Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1982, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1982, Qupperneq 14
14 DV. MIÐVIKUDAGUR18. ÁGUST1982. Fóstrur - Þroskaþjátfar Viljum ráöa eftirtalda starfsmenn: 1. Forstöðumann við dagheimilið Víðivellir frá 1. okt. nk. 2. Þorskaþjálfa á sama stað. 3. Fóstrur í hálfs og heils dags störf á dagheimili og leikskóla. Athygli skal vakin á rétti öryrkja til starfa samanber 16. grein laga nr. 271970. Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði. óskar eftir umboðsmönnum: Djúpivogur Uppl. gefur Sigriður Eiríksdóttir, sími 97-8844 Reyðarfjörður Uppl. gefur María ölversdóttir, simi 97-4137. Upplýsingar einnig gefnar á af- greidslu DV, Þverholti 11, sími 91- 27022. Lögtök Aö kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjaldheimt- unnar í Reykjavík og samkvæmt fógetaúrskuröi, uppkveðnum 16. þ.m. verða lögtök látin fara fram fyrir vangreiddum opinberum gjöldum álögöum skv. 98. gr., sbr. 110. gr. laga nr. 75/1981. Gjöldin eru þessi: Tekjuskattur, eignarskattur, lífeyristr.gjald atvr. skv. 20. gr., slysatryggingar- gj. atvr. skv. 36. gr., kirkjugarösgjald, vinnueftir- litsgjald, kirkjugjald, sjúkratryggingargjald, gjald í framkv.sjóð aldraða, útsvar, aöstöðugjald, atvinnuleysistryggingagjald, iönlánasjóðsgj., iðnaðarmálagj., launaskattur, sérst.skattur á skrst. og verslunarhúsn., slysatrygg. v/heimilis. Ennfremur nær úrskurðurinn til hverskonar gjaldhækkana og til skatta, sem innheimta ber skv. norðurlandasamningi sbr. 1. nr. 111/1972. Lögtök fyrir framangreindum sköttum og gjöldum, ásamt dráttarvöxtum og kostnaði, verða látin fram fara að 8 dögum liönum frá birtingu þessarar auglýsingar, verði þau eigi að fullu greidd innan þess tíma. Borgarfógetaembættið í Reykjavík 16. ágúst 1982. BLAÐBURÐARBÖRN óskast í eftirta/in hverfi: • Arnarnesl.9. • Þórsgata 23.8- • Álftamýri og hluti AFGREIÐSLA SÍMI27022. Menning Menning Menning Cumartónleikar Sumartónleikar í Skálholtskirkju 15. ógúst. Flytjendur: Helga Ingóffsdóttir, sembaileikarí og Hafliði Hallgrímsson, cellóleikarí. Efnisskrá: Verk eftir Hafliða HaJlgrímsson: Ströod, sónata fyrir sembal, íslensk þjóðlög útsett fyrir ceBó og sembal og Solitaire, ein- leiksverk fyrír ceOó. Paö var litiö sumarlegt um aö litast í nágrenni Skálholts sunnudag- inn sem þau léku þar í dómkirkjunni, Hafliöi og Helga. Austan beljandinn haföi séö til þess aö störin var farin að gulna og ull fifunnar fauk likt og skafrenningur. Einhvem veginn virtist náttúran vera aö segja manni aö úr þessu y rði lítið um þaö, sem viö leyf um okkur aö kalla sumar. En svo gengur maður inn í helgi- dóminn og Helga hefur leikinn með sembalsónötu Hafliöa, í frumflutn- ingi, og þá léttir tii, aö minnsta kosti í sálinni. Sá fyrsti haustblær, sem örla sást á úti rýkur burt eins og dögg fyrir sólu. I tónsmíðum fer Hafliöi sínar eigin leiöir án þess þó að yfirgefa hiö hefö- bundna. Hann er eitt af fáum ungum tónskáldum sem getur af sér frjóa hugsun án þess aö fara út fyrir ramma viötekinna forma. Hve dýrt má skálda Svo veröur manni litið á e&iis- skrána og þykist kenna