Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1982, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1982, Blaðsíða 30
30 DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. NOVEMBER1982. Sigríður Guðbjartsdóttir lést 20. nóvember. Hún fæddist á Isafirði 1. desember 1895. Árið 1919 hélt hún til Kaupmannahafnar og lagði þar stund á fatasaum. Starfaði hún þar í mörg ár hjá þekktum fatahönnuöum. Áriö 1930 kom hún til Islands og giftist fyrri manni sínum Oddi Guðmundssyni vél- stjóra, en hann fórst árið 1942. Síöar giftist hún Þorgrími Einarssyni garð- yrkjubónda og saman reystu þau gróðrarstöðina Garðshom í Fossvogi. Síöustu árin bjuggu þau að Hátúni lOb. Þorgrímur lést árið 1980. Utför Sigríðar verður gerð frá Fossvogs- kirkjuídagkl.15. Guðrún Þorkelsdóttir, Meistaravöllum 33, lést í Landspítalanum að kvöldi 28. nóvember. Sveinn Þórðarson, fyrrverandi aöalfé- hiröir, Túngötu 49, andaðist 27. nóvember. Guðbjörg Eiríksdóttir, Brávallagötu 46, verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju miðvikudaginn 1. des. kl. 13.30. Guðrún Ögmundsdóttir húsfreyja, sem lést í Borgarspítalanum 23. þ.m. verður jarðsungin frá Hraungerðis- kirkju laugardaginn 4. desember kl. 14. Anna Skæringsdóttir, Gullteigi 29 Reykjavík, sem andaðist 21. nóvember sl., verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju miðvikudaginn 1. desember kl. 15. Valdis Sigurðardóttir, Osi Skilmanna- hreppi, verður jarðsungin frá Akranes- kirkju fimmtudaginn 2. des. kl. 11.30. Marinó Arason, Lindargötu 21, verður Steinunn Guðmundsdóttir er látin. Hún fæddist 17. apríl 1888 að Núpi í Fljóts- hlíð. Foreldrar hennar voru þau Sigríö- ur Siguröardóttir og Guðmundur Magnússon. Utför hennar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 15. Rudolf Theil Hansen lést 21. nóvem- ber. Hann fæddist í kaupmannahöfn 10. ágúst 1897. Rudolf lauk prófi í klæð- skeraiön og starfaði hann alla tíð við þá iön. Eftirlifandi kona hans er Margrét Finnbjarnardóttir. Þeim hjónum varð 5 barna auðið. Utför Rudolfs verður gerð frá Hafnar- f jarðarkirkju í dag kl. 15. Andlát SMÁBÁTAEIGENDUR ATHUGIÐ VERKIÐ YKKAR SJÁVARAFLA SJALFIR I litlu sjávarplássi úti á landi er ætlunin að gera tilraun meö allnýstár- lega þjónustu við smábátaeigendur á vori komandi. Undirbúningur er þegar hafinn að uppbyggingu á aðstöðu þar sem þeim verður gert kleift að vinna úr afla sínum hver fyrir sig. I gangi er athugun á íveru- húsnæði til handa þeim er vildu nýta sér þessa þjónustu. Nú þegar hafa nokkrir smábátaeigendur sem kunnugir eru málinu ákveðið að vera með. I ráöi er að komiö verði upp fullkominni flatningsvélasamstæðu á löndunarbryggju ef næg þátttaka fæst. Hafið samband viö auglýsingaþjónustu DV í síma 27022 eftir kl. 12. H-500. SKIÐA SLEÐAR Minni: 705,00 993,00 I gærkvöldi í gærkvöldi ENN UM TOMMA OG JENNA Allajafna er ljúft að skrúfa frá sjónvarpstækinu á mánudags- kvöldum. Leiðarljós þeirrar kvöld- dagskrár er fjölbreytnin og hefur verið svo lengi. Þannig gefst okkur, auk frétta og veðurútlits, tækifæri aö skoða um- talaöan teiknimyndaflokk, íþróttir, framhaldsmyndaþátt og yfirleitt vandað sjónvarpsleikrit. Allt er þetta að finna í sömu bununni og vel það. Eg hef áður lýst yfir þeirri skoðun minni í þessum dálki að þættirnir um Tomma og Jenna fígúrurnar væru ekki við hæfi bama innan lögaldurs. Sú skoðun mín er staðföst og mun ég seint hvika frá henni. Fátt er jafn auðvirðilegt og ala hvítvoðunga á