Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1982, Qupperneq 1
DAGBLAÐIÐ — VÍSIR
i
267. TBL. — 72. og 8. ÁRG. — MÁNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1982.
Lánasjóður íslenskra námsmanna að komast íþrot:
FALLA GREIÐSLUR í
DESEMBER NKMJR?
Lánasjóöur íslenskra námsmanna
á um þessar mundir í miklum
rekstrarerfiðleikum. Ljóst er aö
sjóöinn vantar um 40 milljónir til að
geta sinnt desembergreiöslum til
námsmanna. Ef ekkirofantil í fjár-
málum sjóðsins, má búast við að
greiðslur geti fallið niður næstu
mánuði.
Stefán Matthiasson, fulltrúi
háskólastúdenta í stjórn Lánasjóðs-
ins, sagði í viðtali við DV að gert
hefði veriö ráð fyrir 8,75% fjölgun
lána fyrir yfirstandandi námsár.
„Við bjuggumst við samdrætti í
eftirspum, m.a. vegna þess að hert
hefur verið á endurgreiðslum.
Snemma var síðan ljóst, að f jölgunin
yrði margfalt meiri, eða 34,8%
fjölgun haustlána til námsmanna
hérlendis og 14,8% fjölgun lána til
námsmanna erlendis. Þetta setti því
málin algerlega úr skorðum.”
„Gengisþróun íslensku krónunnar
í samanburði við erlenda gjaldmiðla
hefur valdið því að verðlag og gengi
erlendis hefur hækkað um 87%. Það
er einkum í Danmörku, Vestur-
Þýskalandi, Frakklandi og
Bandaríkjunum sem gengisþróunin
hefur verið óhagstæð. Samdráttur
hefur einnig orðið á vinnumarkaði og
stúdentum hefur ekki gengið jafn
greiðlega og áður að vinna með
námi.”
,,Hingað til hafa greiðslur komið á
réttum tíma, en ef ekki fer að
rætasta úr, gæti ástandið farið versn-
andi,” sagði Stefán Matthíasson aö
lokum. PÁ
Minnstu munaði að Svavar Gestsson, formaður Alþýðu-
bandaiagsins, missti af strætisvagninum, í orðsins fyllstu
merkingu, á flokksráðsfundinum sem fram fór um helgina.
Fundarmenn fóru istrætisvögnum tH nýju flokkshallarinnar
en Svavar varð seinn fyrir og vagnstjórinn var búinn að loka
vagninum. Svavar lítur bænaraugum á vagnstjórann eins
og hann só að segja: „Allt í lagi, við kaupum ekki fieiri
Ikarusa." DV-myndEÓ
SJÁ NÁNAR AF FLOKKSRÁÐSFUNDiNUM Á BLS.40G5.
Hangikjöf srannsóknir Þóris Helgasonar:
Fá alþjóðlega viðurkenningu
Hið virta breska læknatímarit, The
Lancet, birti þann 6. nóvember
síðastliðinn niðurstöður tilrauna
Þóris Helgasonar læknis til að fram-
kalla sykursýki í músum með ís-
lensku hangikjöti. Það sem læknarit-
ið birtir er í meginatriðum þaö sama
og Þórir hafði áður kynnt á ráðstefnu
norrænna lyflækna í Reykjavik
síðastliðið sumar.
Birting The Lancet á niðurstöðun-
um þykir í raun alþjóðleg viðurkenn-
ing á þeim rannsóknum sem Þórir
Helgason hefur unniö að. Læknaritið
er mjög vant að virðingu sinni og
birtir ekki efni nema að vel athuguöu
máli.
Þetta er í annaö sinn sem The
Lancet birtir grein eftir Þóri. 1 októ-
ber í fyrra birti ritið kenningu Þóris
um tengsl sykursýki og hangikjöts.
Ásamt Þóri eru þrír aðrir vísinda-
menn skrifaðir fyrir greininni nú,
þeir S.W.B. Ewen, I.S. Ross, og J.M.
Stowers. Þeir starfa allir í Aberdeen
. í Skotlandi en þar fara dýratilraun-
irnar fram.
Tilraunirnar í Aberdeen styðja þá
kenningu Þóris að N-nítrósasam-
bönd hafi þau áhrif á kynfrumur að
sykursýki komi fram í afkvæmum.
-KMU.
| Litja Krisijánsdóttir.
Tíuárastúlka
lést íbílslysi
Tíu ára stúlka lést í árekstri
I tveggja fólksbíla á Akureyri um
klukkan hálfníu á laugardags-
kvöld. Areksturinn varð á
Hörgárbraut, skammt norðan við
j Veganesti. Stúlkan var strax flutt
á sjúkrahúsið á Akureyri en
I reyndist látin þegar þangaö var
| komið.
Að sögn lögreglunnar á
I Akureyri voru tildrög slyssins
þau aö stúlkan var í Lada-bíl með
j móður sinni og systur á leið suður
j Hörgárbrautina. Þegar þær voru
j staddar rétt norðan við
| Veganesti, snerist bíll þeirra í
hálku og rann fyrir BMW bíl er ók
j á móti þeim norður Hörgárbraut-
I ina. Skipti engum togum að
BMW-bíllinn ók harkalega inn í
I hlið Lödunnar þeim megin sem
j stúlkan sat. Stúlkan var flutt á
I sjúkrahúsið á Akureyri, ásamt
móður sinni og systur og öku-
manni BMW-bílsins, en var látin
j þegarþangaðvarkomið.
Enginn hinna slasaðist alvar-
| lega og fengu þau að fara heim
j síðarumkvöldið. -jgh
Zdskot
.flistókustog
íslandtapaði
meðtveggja
markamun
— sjá íþróttir
AIRákostum
— sjá Sviðsljós á
bls.44og45