Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1982, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1982, Blaðsíða 5
DV. ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTOBER1982. 5 Áslaug Jensdóttír gaf nýjum togara Dýrfiröinga nafniö „Slóttanes". Á myndinni er Áslaug ásamt eiginmanni sinum, Valdimar Kristínssyni, t.v. stjórnarformanni Fáfnis hf., og Vilhelm Annassyni, sem verður skipstjóri á Sléttanesinu. DV-mynd: GS/Akureyri. Hvaða snyrtimenni fékk miða 3752? — Pylsuvagninn í Austurstræti býður viðkomandi að borða í Lúxemborg Ekkert tísku- svartnættishjal — sagði Sigurður Kristjánsson, kaupfélagsstjóri Dýrfirðinga, við sjósetningu nýja togarns „Þaö er fjarri okkur aö taka tísku- svartnættishjal um endalok fiskveiöa landsmanna okkur í munn. Viö verðum að leyfa okkur þá bjartsýni, eöa raunsæi, aö þjóðin muni um okkar daga — og síðan um langa framtíö — byggja afkomu sína á fiskveiðum og viö fylgjum þeirri stefnu aö endurnýja gömul skip meö nýjum. Viö viljum efla okkar byggöarlag og sýna í verki kosti samvinnunnar til úrlausnar stórra viðfangsefna.” Þannig talaöi Siguröur Kristjáns- son framkvæmdastjóri Kaupfélags Dýrfiröinga viö sjósetningu á nýjum skuttogara hjá Slippstöðinni á Akur- eyri á laugardaginn. Áslaug Jensdóttir gaf skipinu nafnið „Sléttanes”, en þaö hefur fengiö einkennisstafina IS 808. Eigandi er Fáfnir hf. á Þingeyri, en aðaleigandi þess er Kaupfélag Dýr- firðinga. Skipstjóri veröur Vilhelm Annasson, en framkvæmdastjóri út- geröarinnar er Bjami Einarsson. Stjórnarformaöur Fáfnis hf. er Valdimar Kristinsson. Sléttanesiö er búið til veiða meö botn- og flotvörpu og er meö fullkominn búnaö til vinnslu og geymslu á fiski í ís. Einnig er gert ráð fyrir búnaöi til saltfiskvinnslu í skip- inu. Ibúöir eru í skipinu fyrir 18 manna áhöfn, í eins og tveggja manna klefum. Er allur aöbúnaöur góöur fyrir áhöfnina, m.a. er í skipinu gufubaðs- klefi og önnur þægindi. Skipiö verður afhent eigendum upp úr áramótum og má þá búast við aö kaupverðiö veröi farið að slaga hátt í 100 milljónir kr., ef verðlagsþróunin veröur svipuð og verið hefur. Fyrir síðustu gengisfell- ingu var áætlað að skipiö fullbúiö kostaði 76 milljónir kr. Gunnar Ragnars, framkvæmda- stjóri Slippstöðvarinnar, var þung- orður í garð stjórnvalda í ræöu sem hann flutti viö sjósetninguna. Sagöi hann m.a. aö stjórnvöld yröu aö taka stefnumarkandi ákvöröun varöandi framtíö skipasmíöaiönaöarins á næstu vikum. Ella yröi þessi iðnaður settur niöur á hnén sem gæti haft ófyrirsjáan- legarafleiðingar. Þá gat Gunnar þess aö Sléttanesiö væri síöasti skuttogarinn frá Slipp- stööinni aö sinni. Þaö væri slæmt þar sem starfsmenn stöðvarinnar væru orönú- þjálfaöir í smíöi slíkra skipa. Þaö heföi best komið fram í auknum afköstum frá skipi til skips sem leitt hafi til lækkunar á smíöakostnaöi. Þaö væri því súrt í broti aö þurfa aö hverfa aö öðrum verkefnum þegar sérhæfni í togarasmíöi væri náö. Sérstaklega væri þetta sláandi vegna þeirrar staðreyndar að flotinn þarf endur- nýjunar viö og innlendar skipasmíöa- stöövar anna ekki nema um þriöjungi af þeirri endurnýjunarþörf, miöað viö óbreytta afkastagetu, jafnvel þó aö gert sé ráö fyrir aö flotinn minnki um 25%,” sagöiGunnarRagnars. -GS/Akureyri. Sá viðskiptavinur pylsuvagnsins í Austurstræti sem fékk miöa númer 3752 fyrir aö henda ekki rusli í göngu- götuna hefur unniö til ókeypis máls- verðar á veitingastaðnum Cockpit Inn í Lúxemborg. Flugfar fram og til baka fylgirmeð. Leikur þessi var liöur í hausthrein- gerningu pylsuvagnsins. Þeir viðskiptavinir sem hentu rusli í rusla- körfur viö pylsuvagninn, en ekki í götuna, fengu fyrir snyrtimennskuna afhentan númeraöan miöa. Sá hreinlegi maöur sem er handhafi fyrr- greinds miöa hefur sem sagt unnið vegleg verölaun. Alls fengu á fimmta þúsund manns miöa í pylsuvagninum. -KMU. Áreksturvið Tunguveg og Sogaveg Geysiharöur árekstur varö á gatna- mótum Tunguvegar og Sogavegar um níuleytiö á laugardagskvöld. Lentu þar saman tvær fólksbifreiöar, Lancer og Mazda. Þrír farþegar í Lancemum voru fluttir á slysadeild, en munu ekki hafa slasast alvarlega. Atvik voru þau aö Lancerinn kom eftir Tunguveginum en virti ekki biöskyldu sem þar er og ók í veg fyrir Mözduna. Ökumaður Lancersins slapp ómeiddur en þrír f arþegar í bílnum h já honum slösuðust og voru fluttir á slysadeild. Enginn þeirra slasaöist alvarlega. Engan sakaði í Mözdunni. Báöir bílarnir ero mjög illa famir. -JGH. -... .... Smáauglýsingadeildin er íÞverholtill og siminn þar er27022 Opið alla virtta daga frá kl. 9—22 Laugardaga Irá kl. 9—14 Sunnudagafrákl. 18-22 'tWtWggRh STORSPARNAÐUR í SÖGUFERÐ TIL AMSTERDAM 5 DAGAR. Verð frá kr. 4.900. 1 VIKA. Verð fiá kr. 6.200. (Gengi 1. sept.) Allar nánari upplýsingar og verð á skrifstofu okkar. Feröaskrifstofan Laugavegi 66, 101 Reykjavik, Simi: 28633 ÚRVALS innihurðir Allar hurðir enn á gamla verðinu ef pantað er strax. LÆGSTA VERÐ Á LANDINU. Útsölustaðir í Reykjavík og Kópavogi: Iðnverk, Nóatúni 17, sími: 25945 Axel Eyjólfsson, Smiðjuvegi 9, sími: 43577 TRÉSMIÐJA ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR Iðavöllum 6 Keflavík SÍMI: 92-3320

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.