of- beldi jafn vinalegra húsdýra og kettir og mýs eru í daglegri umgengni. Ekkert er jafn varhuga- vert og ala börn á óraunsæi og rangri heimsmynd. Allt eins mætti þröngva því inn í hug krakka aö áfengi og eiturlyf væru staöbetri morgun- verður en lýsi og komabrauö eins og sýna þeim saklaus dýr í svo vitlausum ham og gert er í Tomma og Jenna myndaflokkunum. Steingrímur Sigfússon hefur sýnt það og sannað í þeim íþróttaþáttum sem hann hefur stýrt aö þar fer vinur almenningsíþróttanna. Þaö fer vel á því aö sýna annað efni en kappleiki manna í milli i þessum þáttum og hefur Steingrímur þannig skapaö skemmtilegt mótvægi við efnistök starfsbróöur síns, Bjama Felix- sonar. Breski skemmtiþátturinn Tilhuga- líf er ágætur svo langt sem hann nær. Því er ekki að neita að undirritaður hefur séö fyndnari og betri kímni- þætti frá Tjallanum en þessi þáttur er. Því er ekki þar með haldið fram að þessi fíni róman sé undir meðal- lagi að gæðum. Yfirleitt berst til okkar gott efni f rá Bretlandi og er þá .sama hvort litið er á fræösluefni, skemmti- eða afþreyingarefni. Það sem Bretar verða þó að fara að gera sér grein fyrir við gerð skemmtiefnis er aö hlátur inn- byggðra áhorfenda er fyrir all- nokkm síðan kominn úr tísku. Það er ekki hið einasta að þessi uppgerði hlátur sé hvimleiður sem slíkur heldur er hann jafnan svo ofnotaöur í þáttum á borð við Tilhugalif aö hrein móögun er við eðlilegt skopskyn sjónvarpsáhorfenda í heimahúsum. Ég haföi ekki tækifæri til að horfa á sjónvarpsleikrit gærkvöldsins nema með öðru auganu og treysti ég mér ekki til aö gagnrýna gæði þess af þeim sökum. Segja mér þó góðir menn, sem litu þetta efni báðum augum, að sagan um Rósu Reinhardt hafi verið hin trúverðugasta og helstu persónur og leikendur hennar hafi átt hrós skilið fyrir frammi- stöðuna. Mér skilst að Indriði G. Þorsteins- son sé að lesa sögu sina, Norðan viö stríö, í útvarpi nú í upphafi aðvent- unnar. Þetta hugverk Indriða las ég með ágætri athygli fyrir nokkrum misseram. Eg skora því á þá sem hafa tíma til aö leggja eyrun viö lestri höfundar á næstu síðkvöldum. Fáir ættu að vera sviknir af. Og fyrst ég er byrjaður aö fjalla um útvarpsdagskrá kvöldsins þá er mér í mun að þakka Áma Böövars- syni fyrir umfjöllun sína um daglegt mál. Hún er greinargóð og gaman er þessa dagana að fylgjast með því hvernig hann beygir heiti manna svo rétt teljist. Þetta er þarft verk, ekki síst þegar tillit er tekið til þess að brátt fara menn að senda vinum og kunningjum svonefnd jólakort og viðtakendum þeirra þykir yfirleitt fátt hvimleiöara en lesa nöfn sín afbökuð og vitlaust beygð. TO að mynda þótti undirrituðum miður gaman að lesa eftirfarandi beygingu utan á einum jólaglaðningi sínum á síðustu jólum: TilSigmundar Amar! Sigmundur Ernir Rúnarsson. jarðsunginn frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 2. desember kl. 13.30. Sigurjón Sigurbjörnsson frá Isafirði, Meistaravöllum 7, verður jarösunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 1. desemberkl. 10.30. Tilkynningar Kötturinn Lýríkur er týndur! Hann er svartur á baki, hvitur á bringu og snoppu. Auðkenni: hárlítill um miðja róíu vegna aðgerðar. Lýríkur tapaðist úr Hlíða- hverfi í fyrri mánuði. