Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1982, Síða 15
DV. ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTOBER1982.
15
/ úrslitaspymunni /standardfíokki sigraði Sœvar Pótursson Sœvar Karisson og sóst hór að Sævar Pótursson
hefur strax i upphafi náð góðu forskoti.
Septemberkeppni Kvartmíluklúbbsins
SETTl NÝTT
BRAUTARMET
Gunnlaugur Cmilsson hefur verið iðinn við að mæta i keppni i sumar og
tókst honum að sigra i annað sinn á laugardaginn. Með þeim sigri er hann
búinn að tryggja sór Íslandsmeistaratitilinn igötubílaflokknum.
Mlkll harka var í keppninni i skellinöðruflokknum og hlupu strákamir með
hjólunum fyrstu metrana tilað vera fíjótari afstað.
Þaö var heldur betur fjör á kvart-
mílubrautinni við Straumsvik síöast-
liöinn laugardag þegar Kvartmílu-
klúbburinn hélt fimmtu kvartmílu-
keppni sumarsins. Ovenjumargir
keppendur mættu til leiks og var bar-
áttan um fyrstu sætin mjög hörö í
öllum flokkum. Mörg ár eru síðan
áhorfendur hafa verið jafnmargir
enda vair veöur hið besta, glaöa sól-
skin, logn og mjög hlýtt. Þegar keppn-
in var um þaö bil hálfnuð missti Valur
Vífilsson stjórn á 440 Barracudunni
sinni meö þeim afleiöingum aö hann
þeyttist út af brautinni og valt nokkrar
veltur. Var bíllinn gjörsamlega ónýtur
eftir veltuna en öryggistækin í bílnum
komu í veg fyrir aö Val sakaöi, en hann
fékk ekki svo mikið sem eina skrámu.
Áhorfendur þustu þegar að bílnum og
var þaö mjög slæmt því þeir þvældust
fyrir sjúkrabílnum sem var á staðnum
og bilnum sem var meö slökkvitækin.
En lögregluþjónar úr Hafnafiröi sem
voru á staðnum voru snöggir til, sáu
um að halda mannf jöldanum frá bíln-
um og veittu með því mikilvæga að-
stoð. Tafðist keppnin um einn og hálf-
an tíma vegna þessa atviks og var
fariö aö skyggja ansi mikið þegar
keppninni lauk um kvöldmatarleytiö.
Standardflokkur
Allir keppendurnir í standardflokki
óku Pontiac Firebird bílum og voru
þrír þeirra á Trans Am. Allir voru bíl-
arnir meö 400 cid. vélar en gamli Fire-
birdinn hans Sævars Péturssonar
skaraði þó fram úr en hann setti annaö
Islandsmetiö sitt í standardflokki í
sumar þegar hann fór kvartmíluna á
13.52 sek. Júlíus Bess varð að eftir-
láta Sævari Karlssyni annaö sætiö
þrátt fyrir aö hann næöi betri tíma en
Sævar. Sævar var sneggri aö taka af
stað og dugöi það honum til sigurs, því
sá vinnur semundanerímark, jafnvel
þó tími hans sé lakari. Besti tími Júlí-
usar var 14.34 sek. en besti tímiSævars
var 14.58 sek.
Modified standard
Eins og í standardflokki voru fjórir
keppendur í M.S. flokki en einn þeirra,
Guömundur Guðmundsson, heltist
strax úr lestinni þegar vélin í Barra-
cudunni hans bilaði. Þeir Jóhann
Kristjánsson og Pétur Kjartansson
spymtu fyrst og lauk þeirri' viðureign
með sigri Jóhanns. Besti timinn sem
Pétur náöi á 307 cid. Novunni sinni var
15.36 sek. Fyrir úrslitaspyrnumar viö
Höskuld Guönason fékk Jóhann lánaöa
slikka (keppnisdekk) undir 427 cid.
Corvettuna og stóð hann þá jafnt aö
vígi og Höskuldur en hann var einnig
meö slikka undir 440 cid. Challangern-
um sem hann keppti á. Eftir þrjár
spymur stóð Jóhann uppi sem sigur-
vegari í MJS. og var besti tími hans
13.15 sek. Besti tími Höskuldar var
13.37 sek.
