Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1982, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1982, Blaðsíða 10
10 DV. ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTOBER1982. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd vangaveltur aö æsispennandi reyfara sem heldur sjónvarpsáhorf- endum hugföngnum. En sannanir skorti algjörlega fyrir slíkum áburði og hafa aðrir fjölmiðlar aö visu getiö þessa sjónvarpsþáttar og hug- mynda Kalbs, en farið afar gætilega meö og tekið lítt undir. TASS-fréttastofan hefur birt yfir- lýsingu þar sem fordæmdar eru slikar tilraunir til þess aö dreifa óhróöri um Sovétstjómina og umtalinu vísaö á bug sem lygaá- róðri. Talsmaöur Páfagarðs hefur opinberlega neitað nokkurri vit- neskju um nokkurt slikt páfabréf til Brezhnevs eöa leynilegar sendi- farir til Moskvu. Á dögunum sakaöi Alfonse D’Amato, öldunga- deildarþingmaður, CIA, banda- rísku leyniþjónustuna, um aö hafa hundsaö upplýsingar sem hann veitti henni í október 1981 um aö Kreml hefði veriö flækt í tilræöiö við páfann. Talsmenn leyni- þjónustunnar hafa lýst því yfir viö fréttamenn vikuritsins TIME aö þeir hafi engar sannanir fyrir því aö páfi hafi átt hlut aö stofnun Einingar . Flestir þeirra sem best fylgdust meö viðburðunum í Póllandi á árinu 1980 draga mjög í efa að páfinn heföi sent menn til slíkra afskipta fyrir hönd Einingarmanna á sama tíma sem Stefan heitinn Wyzynski kardináli skoraöi á verkamenn aö lægja öldumar og vægja í kröfugerð sinni. Og jafnvel þótt hann heföi gert svo ólíklegan hlut hví heföi þaö átt aö veröa Sovétmönnum tilefni til þess aö senda honum flugmann níu mánuðum síðar? Þá var skaöinn hvort eö er skeður og búiö aö stofna Einingu. Og ef Sovétmönnum varö svona mikiö um afskipti páfans, hví aftraöi þaö þeim þá ekki eins frá því aö láta pólsk yfirvöld senda herinn á almenning í desember síöasta ? Greinilega hefur rannsóknar- blaöamennska Marvins Kalbs vakiö fleiri spurningar en hún svaraöi. (Þýttúr „TIME”.) Afganistan: Á slóð Tyrkjans, Mehmet Ali Agca Þaö var 13. maí 1981 sem hönd hófst upp úr andlitsmergðinni á Péturs- torginu og hleypti af nokkrum skotum aö Jóhannesi Páli II. páfa. Eftir snögg réttarhöld ítalskra yfir- valda hvarf Mehmet Ali Agca (23 ára), sem sjálfur titlaði sig „alþjóðlegan hryöjuverkamann”, á bak viö fangelsismúrana til ævilangrar vistar. Hann skildi eftir sig f jölda spuminga ósvaraðra. Hver var hann? Hvaðan kom hann? Hví geröi hann þetta? Var hann einn í ráöum eöa sendur af öörum? — Fréttamenn og lögregla reyndu aö leita svara viö því, en þeim varð ekki mikiö ágengt. Marvin Kalb, fréttamaður hjá bandarísku sjónvarpsstööinni NBC, var meöal þeirra sem eltust viö slóöina og geröi úr þeirri leit sinni klukkustundarlangan sjónvarpsþátt. Taldi hann sig hafa fundiö ýmislegt nýtt til aö varpa ljósi á málið, sumt sannaö, annað getsakir. Taldi hann sig geta rakið slóöina frá Péturstorgi til Rauða torgsins í Kreml. I fyrstu rakti hann hryöjuverka- tengsl Agca til heimalands hans í Tyrklandi þar sem Agca haföi verið í kynnum viö öfgamenn jafnt