Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1982, Qupperneq 9
DV. MIÐVIKUDAGUR18. AGUST1982.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Gaddafi, hinn umdeildi leiðtogi Líbýu, virðist eiga upp á pallborðið hjá Kín-
verjum.
Kína vingast
viö Gaddafi
Zhao Ziyang, forsætisráðherra Kína,
sem í fyrrakvöld hældi hinum
umdeilda leiðtoga Líbýu, Muammar
Gaddafi, sagði í gær við fulltrúa
líbýsku stjórnarinnar, sem eru nú í
heimsókn í Peking að Kína vildi
styrkja samband sitt viö þróunar-
löndin.
Fréttastofa nýja Kína hafði það
eftir forsætisráðherranum að ástæðan
væri sú að þjóðir þriðja heimsins væru
„meginaflið” gegn útþenslustefnu
stórveldanna.
Við móttökuathöfn fyrir líbýsku
sendinefndina í fyrrakvöld lét Zhao í
ljósi aödáun á stefnu Gaddafis sem
væri óháð og stæði gegn heimsvalda-
og nýlendustefnu.
Þá sagði Zhao að þjóðimar tvær
fylgdu hliðstæðri stefnu í mörgum
alþjóðamálum.
Tahli, formaður líbýsku sendinefnd-
arinnar, sagði að þjóðir þriöja
heimsins ættu að vinna saman og
standa gegn tilraunum stórveldanna
til að gleypa þær og hann bætti því við
að Líbýa vildi gjarna efla samstarfið
við Kína.
Tahli er hæst setti ráðamaður frá
Líbýu sem heimsækir Kína síðan
þjóðimar tvær tóku upp stjómmála-
samband fýrir f jórum ámm.
JARUZELSKIKVART-
AÐIUNDAN GAGN-
BYLTINGARÖFLUM
Jaruzelskl, leiðtogi pólsku her-
stjómarinnar, kom i gær heim til
Varsjár úr tveggja daga heimsókn til
Sovétríkjanna.
Heimsóknina bar upp á sama tima
og öryggissveitir pólsku stjóraarinn-
ar voru í viðbragðsstöðu vegna ótta
við óeirðir meðal stuðningsmanna
Einingar, hinnar óháðu en nú bönn-
uðu verkalýðshreyfingar í landinu.
Um þessar mundir era liðin tvö ár
frá þeim atburðum sem leiddu tU
stofnunar Einingar.
Jaruzelski tjáði Brésnef, leiðtoga
Sovétríkjanna, að tilraunir til að
koma Póllandi út úr efnahagslegu og
þjóðfélagslegu öngþveiti væru
hindraðar af gagnbyltingaröUum.
Allt var með kyrrum kjörum í Pól-
landi í gær eftir nokkra ókyrrð síð-
ustu daga þar sem lögregla hefur
bæði beitt táragasi og vatnsslöngum
gegn mannf jölda sem safnazt hafði
saman i Varsjá, Gdansk og víðar.
BYLGJA GYÐINGA-
HATURS FER ENN
Á NÝ UM EVRÓPU
Morðin í veitingahúsi gyöinga í París
á dögunum eru aöeins dæmi um bylgju
gyðingahaturs sem farið hefur um
Evrópu í kjölfar innrásar Israels í
Líbanon.
Gyðingahatrið hefur verið mest
áberandi í Frakklandi og eru at-
burðirnir á veitingahúsinu í París auð-
vitað alvarlegasta dæmið um þaö. Er
það raunar blóöugasta tilræðið við.
gyðinga í Frakklandi frá lokum síöari
heimsstyrjaldarinnar.
Áþreifanleg dæmi um gyðingahatur
hafa einnig sézt í Vestur-Þýzkalandi,
Sviss, Austurríki og Italíu aö undan-
förnu.
„I ofnana með gyðingana,” hrópuðu
þátttakendur i italskri mótmælagöngu
fyrr í sumar er þeir gengu framhjá
samkunduhúsi gyðinga í Róm.
„öllum gyðingum meinaður aðgang-
ur,” mátti lesa á auglýsingaskilti
verzlunar einnar í Temi, fyrir norðan
Róm, fyrr í þessum mánuði. Kaup-
maðurinn gaf lögreglunni þá skýr-
ingu á auglýsingunni að hún væri
hugsuð sem stuðningsyfirlýsing „við
hetjulega baráttu palestínsku þjóðar-
innar.”