þar gamla kunningja. Alla vega haföi Hafliöi heyrst leika þjóölögin sem hér stóöu á skránni „útsett” fyrir celló og Tónlist Eyjótfur Melsted píanó. Ekki stytti Hafliöi sér þó leiö meö þessum útsetningum sínum. Þaö er annars merkileg hógværö hjá Hafliöa aö nefna þessar hugleiöingar sínar aöeins útsetningar. En vel á minnst — aö stytta sér leið. Ætli Hafliöi Hallgrímsson hafi nokkurn tíma stytt sér leiö síöan hann arkaöi úr tíma hjá Einari heitnum Vigfús- syni og stytti sér leið yfir ísi lagöa Reykjavíkurtjöm, datt kyllifaltur og molaöi cellóiö sitt mélinu smærra. Hvort sem þaö á sér nokkurt sam- band viö þetta löngu liðna atvik eöa ekki, þá er það ljóst aö Hafliöi velur aldrei stystu leiö. I sinni músik velur hann sér beina, en ekki endilega stystu, eöa auðveldustu leiö. 1 þess- um útsetningum sýnir Hafliöi hve ljúft og dýrt er hægt aö skálda upp úr einfaldasta húsgangi. Víst var það frumflutt Að lokum Sohtaire, einleiksverk fyrir celló. Enn eitt dæmiö um hóg- værö Hafliöa. Hann er sagöur hafa leikið agnarbrot úr verkinu áöur og því ekki viljað státa af frumflutningi nú. En hér var Sohtaire sem sé f rum- flutt í fullri lengd. Þetta er verk sem grípur áheyrandann. Þar nýtur sín til fullnustu geysimikiU og faUegur tónn flytjandans og hans fína tækni. Viö fyrstu áheyrn glepst maöur um of af frábærum flutningi og gleymist satt aö segja að hugsa nokkuð um hluti eins og uppbyggingu og annað mikU- vægt í samsetningu verksins. En ég ætla jafnframt aö vona aö mér og öðrum gefist oft tækifærí og tilefni tU að spekúlera í þeim hlutum. Þegar upp var staðiö, í lófataks- bmdindi SkáUioltskirkju, aö loknum þessum stórkostlegu tónleikum fannst mér þaö samt gaUi aö hafa ekki fengið aö heyra meira af sam- leik þeirra tveggja frábæru tón- listarmanna sem þar léku. EM Lágkúra Svarthöfða Svarthöfði froðufeUdi með óUkind- um i DV síöastUöinn fimmtudag í garö heiUar starfsstéttar. Tilefnið voru síöustu ummæU er höfö voru eftir einum flugumferðarstjóra um aö ekki væri nein ástæöa tU aö harma hugsanlega úrsögn Alberts Guö- mundssonar úr flugráöinu. Viröist Svarthöföi hafá fengiö sting fyrir brjóstiö er hann sá umrætt viðtal og því rokiö tU og dregið fram úr tauga- strekktu hugarfylgsni sínu þann lág- kúrulegasta rógburð sem á siðum DV hefur sést. Leigupenni umræddra rógskrifa viröist að einhverju leyti gera sér grein fyrir aö blaðamennska sín sé á lágu plani og biðlar því til rannsókn- arblaöamanna í grein sinni, tU aö kanna hluta af þeim rógburöi sem hann slengir fram. Þetta er eini ljósi punkturinn sem hægt er aö greina í skrifum Svarthöföa og fagnaði ég hjartanlega ef hlutlaus aðili færí of- an í saumana á öUum þeim lyga- þvættingi sem þar er aö finna. Ef tU kemur er ég reiðubúinn aö beita mér fyrir því, að ÖU þau gögn, sem í vörslu FlF. eru og snerta margnefnd nemamál, veröi gerö opinber tU að sýna þá makalausu fyrirgreiðslu- póUtík sem stunduö er innan stjóm- kerfisins. ÖU afskipti stéttarfélags flugum- feröarstjóra af nemamálum hafa miðast viö aö reyna aö tryggja, aö reglum samgöngumálaráöuneytis- ins um nám og þjálfun værí fylgt og ■ að nemendum