Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1982, Page 7
DV. LAUGARDAGUR 9. OKTOBER1982.
7
ERFK) FÆRD Á ÓSHLÍDARVEGI
Vegagerðin seldi ferðir milli Bolungarvíkur og ísafjarðar
Ovenju margir bílar á Bol-
ungarvík aka nú um hljóðkútslausir
vegna tröllslegs kafla á Oshlíöar-
veginum. Þar hafa í sumar staöið yfir
framkvæmdir við veginn, verið er að
taka eina beygju af, lækka hann og
breikka. Af þessum sökum hefur
vegurinn oft verið lokaður og komið
sér mjög illa, viöskiptalega séð, fyrir
Bolungarvík. Vegageröin tók Djúp-
bátinn á leigu til að fara 3 ferðir milli
bæjanna tveggja og seldi farmiða á 50
krónur fyrir manninn, bíllinn var
fluttur fyrir 300 krónur.
Þótti mönnum súrt að þurfa að
kaupa ferðir af Vegageröinni, þar sem
vegarins nýt ekki við. Einnig þétti
Séra
Hjálmar
prófasturí
Skagafirði
Séra Hjálmar Jónsson prestur
á Sauðárkróki hefur verið kjör-
inn prófastur Skagfirðinga.
Hjálmar er aöeins 32 ára gamall
og langyngsti prófastur landsins.
Prestar í Skagafirði kusu séra
Hjálmar í stað séra Gunnars
Gíslasonar í Glaumbæ sem lét af
störfum i sumar vegna aldurs.
Séra Hjálmar vígðist til
Bólstaðarhlíðarprestakalls árið
1976. Prestur var hann skipaður á
Sauðárkróki árið 1980. Kvæntur
er hann Sigrúnu Bjarnadóttur líf-
fræðingi og eiga þau þrjú böm.
•KMU.
skrítið að um helgar var opnað til að;
fólk kæmist á böll en harðlokaö mest-i
allan daginn þegar flestir þurftu á;
góðu vegasambandi milli Bolungar-;
víkur og Isaf jaröar aö halda.
Vegurinn hefur nú verið opnaður
aftur til umferðar niinn daginn, en er
ákaflega erfiður yfirferðar. „Ekki
mönnum bjóöandi að fara þama yfir á
almennilegum bílum,” sagði Kristján
Friðþjófsson, fréttaritari DV á
Bolungarvík. Áætlað er að þessum
vegaframkvæmdum ljúki 15. október.
-KF/JBH.
Strengjasveit Tónlistarskólans sem lenti í fjórða sæti á alþjóðlegri samkeppni
ungra tónlistarmanna í Belgrad. Fremri röð frá vinstri: Hóvarður Tryggvason,
Bryndis Gylfadóttir, Sigrún Eðvaldsdóttir, Auður Hafsteinsdóttir og Gnðrún
Þórarinsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Gréta Guðnadóttir, Sigurlaug Eðvaldsdótt-
ir, Mark Reedman, stjórnandi sveitarinnar, Bryndís Pálsdóttir og Vera Osk
Steinsen. Á myndina vantar örnólf Kristjánsson og Svövu Bemharðsdóttur.
Til að koma veginum frá hlíðinnl og nær sjónum þurfti að sprengja stóra og mlkla
klöpp í fyrradag. Sprengingin tókst með ágætum. DV-mynd: Kristján Friðþjófs-
son.
„LEKUM PURCELL
í MYRKRI”
— Strengjahljómsveit Tónlistarskólans komin heim
frá Belgrad með fjórðu verðlaun
„Fall er fararheill,” sögðu
krakkarnir í strengjasveit Tónlistar-
skólans á fundi með blaðamönnum á
fimmtudaginn, en sveitin er nú komin
heim úr mikilli frægðarför til Júgó-
slavíu.
„Þegar stjórnandinn, Mark
Reedman, fór upp á svið á
setningarathöfninni til að draga um
röðina í keppninni féll hann kylliflatur
í tröppunum upp á sviðið,” bættu þau
við.
