Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.1982, Qupperneq 16
16
DV. MIÐVIKUDAGUR 28. JOLI1982.
Spurningin
Ætlarðu að taka þátt í ann-
arri umferðinni í Heima-
bingói DV og Sjálfsbjargar
sem hefst 9. ágúst nk.
niugi Eysteinsson verkamaður: Veit
þaö ekki. Stunda það mjög litiö að spila
í bingóum. Og aldrei veriö svo heppinn
að vinna. Nei, tók ekki þátt í fyrstu um-
ferðinni.
Sveinn Jóhannsson pípulagningamaö-
ur: Það getur vel verið. Spila mjög litið
í bingóum en þó kemur það fyrir.
Aldrei verið svo heppinn að vinna.
Bragi Þorsteinsson verkfræðingur: Ja,
ég hef nú bara ekki heyrt um þetta
bingó fyrr. Og reikna ekki með að taka
þátt í því. Spila aldrei í bingóum.
Steinn Karlsson lögregluþjónn: Nei,
það ætla ég ekki. Hef ekki tíma. Starfs-
ins vegna er ég á flækingi úti á landi og
sé því ekki DV nógu reglulega til að
taka þátt í leiknum.
Guðmundur Arason verkamaður:
Reikna ekki með því. Konan tók þátt í
fyrstu umferðinni og hafði mjög
gaman af. Reyndar hefur hún mjög
gaman af að spila í bingóum. Sjálfum
finnst mér þetta ekki eins spennandi.
Guðgeir Jónsson iþróttakennari: Nei,
það ætla ég ekki að gera. Spila nefni-
lega aldrei í bingóum og hef aldrei
gert.
Lesendur Lesendur Lesendur
Hjólreiöamenn
borgí tryggingar?
Jóhanna Ragnarsdóttir hringdi:
Mig langar til að segja frá
óskemmtilegri reynslu er ég varð fyrir
nýlega.
Umrætt atvik henti mig á Hverfis-
götu. Var ég að ganga út á götuna
þegar hjólareiöamaður kom á miklum
hraöa og hjólaði mig niður. Míu-ðist ég
illa og auk þess eyðilögðust buxumar
mínar. Þrátt fyrir að hjólreiöamaður-
inn hefði hjólað mig niður þá hug-
kvæmdist honum ekki að athuga hvort
ég hefði meitt mig, heldur hjólaði hann
áfram eins og ekkert hefði í skorizt.
Eg vil því spyrja þá sem um þessi
mál fjalla hvað ég geti gert frekar
vegna þessa atviks. Hverjir bera til
dæmis ábyrgðina? Og hvernig er með
tryggingarnar? Er fólk tryggt fyrir
áföllum sem þaö hlýtur af völdum hjól-
reiðafólks?
Spurt er hvort fólk sé tryggt
fyrir áföllum, sem það
hlýtur af völdum hjólreiðafólks.
Athugasemd við auglýsingu
Olafur Guðmundsson skrifar fyrir
hönd Vídeós-ports sf.
Við hjá Vídeó-sport sf. viljum gera
athugasemd við auglýsingu er birtist á
bis. 9 í DV þann 23. júlí síðastliðinn. I
auglýsingunni er farið með alrangt
mál. Er þar sagt á ákaflega áberandi
hátt að auglýsandinn, sem er vídeó-
leiga, sé sú eina með kvöldþjónustu.
Vídeó-sport sf. hefur nú haft opið í
um átta mánuði. Og frá upphafi hefur
verið opiö til klukkan 23.00 alla daga
vikunnar. Finnst okkur því fyrmefnd
auglýsing í meira lagi ósmekkleg.
Ennfremur bendum við fólki á að
lesa smáauglýsingar DV um vídeó-
leigur. Þar kemur glöggt fram að þær
eru margar opnar á kvöldin. Vonandi
sjá forráðamenn þessarar vídeóleigu
sóma sinn í því að breyta auglýsing-
unni og fara þar með rétt mál.
