Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1982, Page 2
_______Græni benzinn við Svínafellsjökul:_
Lík stúlkunnar fannst
í farangursgeymslunni
Ljóst var aö alvarlegur glæpur hafði
veriö framinn í öræfasveit um miðja
fyrrinótt. Þá hafði stórslösuð frönsk
stúlka fundizt á Skeiðarársandi og
skýrtfrá líkamsárás. Arásarmaðurinn
væri vopnaður og systir hennar væri í
bílhans.
Þegar voru gerðar ráðstafanir til að
hefja leit að árásarmanninum og stúlk-
unni sem talin var gísl hans. Hin stúlk-
an var flutt til Hafnar í Hornafirði og
beðið um sjúkraflugvél. Fór flugvélin
úr Reykjavík um fimmleytið um
morguninn.
Lögreglustöðvar á Austurlandi og
Suðurlandi voru látnar vita um að leit-
að væri að grænum Mercedes Benz. Þá
fengu bensínstöðvar á suðausturhorni
landsins tilmæli um að láta vita ef
grænn Benz kæmi þar að.
Björgunarsveitir og allt tiltækt lög-
reglulið á Suöausturlandi var kallað
út. Landhelgisgæzlan var beðin um
flugvélar til leitar.
Gæzlufokkerinn kom strax um
morguninn og minni þyrla Gæzlunnar
kom síðar á vettvang.
Um tíuleytiö um morguninn fannst
græni Benzinn. Fannst hann skammt
frá rótum Svínafellsjökuls. I
farangursgeymslunni fannst lík stúlk-
unnar. Voru á því miklir áverkar og
skotsár.
Maðurinn fannst hins vegar hvergi.
Rif fillinn f annst heldur ekki.
Fólk á bæjum í öræfasveit var varað
við. Var það beðið um aö kanna útihús
og næsta nágrenni. Feröamenn í
Skaftafelli voru sömuleiðis aövaraöir
og þeim bannaö að halda í gönguferöir
um þjóðgarðinn.
Sýslumaðurinn á Hö&i í Hornafirði,
Friðjón Guðröðarson, stjómaöi
aögerðum. Hann hafði nána samvinnu
við Rannsóknarlögreglu ríkisins sem
strax um morguninn sendi menn
austur.
Rannsóknarlögreglumennirnir könn-
uðu þá staði sem hinir óhugnan-
legu atburðir gerðust á. Þeir rann-
sökuöu bílinn og lik stúlkunnar, sælu-
húsið á Skeiöarársandi og fleira.
Síðdegis í gær kom sporhundur
austur. Fann hann fljótlega slóð
mannsins og rakti hana upp í Svína-
fellsjökul.
Lík stúlkunnar var flutt til Reykja-
víkur síðdegis í gær. Hin stúlkan liggur
á Borgarspítalanum.
-KMU.
LOgreglumaður stöðvar blaðamenn skammt fré þeim staO sem grœni Benzinn fannst i.