,,Annars virtust alls konar óhöpp
elta okkur í þessari ferð. Mark og
Bryndísi seilóleikara var í upphafi
neitaö um inngöngu í landiö og eftir að
það mál leystist bættist eitt og annað
við í hrakfallabálkinn. Við vorum loks
sannfærð um að samsæri væri í gangi
gegn okkur þegar ljósin fóru af
tónleikasalnum í annarri umferð í
Úrfelum
— nýtt blað
Samtakanna 78 1
Ur felum nefnist blað sem Samtökin
’78 eru að hefja útgáfu á. Það mun
koma fjórum sinnum út á ári og kosta í
lausasölu krónur 35.
miðri chaconnu eftir Purcell. En við
lékum verkið til enda í myrkrinu við
mikinn fögnuö áheyrenda.”
Þrátt fyrir þetta stóð hljómsveitin
sig mjög vel í keppninni og lenti í
fjórða sæti á eftir strengjasveit frá
Guildhall School og Music and Drama í
London og sveitum frá Ungverjalandi
og Póllandi.
Strengjasveitin frá Tónlistarskólan-
um vakti mikla athygli í keppninni því
fæstir bjuggust við jafngóðumárangri
frá svo f jarlægri og lítt kunnri þ jóð.
Sveitin kemur því heim til Islands
með einhver tilboð um frekara hljóm-
leikahald,, ”30 þúsund dínara verðlaun
sem enginn veit hvað á að gera við og
viðurkenningarskjal með kirilísku
letri sem enginn getur lesið,” eins og
krakkarnir í sveitinni orðuðu það.
-gb.
I fyrsta tölublaði þess stendur meðal
annars:
„Við lesbíur og hommar á Islandi
viljum miðla þekkingu til hómósexúal
einstaklinga og efla með þvi skilning
þeirra á sjálfum sér og treysta afstöðu
þeirra til sjálfra sín.”
„Við lesbíur og hommar á Islandi
viljum miöla þekkingu á málefnum
okkar til alls samfélagsins svo aö það
öðlist skilning á þeim og á því, að við
erum eölilegur hluti af samfélaginu.”
Um heiti blaðsins stendur meðal
annars:
„Nafnið á blaðið völdum við ekki út í
bláinn. Ur feium er kjörorð okkar. Með
því móti einu aö viö komum úr felum
náum viö sem einstaklingar og þjóð-
félagshópur þeim ýtrustu mark-
miöum, sem við hljótum að setja
okkur, um fulla aðild og þátttöku í
samfélaginu. Með þvi móti einu, að
koma úr felum, getum við unnið
málstaö okkar og lagt iið málefnum
okkar, og á þann hátt einan getum við
veitt andstæðingum okkar viðnám og
staöið vörð um hagsmuni okkar og
réttindi.
Við stefnum að því að blaðið komi út
ársfjórðungslega fyrst um sinn. Það á
að eflast og þróast og breytast.”
Sóluskrifstofa Simi 91 82980
Fellsmúla 24 105 Reykjavik.
Nú um helgina 9. og 10. október mun Rafrás hf.
gangast fyrir sýningu aö Síðumúla 27 á annarri hæö.
Þar ber hæst North Star HORIZON og ADVANTAGE tölvurnar
sem þegar eru í þjónustu fjölmargra fyrirtækja og einstaklinga hérlendis.
Einnig veröa kynntir VISUAL tölvuskjáir, Microline,
Mannesmann Tally og NEC tölvuprentarar.
Eftirtalinn hugbúnaður verður kynntur:
Ritvinnsla Viðskiptamannabókhald - Skuldunautar
Upplýsingaskrá Birgöabókhald og lagerstýring
Fjárhagsbókhald Tollvinnsluforrit
Fjárhagsskýrslugerö Áætlanagerðarforrit o.fl.
Sýningin hefst kl. 13 og stendur til kl. 19 báöa dagana.
BYLTING í tölvubúnaði.
Rúsínan í pylsuendanum verður svo OSBORNE tölvan
sem fer nú sigurför um heiminn
vegna hins ótrúlega lága verðs og fjölhæfni sinnar.
Komið og kynnist kostum OSBORNE af eigin raun.
Þú ferð fróðari af okkar fundi
ÞÚ GETUR REITT ÞIG Á RAFRÁS.