Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1982, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1982, Blaðsíða 37
DV. ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTOBER1982. 37 DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL Eyði ekki meiri tfma í sjónvarpið „Ég hef verið áskrifandi að videóinu frá upphafi og mér finnst dagskráin í kerfinu alveg ágæt. Mest hef ég gaman af myndum sem teknar hafa verið hér í bænum af ýmsum viöburðum.” Það var Þóra Guðmundsdóttir starfsstúlka í kaupfélaginu í Borgarnesi sem mælti þessi orö. — Hver er ástæðan fyrir vinsældum kapalkerfisins í Borgamesi? „Líklegasta skýringin held ég að sé sú aö fólkið vill einfaldlega fá að velja um efni. Sjónvarpið þykir ekki nóg og jafnvel eru sumir óánægðir með efnið í því.” — Tekur skjárinn meiri tíma frá þér enáöurvar? „Nei alls ekki. Ég eyði síður en svo meiri tíma fyrir framan sjónvarpið nú heldur en þegar kapalkerfið var ekki til staðar. — Hvaða efni, annað en það stað- bundna, horfir þú á? „Ég hef mjög gaman af léttum kvik- myndum til dæmis góöum vestrum. En glæpamyndir vil ég alls ekki þurfa að horfa á — mér leiðast þær. — Á videóið í Borgamesi framtíð fyrir sér? „Það tel ég alveg tvímælalaust og er alls ekki hrædd um að þaö lognist út af. Mér hefur fundist fólkið hér almennt ánægt meö dagskrána og mikill áhugi fyrir kapalkerfinu meðal íbúa Borgar- ness.” Þóra Guðmundsdóttir var ánægð með kapalkerfið i Borgarnesi. „Komið út í öfgar” Þó að áhuginn á videóinu sé mikill í Olafsvík og fólkið virðist almennt vera ánægt með þessa þróun þá eru ekki allir á sama máli. Margrét Guömunds- dóttir skrifstofustúlka er ein þeirra sem ekki hafa séð ástæðu til að fá kapalinn tengdan við heimilið þó að henni standi það til boða. „Ég hef nóg með sjónvarpiö þó ekki bætist videóið við. Mér finnst þetta komið út í öfgar hér í bænum og vera orðið að hálfgerðri plágu. Fólk situr hér oft langt fram eftir nóttu og horfir á videóið. Ég hef enga þörf fyrir þetta auk þess horfi ég yf irleitt lítið á s jónvarpið. Einn gallinn við kapalkerfið er að erfitt er aö koma bömunum í rúmið. Þeim finnst vitaskuld miklu meira spennandi að horfa á kvikmyndir heldur en að fara í háttinn. ” — En nú ber fólk því við að lítið sé við að vera hér í bænum? ,jEg á ekki við neitt slíkt vandamál að stríða og finn mér eitthvaö annað til dundurs en að horfa á sjónvarp eða videó. En annars finnst mér heimavideóið mun sniðugra — það er þegar menn eru með sitt eigiö tæki og geta þá stjórnaö efnisvali og öðru að öllu leyti sjálfir. Ég gæti miklu frekar hugsaö mér það þó ekki hafi ég aögang aö slíku tæki. Að minnsta kosti ekki enn semkomiðer.” Margrit Guðmundsdóttir í Ólafsvík kvaðst ætía aðláta sjónvarpið nægja. Kapalkerfið býöur upp á möguleika — segir Sæmundur Bjamason í Borgamesi Utvarps-, sjónvarps- og videófélag Borgamess nefnist félagsskapur sem rekið hefur kapalkerfi í Borgarnesi um rúmlega eins árs skeið. Forsvars- maöur kerfisinserSæmundurBjama- son. Hann er mikill áhugamaöur um kapalkerfi og hefur komið fram með þá hugmynd aö stofnuð verði lands- samtök kapalkerf a. — Hvers vegnaþað? „Það myndi leysa mörg vandamál varðandi efnisöflun ef landssamtök yrðu mynduð. Þá gætu slík samtök séð um alla samninga fyrir videókerfin í heild og síðan yrði efninu dreift á milli stöövanna. Það myndi bjóða upp á vandaðra efni og reksturinn yrði allur mun hagkvæmari. Einnig myndi það koma í veg fyrir að verið væri að sýna ólöglegt efni í kerfunum eins og boriö hefurá.” Víðtækara en ætíað var — Hvert var upphafið að kapalkerf- inuhéríbænum? „Upphafið var nú bara þaö að við tókum okkur saman í einni blokkinni hér um að koma okkur upp sameigin- legu videókerfi innan hússins. Þá höfðum við engin áform um aö hafa það víðtækara. En reyndin varð önnur því aö mikill áhugi kviknaöi á þessu meðal annarra íbúa bæjarins. Og endirinn varð sá að nú eru um 70 íbúðir tengdar viö kapalinn og þessa dagana eru 40 að bætast viö. Þannig varð stefnan nokkuð óvænt.” — Hver er ástæðan fyrir útbreiðsl- unni? „Það sem olli því í upphafi að við fórum út í þetta var fyrst og fremst nýjungagirni. Ástæðurnar fyrir því að svo margir hafa bæst við eru sjálfsagt margar. Mikil óánægja er hér með júlí- lokun sjónvarpsins og sérstaklega átti það við í sumar þegar Heimsmeistara- keppnin í knattspymu stóð yfir. Einnig held ég aö atvinnulífið i bænum geri þaö að verkum að Borg- nesingar em mjög opnir