannið að vettugi. Refsiaðgerðimar yröu í því fólgnar að banna fiskinnflutning frá þessum sömu þjóðum. Af þessu hvorutveggja er ljóst að hér er ekki gamanmál á ferðinni. Menn hafa auðvitað fylgst með baráttu Græn- friðunga fyrir verndun hvalsins, og minnast tilrauna nokkurra áhugamanna til að trufla íslenska hvalveiði- báta við veiðar undanfarin ár. Af þessu hafa verið óþæg- indi, en ekki bein hætta, og í raun og veru hefur varla hvarflað að nokkrum manni að aðgerðir Grænfriöunga leiddu til algjörrar stöðvunar á hvalveiðum hér við land. Hvalveiðar hafa lengi verið stundaðar af Islendingum en engan veginn í stórum stíl. Eitt fyrirtæki, Hvalur hf. hefur einbeitt sér að þessum veiðum og hefur sá atvinnu- rekstur verið myndarlegur og arðsamur. Tugir manna hafa haft vinnu og afkomu ,,af hvalnum”, þjóöarbúið hef- ur haft umtalsverðar tekjur af hvalafuröum og ekki ann- að vitað en skipulega og skynsamlega hafi verið staðið að öllum rekstri. Því er stundum haldið fram að veiðiaðferð- in sjálf sé. villimannsleg og úr því þarf að bæta. Hvalur- inn er skepna en hann er ekki skynlaus og ómannúðlegar aðferðir við hvaladráp eru óþarfar ef önnur veiðitækni er tiltæk. Aðalatriðið er þó að íslendingar hafa virt veiðikvóta og niðurstöður þeirra vísindamanna sem lagt hafa á ráðin um hvalveiðar. En friðarsinnar skeyta því engu hvað vísindamenn segja, hvað þá að þeir taki tillit til atvinnu og afkomu fjölda manns hér á norðurhjara. Smám saman hafa þeir lagt undir sig Alþjóðahvalveiðiráðið og þar sitja nú í meirihluta þjóðir, sem engra hagsmuna hafa að gæta, sem hvergi hafa nálægt hvalveiðum komið. Nú síðast gengu í ráðið níu ríki og ekkert þeirra stundar hvalveiðar. Af fróðum mönnum er fullyrt að aðild að hvalveiðiráöinu gangi kaupum og sölum enda virðast friðunarsinnar hafa gnægð fjár og næsta auðveldan aðgang að ríkistjórnum landa sinna. Stærstu hvalveiðiþjóðirnar, Japanir og Norðmenn, hafa þegar lýst yfir því að þær muni að engu hafa bann hvalveiðiráðsins, þær taki ekki þátt í slíkum skrípaleik. I lengstu lög eiga Islendingar að taka tillit til alþjóða- samþykkta. I þeirri von að viti og vísindum verði fylgt á þessum vettvangi, eigum við ekki að hundsa samþykktir hvalveiðiráðsins. Einkum og sér í lagi er það áríðandi ef Bandaríkjastjórn er alvara í því að loka fiskmörkuðum vestan hafs gagnvart þeim þjóðum sem virða bannið að vettugi. En við eigum að nota tímann til að sannfæra bæði Bandaríkjamenn og aðra um þá staðreynd að Islendingar virði veiðikvóta, hafi ekki og ætli ekki að ofbjóða eða eyða hvalastofnum þeim sem við veiðum. Við eigum að sýna fram á að það eru Grænfriðungar sem sækja fram með offorsi gagnvart íslenskum hags- munum en ekki við gagnvart hvalnum. Kunn er sú þjóð- saga, þegar hvalurinn gleypti Jónas. En er það ekki full- langt gengið ef íslenska þjóðin er öll komin í hlutverk Jónasar? ebs. DV. MIÐVHCUDAGUR 28. JULl 1982. Betri bær—betri miðbær KJALLARAHVELF- INGAR UNDIR HALLÆRISPLANI OG NÁGRENNI Aukum nýtingu þessa svæöis um 8000—10.000 f ermetra gólfflöt. Þetta svæði þar sem nú er hallæris- planið, var áður fyrr einn þéttbyggð- asti blettur landsins. Þarna var mið- stöö bæjarlífsins — þama var Hótel Island — þarna var Nýja bíó, þarna var dansstaður og þarna var vegleg- asti veitingastaður landsins. Vöru- húsiö eitt glæsilegasta verslunarhús hérlendis var einnig staðsett á þess- ari lóð. Eg er á því að ef við viljum endurreisa miöbæinn, gera hann að alvöru höfuöborgarmiðbæ, þá sé eðli- legt að 30-falda notkunarhúsnæði á þessu svæði — hallærisplani og Stein- dórs-lóð miöaö við þaö sem nú er. Á þennan hátt einan yrði þetta svæði hlutfalislega jafn þýðingarmikiö í bæjarlífinu og áöur var. Þá fengi þessi bæjarhluti aftur þann hlýlega þéttbýlisblæ, sem áður