Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1982, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1982, Blaðsíða 3
DV. MIÐVIKUDAGUR18. ÁGUST1982. 3 Árásarmaður- hm bjargaði sér úr klípunni með því að senda flutninga- bílstjórann eftir hjálp Fyrsta tilkynning um aö eitthvaö óvenjulegt sé á seyði kemur frá bíl- stjóra stórs flutningabíls. Flutninga- billinn kom í þjónustumiöstöðina í Skaftafelli um klukkan eitt aöfaranótt gærdagsins. Bilstjórinn tilkynnti land- veröi að slys heföi oröiö vestan viö Skeiöarárbrú. Landvörðurinn, sem er starfsmaöur Náttúruverndarráðs í þjóögarðinum í Skaftafelli, tilkynnti lögreglumanni hvers kyns var. Lögreglumaðurinn er staösettur í Skaftafelli og býr þar skammtfrá. Flutningabílstjórinn sagðist hafa mætt grænum Mercedes Benz. Fyrir utan bílinn heföi verið stórslösuö stúlka og ökumaöurinn. Stúlkan baö i sífellu um hjálp. ökumaður Benzins sagði flutningabílstjóranum aö hann heföi ekið á stúlkuna. Baö maöurinn flutningabilstjórann um aö sækja hjálp. Stúlkan reyndi aö kalla eitthvaö. Flutningabilstjórinn hafði enga ástæðu til aö vefengja frásögn mannsins um aö þarna heföi orðið bíl- slys. Ok hann því í skyndi upp í Skafta- fell. Lögreglumaöurinn í Skaftafelli og landvörðurinn fóru saman í átt aö „slysstað”. Er þangaö var komið fundu þeir hins vegar engan bíl og enga slasaða stúlku. Oku þeir áfram. Skyndilega birtist stúlka í ljósgeisla lögreglubílsins. Var þar komin sú systirin sem rotuö haföi veriö í sælu- húsinu. Haföi henni einhvern veginn tekizt aö skríða stórslösuð upp á veginn. Hin systirin var hins vegar í bílnum hjá árásarmanninum. Sú kenning hefur komiö fram aö stúlkan í bíl árásarmannsins hafi hent sér úr bílnum þegar hún sá flutninga- bílinn nálgast. Hafi hún þannig ætlaö sér aö vekja athygli á sér. Mann- ræningjanum hafi hins vegar tekizt aö bjarga sér úr klipunni meö þvi aö segja flutningabílst jóranum frá því að þama hafi orðið slys og senda hann burt til að sæk ja hjálp. -KMU. Friöjón Guðröðarson, sýslumaður Austur-Skaftafellssýslu. Sporhundurinn sem raktí slóð mannsins upp i Svinafellsjökul. Lik stúlkunnar fíutt um borð i fíugvél á Fagurhólsmýri. Systirin sem slapp lifandi: HEYRÐISKOTHVELLI OG SÁRSAUKAÓP Frásögn stúlkunnar sem slapp lif- andi frá hildarleiknum er óhugnan- leg. Áöur en hún var flutt til Reykja- víkur meö flugvél skýröi hún lögregl- unni í stórum dráttum frá því sem fyrir hana haföikomiö. Atburöarásina má rekja aftur til mánudags. Frönsku systumar tvær vom um miöjan dag staddar um fimm kílómetra frá Höfn í Homa- firði. Fengu þær þá far meö manni sem var aö koma frá Höfn á leið heim til sin í öræfasveit. Báöu þær mann- inn um að keyra sig aö sæluhúsi við Breiöamerkurlón. Sögðust stúlkurn- ar ætla að gista í sæluhúsinu. Er að Breiöamerkurlóni var komið sagöi maöurin aö fullt væri í sælu- húsinu. Þær gætu því ekki gist þar. Bauðst maöurinn þess i staö til þess aö aka þeim aö sæluhúsinu á Skeiöarársandi. Er þangað var kom- ið kvaddi maðurinn stúlkumar og héltheimáleiö. Um klukkan ellefu um kvöldiö kom maðurinn aftur í sæhihúsiö til stúlkn- anna. Þær vom þá setztar aö og í þann veginn aö sofna. Maðurinn sagðist vera lögregluvald. Sagöist hann ætla að keyra þær til Hafnar. Frásögn mannsins, um aö hann væri lögregluvald, gat í sjálfu sér verið trúleg. Hann var á bíl merktum FIB. Engu að síður neituðu stúlkum- ar aö fara meö honum. Maðurinn reyndi þá aö þvinga stúlkumar til að koma. Réöst hann á þær og barði þær. Rotaði hann aöra stúlkuna en hin slapp út úr sæluhús- inu. Er sú rotaöa var aö ranka viö sér, heyrir hún skothvelli, grát og sárs- aukahróp. Billinn ekur í burtu meö aðrasysturina. Hin systirin vafraði um vönkuö en náöi að komast upp á þjóöveg. Þar fundu lögreglumaður og landvörður hana. Hún var siöan f lutt með f lugvél til Reykjavíkur. -KMU. Ertu í vandræðum — VIL TU BREYTA ? f-. m Ki z 1* 100 Skap rrVtredai Nr. 105. Sfcap nVolasadai. Nr 106. Svingbar B 85. M. 75. D. 38 cm. B 85. M. 75. O. 38 cm. B 85. H. 75.638 > 2 2! Nr. 119. 112 nwBomJloffNfcap. B. 47. M. 30- D. 38 cm. B. 85. M. 75. D. 38 cm. B 85 M. 75. D. 38 c> B. 85 H. 75 D. 38 cm. B 38.M.75.D 38cm B. 38. H. 75. D 38 cr m z Þá er þetta aö- eins einn mögu- leiki af hundr- uðum sem Senator rað- samstæðan býöur upp á. , *, Miö - Það cia1 GA-húsgögn sendum klinga «lkt bor9ar 9 Skeifunni 8 ■ Sími 3-95-95 'nynuin aWland

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.