Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1982, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1982, Blaðsíða 4
4 DV. ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTOBER1982. BEST AÐ VERA NAKINN Leikfólag Reykjavíkur: SKILNAÐUR eftir Kjartan Ragnarsson Lýsing: Daníel Williamsson Tónlist: Áskell Másson Loikmynd og búningar: Steinþór Sigurósson. Leikstjóri: Kjartan Ragnarsson. Þaö er nú efalaust aö leiksagan í Skilnaöi, frásagnarefniö í leiknum í öllum meginatriöum sinum, fjöl- mörg leikatriöi óbreytt gætu gengið fyrir sig í alveg venjubundnu natúralísku leikriti, á venjulegu leiksviöi. Af hverju þá aö setja leikinn á hringsvið meö áhorfendur á alla vegu? Af því bara ? Þaö má sem sé mætavel hugsa sér frásögnina í Skilnaði í alveg heföbundnu leikformi. En er ekki um leið hætt viö að slík frásögn yrði í verkinu ansans ári skringileg? Hallærisleg? Svo mikið er víst aö ekki er þaö neitt smáræði sem gengur yfir hana frú Kristínu Stefánsdóttur í leikriti Kjartans Ragnarssonar. Ósköp að heyra Maöurinn skilur viö hana þegar þau eru komin um miöjan aldur og hún farin aö vinna úti, og er hann þó oröinn Iasinn og þarf á henni að halda. Eins og hún á honum. Vinirnir bregöast henni — meö vorkunnsemi sinni ekki síöur en afskiptaleysi. Fari hún á skemmtistað aö létta sér upp verður hún fyrir megnasta aökasti og ásókn af gírugum, ósvífn- um körlum, jafnvel kunningjum sín- um. Dóttir hennar ung helst ekki viö heima lengur, rifin og tætt á milli móöur sinnar og fööur, og freistar þess af veikum mætti að fara aö búa sjálf. Kristín reynist aö vísu ágætis starfskona og framast brátt í vinnu sinni. En þaö sem starfiö gefur henni kemur ekki í staö þess sem hún hef ur misst. Sólborg samstarfskona hennar er kynvillt og þarf ekki á karimönnum aö halda. En þegar ást- konan bregst henni vill hún komast í skjól Kristínar, og þaö getur Kristín ekki leyft, henni er um megn að lifa lífi sínu upp á býti Sólborgar. Ætla má aö viö svo búið sé úti um vinfengi, samneytiþeirra. Ekki nóg með þetta. Kristín fær sér heimilishjálp og vinnukonan hennar, Baddý, á aö sínu leyti í al- deilis öfugum hjúskaparvanda viö Kristínu. Karlinn hennar lætur hana ekki lausa, allra mesti hrotti og alltaf meö hnefann á lofti, en Baddý gengur blá og blóðug undan honum. Engu h'kara en hann eigi hf sitt undir því aö fá að traðka hana undir fótum eftir þörfum sínum og hentug- leikum. Eftir enn eina mis- þyrminguna, flýr Baddý um síöir undú- vemdarvæng Kristínar. En þær fá ekki lengi aö njóta félags- skaparins, karlhrottinn óðara kominn á eftir Baddýju og meö báöa hnefa á lofti, aldeilis blindaöur af kynferðislegum fordómum og þeirri helvítis heift sem karlmennska blæs honum í brjóst. Honum finnst ekki nemaeitt aðgeraviðkvenmanneins og Kristínu. I þeim svifum sem hann ætlar aö fara aö nauðga henni grípur Baddý til örþrifaráöa og stingur hann á hol með stómm hníf. Æ,æ, æ! Oskö eru að heyra þetta! Satt og logið sitt erhvað Þaö era mikil mál í húfi í Skilnaði. Og ekki efi á því aö þau vandamál, einstök atvik í frásögninni, og þar meö fólkið sem viö söguna kemur, má öhsömul tU sanns vegar færa. Annaö eins og hér er sýnt getur gerst og hefur