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 22692. íslenska óperan Sýningar á „Litla sótaranum” eftir Benjamin Britten verða í vikunni sem hér segir: þriðjudag 30. nóv. kl. 14.30, laugardag 4. des. kl. 15.00, sunnudag 5. des. kl. 16.00. Stjórnandi er Jón Stefánsson og leikstjóri Þórhildur Þor- leifsdóttir. Gilbert Levine hefur nú aftur tekið við tónlist- arstjórn í Töfraflautunni og mun hann stjórna næstuösýningum. einstæðra foreldra Jólakort Félags einstæðra foreldra eru komin á markaðinn. Jólakortin eru aðallega teiknuð af bömum, einnig eru teikningar eftir Þor- björgu Höskuldsdóttur, Sigrúnu Eldjám og Rósu Ingólfsdóttur. Kortin eru afhent á skrif- stofu félagsins Traðarkotssundi. Kortin fást einnig i bókaverslunum um allt land. Blúsbandið komið aftur Bandaríska hljómsveitin The Missisippi Delta Blues Band er nú komin til Islands í annað sinn en hún lék hér í fyrra við feiki- góðar undirtektir. Nokkrar mannabreytingar hafa orðið á sveit- inni en ennþá eru aðalmennirnir munnhörpu- leikarinn Sam Myers og gítarleikarinn Big Bob. Blúsbandið mun halda þrenna tónleika á Hótel Borg, dagana 9., 10. og 11. desember. Til að fólk geti tryggt sér miða tímanlega hefst forsala í Fálkanum á Laugavegi þann 1. desember. Skemmtu þér í skammdeginu á óþvingaðan hátt Þú ert velkomin að vera með í stofnun áhuga- mannafélags um söng og skemmtun. Til- gangur félagsins er sá, að skemmta sér á óþvingaöan hátt með öðru fólki. Vertu með í stofnun söngkórs félagsins. Viljir þú troða upp eða gera eitthvað þér og öðrum til skemmtunar þá er hér tækifærið. Allir mögu- leikar krufnir á stofnfundinum og allir velkomnir að koma með tillögur aö nafni félagsins. Stofnfundurinn verður haldinn í Fé- lagsstofnun stúdenta við Hringbraut fimmtu- dagskvöldið 2. desember kl. 20.30. Köttur tapaðist 4 mánaða gamall kettlingur, bröndóttur með hvítt trýni upp undir augu og hvíta bringu, bogna rófu tapaöist frá Heiðargerði 24. Hann er ómerktur. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 37992. Aðalfundur Knatt- spyrnudeildar Fram Aðalfundur Knattspymudeildar Fram verður haldinn fimmtudagmn 9. desember í félags- heimilinu við Safamýri kl. 20. Venjuleg aðal- fundarstörf. Stjórnin. Háskólatónleikar 'í Norræna húsinu A morgun miðvikud. kl. 12.30 syngur Már Magnússon á Háskólatónleikum í Norræna húsinu. Við píanóiö er Olafur Vignir Alberts- son. A efnisskrá eru verk eftir Emil Thorodd- sen, Haligrím Helgason og Jón Ásgeirson. Nokkur þeirra eru nú flutt í fyrsta skipti. Kvenfélag Hreyfils Jólamatarfundurinn er í kvöld, þriðjudag 30. nóvember kl. 20. Mætið vel og stundvíslega. Stjórnin. Félag stúdenta í heimspekideild Fundur í samstarfsnefnd Félags stúdenta í heimspekideild, haldinn 19. nóvember 1982, mótmælir harðlega þeim niðurskurði á fjár- veitingum til Háskóla Islands sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 1983. Fundurinn lýsir furðu sinni á þeim vinnu- brögðum sem við eru höfð við samningu frumvarpsins, þ.e. að reikna óraunhæf f járlög fram með óraunhæfri verðbólguspá án þess að taka tillit til sívaxandi fjölda stúdenta og þarfa skólans. Fundurinn skorar á rikisstjórnina að bæta úr þessu nú þegar svo að Háskólinn geti starfað áfram á eölilegan hátt. 60 ára verður á morgun, 1. desember, Gunnar A. Jónsson frá Höll í Haukadal í Dýrafirði, Bogahliö 10 hér í Rvík. Hann hefur verið starfsmaður Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna um ára- bil. Hann verður að heiman á afmælis- daginn. 60 ára er í dag, 30. nóvember, Guðjón Jóhannesson bifvélavirki, Bogahliö 14 Rvík. — Guðjón er að heiman í dag. Eiginkona hans er Katrín Jóhannes- dóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.