Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1982, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1982, Blaðsíða 33
DV. ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTOBER1982. 33 Sandkorn Sandkorn Sandkorn Gyffi Ægisson með hæstu STEF-greióslurn ar Gylfi Ægisson úr Vest- mannaeyjum hefur veriö duglegur við að semja lög og texta frá því hann varð þekktur fyrir um áratug. Hafa verk hans oft verið ofar- lega á vinsældalistum úndan- farinna ára. Núorðið líður varla sá óskalagaþáttur að ekki hafi verið spilað eitthvað eftir Gylfa Ægisson. Umsjónarmaður Sand- korns varð því ekki forviða þegar því var hvíslað að hon- um að Gylfi fengi nú hæstu STEF-greiðslurnar. Hvort sem það er nú rétt eða ekki er víst að Gylfi er með þeim hæstu. Útvarpsráð vill áfengisvarnar- mann í dagskrárgerð Nýlega greiddi útvarpsráð atkvæði um þá sem sóttu um stöðu dagskrárfulltrúa á út- varpi. Fékk Hclga Ágústs- dóttir flmm atkvæði. Umsækjandi sem óskaði nefnleyndar fékk tvö at- kvæði. Alls sóttu sextán um starf þetta. Um er að ræða afleysingarstarf í eiim vetur. Það er þó ekki útvarpsráð sem síðasta orðið hefur í máli þessu heldur útvarpsstjóri. Helga Ágústsdóttir hefur starfað hjá Félagsmáiastofn- un Kópavogs við fjölskyldu- ráðgjöf. Þá hefur hún unnið að áfengisvarnarmáium, meðal annars að gerð sjónvarpsþátta um alkóhól- isma. Dómarinn stóð á haus og teygði lappirnar upp í loftið Þehn varð ekki um sel, lögmönnunum sem fluttu mál fyrir borgardómi, er þeir komu að dómaranum í undar- legri stelllngu á gólfi réttar- salarins skömmu áður en réttarhald átti að halda áfram eftir réttarhlé. Sjálfur dómarinn stóð á haus og j teygði lappirnar upp í loftið. Lögmönnunum létti mjög er þeir fengu skýringuna: Steingrímur Gautur Kristjánsson, dómarinn, stundar innhverfa íhugun. Á hann það til að bregða sér i æfingar í réttarhléum. Til vonar og vara skal það tekið fram að Sandkorn selur þessa ekki dýrar en það keypti hana. En sagan er það góð að við látum hana bara flakka. Tónskáld vilja skatt á kassettur Eigendum flutningsréttar tónverka er, af skiljanlegum ástæðum, mörgum mjög í nöp við kassettur. Auðar kassett- ur eru enda keyptar og notað- ar tO að hljóðrita tónlist úr út- varpi, af hljómplötum eða jafnvel af öðrum kassettum. Meðal tónskálda og texta- höfunda er nú áhugi á þvi aö reyna að fá settan sérstakan skatt á auðar kassettur. Mun hugmyndin vera sú að sá skattur renni tU ST EFs, Sam- bands tónskálda og eigenda I flutningsréttar. Átli Heimir Sveinsson tónskáld er sagður 1 fremstur í flokki þeirra sem koma vUja skatti þessum á. íslenskur gamanmynda- flokkur brátt á skjáinn. islensku gamanþættimir, FélagsheimUið, munu brátt fara að birtast á skjánum. Þetta eru sex þættir sem Hrafn Gunnlaugsson leikstýr- ir. Ekki veit Sandkom um hvað þættirnir fjaUa. Nafn- giftir á einstökum þáttum lofa þó góðu. Þær eru: Sig- valdi og sænska linan, Opin- ber heimsókn, Meðtak lof og prís, Ekkert um að vera, Fé og falskar tennur og Leitin aö hjólinu. Meðai höfunda eru Jónas Guðmundsson, Agnar Þórðarson, Jón öm Marinós- son og Þorsteinn Mareisson. Umsjón: Kristján Már Unnarsson. Kvikmyndir Kvikmyndir Nýabíósýnir. Tvisvarsinnum kona Nýja B(ó sýnir: Tvisvar sinnum kona (Twice a woman) Leikstjóri og framleiðandi George Sluizer. Aðalhlutverk: Laura — Bibi Anderson Sylvia — Sandra Dumas Alfreð — Anthony Perkins. Mynd um ástir tveggja kvenna Myndin Tvisvar sinnum kona er óvenjuleg að vissu marki. 