Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1982, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1982, Blaðsíða 2
gúmmístígvéI cherrox LAUGAVEGI 1- S/M/ 1-65-84 DV. ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTOBER1982. NáttúruvemdamefndÓlafsfjaröarlæturísérheyra: „Æskilegt að hefta mslfok frá haugunum” „Æskilegt væri aö reyna aö hefta ruslfok frá haugunum, t.d. með net- giröingu, einkum þó að sunnan, þar sem rusliö frá haugunum lýtir mjög gilið fyrir sunnan þá.” Þessi tilvitnun er úr bókun náttúruverndarnefndar Olafsfjaröar sem gerö var að loknum „vettvangsferðum” um byggöarlagið. Þarna er veriö aö ræöa um rusla- hauga Olafsfirðinga og eflaust geta flestir tekið undir þessi orö nefndar- manna. Ruslahaugamir eru fyrstu merki þess aö mannabústaður sé í nánd þegar komið er fyrir Múlann á leiö til Oiafsfjaröar. Eru haugarnir rétt við veginn og sómakærum Olafs- firöingum til lítillar uppheföar. En nefndarmenn sáu fleira á ferð sinni. Þeir skoöuöu framkvæmdir við lengingu flugbrautarinnar í Os- brekkulandi og höföu ekkert viö þæir framkvæmdir aö athuga en hins vegar þótti þeim umgengni hvergi nógu góö viö sumarbústaðalandið á Reykjum. Leggja nefndarmenn til aö þar verði framfylgt skipulags- og umgengnis- reglum til aö koma í veg fyrir óþarfa jarörask og landskemmdir. Síðan segir í fundargerð nefnd- arinnar: „Nefndin ítrekar fyrri á- skoranir um aö gengiö veröi sem fyrst frá vegaköntum og sár meöfram veginum (Austurvegi) verði grædd upp. Nefndarmönnum er ekki kunnugt um neinn staö á landinu þar sem frá- gangur nýlagðra vega er jafnslæmur oghér.” Síðan er fjallaö um landskemmdir eftir kaldavatnslögn sem séu mjög á- berandi í fjallshlíöinni fyrir sunnan og ofan bæinn. Sé því ástæða til aö flýta þar fyrir uppgræðslu meö sáningu á fræiogáburöi. Um grjótnám í Olafsfirði segja nefndarmenn: „Náttúruvemdamefnd harmar aö forsvarsmenn grjót- námsins höföu ekki samband viö nefndina áöur en grjótnám var hafiö á nýjum staö. Verkstjóri hafnargerðar hefur aö vísu gefið nefndinni munnlegt loforð um aö vel verði gengið frá námunni og umhverfi hennar þegar grjótnámi lýkur í þetta sinn. Sé grjótnámi hætt í gömlu námunni ætti aö færa bílhræin og annað drasl er þar hefur safnast saman á þann staö þar sem minnst ber á því í námunni, uns því verður fundinn betri staöur. Þá er löngu tíma- bært aö snyrta umhverfi námunnar og græöa upp þau landsspjöll, sem , uröu viö síöasta grjótnám þar. ” I lokin fjalla nefndarmenn um Olafsfjaröarvatn og segja: „Þar sem vatnið er mikil prýöi í firðinum ber aö leggja áherslu á að vernda þaö fyrir hvers kyns mengun og spjöllum. Náttúruverndamefnd telur að banna eigi alla umferð vélbáta um vatnið, nema þá sem nauðsynleg er vegna fiskiræktar og rannsókna.” Undir fundargeröina skrifa Hreinn Bemharösson, Stefán B. Olafsson og Sigmundur J ónsson. -GS/Akureyri. / síöustu viku voru að hefjast framkvæmdir við lagningu oiiumaiar á nokkrar götur i Óiafsvik. Er þaö fyrlrtmkið Loftorka som sór um fram- kvæmdirnar. Flestar götur bæjarins eru með varanlegu slitlagi en þser götur sem nú i að ieggja oliumöl 6 eru inýju hverfi ibænum. GSG/DV-mynd: Einar Óiason. BlBlBlBlSBlBlElslElSSBlBlElBlelBlBlBlBlQlBlBlBlBlBlBlBlBlB B/aðburðarbörn NÚ ER VERIP AÐ RÁÐA FYRIR VETURINN Látið skrifa ykkur á biðlista BLAÐBERAR ÓSKAST í EFTIRTALIN HVERFI STRAX • Eiriksgötu • Haga II • Hofteig • Laugateig • Skúlagötu • Arnarnes. AFGREIÐSLAN ÞVERHOLT111 SÍMI27022 @|a|a|a@|a|a|a@|a@|a|aia|a|a@|aiaia^ia@iaiaiaiaiaiaiaia Bláfjallanefnd vill reisa stóla- lyftu í Suðurgili Stööugt er unnið aö því aö bæta aðstööu skíöafólks I Bláfjöllum og er Manfreö Vilhjálmsson arkitekt aö vinna aö framtíöarskipulagi fyrir Blá- f jallasvæðiö. Þar veröur meöal annars ákveðin staösetning skála sem félaga- samtök og sveitarfélög hyggjast reisa. Iþróttafélagiö Fram hefur heimild Blá- f jallanefndar til aö byggja skíöaskála í Eldborgargili. Lokiö er hönnun skál- ans en f ramkvæmdir ekki hafnar. Breiðablik á skiöaskála í Bláfjöllum og hefur heimild til aö stækka hann fyrir salernisaöstööu. Ármann hefur einnig skála og talið líklegt aö í fram- tíðinni komi félagiö öörum þar upp . Meðal sumra sveitarfélaganna sjö sem standa aö uppbyggingu skíðalandsins í Bláfjöllum eru uppi hugmyndir um byggingu skála. Blá- fjallanefnd hefur til dæmis veitt Garðabæ leyfi til skálabyggingar en framkvæmdir geta þó ekki byrjað fyrr en heildarskipulagið liggur fyrir. Af hálfu Bláfjallanefndar hefur nýlega verið leitaö eftir heimild sveit- arfélaganna til aö b jóða út vinnu viö aö reisa stólalyftu í Suðurgili á næsta ári. Stefán Kristjánsson framkvæmda- stjóri Bláfjallanefndar sagði i samtali viö DV að nefndarmenn væru bjart- sýnir á að veitt yröi fé til verksins svo hægt væri aö hef jast handa sem fyrst. -JBH. HÁRGREIÐSLUSVEIIMN ÖSKAST NÚ ÞEGAR Uppl. í símum 36775 og 85517. Hárgreiðslustofan Edda, Sólheimum 1.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.