Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1982, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1982, Síða 15
DV. MIÐVIKUDAGUR18. AGUST1982. Benedikt h6H uppteknum hætti og setti þriöja Islandsmetið i SA flokki i sumar. AÖ þessu sinni lækkaðihann metið úr 10.49 sek. niður i 10.43 sek. DV-myndir Liija Oddsdóttir. SUN keppni Kvartmfluklúbbsins: Ný íslandsmet í hveni keppni Þriöja kvartmílukeppni sumarins sem gefur stig til Islandsmeistara- titils, Sun keppnin, var haldin viö erfið skilyröi síöastliöinn laugardag. Gekk á meö skúrum og varð iðulega aö gera hlé á keppninni meðan skúrirnar gengu yflr og brautin þornaöi aftur. Þrátt fyrir þessa erfiðleika gekk keppnin vel fyrir sig og var ágæt þátt- taka í henni. Aö þessu sinni var það Austurbakki h/f sem gaf verölaunin í keppninni, en Austurbakki hefur um- boö fyrir Sun mæla og stillitæki. STANDARD FLOKKUR Sævar Pétursson einokaði standard flokkinn á Pontiac Firebirdinum sín- um og áttu keppinautar hans enga möguleika í hann. Munaði meira en sekúndu á Sævari og Páli Þorsteins- syni sem lenti í ööru sæti flokksins. Páll keppti á Pontiac Trans Am og í þriöja sætinu var einnig Trans Am, en þeimbíl ókJúlíusBess. I júlíkeppni Kvartmíluklúbbsins setti Sævar Pétursson nýtt Islandsmet í standard flokki, 13,53 sek., og í keppn- inni á laugardaginn tókst honum aö ná þeim tímaaftur. MODIFIED STANDARD I MS flokki voru einungis tveir keppendur, þeir Guömundur Guðmundsson sem keppti á 340 cid Barracuda og Jóhann Kristjánsson sem keppti á 427 cid Corvette. Guömundur lék sér aö Vettunni aö þessu sinni og var sigur hans auðveld- ur. Bezti tími Guðmundar í keppninni var 12,71 sek. en bezti tími Jóhanns var 14,91 sek. STREET ALTERED Benedikt Eyjólfsson mætti einn til keppni í SA flokki og er þaö furöulegt því vitað er um ajn.k. þrjá aöra SA bíla sem standa tilbúnir „inni í skúr”. Benedikt kvartaöi sáran undan því að hafa engan til aö keppa viö, annan en klukkuna, en hann lét þaö þó ekki aftra sér frá því aö setja nýtt Islandsmet í SA flokki. Er þaö þriðja Islandsmetið sem hann setur í sumar. I júníkeppn- inni fór hann míluna á 10,50 sek., i júli á 10,49 sek. og núna lækkaði hann Is- landsmetið niöur í 10,43 sek. STREET ELIMINATOR örn Jóhannesson ók sprækasta bíln- um i götubílaflokknum og var nokkuð öruggur meö sigurinn þegar aö úrslita- spyrnunum kom. 1 fyrri spyrnunni viö Gunnlaug Emilsson klikkaði kúplingin í 327 cid Novunni hjá Emi og varð hann aö hætta keppninni. Gunnlaugur hreppti því fyrsta sætið í SE flokki og var bezti tími hans 14,06 sek., en bezti tími Arnar í keppninni var 12,28 sek. I ööru sæti var Aðalbjöm Kristjánsson en hann ók Dodge Challanger og náöi bezt 14,37 sek. tíma. MÓTORHJÓLAFLOKKUR Keppnin í mótorhjólaflokknum var hörö og jöfn. Þar spyrntu þeir Heiöar Jóhannesson og Adolf Adolfsson til úr- slita. Suzuki Katana hjóliö hjá Adolfi virkaöi greinilega betur en Kawazaki hjólið Heiöars og sigraöi hann. Bezti tími Adolfs í keppninni var 11,68 sek. en bezti tími Heiðars var 12,20 sek. Gunnar Geirsson átti næst bezta tim- ann i mótorhjólaflokknum, 11,95 sek. en hann keppti á Honda CBX. SKELLINÖÐRUFLOKKUR I skellinööruflokknum sigraöi Sigur- jón Harðarson, en hann keppti á Suzuki GT 90 cc hjóli og náöi 21,00 sek. tíma. Annar varö Jens Reynir Kane sem keppti á Kawazaki 50 AR en bezti tími Jensvar 23,27 sek. Jóhann Krist jónsson. Adolf Adotfsson lljæri sigraði Heiðar Jóhannesson i úrslitaspymu mótor- hjólaflokksins. Bezti timiAdoifs var 11.68sek. en Heiðars 12.28sek. Gunnlaugur Emilsson hefur verið i fremstu víglínunni í kvartmílunni síðastHðin ár og jafnan staðið sig mjög vel. Honum tókst nú að sigra i ES flokknum á 383 cid Chárgernum sinum og var bezti timi hans 14.06 sek. ............. «**$*»' Sigurvegarinn i Standardfíokknum, Sævar Pótursson, jatnaði Islandsmeuo sitt sem hann sattl i JÚH- keppninni og sigraði auðveldlega isinum flokki á '68 Pontiac Firebirdinum sínum. Hár spyrnir hann til úr- slita við Pál Þorsteinsson á 76 Trans Am. í MS fíokki spymtu Guðmundur Guðmundsson og Jóhann Kristjánsson til úrslita. Sigraði Guðmundur og var bezti tími hans 12.71 sek. en beztí tími Jóhanns var 14.91 sek.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.