Street eliminator
I götubílaflokknum var Gunnlaugur
Emilsson fremstur í flokki aö vanda á
383 cid. Chargernum sínum. Gunnlaug-
ur sigraði í flokknum og var besti tími
hans 13.65 sek., en hann átti erfiðan
dag því keppinautar hans voru átta
talsins. I ööra sæti lenti Jón Jóhanns-
son sem keppti á Plymouth Valiant
meö 440 cid. vél. Besti tími Jóns í
keppninni var 13.64 sek.
Street altered
Benedikt Eyjólfsson hefur oröiö aö
láta sér það lynda aö vera að dandalast
einn í S.A. flokki í fyrri keppnunum í
sumar. Þrátt fyrir þaö hefur hann sett
nýtt Islandsmet í S.A. flokki í hverri
keppni. A laugardaginn mættu þó fjór-
ir menn til keppni og ætluöu þeir aö sjá
til þess aö sigur Benedikts yröi ekki
eins auðveldur að þessu sinni. Líkleg-
astur til stórræöa voru þeir Valur
Vífilsson og Siguröur Jakobsson. I
fyrstu tímatökuferð sinni bræddi Sig-
urður úr 351 cid. vélinni í Pintónum
sem hann keppti á, og þaö svo harka-
lega að ein stúnpilstöngin stóö út úr
blokkinni. I fyrstu spyrnu sinni viö
Benedikt lenti Valur fyrir utan braut,
eins og fyrr sagði. Þór Myrdal, sem
keppti á 401 cid. AMC Gremlin, og
Haraldur Haraldss. á 350 cid. Vegu
veittu Benedikt enga keppni. Benedikt
hélt uppteknum hætti og bætti Islands-
metið á S.A. flokki og fór kvartmíluna
nú á 10.18 sek. en sá tími er jafnframt
nýtt brautarmet. Daginn eftir fór
Benedikt aftur upp á braut og þá tókst
honum aö brjótast í gegnum 10 sek.
múrinn. Fór hann kvartmíluna á 9.83
sek. með því aö nota nitrous oxide
blönduá vélina.
Mótorhjólaflokkur
Langflestir keppendur voru í mótor-
hjólaflokknum, eöa níu talsins, og var
keppnin þar mjög hörö. Voru flestir
strákanna búnir aö rifa allt þaö af h jól-
unum, sem ekki kom þeim að beinurrf
notum í spymunum, til þess aö létta
þau.
Adolf Adolfsson bar sigur úr být-
um á 1100 cc Suzuki Katana hjólinu
sinu og fór hann kvartmíluna á 11.53
sek. Annar varö Gunnar Geirsson á
Honda CBX six en besti tími hans var
11.37 sek.
Skellinöðruflokkur
Kristinn Sigurösson sigraði í skelli-
nöðmflokknum, en hann keppti á
Honda 50 og náöi best 21.05 sek. tíma.
Annar varð Geir Einarsson sem keppti
einnig á Honda 50 en besti tími Geirs
var21.24sek.
Jóhann Kristjánsson.
HJÓLBARÐA-
VERKSMIÐJA
Öskum eftir að ráða duglega menn til starfa í hjól-
barðaverksmiðju vorri,
helst eldri en 20 ára.
Mikil vinna framundan.
Góðlauníboði.
BANDAG-hjólbarðasólunin hf.,
Dugguvogi 2.
Sími 84111.
BIFREIÐIN ER TIL SÖLU
EF VIÐUNANDI TILBOÐ FÆST
Pinin Ferína 130 Coupé
3200 Cubic.
V—6 Ferrari vél.
Borg Warning skipting, splittað drif. Klædd m/nautsleðri.
Utvarp og segulband. Uppl. í sima 31579 eða Bílasölu Eggerts.
Hverfisteinar
Rafdrifnir hverfisteinar 220 volt.
Steinninn snýst 120 snúninga á mín. í báðar áttir.
Verð kr. 1.728, — m/söluskatti.
Sendum hvert á land sem er.
r
VELAVEHSLUN /
Ármúli 8 — 105 Reykjavik - Sími 8-5840.
Sælkeraferð
í Móseldalinn
Fyrsta ferð Sælkeraklúbbsins á þessu starfsári verður til
Lúxemborgar helgina 8. —11. október. Eitt þekktasta vín-
ræktarhérað Evrópu „Móseldalurinn” heimsóttur. Einnig
gefst þátttakendum kostur á að kynnast evrópskri matar-
gerðarlist.
Upplýsingar á söluskrifstofu Flugleiða Hótel Esju í síma
85011.
Sælkeraklúbburinn.