til hægri sem vinstri. I júli 1979 haföi Agca játaö sig sekan um morðið á tyrk- neska blaöamanninum Badi Ipekci. Agca strauk úr fangelsi fimm mánuðum síöar. I júh' 1980 skaut Agca upp í Sofíu, höfuöborg Búlgaríu. Samkvæmt því sem NBC segir. dvaldi Agca í sjö vikur á bestu hótelum þar og varö sér þar úti um falsað, tyrkneskt vegabréf. Jóhannes Páll II. páfi hnígur i faðm aöstoðarmanna sinna særður af byssukúium tyrkneska hryðjuverka- mannsins á Póturstorginu. 77/ hægri er svo hryðjuverkamaðurinn, Agca, iitölskum járnum. Lá slóð hans frá Rauða torginu? Kalb veltir vöngum yfir því aö þaö kunni að hafa veriö í Sofía sem Agca hafi óbeint verið ráöinn á mála h;E Sovétmönnum. Telur NBC-maöurinn aö Agca hafi ekki getaö athafnaö sig í Búlgaríu án þess aö búlgarska leyniþjónustan hafi látiö sér þaö lynda. Og þar meö hin sovéska KGB- leyniþjónusta sem ráöi öllum leyni- þjónustum austantjaldsríkja. Þegar þama var komiö grufli sjónvarpsþáttar Kalbs haföi fátt komiðfram semaörirhafaekkiþeg- ar dregiö fram í dagsljósið. En þá kom hann meö „stóru bombuna” sem lá í því að ætla Moskvu ná- kvæmar ástæöur til banatilræðis viö páfann. Kalb vitnar í ónafngreindar heimildir í Páfagaröi og segir aö páfinn hafi í ágúst 1980 sent erindreka sinn til Kremlar þegar allt logaði í verkföllum í Póllandi. Erindrekinn á aö hafa afhent Brezhnev forseta handskrifaö bréf frá páfa sem heföi hótaö aö stíga niður úr páfastóli og snúa heim til Póllands til liðs viö andófsöflin ef Sovétmenn réðust inn í landiö. Eftir ýmsar sendifarir milli Moskvu, Varsjár og Rómar — samkvæmt frá- sögn Kalbs — fékk erindreki páfans talið Sovétmenn á aö sætta sig við samkomulagið sem leiddi til stofnunar Einingar , hinna óháöu verkalýöshreyfingar Pólverja. Kalb segir aö Brezhnev hafi veriö æfur af afskiptum páfans og þeim hótunum guösmannsins um aö senda milljónir dollara til Einingar. Hann telur aö Brezhnev kunni aö hafa ákveðið aö losna við þennan „afskiptasama prest.” Meö áhrifaríkum aöferöum tækni- manna sjónvarps má gera svona Vöruskortur eykst og skæruliðum vex ásmegin Flóttamenn frá Afganistan, sem flúiö hafa til Pakistan, segja aö skortur á nauðsynlegum matvælum eins og t.d. hveiti og hrísgrjónum hafi leitt til gífurlegra hækkana á matvörum. Sögöu flóttamennirnir aö svartamarkaösbrask meö þessar vörur blómstraöi og þyrfti fólk sums staöar aö greiða um 300 krónur fyrir tæp sjö kUó af hveiti, eöa fjórum sinnum meira en það verö sem á- kveöiö er af ríkinu. Yfirvöld í Kabul hafa viöurkennt aö svartamarkaös- verðið á hveitinu þar í borg væri tvöfalt meira en þaö opinbera. Vestrænir diplómatar hafa látiö hafa eftir sér að matarskorturinn væri bein afleiðing af þeirri eyöileggingu á uppskeru sem sovésk og afgönsk herlið valda og flótta bændanna tU Pakistan. Og ekki bætir sá siður Mujahidin- skæruliöanna úr skák aö hamstra kom tU eigin neyslu á þeim svæöum, semþeirráöayfir. Stjórn Babrak Karmals og for- maöur kommúnistaflokksins hafa tilkynnt aögeröir til verðstöövunar og aukinn innflutning frá Sovét- ríkjunum á kjúklingum, mataroliu og