Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1982, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1982, Blaðsíða 5
DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. NOVEMBER1982. 5 Páll Steinarsson, framkvæmdastjóri Límtrós hf. sveigja aö vilja í pressun, eins og sjá má á myndunum á síðunni. Afkastageta verksmiðjunnar er um 2500 rúmmetrar á ári af límtré. Reiknað er með að fyrsta árið verði þó aðeins framleiddir um 800 rúmmetrar á ári, enda ekki talið að markaður sé fyrir meira. Innflutningur á límtré á síöasta ári var um 1000 til 1200 rúm- metrar en notkunin fer vaxandi ár frá ári. Þrátt fyrir að verksmiðjan verði ekki rekin með fullum afköstum telja forráðamenn hennar að þeir verði fyllilega samkeppnisfærir við innflutn- ing. Eftir 5 ár er reiknað með að verk- smiðjan verði komin upp í 1600 rúm- metra ársframleiðslu af burðarlimtré. Til samanburðar má geta þess að lím- tréö sem notað var í sperrur verk- smiðjunnar sjálfrar er um 150 rúm- metrar en verksmiðjuhúsið er 2400 fer- metrar að flatarmáli. I verksmiðjunni mun einnig verða framleitt smíðalímtré sem notað er í húsgögn og innréttingar og límtrés- klæðningar með einangrun sem setja má beint á milli sperranna. Þá er einnig talinn góöur markaður fyrir mótafleka, framleidda á þennan hátt. Páll Steinarsson, framkvæmda- stjóri Límtrés hf. , sagði í samtaii við DV að víöa erlendis væru spænirnir sem féllu til við framleiðsluna notaðir til framleiðslu á spónaplötum, en fyrir- tækið hefði ekki gert ráð fyrir því í upp- hafi, þar sem til þess þyrfti auka. tækjabúnaö sem hefði hleypt upp stofn- kostnaði við verksmiðjuna. Kosturinn við þá aukaframleiðslu sem fyrirtækið hygðist sinna, mótafleka og smíðalím- tré, væri aðallega sá að hana mætti vinna með þeim tækjabúnaöi sem fyrir hendiværi. Sex manns munu vinna við sjálfa framleiðsluna fyrsta árið sem verk- smiðjan verður starfrækt auk þriggja annarra starfsmanna en eftir fimm ár er reiknað með að þar starfi samtals sextánmanns. ,,Við sjáum fram á að verksmiðjan verður mikil lyftistöng fyrir atvinnulíf á svæðinu,” sagði Páll Steinarsson . „Þótt verksmiðjan sé ekki mjög atvinnuskapandi miðað við fjárfest- ingu verður ýmis önnur þjónusta í kringum hana. Viö sáum enda fram á að það yrði ekki hægt að skapa fleiri atvinnutækifæri í landbúnaði sem er aðalatvinnugreinin á þessu svæði. ” Niðurstaða síðustu arðsemisút- reikninga f yrir verksmiðjuna var sú að hún ætti aö geta skilaö afgangi strax fyrsta árið. Gert var ráð fyrir að sölu- verðmæti myndi þá nema 12 mill jónum króna og rekstrarhagnaður yrði um 600 þúsund . Er þá miðað við að verk- smiðjan verði samkeppnisfær í verði viö innflutning. Vélarnar í verksmiðjuna eru flestar komnar til landsins en þær voru keyptar úr danskri verksmiðju sem verið var að leggja niður. Eins og fyrr segir er afkastageta þeirra meiri en sem svarar þörfum innanlands- markaöar, en PállSteinarsson segir að þessi mikla afkastageta geri það að verkum að hægt verði að afgreiða pantanir með mjög stuttum fyrirvara og ætti það aö tryggja samkeppnis- möguleika verksmiðjunnar við inn- flutning. OEF Herraklippingar: VERÐLAGSÁKVÆÐI HRAUSTLEGA BROT1N , Verð á klippingu á rakarastofum er víðast hvar hærra en það sem verð- lagsákvæði heimila. Hæst má verðið vera 79,95 krónur og er þá innifalið hárvatn. Er þaö svokölluð formklipp- ing, sem er líklega það sem f lestir kari- menn biðja um. Verðið á stofunum virðist hins vegar allsstaðar vera yfir 100 krónur. Fer það allt upp í 158 . Reyndar er í því verði innifalin þurrkunáhárinu. Verðlagsstofnun kærði fyrr á þessu ári hárgreiöslustofur fyrir of hátt verð. Síðan þá er verö á klippingu ekki undir verðlagsákvæöum, utan herraklipp- ingar á rakarastofum. En jafnvel það virðist vera hraustlega brotið. DS AÐRIR ÚTSÖLUSTAÐIR: STEINI & STJÁNI, VESTMANNAEYJUM KHB SEYÐISFIRÐI - VERSLUNIN VÍK, ÓLAFSVÍK VERSLUNINL TINDASTÓLL, SAUÐÁRKRÓKI. SPORTBUÐIN LAUGA VEGI97 - SÍM117015. ÁRMÚLA 38 - SÍMI83555. FINIMSKAR VATTKÁPUR KVENNA MEÐ HETTU Stærðir: 38-46 Litir: og blágrátt 1.099,-00 S» sem ffer með Schiesser^ í liáitiim getnr gengið tíl dyra eins og Iiaim er klæddnr á Iivaða tíma sólarhrings sem Orð að sönnu, eins og best sést á meðfylgjandi mynd, enda vita hönnuðir Schiesser, eftir margra ára reynslu, nákvæm- lega hvað konan vill. Sá sem vill gefa góða gjöf ætti að líta á úrvalið frá Schiesser. Gjöf frá Scliiesser gleðiu- ætíð augað. Glæsibæ Sími 83210 „Sá sem kaupir Schiesser gæðamerkið, kaupir Schiesser aiitur.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.