1 henni er að finna ástarþríhyming en þessi þríhymingur er myndaður af hjón- um sem era skilin og konu sem verður ástkona beggja. Aðalpersóna myndarinnar er Laura sem leikin er af sænsku leik- konunni Bibi Anderson. Laura er frá- skilin og bamlaus og starfar við safn. Hún á háaldraöa móður sem dvelst á gamalmennahæli í Frakk- landi en að öðru leyti á hún engan að. Það er gefið í skyn að hún hafi skilið m.a. út af því að hún gat ekki eignast barn. Einn góðan veðurdag hittir hún stúlku á götu, Sylvíu. Laura dregst strax að henni og býður stúlkunni heim. Þær fella hugi hvor til ann- arrar og úr verður aö Sylvía flyst til Laum undir því yfirskini að hún eigi vingott við ímyndaðan son Lauru. Þær fara saman í leikhús og hitta þar fyrrverandi mann Lauru, Alfreð. Alfreð er kvæntur á ný. Hann verður ástfanginn af Sylvíu við fyrstu sýn. Nokkmm dögum síðar þykist Silvía ætla að fara heim til sín, en er hún lætur ekki heyra í sér fer Laura heim til hennar og kemst að því að Sylvía er ekki þar. Það kemur upp aö hún hefur tekið saman við Alfreð. Laura er algjörlega eyöilögð mann- eskja því að Sylvía er allt í lífi hennar. Sylvía og Alfreð halda til Parísar. En einn góðan veðurdag birtist Sylvía í íbúð Lauru og tilkynnir að hún hafi einungis tekið saman við Alfreð til þess aö láta hann geta barn. Hún segir viö Laum að þetta sé í raun barniö sem hún gat aldrei eignast. Allt virðist brosa við Lauru. En daginn eftir fær hún simhringingu, Sylvía hef ur verið myrt. Tvisvar sinnum kona er aö ýmsu leyti athyglisverð mynd. I fyrsta lagi fjallar hún um lesbískt samband tveggja kvenría og auk þess um móöurtilfinningar. Einhvem tímann í myndinni er sagt: „Konan losnar ekki við áhrif móðurinnar fyrr en hún verður móðir sjálf,” eða eitthvaö á þá leið. I kringum þetta byggist myndin. Sambandi kvenn- anna, Sylviu og Lauru, eru gerð góð skil. Enda þótt það komi fyrir nokkur klaufaleg atriði í myndinni er hún vel gerð. E.t.v. er handritið ekki sérlega átakamikið, aö minnsta kosti skapast aldrei veruleg spenna í myndinni. En samtöl og persónu- sköpun eru með besta móti og við- fangsefnið óvenjulegt og athyglis- vert. Bibi Anderson og Sandra Dumas leika mjög vel, enda þótt Bibi jaðri oft við að vera tilgerðarleg og væmin. Gamli jaxlinn Anthony Perkins er góður eins og vant er. Ámi Snævarr. Kvikmyndir Kvikmyndir tÆÆ' RITARI Utanríkisráðuneytið óskar að ráða ritara til starfa í utanríkisþjónustunni. Krafist er góðrar kunnáttu í ensku og a.m.k. einu öðru tungumáli auk góðrar vélritunarkunnáttu. Eftir þjálfun í utanríkisráðuneytinu má gera ráð fyrir að ritarinn verði sendur til starfa í sendiráðum Islands erlendis. Eiginhandarumsóknir með upplýsingum um aldur, mennt- un og fyrri störf sendist utanríkisráðuneytinu,Hverfisgötull5, Reykjavík, fyrir 15. október 1982. Utanríkisráðuneytið. •••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••• KJÚSVERJAR Stofnfundur Rauöa kross deildar Kjósarsýslu verður haldinn í Hlégarði, Mosfellssveit, miðviku- daginn 6. okt. kl. 20.30. Á fundinum skýrir erindreki R.K.I starfsemi félagsins. RAUÐI KROSS ÍSLANDS. VARAHLUTIR Framluktir (aðalljós) Stuðararframan: ogafturljós: Cortina Escort Granada Taunus Cortina, Taunus. Frambretti: Cortina 77 Grill; Cortina, Taunus. C.ÓIKARSIOn. SKEIFUNNI5 SÍMI 33510 OG 34504 REYKJflVIK Við byggjum sjúkrastöð FÉLAGSMENN, VIÐ MINNUM YKKUR Á ÚTSENDA GlRÖSEÐLA. Þeir félagsmenn og aðrir, sem ekki hafa fengið senda gíróseðla og óska eftir aö styrkja bygginguna, hafi samband við skrif- stofuna í síma 82399. Hlaupareikningur 353, Útvegsbanka íslands, Laugavegi 105. OFT ER ÞÖRF — EN NÚ ER NAUÐSYN. TÖKUM Á MEÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.