gerst í raun og veru. Ekki einu sinni fyrir þaö aö synja aö ein og sama mannesk jan hafi einhverntíma gengið í gegnum aöra eins rauna- roUu og á Kristínu er lögð í leiknum. Samt sem áöur er eins og þaö háha væri nóg — í venjubundnu leikformi, og á venjulegu leiksviöi. Frá þeim bæjardymm séö má finna þaö að Skilnaði að hiö ögrandi og á- reitna sviðsform á sýningunni sé í rauninni merkingarlaust, auki engu nýju viö efnið sem eigi eftir eðli sínu heima í natúralisku leikriti. Aftur á móti sé sviösfærslan til þess ætluð og löguð aö draga dul á og hylma yfir ótölulega vankanta á hinu fyrir- hugaöa heföbundna leikriti, form- gerð og frásagnarmáta, persónu- sköpun eins og leiksögunni sjálfri, sem ella lægju í augum uppi og yröu brátt aöhlátursefni á natúralísku leiksviöi. Þessum aöfinnslum má aö vísu svara meö öömm rökum fyrir höfundarins hönd og sýningarinnar. Segja sem svo aö sjálft hiö natúraliska leikform, rökföst leiksaga, samkvæm viöteknum hug- myndum um „eöli og lögmál” veruleikans, ýtarleg persónulýsing, sköpun raunvemlegra einstaklinga í hlutverkunum, sé í sjálfu sér til þess fallin aö falsa veruleikann og vanda- málin. Meö því að gera almenn og alhæfanleg vandamál og ein- staklingsbundnum og. persónuleg- um vanda — til aö láta hann uppi og jafnvel leysa hann innan ramma viö- tekins sálfræðilegs „raunsæis”, í krafti „skáldlegrar” andagiftar um persónugerð, atvikarás, umhverfi. Auðvitað væra vemleikinn og vanda- Leiklist ÓlafurJónsson málin aldeilis söm og jöfn fyrir það aö leik loknum, en leikurinn hiö hent- ugasta skálkaskjól fyrir áhorf- andann aö gleyma því. Á hinn bóginn sé í Skilnaði, meö því að afklæða yrkisefniö heföbundnu frásöguformi, en halda fólki og atvikum á sviöinu ein- vöröungu fram fyrir dæmum, og foröast allar skáldlegar tilfæringar með efniö, veriö að leiða veruleikann nakinn fram fyrir sjónir áhorfenda. Allt sem gerist í leiknum gæti í rauninni og hefur raunar gerst. Hiö ágenga og ögrandi leikform í sem mestum námunda viö sem flesta á- horfendur, alhæfing efnisins, sem hin einfalda stílfærsla frásagnarinn- ar geymir, sé í rauninni til þess ætluö og fallin að brýna vandamálin fyrir áhorfanda, minna á lífiö og vem- leikann eins og þaö svo alltof oft er. Og þaö er aö vísu mesta undir áhorfendum komiö hver kosturinn veröur ofan á í Iönó nú í haust. Sterkur og einn? I haust er best aö vera nakinn í leikhúsinu. Ekki nóg meö Adam og Evu í Edens lundi. I Skilnaöi standa líka þau fráskildu hjón, Árni og Kristín: Jón Hjartarson og Guörún Ásmundsdóttir, allsnakin uppi. Annaö skiptiö er í upphafi seinni hluta, eftir hlé, uppi í rúmi eftir vel- lukkaðar samfarir. Þetta er svona gamaldags ,,djörf” sena sem litlu skiptir. Aftur á móti skiptir upphaf leiksins heilmiklu máli fyrir sjónrænt samhengi hans: Kristín nakin uppi á borði, undir ljósa- hjálmi, sem minnir í senn á skurðar- borðoglíkkistu. Veigamesta aðfinnsla aö Skilnaði held ég sé aö leikurinn sé of reikull í rásinni milli natúralisma og stíl- færslu, veruleikalíkingar í einstök- um leikatriöum, hlutverkum og þeirrar vemleikatúlkunar, sem leikurinn vill í heild láta uppi. t Skilnaði er tæpt á mörgum leik- ritum, frásagnarefnum að