Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1982, Qupperneq 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTOBER1982.
Olíuskipti -
síur og sugur
— Athugasemd frá framkvæmdastjóra á smurstöð
í síðustu viku var greint frá því hér
á neytendasíöunni að olíusuga hefði
verið tekin í notkun á bensínstöð viö
Álfheima. Einnig að olíusuga hefði
verið í notkun á bensínstöð í Breiðholti
í rúmt ár og gefið góða raun. Orðrétt
stóðífréttinni:
þar hefur verið komið upp
olíusugu og meö notkun þessa nýja
tækis er hægt aö skipta um vélarolíu án
þess aö lyfta þurfi bíl eða aka honum á
gryfju. Tíð olíuskipti eru ódýr trygging
fyrir góöri endingu vélar, auk þess
sem hrein smurolía stuðlar að minni
eldsneytiseyðslu.
Olíusugan gerir ökumönnum sjálf-
um mögulegt að skipta um vélarolíu á
eigin bílum, á milli reglulegra
heimsókna á verkstæði eða smur-
stöðvar, þar sem skipt er um síu,
smurt í koppa og þess háttar. —
Vegna þessarar fréttar hefur okkur
borist grein frá Snjólfi Fanndal fram-
kvæmdastjóra á smurstöð í Kópavogi.
-ÞG.
Smurstöðvar bera
ábyrgð á místökum
Vert er að vekja athygli á því að í
sambandi við olíuskipti og skiptingu á
olíusíum er um að ræða vinnu sem
unnin hefur verið undanfarin ár af sér-
þjálfuðu starfsfólki smurstöðva.
Jafnframt því að framkvæma þessa
vinnu og sjá um þá þjónustu sem þetta
varðar, þá er innifalið í þeirri vinnu og
gjaldi, sem greitt er fyrir, trygging á
faglegri ábyrgð sem þessir aðilar
bera. Þannig aö ef einhver mistök
verða, þá eru það smurstöðvar sem
bera þar ábyrgðina og bíleigandi fær
að fullu bætt það tjón, sem verður á
hans bíl og að bætt er á olíu og skipt
um síur bíleiganda að kostnaðarlausu.
Þá má benda á að framleiðendur
bifreiða gera ráð fýrir að skipt sé um
olíu á bílunum með ákveðnu millibili
og gefa út leiðbeiningar um það
hvernig þaö skuU framkvæmt. Þá er
aðeins um að ræða vanalega aftöppun
af bifreiðum en ekki uppsog olíu með
þeim hætti sem nú hefur verið tekin
upp hér á landi.
Olian ódýrari aftunnu,.
en í smásöluumbúðum
I framhaldi af því má benda á að
notkun oUusugu tryggir engan veginn
að þau óhreinindi og annaö sem sest
hafa á botn vélanna séu tæmd, þar sem
sUk óhreinindi safnast fyrir í botni viö
aftöppunartappa. En uppsog með
olíusugu fer fram í gegnum kvarðagat
og olíusugan skilur oft eftir verulegt
magn af oUu og að sjálfsögðu þaö sem
er neðst og óhreinast. Einnig má geta
þess að aftöppunartappar hafa oft í sér
segul sem bindur málmsvarf og þarf
aö hreinsa við aftöppun af vél.
Ef litið er á kostnaðarliöi eða þaö
sem hugsanlega mætti segja aö bif-
reiðaeigandinn spari sér í útlögðum
kostnaöi, þá fer þaö nokkuö eftir því
hvar hapn skiptir um olíu. Það er hvort
hann fer með bifreið sína á smurstöð
og kaupir þar oUu af tunnu, sem er
ódýrari en olían sem seld er í smásölu-
pakkningum. Eða þá að hann fer á
bensínstöð sem selur oUu í smá-
sölupakkningum og notar þar
oUusugu. Hann getur líka farið á
bensínstöð sem hefur olíusugu og
fengið olíu af tunnum.
