Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1982, Síða 36
NYJA
AGFAFILMAN
ÓTRÚLEGA SKÖRP
OG NÆM FYRIR LITUM
ÓDÝRARI FILMASEM
FÆST ALLS STAÐAR
86611 RITSTJÓRN SÍDUMÚLA 12—14
AUGLÝSINGAR j SÍÐUMÚLA 33 SMÁAUGLÝSINGAR SKRIFSTOFA ÞVERHOLTI 11 27022
DREGUR TIL ÚRSLITA. Ráðherranefnd og efnahagsmálanefnd stjórnarliðsins komu saman klukkan 9 i
morgun tilað reyna að bræða saman tiiiögur stjórnarflokkanna fyrir rikisstjórnarfundinn eftir hádegið.
Enn óbrúað bil í ríkisstjórninni
„ Tekur kannski
nokkra daga enn”
- sagðiSvavar Gestsson í morgun
Hætt að
framleiða
blátt ópal
„Framleiðsla á bláu ópali hefur
verið stöövuð um stundarsakir,” sagði
Einar Olafsson, forstjóri Opals hf., í
samtali við DV, en þessar pillur hafa
verið ófáanlegar um tveggja mánaöa
skeiö, mörgum aðdáanda þeirra til
armæðu.
,,I bláu ópali var kloroformblanda,
sem getur haft slævandi áhrif. Aö vísu
var efnið í löglegu magni í ópalinu en í
Bretlandi er efnið ekki talið æskilegt í
neyzluvörum í því magni sem það
hefur verið notað. Framleiösla á
efninu minnkaði svo mikið að við
höfum ekki fengið það í tvo mánuði og
ákváðum að taka ópalið af markaði í
núverandi mynd. En auðvitað kemur
blátt ópal aftur og ég vona að þaö
verði sem líkast því gamla,” sagði
Einar aö lokum. 'gö.
Stal peningum
og bankabók
Maður brauzt inn í íbúö í Bústaða-
hverfinu um fimmleytið í gærdag.
Tókst honum að hafa á brott meö sér
bankabók ogpeninga.
Maðurinn fór inn um glugga á í-
búðinni en í henni býr kona sem
maðurinn þekkti frá því er þau höföu
verið samtíða á sjúkrahúsi. Þegar
konan kom að húsinu sá hún hvar
maðurinn var á leið í burtu. Hún
uppgötvaði síðar að hann haföi stolið
bankabók hennar og um fimmhundruö
krónum í peningum. Mikil leit var gerð
að manninum í gær en ekki hafði tekizt
að finna hann þegar síðast fréttist.
-JGH.
Kópavogur:
Bragi Guð-
brandsson ráðinn
félagsmáiastjóri
Bragi Guöbrandsson hef ur verið ráð-
inn félagsmálastjóri Kópavogsbæjar.
Bæjarráð Kópavogs ákvaö að ráða
Braga á f undi sinum í gærkvöldi. Bragi
Guðbrandsson er fæddur 23. septem-
ber árið 1953. Hann hefur kennt undan-
farin 5 ár viö Menntaskólann í Hamra-
hh'ö og var síðustu árin deildarstjóri
féiagssviös.
Bragi er aö auki kunnur af starf i sínu
innan AlþýðubandalagsinsogSamtaka
herstöðvaandstæðinga. Meðal annarra
umsækjenda um starfið var annar
kunnur Alþýðubandalagsmaður, dr.
Ingimar Jónsson. BragiGuðbrandsson
tekur til starfa um næstu mánaðamót.
-ás.
LOKI
Það er erfítt að vera
bœði Alþýðubartdalags-
maður og ASÍ forseti
þessa dagana.
„Það verður engin stjómarkreppa.
Þetta getur bara tekið nokkra daga í
viðbót,” sagði Svavar Gestsson, for-
maður Alþýðubandalagsins, í viðtali
við DV í morgun. Svavar sagði að úr-
slit í ríkisstjórninni þyrftu ekki endi-
lega aö ráðast í dag. „Honumhlýturþá
aö verða frestað verði samkomulag
ekki komið,” sagði Svavar um fyrir-
hugaðan fund stjómarskrárnefndar að
Laugarvatni á morgun.
„Það hlýtur að ganga til úrslita
núna,” sagði Steingrímur Hermanns-
son, formaður Framsóknarflokksins, í
viðtali við DV í morgun. Steingrímur
sagði að „líklega yrði að treysta á yfir-
lýsingar forystumanna Alþýðubanda-
lagsins um að þeir ætli að vinna að vísi-
tölumálunum með þeim hætti sem
fram hefði komiö.” Með því gaf
Steingrímur í skyn að fara mætti milli-
leið í deilunum um oröalag á ákvæðum
um verðbótaskerðingu næsta vetur
sem gæti orðið um 10%. Framsókn
mun hafa slakað til í gær eftir linnu-
lausa þingflokksfundi og innbyrðis-
deilur.
Steingrímur sagði að rangt væri að
Framsókn vildi afgreiða vísitölumáliö
með bókun í ríkisstjóm. Hann hefði
kannað þann möguleika í þingfiokki
sínum en stuðningur þar ekki verið
nægur.
Tillaga kom fram í gær þess efnis að
heimildin til skeröingar á verðbótum
yrði veitt forsætisráðherra en ekki
ríkisstjóminni allri eins og Alþýöu-
bandalagið haföi lagt til. Alþýðubanda-
lagið mun hafa hafnað þeirri tillögu.