heföbundnum raunsæishætti: um samband hjóna, mæðgna, vin- kvenna, allt tilbrigöi um samband karls og konu. Og hættan sú aö hin einstöku söguefni skyggi á heildar- sýn hans á- yrkisefniö, lifið og vem- leikann, kjör karls og konu í sambúö. Sú sýn er í Skilnaði harla nöturleg: Þaö getur enginn átt neinn annan, má ekki ætlast til þess af neinum, sjálf sú tilætlun leiöir beint í voöann eins og dæmi Odds og Baddýjar sýnir. Aftur á móti þurfum viö hvert á öðru aö halda, veröum aö eiga hvert annaö aö, ef lífiö á aö vera bærilegt. 1 leikslokin í Skilnaöi vilja þau snúa heim aftur til Kristínar, Sif dóttir hennar og maðurinn hennar, Ámi. En nú þarf hún ekki lengur á þeim aö halda og vísar þeim á burt. Nú þarf hún og getur verið ein. Hún er orðin sjálfstæö. Er það nokkuð nema annaö orö fyrir að standa al- einn uppi? Og þaö er svo sárt og átakanlegt. Skáld á sviði Sex leikendur flytja leikinn í Iönó viö fjarska einfalda sviðsmynd, ívaf tónlistar eöa „leikhljóða” sem reynast virk og áhrifarík í sýning- unni, haganlega samin að efni og aö- ferö hennar. Leikendur koma ýmist fyrir í hlutverkum, framvindu leik- sögu sem í öllum aöalatriðum veröur meö hefðbundnu natúralísku móti, eöa saman í kór í stílfæröri umgerö sögunnar. Og þama gætir aftur sama tvíveörungs efniviðar og aðferðar sem áöur var vikiö aö: ekki fann ég betur en túlkun aöalhlutverk- anna, Kristínar, Áma, Baddýjar vinnukonu: Valgeröar Dan væri aö öllu leyti samin aö hefðbundnu raunsæismóti. Aftur á móti fannst mér aö minni hlutverkin gerðusig betur, þar gengi stUfærsla efnisins inn í sjálfa persónusköpunina, Sólborg: Soffía Jakobsdóttir, Oddur: Aöalsteinn Bergdal, Sif: Sigrún Edda Björns- dóttir. I öUu falU tókst þeim Soffíu og Aöalsteini í og með þeim Sólborgu og Oddi aö láta uppi alveg raunvemleg- an einmanleika, angist, ofstopa umfram það sem oröræöan geymir og hin sorglega atburöarás. Og þar er einhverstaðar eiginlega skáld- skaparefnið í leiknum. Skilnaöur breytir svo sem engu um skoðun manns á Kjartani Ragnars- syni. Hann er eftir sem áöur ekki bara afkastamesti heldur líka eftir- tektarveröasti höfundur okkar í leikhúsinu um þessar mundir. En það er ekki af því hvað Kjartan er flínkur leikhúsmaöur, þótt hann sjálfsagt sé það. Heldur þrátt fyrir það. Þaö er eins og í hverju leikriti Kjartans sé miklu meira efni fyrir aö fara en honum hefur enn auönast aö ná tökum á og sýna fram á það í orö- ræðu og athöfn á sviðinu. Hann á enn eftir að veröa þaö leik- skáld sem verk hans veita fyrirheit um. Á leiksviðinu. Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Betlistafir vinstri stjórna frá 1956 Morgunblaðið segir um helgina, að vinstri stjórairnar i landinu hafi verið fjórar, en ekki þrjár, eins og stundum hefur verið talað um, þ.e. vinstri stjórn 1956—1958, vinstri stjóra 1971—1974 og sú vinstri stjóra sem nú situr. Blaðið vill bæta við þriggja flokka stjórainni frá 1978— 1980, sem má vel til sanns vegar færa. En þá væri ekki úr vegi að minnast nýsköpunarstjóraarinnar, sem keyrði með okkur beint í kreppu og Marshall-aðstoð, sem gekk svo langt, að innheimtir voru tollar af Marshall-góssínu og Bandaríkja- menn látnir borga þá. í nýsköpunar- stjórainni