Kostnaðurinn við að skipta um olíu
á smurstöð er kr. 34,- til kr. 64,-, og þá
er innifaUn athugun á oUu, drifi, gír-
kassao.fl.
Þetta er sú upphæö sem bíleig-
andinn gæti hugsanlega sparaö sér að
hluta til með því að láta skipta um olíu
á bensínstöð. Þar á móti kemur að ef
hann fær oUu í smásöluumbúðum, þá
getur hún verið, miðað við verðlagiö í
dag, 20—30% dýrari heldur en oUa
seld af tunnu eins og gert er á smur-
stöövum. Miöaö við að olíumagn á bíl
sé 3—4 Utrar, þá getur mismunurinn
verið í kringum kr. 30,-, þannig aö
sparnaðurinn fer að verða harla lítiU.
Skipt um olíusíu
Þá er hinn hluturinn, sem er aö
skipta um oUusíu og er það kannski
það sem öllu meira máU skiptir.
Að olíusían sé rétt sett í skiptir
mjög miklu máU, og eins aö sían sé af
réttri gerö og passi í viðkomandi bil.
SUkt er mjög mismunandi miUi bíla og
eru margar mismunandi gerðir og
framleiðsluaðilar að síum, svo að
töluvert atriði er aö sá sem skiptir um
oUusíu sé sérfróður um þau atriði.
Vinna viö olíusíuskipti á smurstöð í
dagkostarkr. 31,-ogerþarinnifalin á-
byrgð eins og að framan greinir og
skapar það bíleigendum öryggi. Auk
þess sem þeir sem á smurstöövunum
vinna eru sérfróðir um hinar ýmsu
gerðir olíusía og fá reglulega nýjustu
upplýsingar frá framleiðendum oUu-
síanna svo og bifreiðainnflytjendum.
Að lokum má benda á, varðandi
olíuskiptin á smurstöðvunum, þá er
eins og að framan greinir, athuguð olía
á gírkassa og drifi og bætt á ef þarf því
oft viU brenna við aö olíu vanti á þessa
hluti og með því að fylgjast reglulega
með því, má koma í veg fyrir skemmd-
ir og stórtjón á þessum dýru hlutum.
Ennfremur skal þess getið að
athugun á rafgeymi, kælivökva,
hemlavökva, stýrisvökva og fleiru er
ávallt framkvæmt á smurstöðvum
þegar oUuskipti fara fram.
Snjólfur Fanndal,
framkvæmdastjóri.
Áttþúeinnmeð
hem/ana í ó/agi?
Ef svo er getum við bætt strax úr vandræðunum.
Eigum fyrirliggjandi hemlavarahluti í ameríska,
evrópska og j apanska bíla á m j ög hagstæðu ver ði.
hf.
Skeifunni 11.
»*************
FLOTT
ÚRVAL
TRÚLOFUNAR-
HRINGA
; munstradir og sléttir í
öllum breiddum.
Sendum litmyndalista.
Vid smídum hringana.
JÖN OG ÓSKAR
LAUGAVEGI 70. S. 24910.
TIL SÖLU
Þessi létti og meðfærilegi söluturn
hefur gegnt hlutverki sínu fyrir okkur
og er því til sölu. Turninn er 1,5 m í
þvermál, með góðu borði allan hring-
inn og hillum innan í. Hægt er að taka
„hattinn” ofan, og tveir menn bera
turninn léttilega á milli sín. Turninn er
byggður úr stál”prófílum” sem gera
hann nógu sterkan til að mæta hverju
sem er. Klæðning er krossviður, máluð
hvít og rauö. Hæð með „hatti” er 3,5 m.
Hentugur til aö nota innan húss sem
utan. Verð samkomulag. Uppl. hjá
Sam-útgáfunni, sími 83122.
ítölsk leðurstígvél,
ný sending.
Leður.
Stærðir 35—41.
Litir: svartur,
dökkbeige,
blágrænn,
rauður, vínrauður.
Póstsendum.
Verð kr. 1100.
/H(
Þingholtsstræti 1
Simi 29030