Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1982, Síða 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. NOVEMBER1982.
3
ALVERIÐ TAPAR 350
MILUÓNUM í ÁR
—eða um 30% af veltu eins og í fyrra
1 ár verður stórtap hjá íslenska ál-
félaginu hf. annaö árið í röö. Tapið í
fyrra var 207 milljónir króna en verð-
ur í ár hátt í 350 milljónir. „Þetta er
svo til sama niðurstaða bæði árin,
talið i dollurum, tapið er um 30% af
veltu,” sagði Ragnar Halldórsson
forstjóri Isals í samtali við DV.
Álverið hefur verið hrikalega lágt
síöustu misseri. Það komst hæst í um
tvö þúsund dollara á tonn um mitt ár
1980. Síöan hriðlækkaöi það og hefur
undanfarið berið á bilinu 940—960
dollarar á tonn. „Við erum að vona
að þetta sé botninn,” sagði Ragnar
Halldórsson.
Um 30% álvera í heiminum hefur
verið lokað og mestur er samdráttur-
inn í Japan þar sem hann er 70%.
Til samanburðar milli ísals og
Jámblendiverksmiöjunnar má
nefna að á meðan fyrrnefnda fyrir-
tækið tapar samsvarandi 30% af
veltu er tap hins siðarnefnda um 48%
af veltu. Stóriðjan berst því í bökk-
um.
HERB
Tillaga kirkjuþings
Sóknargjöld
hverfi
Nú er í bígerð að síðasti nef-
skatturinn, sóknargjöldin, hverfi en í
staðinn komi ákveöið hlutfall af út-
svarsstofni. Fmmvarp til laga þessa
efnis var til umræðu á kirkjuþingi sem
nýlega varhaldiö.
Kirkjuþing leggur til að
prósentuhlutfall af útsvarsstofni verði
0,20—0,40% og það greiði útsvars-
gjaldendur 16 ára og eldri. Heimilt
skal þó vera að lækka eða fella niður
sóknargjöld, t.d. ellilífeyrisþega og
öryrkja ef ástæöa þykir til.
Kirkjuþing felur kirkjuráði að
kanna ítarlega hvort fjárhagsstaða
einstakra safnaða skerðist við þessa
breytingu en leggur til að frumvarpið
verði lagt fyrir Alþingi reynist svo ekki
,vera.
Ef sóknargjöldin hrökkva ekki til
fy rir nauösynlegum útgjöldum sóknar,
er heimilt skv. frumvarpinu að hækka
þau allt að tvöfóldu, þó með samþykki
ráðherra. Einnig á að verða heimilt að
leggja á sérstakt kirkjubyggingar-
gjald vegna byggingar kirkju eða safn-
aðarheimilis í allt að 4 ár.
-PÁ.
Eldur kom upp i jeppabifreið er stóð ó horni Freyjugötu og Njarðargötu á laugardagskvöld. Slökkviliðið
kom ó staðinn og réð niðurlögum hans. Billinn er mikið skemmdur eftir brunann, sórstaklega vélarrúm og
mælaborð. Er rafmagnskerfi hans til að mynda ónýtt. Á myndinni sjóst slökkviliðsmenn i hita og þunga
baráttunnar við eldinn. dvmyndS
F I AT
Vi/tu nýjan — nýrrí — eidrí —
dýrarí — ódýrarí
Komdu á þeim gamia og veldu sjáifur
Ford Cortina 79,95.000
A.M.C. Concord st. '81,240.000
Fíat 125 P 77,35.000
Mazda 818 78,65.000
Fíat 128 76,40.000
Ford pickup 4x4 70,90.000
Ford Comet 73,40.000
Ford Comet 73,35.000
Lada 1500 '77,40.000
Polonez '80,85.000
BuickLeSabre 71,40.000
Mazda 818 74,35.000
Saab 99 sjálfsk. 73.55.000
þér
Ert þú í skiptahugleiðingum?
Við höfum nýja bfla og notaða.
Umfram allt góða bfla.
Komdu við hjá okkur og kynntu
málin.
Allt á sama stað.
r—---------------------- —n
| Opið iaugardag, (
| kl. 10-16 j
I sunnudagkl. 13—17. j
Egill Vilhjálmsson hf.
Smiójuvegi 4 Kðp. Sími 77200 Sími 77720