I síðastliðnum mánuði voru blóðug
dýrainnyfli skilin eftir við inngang
bandariskra fyrirtækja í Vestur-
Þýzkalandi. Á sömu stöðum höfðu
verið máluð slagorö til stuönings PLO.
Sprenging varð á flugvellinum í
Miinchen, nærri afgreiðslu israelska
flugfélagsins E1 Al, 21. júlí síðastlið-
inn. Sjö manns slösuðust í sprenging-
unni og í síðustu viku köstuðu ungling-
ar málningardollum að ísraelskum
ferðamannarútum í Berlín.
Fáeinum dögum eftir innrás Israels í
Líbanon sprakk sprengja við heimili
hins þekkta gyðings, Símons Wie-
senthal, í Vín. Wiesenthal hefur sem
kunnugt er haft það að aðalstarfi frá
lokum síðari heimsstyrjaldar að leita
uppi stríðsglæpamenn nasista og
draga þá fyrir rétt. Bæði sendiráð
Israels og Bandarikjanna í Ziirich uröu
fyrir sprengjuárásum.
En við blóðbaðið í París kostaði þessi
nýja bylgja gyðingahaturs líf.
Mitterrand boðar aðgerðir gegn hryðjuverkum:
Begin gagnrýn-
ir Mitterrand
—vegna ummæla hans um PLO-samtökin í gær
Menachem Begin, for- sjónvarpsávarpi franska forsetans í valda gegn hryðjuverkum í Frakk-
sætisráöherra Israels, gagnrýndi í gær. Hann sagði þá að árásir hryöju- landi. Hann hafði þá átt fund meö
gærkvöldi Frakklandsforseta fyrir verkamanna á gyðinga í Frakklandi vamarmála- og innanríkismála-
að segja í sjónvarpsávarpi að fengju hann ekki til að breyta um ráöherrum landsins svo og yfir-
Frelsissamtök Palestínumanna stefnuímálefnumMiðausturlanda. mönnum hers og lögreglu um leiðir
hefðurétt til að berjast. Begin haföi áður sakað Mitter- tilaðbergjastgegnhryðjuverkum.
„Vinur okkar, Mitterrand forseti, rand um aö bera óbeina ábyrgð á Mitterrand sagði þaö skoðun sína
þekkir staðreyndirnar. Hann veit tilræðinu við gyðinga í París og aö að Frakkland hefði öðrum fremur
hvernig PLO-samtökin berjast, að kynda undir andsemítisma í orðið fyrir barðinu á alþjóðlegri
þau myrða saklausar konur og Frakklandimeðþvíaðstyðja PLO. hryðjuverkastarfsemi vegna þeirrar
börn,”sagðiBegin. Israelsmenn litu á Mitterrand stefnu stjórnar hans að leita friðar í
„Þess vegna varð ég undrandi að sem dyggasta stuðningsmann í Líbanondeilunni. „Eg mun ekki láta
forsetinn skyldi ekki koma með nein Evrópu þar til dró úr vináttunni eftir af þeirri stefnu þrátt fyrir hótanir og
andmæli gegn því í ummælum innrás Israels 6. júní síðastliðinn. að sjálfsögðu hyggst ég skipuleggja
sínum.” I sjónvarpsávarpi sínu í gær hét löggæzluna þannig að hryðjuverka-
Sú yfirlýsing Mitterrands sem fór Mitterrand því að gripið yrði til rót- mönnum verði að lokum refsað,”
fyrir brjóstið á Begin var hluti af tækra ráða af hálfu franskra yfir- sagði Mitterrand.
veitingahúsi gyðinga í París og fjölmargir særðir. Margir tsraelsmenn halda því fram að „áróður” franskra stjóra-
valda gegn innrás Israels í Líbanon hafi kynnt undir gyðingahatri í Frakklandi og þannig átt óbeinan þátt í morð-
unum.
Útvegum með stuttum fyrirvara
I J
li *• 'v'’ ' ;/« {: . \ 1 »• tu 5 C° J)
KÆLI- OG FRYSTIVAGNA
0 0
0 o > ~
KÆLI-OG FRYSTIKLEFA KÆLI- OG FRYSTIGÁMA
Einnig er hægt að útvega
HRAÐFRYSTIKLEFA
og ofantalda vagna
fyrir eins fasa rafmagn.
Hríngið og biðj'ið
um bæk/ing.
UppL í síma
85237.