Ríkisstjórnarfundi, sem vera átti
klukkan 10 í morgun, hefur verið
frestað fram yfir hádegi, svo þraut-
reyna megi hvort samkomulag næst í
ráðherranefndinni um efnahagsmálin.
Ráðherranefndin kom saman klukkan
9.
Hnúturinn er í vísitölumálinu og
talið að stjórnarliðið geti fremur
auðveldlega samið um aðra hluti.
-HH
Rafiðnaðar-
menn og hús-
gagnasmiðir
sömdu í nótt
I nótt tókust samningar milli
Sveinafélags húsgagnasmiöa og við-
semjenda þeirra og var því aflýst
áöur boðuðu verkfalli sem hefjast
átti á miðnætti. Einnig tókust
samningar hjá Rafiönaðarsambandi
Islands.
Húsgagnasmiöir munu ganga inn
í samning Sambands byggingar-
manna og Meistarasambandsins
sem gerður var í júlí sl. en
samningurinn var ekki undirritaöur,
heldur var deilan leyst með bókun-
um hjá ríkissáttasemjara. Hall-
grimur Guðmundsson, formaður
Sveinafélags húsgagnasmiða, sagði
að Vinnuveitendasambandið hefði
ekki viljað undirrita samninginn en
bókunin sem gerð hefði veriö væri
fullnægjandi fyrir félagiö. Samning-
ur Rafiðnaöarsambandsins er með
svipuðu sniði og samningur ASI og
VSI. -ÖEF.
Ásmundur Stefánsson,
forseti ASÍ,
leggur áherzlu á að:
Verðbótum
á laun verði
ekki breytt
„Það er erfitt að gefa stjómmála-
flokkunum einkunnir fyrir þær hug-
■myndir sem þeir eru að leggja fram
eða að segja nokkuð um þessi mál
fyrr en niðurstöður liggja fyrir. Eg
hef þó lagt á þaö áherzlu í þeim
viðræðum sem ég hef átt við stjóm-
arliða að verðbætur á laun verði ekki
skertar,” sagði Asmundur
Stefánsson, forseti ASI, er hann var
inntur álits á þeim hugmyndum sem
verið er að ræða innan rikisstjórn-
arinnar um skeröingu verðbóta á
laun. Hefur Alþýðubandalagið lagt
til að verðbætur 1. desember verði
lækkaöar umhelming.
Ásmundur sagði að Alþýðusam-
bandinu hefði ekki verið kynntar þær
hugmyndir um efnahagsráðstafánir
sem ríkisstjórnin hefði til umræðu. A
samráðsfundi stjómarinnar og
verkalýðshreyfingarinnar hefði
Gunnar Thoroddsen forsætisráð-
herra neitaö að ræða hugsanlegar
efnahagsráðstafanir, en einungis
hefðu verið lögð fram gögn frá
Þjóðhagsstofiiun um efnahagsá-
standið.
„Það er heimild til þess í okkar
samningi að segja honum upp með
eins mánaðar fyrirvara ef sett verða
lög sem breyta ákvæðum um
greiðslu verðbóta á laun,” sagði
Asmundur Stefánsson,” en þaö era
enn engar forsendur til þess að meta
hver verða viðbrögð okkar við efna-
hagsráðstöfunum ríkisstjómar-
innar.” -ÖEF.
Innbrot í bæjarskrif-
stofurnaríKópavogi
Innbrot var framið í bæjarskrif-
stofurnar í Kópavogi í gærkvöldi.
Svo virðist sem engu hafi verið
stoliö. Innbrotið uppgötvaðist þegar
skúringarfólk kom á skrifstofurnar
rétt fyrir miðnættið. Málið er í rann-
sókn hjá Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins. Enginn hefur verið handtekinn
enn vegna þessa innbrots. -JGH
Gúmbátur með tveim
mömum fannst á reki
Gúmmibjörgunarbátur meö
tveimur mönnum fannst á reki átján
sjómílur vestur af öndverðamesi
um hálftíuleytið í morgun. Ekki er
vitað hverjir mennirnir em.
Það var rúmlega níu í morgun sem
Flugleiðavél á leið frá Reykjavík til
Patreksfjarðar tilkynnti um að hún
heyrði í neyðarsendi frá gímmí-
björgunarbáti. Var hún þá stödd yfir
Fróðárheiði. Heyrðist merkið sterk-
ast yfir miðjum Breiðafirði. Strax
var haft samband við flugvél Flug-
málastjórnar sem var á þessum slóð-
um og er meö miðunartæki um borð.
Hún fann svo bátinn á reki um átján
s jómílur vestur af öndverðarnesi.
Um borð í gúmíbátnum vom
tveir menn. Þeir veifuðu báðir til
flugmanna Flugmálastjórnarvél-
arinnar. Ekki er vitað til að fleiri séu
um borð. Ekki er heldur vitað hvaða
menn eru þama á ferðinni eða hvað
hafi raunverulega gerzt.
Þegar þetta er skrifað skömmu
fyrir hádegi, er þyrla vamarliösins
að updirbúa flugtak til að bjarga
mönnunum. Einnig em nærliggjandi
skip, sem eru mörg, á leið á staöinn.
Þá er Fokkervél Landhelgisgæzl-
unnar aö fara í loftið til að leysa vél
Flugmálastjórnar af.
-JGH.
I
■
■
■
6
I
I
I
E
1
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
|
I
I
I
I
I
|
I
I
I
I
I