hrísgrjónum. Segir stjómin aö Sovétmenn hafi veitt leyfi fyrir útflutningi tU Afganistan sem nemi um 36 miUjón- um Bandaríkjadala. Hér er m.a. um aö ræöa vefnaðarvöru, byggingar- vörur, lyf, te, vindlinga, mjólkurduft og sápu. Segja vestrænir diplómatar aö þetta bendi tU tilfinnanlegs skorts á þessum vörutegundum. Skilja eftir sig skræinaða jörðina Á þeim stööum sem komið hefur tU aukinna átaka á mUli skæruliða og Sovétmanna hafa herliðin aðeins skiliö eftir sig skælnaða jöröina. Þyrlur og flugvélar búnar nifteindasprengjum hafa gert sprengjuárásir á þorpin og síðan kerfisbundiö kveUct í ökrunum. Að sögn eru þetta hefndaraögeröir fyrir uppreisnartilraunir. Einnig segja flóttamennirnir aö margir akrar liggi nú í auön vegna þess að bændumir hafa annaöhvort gengiö í liö skæruliða eöa veriö kallaðir í afganska herinn. Þar var aldurstakmark til herskyldu nýlega lengt og eru nú allir karlmenn á aldrinum 17—46 ára herskyldir. Afleíöingin af þyngdum her- skráningarlögum hefur valdið því aö æ fleiri menn á herskyldualdri flýja til Pakistan. Einnig hefur þaö aukist aö hermenn úr afganska hemum gangi skæruliöum á hönd og fleiri og fleiri sovéskir hermenn gefast upp fyrir skæmliöum. Vestrænir diplómatar í Kabúl segja aö stjómin hafi lagt fram reglur um þjóðvamarlið þar sem beöiö veröi um þátttöku þeirra manna á aldrinum 16—55 ára sem em ekki þegar í hernum. Samkvæmt þessum reglum skal líka kenna 10— 16ára bömumaðverjasig. Hættulegt að þjálfa borgara í vopnaburði Á fundi í Nýju Delhi sögöu vest- rænir diplómatar frá þeirri ákvöröun stjómarinnar að fela mið- og héraös- stjórnarráðuneytum að sjá um myndun þjóövamarliös. Var sú á- kvörðun túlkuö á þá leið að þetta væri gert til aö unnt sé aö losa af- ganska hermenn viö gæslu í borgunum svo aö hægt sé aö nota þá í beinum bardögum viö skæruliða. Þeir bættu því viö aö þaö mundi þó hafa mikla áhættu í för meö sér aö gefa borgurum vopn í hendur og æfingu í meðferð þeirra sem síöar gætu svo snúist á móti stjórninni. Afganskir skæmliöar sem sneru aftur til búöa sinna eftir fjögurra mánaða ferö um landiö segja aö Sovétmenn ráöi nú aöeins y fir 20% af landinu og aö næturárásum upp- reisnarmanna á borgir og þorp í ná- grenni höfuöborgarinnar hafi fjölgaö. Fréttir hafa borist um tveggja vikna bardaga í Panjshir dalnum. Er sagt aö her stjórnarinnar og Sovét- manna hafi þá einnig gert sprengjuárásir úr lofti á bæinn Rokha sem er í 59 km f jariægö frá Kabúl. Segja diplómatamir að vegurinn frá Panjshir til Rohka sé nú svo stráöur eyðilögðum skriðdrekum, herbílum og þyrluflökum sovéska- og afganska hersins aö oröiö hafi að grípa til þess ráös að senda þyrlur eftir hermönnum sem lokuðust inni í dalnum. Einnig hefur öryggisgæslu á. veginum frá Kabúl til Jalabad (rúml. 100 km austur af Kabúl) hrakaö svo mjög aö skæruliðum tókst þann 10. september aö valda umtalsveröum skemmdum á um tveimur tylftum herflutningabíla sem samflot höföu um veginn. -JÞ. (Int. Herald Tribune) Afganskur „heimillalðnaður": Skothylkl fyllt með púðri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.