Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1982, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1982, Qupperneq 10
10 DV. LAUGARDAGUR 9. OKTOBER1982. Menning Menning Menning Menning Sentem 1972-1982 Septembersýningin 1982 kom eins og venjulega en staldraöi aðeins ör- skamma stund að Kjarvalsstöðum. Myndirnar héngu uppi í rúma viku og er það alltof stuttur tími fyrir svo yfir- gripsmikla og f jölbreytilega sýningu. Byftingarmenn? Einu sinni byltingarmenn, nú viöur- kenndir listmálarar, halda september- mennirnir sína árlegu samsýningu til að kynna listunnendum afrakstur vinnunnar. Þegar rætt er um septemberhópinn (eina reglulega listhópinn sem safnast utan um ákveöna hugmynd?) klingir í hugum margra: abstrakt, abstraktM Jú, þetta eru nokkrir af þeim lista- mönnum sem fyrstir kynntu abstralet- listina hér á landií lok5. áratugarins. En hvernig stendur abstraktið í dag? Við getum sagt að septemberhópurinn sé einskonar „mælikvaröi” á íslenska abstraktlist. Og hér á sýningunni kemur greinilega fram að hluti þessar- ar kynslóðar hefur snúið sér meir og meir að raunveruleikanum. Myndirn- ar hér á sýningunni eftir Jóhannes Jóhannesson sýna glögglega þessa breytingu sem raunar hefur verið að gerjast hjá listamanninum á síðast- liðnum árum. Jóhannes hefur mikiö unnið með hálf-lífræn form og nú undirstrikar hann þessa náttúruskír- skotun með því að setja inn áberandi s jóndeildarhring sem gefur þessum líf- rænu formum ákveðnari og skýrari skyntengsl — svo sem laufblöð eða fuglar. En á sama hátt eru tengslin milli umhverfisins og formanna, milli forgrunnsins og bakgrunnsins fremur óskýr, þar sem formunum virðist nán- ast stillt upp í rýminu. Maður setur því ósjálfrátt spumingarmerki við þessar myndir sem vitna þó um athyglisverð- ar breytingar í málverki listamanns- ins. Myndin Stormur eftir Jóhannes er eflaust heillegasta og besta úrlausnin af þessum landslags-abstraktionum. Krístján Davíðsson Minni breytingar koma fram í mynd- verkum Kristjáns Davíðssonar, sem sýnir hér ærslafullar og kraftmiklar expression abstraktionir sem vísa þó (eins og reyndaráður!) beint í ákveðin náttúrufyrirbrigði. En þessi náttúru- upplifun í verkum listamannsins er þó frekar afleiðing en forsenda að list- sköpun hans. Hér grundvallast mál- verkið á samhljómun lita og óendan- legri hreyfingu, sem listamaðurinn gefur ákveðið streymi á myndfletin- um. En þar sem verk listamannsins eru túlkunarlega séö opin og óráðin er eðlilegt að áhorfandinn lesi út úr þeim (þ.e. út úr þessu streymi) samsvar- andi form/hreyfingu sem hann getur fundið í íslenskri náttúru eins og t.d. flæðarmál og hraun. Myndin „Rauða- sandsríma III” er mögnuö „synthesa” á expressionískrí list hugmynd og næmri náttúruskirskotun. Vaftýr Valtýr Pétursson er þó greinilega’ figuratifasti septembermaðurinn. Miklar breytingar hafa átt sér stað í myndverki listamannsins, sem yfirgaf abstraktiö og málaði um tima óráðið landslag. En á síðastliðnum árum hafa áhorfendur mátt greina nákvæmari og skýrari vinnubrögðhjá listamanninum sem lagt hefur áherslu á að umbreyta okkar hversdagslega umhverfi í nán- ast geometrískar uppstillingar. Og þó svo við getum fundið ákveðna hvata að þessari myndgerð listamannsins segir hún okkur fyrst og fremst aö Valtýr notar geometríska