Þankabrot um þingmann
Sunnlendingur skrífar:
Þingmaðurinn Eggert Haukdal rit-
aöi Gunnari Thoroddsen forsætisráð-
herra nýlega bréf. Þar tjáði hann, að
sökum hræöslu sinnar viö Rússa gæti
brugðið tíl beggja vona um stuðning
sinn við rikisstjómina. Hann mun þó
hafa látið í það skína, að ögn kynni að
rjátlast af honum Rússahræðslan fengi
hann nokkrar kringlóttar úr lands-
sjóðskassanum. Yröi þá kannski ekki
með öllu vonlaust um stuðning sinn við
stjórnarskömmina enn um sinn. Ef af
slíkri stuðningsframlengingu yrði, er
líklegt aö hún geti í bezta falli enzt út
hundadagana.
Garnagaul
í landssjóðskassa
Ragnari Amalds er meinilla við
þessi síendurteknu upphlaup þing-
mannsins og skyndiárásir hans á
landssjóöskassann utan fjárlaga.
Hefur Arnaldsinn gefið í skyn aö kass-
inn sé nær tómur og litið annað úr
honum aö hafa en garnagaul og önnur
aðskiljanleg hljóð sem lítt heyrast á al-
mannafæri.
Fyrir skömmu skrifaði Vilmundur
Gylfason grein í DV þar sem hann ger-
ir Rússabréfiö og upphlaup Eggerts
þingmanns að umræðuefni. Segir
Vilmundur aö upphlaup þessi hafi átt
sér stað um þaö bil mánaðarlega, og
telur litt séö f yrir enda þeirra.
Losa sig við
Bergþórshvolskross
Vafalítið væri skársti kostur ríkis-
stjómarinnar að segja af sér og losa
sig þar meö við þennan Bergþórshvols-
kross sem hún hefur borið með kristi-
legri þolinmæði siöan á Agötumessu
1980. Það er hvort eð er tiltölulega
skammt til loka kjörtimabilsins og sú
stjóm sem við tæki yrði vafalaust sami
grautur í sömu skál og nú er, án tillits
til flokksheita, svo þetta breytir í sjálfu
sér engu.
Næsta ríkisstjóm mun ekki leggja i
það tvísýna fyrirtæki að byggja tilveru
sína á stuðningi Eggerts, þar sem það
hefur rækilega sýnt sig hvaö hann
hefur verið anzi slæmur af „þessu
mánaöarlega” á yfirstandandi kjör-
tímabili.ogkvillinnánefaorðinnkrón- \
ískur.
Líklegt að sagan
frá 1979 endurtaki sig
Það er kannski óþarft að vera með
bollaleggingar um þessa hluti því
engin vissa er fyrir að Eggert verði
þingmaður eftir næstu kosningar.
Fyrir kosningamar næstu er mjög trú-
legt að sagan f rá 1979 endurtaki sig eða
að um rifrildi og togstreitu um efstu
sætin á lista sjálfstæðismanna í Suður-
landskjördæmi verði að ræða. Brott-
hlaup Eggerts 1979 bætir ekki aðstöðu
hans í þeim slag. Og fái hann ekki það
sæti sem hann vill, hleypur hann enn,
og fer í „einkaframboð” sem yrði æði
tvisýnt. Við siðustu kosningar fékk
Eggert talsverðan slæðing af fylgi frá
óánægðum kjósendum úr Alþýðu-
flokki, Alþýðubandalagi og Framsókn,
en það fylgi er honum nú að mestu
tapað.
Heima í héraði hafa margir andstæð-
ingar Eggerts stutt óviljandi við bak
hans með yfirdrifnum og klaufalegum
áróðri gegn honum, en ekki mun það
gera þann herslumun sem nægja
myndi til að fleyta honum inn á hið
„háa” Alþingi i næstu kosningum. En
þó er fátt sem fortaka má í þessu efni
ef hörðustu andstæðingar Eggerts
set ja stóraukinn damp á katlana þegar
nær dregur kosningum.
„Hann mnn þó hafa látið i það skina að ögn kynnl að rjátlast af honnm Rússahræðslan fengi hann nokkrar krlnglótt-
ar úr landssjóðskassanum.”