fyrir ýmsum nýjungum þegar frítíminn er annars vegar. Við erum ekki með fiskvinnslu hér heldur einungis iönað og þjónustu- fyrirtæki. Af þeim sökum höfum við rýmri frítíma en fólk sem býr í sjávar- þorpum. Kapalkerfið er því ágæt lausn á þessu meðal annrs. Ég get einnig nefnt annað dæmi um þetta hér í Borgarnesi. Það er félag sem stofnað hefur verið og nefnist FÁT — Félag áhugamanna um tölvur. I því starfar fólk sem er með heimilistölvur en þær em nú þegar orðnar um tuttugu hér í bænum. Félagsmenn komu saman vikulega í vor með tölvurnar og fóru þá í gegnum alls kyns prógrömm. Börnin em mikiö í þessu og fara þá í leiki ýmiss konar enda eru þau mjög næm fyrir þessu og fljót að læra á tölvurnar. Margir möguleikar — Hvað kostar að vera aöili að kapalkerfinu? „Áskrifendur greiða 80 krónur á mánuði. Auk þess em það íbúarnir í viðkomandi hverfum sem sjá um lagn- ingu kapalsins. Síðan ganga menn í félagið.” — Hvað sérðu í framtíðinni varð- andi kapalkerfin? „Ég hef þá trú aö kapalkerfin eigi framtíð fyrir sér. Þau bjóða upp á svo geysilega möguleika — miklu meiri en fólk gerir sér almennt grein fyrir. Viö tengjum til dæmis sjónvarpið viö kapalinn og viö það hafa myndgæðin batnaö töluvert hjá þeim sem áður höfðu tmflanir í tækjunum. Þá þarf líka bara eitt loftnet fyrir allt kerfið. Og ef gervihnattamóttökur verða að staðreynd þá gildir það sama um þær. I stað þess að hver og einn sé með stærðar loftnet á húsinu þá þarf aðeins eitt. Við getum útvarpað í gegnum kapal- inn og auk þess er mögulegt að tengja saman tölvur í kerfinu. Að visu þarf til þess aukaútbúnað, þannig að merkin gangi í báöar áttir, en þaö er ekki svo mikiö mál. Það myndi bjóða upp á víðtæka upplýsingaþjónustu eða það sem nefnt hefur verið upplýsinga- bankar og er orðið nokkuö algengt erlendis.” Umræðuþættir o.fi. — Hvað sendið þið út lengi á viku? „Það hafa verið níu til tíu klukku- stundir á viku, og mest af efninu er endursýnt. Við sýnum margs konar efni. Mest em það þó kvikmyndirnar sem eru vinsælastar og svo einnig tölu- vert af bamaefni. Sýningadagamir em frá fimmtudegi til mánudags og við sýnum aldrei á meðan á sýningum sjónvarpsins stendur.” — Hafið þiö gert ykkar eigin myndir? „Viö höfum gert nokkrar slikar. Nýlega sýndum við 40 mínútna langan umræöuþátt um íþróttalíf í bænum. Einnig tókum við upp Borgarfjarðar- rallið og hátíðahöldin 17. júní, golfmót sem hér var haldið og einn þáttur fjallaði um hestamennsku. En svona þáttagerð er mjög dýr ef greiða þarf laun fyrir vinnu. Hingað til hefur allt veriö unnið í s jálfboöavinnu og þetta er hægt á meðan svo er. En þær myndir sem við höfum gert era þannig að ekkert hefur þurft aö vinna eftir á — klippa saman og svo framvegis. Ef þaö þarf að vinna eitthvað eftir aö myndin hefur verið tekin þá em það miklu meira mál og við höfum engan búnað til þess. Hvað svo sem verður í framtíðinni.” Bætir upp tilbreytingaríeysið Á göngum hraðfrystihússins í Olafs- vík hittum við unga konu sem kvaðst heita Karen Steinsdóttir. Við inntum hana álits á videóvæðingunni í bænum. „Mér líst mjög vel á þetta og er nokkuö ánægö með dagskrána hingað til. Skemmtilegasta efnið þykir mér vera kvikmyndimar og svo einnig þær fréttamyndir sem sýndar hafa verið og f jölluðu um viðburði héðan úr bænum. Einnig vil ég geta þess að það er mun meira gert fyrir bömin í kapalkerfinu heldur en er í sjónvarpinu. Það finnst mér sérstaklega ánægjulegt.” Hvers vegna er svona mikill áhugi á kapalkerfinuhér? „Þar held ég að komi ýmislegt til. Fólkið vildi viðbót við dagskrána. Hér er lítið vm að vera annað en vinnan og videóið bætir þetta upp. Það er algengt á vetuma að við veröum sjónvarpslaus hér og þá er gott að geta stillt á videóið. Og sjálfsagt hefur fólkið einn- ig verið óánægt með dagskrá sjón- varpsins þó það hafi nú sennilega ekki valdið mestu um áhugann. Einnig er ég ánægð með það að myndgæðin hjá mér hafa batnað mikiö eftir að sjónvarpið var tekið inn á kapalinn. Nú er ég laus viö allar trafi- anir sem ég þurfti áöur að búa við.” — Heldurðu að kapalkerfið eigi ein- hverja framtíð fyrir sér? „Ég hef enga trú á öðru. Hér er mikill áhugi fyrir þessu meðal íbúanna eins og sést best á þeim fjölda sem þegar er kominn með kapalsjónvarp. Þátttakan er mjög góð og ég held að svo verði áfram,” sagði Karen að lokum. H Karen Steinsdóttir er nú laus við allar truflanir isjónvarpi sinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.