stílfræði — sitt upp- haflega myndmál — til að þýöa og lýsa nærtækum veruleika. Og ennfremur að þrátt fyrir hversdagsleg myndefni þá eru þetta myndir sem byggjast á rök- réttri innri samsetningu þar sem raðað er upp möguleikum og samspili geometríska eininga. Myndin Uppstill- ing er ágætt dæmi um hvernig lista- maðurinn einfaldar hversdagslegt um- hverfi í geometrískan formheim. Það verður því fróðlegt að sjá hvort lista- maöurinn nálgist abstraktionina enn frekar og hvort hans fígúratífa reynsla eigi eftir að gefa honum endumýjað sjónarhorn á hugtakið abstraktion. Abstrakt listmálarí Guðmunda Andrédóttir er abstrakt- málari, sem markaö hefur sér nokkuö þröngt svið þar sem hún hefur leitað og gert athyglisverðar rannsóknir á rými, línu og nokkrum formgerðum. Síðast- liöinár hafa málverk hennar einkennst af hreyfi- og flatarmöguleikum hring- formsins, sem átti eftir aö ala af sér bylgjuformin, sem í senn voru lifandi en þó ávallt bundin á myndflötinn. Við finnum enn þessar rannsóknir hjá listakonunni, en auk þess hafa komið inn í myndvurk hennar, eins og t.d. Rökkur nýir rythmar, línur með öra hreyfingu sem endurtekin er yfir myndflötinn. Þessi „Iínurit” gefa myndverki Guðmundu dýnamískara yfirbragð, sem skemmtilegt verður að fylgjast með í hinni nákvæmu úr- vinnslu listakonunnar. Þorvaldur Skúlason Þorvaldiu- Skúlason kemur enn einu sinni fram með endumýjaðar og heil- steyptar myndir. Hann hefur fjarlægst hin hvössu flugform sem liðu gjarnan yfir djúpt myndrýmið. Hann vinnur nú með myndbyggingu utan um einn eða fleiri kjarna. Það er sem formhreyfing fyrri mynda listamannsins hafi verið Rökkur H2 aftír Guðmundu Andrésdóttur. Nýir rythmar eru komnir inn I myndverk iistakonunnar sem fengið hafa dýnamiskara yfirbragð. Mótverk "82 eftír Þorvald Skúiason. Það er sem formhreyfing fyrri mynda iistamannsins hafi verið beisiuð A myndfietínum sem nú eiur af sér magn- aða spennu miiii hringforma og boglína. Rauðasandsrima 82 eftír Kristjén Davíðsson. Hér grundvallast mélverkið ó samhljómun lita og óendanlegri hreyfingu sem listamaðurinn gefur ókveðið streymi. beisluð á myndfletinum. En við það skapast ákveðin spenna milli hring- formanna eða milli hringformanna og boglínanna sem umleika þau. Þessi spenna er síðan mögnuð með því að „lýsa upp” litinn umhverfis línur og form. Þannig framkallast viss „víbra- tion” sem þó er ávailt hugvitsamlega beisluð. Þessi sería gaf áhorfendum gott tækifæri til að kynnast fjölda úrlausna á einniformhugmynd. Karl Kvaran Karl Kvaran sýndi fjögur stór mál- verk og sýndu þrjú þeirra okkur athyglisverðar breytingar hjá lista- manninum. Karl sem ávallt hefur unnið með skýrt afmörkuð form og afgerandi litaandstæður, vill nú gefa litnum nýjar sjónrænar víddir. Þetta gerir hann meö því að grisja yfirborð myndarinnar meö hvítum lit, sem um leið hleypir í gegn hógværum lit- brigðum. Teikningin sem hefur ávallt verið allsráðandi í myndverki lista- mannsins hefur dregist inn í hvítt Sem dfeift er ^ my"d: Stormur B2 eftír Jóhannes Jóhannesson. Ustamaðurinn hefurmikið unnið flotinn. En þessi verk eru langt frá þvi hélf-lifræn form en undirstrikar nú þessa náttúruupplifun með fjariægum að vera einlitamyndir þvi listamaður- sjóndeildarhring.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.