ríkti, þar sem vingjamlegt mannlíf gæti þróast. Þetta svæði er nú ömurlegasta og eymdarlegasta svæðið í öllum mið- bænum. TJtlit þessa svæðis vekur undmn og fyrirlitningu flestra utan- bæjarmanna sem koma hingað í bæinn. Það er því nauðsynlegt að uppbygging þama sitji fyrir öllum öðmm skipulagsverkefnum og að fé sé varið til þessarar uppbyggingar, áöur en varið er fé af hálfu bæjarins til nokkurra annarra framkvæmda. Það mun vera staðreynd að hvergi í hjarta höfuðborgar svokallaðs sið- menntaðs ríkis finnist slíkur minnis- varði um smekkleysi, spillingu og sinnuleysi yfirvalda og þetta svæði ernú. Þótt lóð sé í eigu ríkis eöa bæjar er það engin afsökun fyrir því að hún sé ónotuð og óhirt. Auk þess að vera al- gjört siðleysi er meðferö þessarar lóðar, hallærisplansins, óforsvaran- leg meðferð á almannafé. Það er skylda borgarstjórnar, ríkisstjórn- ar og bankanna að hlutast til um að þarna verði endurbyggt á glæsilegan hátt. Það verður að útrýma þegar í stað þessu smánarmerki á Reykja- vík og íslensku þjóðinni. Ástandið eins og þaö er nú á þessu svæði, sýnir fyrirlitningu ráðamanna á höfuð- borginni og á íslenska rikinu, fyrir- litningu á heiðri þjóöarinnar. Þaö er nauðsynlegt að varðveita aö vissu marki þaö svipmót miðbæj- FYLKJUM LIÐI GEGN KJARN- ORKUÓGNINNI Það er í senn ánægjulegt og áhyggjuefni að vita hve fjarlæg vopn og vígbúnaður eru Islendingum. Við höfum boriö gæfu ril aö setja aldreiá stofn herogblessunarlega sloppið viö áþreifanleg stríösátök. öll umræða um vopn, gerð þeirra og beitingu, er flestum landsmönnum f jarlæg — við höfum ekki reynt nein striðsátök á eigin skinni og er það vel Það er jákvætt hve fjarlægðin hefur aö þessu leyti gert islensku þjóðina áhugalausa um vopn og stríð. Við erum laus við allt það hug- arvíl sem fylgir slikum hörmungum. En það er galli á gjöf Njarðar. Mörgum landsmönnum er fjandans sama um þessar friðarumræður og vangaveltur um vígbúnað. Islending- ar hafa enga reynslu af vígbúnaði og stríðsátökum og hafa af þeim sökum engar áhygg jur. Menn segja sem svo að þessi mál komi okkur ekkert við, þau kosta okkur hvort eð er ekki neitt. Meðal landsmanna er aöeins fá- mennur hópur hugsjónamanna sem nennir að sinna friðarmálum og stugga við samlöndum sínum þegar blikur eru á lofti. Hugsjónamennirn- ir sem andæfa gegn vígbúnaði eru síður en svo f jölmargir hér á landi. Það er svo sem ekki aö furða. Hug- sjóna bíður ætíð annaö tveggja: að hverfa að eilífu i gleymskunnar haf, eða þær verða raunveruleiki (og þá auðvitað ekki hugsjónir lengur). Af- Kjallarinn Jón Ásgeir Si&urðsson staða manna til málefna sldptist oft eftir þessum nótum. Sumir eru hug- sjónamenn og aðrir eru raunsæir. Flestum lætur betur að vera raunsæ- ismenn, þeir vilja hafa það sem er fýrir hendi, áþreifanlegt og raun- verulegt. Hugsjónamenn eru þess vegna ætíð fámennur hópur, sama hvert málefnið er. Vex friðarhreyfing? Fjöldahreyfingar vaxa einungis fram vegna stjórnmálalegrar óþreyju. Skilyrði fyrir slíkri óþreyju eru kröfur eða stefnumið sem hug- sjónamenn hafa sannfært fjöldann um. Séu slikar kröfur greinilega rétt- mætar og nægilega áþreifanlegar — snerti þær fólk í landinu að ráöi — þá skapast áður en langt um líöur stjóramálaleg óþreyja. Fólk vill að eitthvað gerist. Þá fyrst hafa skap- ast skilyrði fyrir f jöldaaðgerðum og öflugumþrýstingi á stjórnvöld. £ „ Fj öldahreyfingar vaxa eintmgis fram vegna stjóramálalegrar óþreyju. Skilyröi fyrir slíkri óþreyju era kröfur eða stefnumiö sem hugsjónamenn hafa sannfært fjöldann um. Séu slíkar kröfur greinilega réttmætar og nægilega áþreifanlegar, skapast áður en langt um líður stjórnmálaleg óþreyja. Fólk vill að eitthvað gerist,” segir Jón Ásgeir Sigurðsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.