sé ekki mismunaö vegna ættemis eða af öömm orsök- um. Mér er mætavel kunnugt um aö Albert Guömundsson hefur margoft rétt aöstööulausum þegnum þessa þjóöfélags hjálparhönd og er þar margt vel gert. Það er trú mín aö Al- Kjallarinn Þórdur Adolfsson bert hafi að þessu sinni verið blekkt- ur af óvönduðum mönnum, til lið- sinnis málstaö, sem hann heföi aldrei stutt ef allur sannleikurinn og ekkert nema sannleikurinn hefði ver- iöhonumsagöur. Hvaö viövíkur yfiriýsingu um aö ákveðinn nemandi hafi veriö í átt- unda sæti samkvæmt einkunnum, er þaö einhver sú misheppnaðasta reiknibrelia sem sett hefur veriö fram. Til aö koma viökomandi aðila úr 12. sæti upp í það áttunda þarf aö líta framhjá 75% af því námsefni, sem yfir var farið á hinum breska flugumferöarstjóraskóla. Vil ég taka fram að námsnefnd sú er raðaði nemendum í ákveöna valröð er skipuð fjórum mönnum og þar af aö- eins einum frá félagi flugumferöar- stjóra. Nefndin fór í alla staöi eftir gildandi reglum um val til fram- haldsnáms og voru öll gögn um nem- endur merkt dulnefnum aö ósk „Flugumferðarstjórar hafa ekki lagt nið- ^ ur störf hérlendis einn einasta dag á síð- ustu 35 árum.” nefndarmanna, þar sem ekki var fyrirhugaö að ráöa nema 10 af þeim 12 sem lokið höfðu grunnnámi í Bret- landi. Rógburður Svarthöföa um aö stéttarfélag flugumferöarstjóra sé að reyna að bola ákveðnum nemend- um frá frekara námi er þar með al- gjöriega úr iausu lofti gripinn. Fé- lagið hefur engar athugasemdir gert við valröð námsnefndarinnar og er reyndar í engri aöstööu til þess. Þaö eru aðrir sem skipa sér í öndvegi og vilja breyta samdóma áliti nefndar- manna til aö bæta hlut eins nemanda ákostnaöannars. Rógburður, sem snýr beint að mér undirrituöum, er aö látið er aö því liggja aö ég hafi fengið starf sem flugumferðarstjóri vegna þrýstings frá ákveðnum öflum. Bendi ég þeim sem vilja kynna sér tilhögun þeirrar ráöningar á gögn loftferðaeftirlitsins varöandi grunnnámskeið í flugum- feröartjórn haustiö 1974 þar sem ein- kunnir skipuöu mönnum í valröö á sama hátt og nú. Hvað viö kemur ööru því slúðri sem sullað er undan feldi Svarthöföa þá liggur ljóst fyrir, að því er ætlað það hlutverk aö sverta stétt flugumferö- arstjóra íaugum almennings og gera þá tortryggilega, til að létta þeim róöurinn sem vilja ráðskast meö stöður hjá hinu opinbera framhjá öll- um lögum og reglum. Má öllum vera ljóst aö stétt manna sem vinnur störf sín af samvisku- semi og einurö við mun lakari aö- stæður og kjör en erlendir starfs- bræður, tekur því ekki með þögninni þegar svo gróflega er vegið aö henni. Vil ég benda á þessu til stuðnings aö flugumferöarstjórar hafa ekki lagt niöur störf hérlendis einn einasta dag sl. 35 ár, og hafa þurft aö leggja hart að sér viö að knýja á um öflun nauösynlegs tækjabúnaöar til aö tryggja lágmarksöryggi þeirra sem fljúga. Hinn nafnlausi penni sem atar stétt flugumferðarstjóra út meö lygaþvættingi hefur opinberaö botninn í íslenskri blaöamennsku, meö skrifum sem eiga sér enga stoö í raunveruleikanum. Þórður Adolfsson flugumferöarstjórí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.