gekk nefnUega eitt eyðsluæðið yfir, þegar öllum erlendum f jármunum okkar var eytt í svo tU eina atvinnugrein, án þess að hún efldi atvinnu tU muna umfram það sem verið hafði. Vinstri stjómiraar hafa því verið fimm, og allar hafa þær eflt mjög verðbólgu í landinu. Nú er stundum verið að spá því, að svonefndar „sögulegar sættir” takist og Álþýðubandalagið og Sjálf- stæðisflokkur myndi næstu vinstri stjóra. Hefur það raunar ekki gerst, nema með frávikum, að vinstri stjóra hafi tekið víð af annarri vinstri stjóra, vegna þess að koma hefur þurft viti í efnahagsmálin á mUIi hríðanna. Gott dæmi um þetta var. stjóin Suians Jóhanus Siefáns- sona:, sem kom á eftir nýsköpunar- stjórninni. Sameiningarflokkur alþýðu, sósiaUstaflokkurinn, sá þá leik á borði og hóf upp æðis- genginn áróður gegn Stefánl og stjóra hans, „Stefaníu”. Ljóst var, að sú stjóra átti i miklum erfiðleik- um vegna viðskilnaðar nýsköpunar- stjóraarinnar. Það var því kjörlð tækifæri fyrir Sameiningarflokkinn að nudda Alþýðuflokknum upp úr ófaraaði, sem Sameiningar- flokkurinn átti sjálfur sök á. En Morgunblaðið ræðir ekki svo mjög efnahagslegan ófarnað vinstri stjóraa i þetta sinn, heldur bendir réttUega á, að i hvert sinn sem kommúnistar hafa setið í stjóra á íslandi síðan árið 1956, hafa þeir verið beinir valdendur að samningum við Bandaríkjastjóra, ýmist tU öflunar lánsf jár eða fram- kvæmdafjár. Nefnir blaðið þrjú tUvUs og segir: „Nægja þessi þrjú tUvik tU þess að nýtt sögulegt lögmál sé orðið tU i islenskri utanrikismála- stefnu. Varaarleysisstefna vinstri flokkanna leiðir tU þess að íslending- ar fá doUara hjá Bandarikjastjóra.” Þetta sögulega lögmál þarf að athuga vel og gera það lýðum ljóst, að athafnir vinstri flokkanna í utan- rikismálum verka á venjulega vestræna menn eins og hvert annað „blackmaU”. Alvöruleysið og stefnu- skorturinn i afstöðu tU varnarbanda- laga, sem kommúnistar reyna ætið að troða inn i stjóraarsamninga, hefur í raun orðið tU lítUs annars en auka sókn okkar i framlög Banda- rikjanna tU varnarmála. Menn geta getið sér nærri, hver virðing hlýst af slíkjum hundingjahætti. Ljóst er, að við leggjum land tU varaa okkur sjálfum, Vestur-Evrópu og Banda- rikjunum. Við eigum auðvitað sjálfir að leggja eitthvað af mörkum tU varnarmála, vegna þess að við erum hluti af Nato. En við eigum jafnframt að krefja Nato um greiðslur fyrir þá aðstöðu, sem hér er veitt tU viðhalds nauðsynlegri varnarkeðju Vesturlanda. Þangað tU þessu verður kippt i liðinn, Uggur á okkur sá þungi orðrómur, að við séum háðari Bandarikjamönnum en góðu hófi gegnir. Láns- og fram- kvæmdafé frá Bandarikjunum i hlut- faUi við áhrif kommúnista á stjórn landsins er svo umhugsunarefni fyrir þá, sem í raun vUja að við séum sem óháðastir öðrum þjóðum. Við tökum engan þátt i kostnaði við Nato, eins og okkur ber að gera sem sjálfstæðri þjóð. Við tökum enga leigu fyrir afnot af landi, eins og okkur ber líka að gera. Við höfum vaUð þann kostinn að láta kommúnista koma óbeinum beiðnum um doUara á framfæri við Banda- rikjamenn. Það er von að Morgun- blaðið segi: Þarf vinstri stjóra tU að selja landið? Svarthöfði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.