Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1982, Qupperneq 9
DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. NOVEMBER1982.
9
Útlönd . Útlönd Útlönd Útlönd
Kristófer Kólnmbus var ekki í
nýlenduleit samkvæmt söguskýring-
um á allsherjarþinginu.
Deilt um Kólumbus
og Leif heppna á
allsherjaipinginu
Tíu ár til 500 ára afmælis landafundar
Kólumbusar, en átján ár í1000 ára
afmæli Vínlandsfundar
— íslenski fulltrúinn fékk
spænskumælandi ríkin á móti sér
Nokkur rimma varð á allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóöanna í gær um
hver mundi hafa fundiö Ameríku —
Kólumbus, Leifur heppni eða papar.
Niðurstaðan varð sú aö alisherjar-
þingið frestaði til næsta mánudags
ákvörðun um hvort halda skyldi upp
á 500 ára afmæli þess, þegar Kristóf-
er Kólumbus kom til nýja heimsins.
Kólumbus, sem styrktur var til
leiöangursins af Isabellu Spánar-
drottningu, kom á skipi sínu til San
Salvador 12. október 1492.
Reuter-fréttastofan segir aö full-
trúi Islands — sennilegast Höröur
Helgason sendiherra — hafi hreyft
andmælum við fullyröingum um að
Kólumbus hafi fundið Ameríku
1492. Segir fréttastofan að íslenski
fulltrúinn hafi bent á að Leifur
Eiríksson, norrænn maður, hafi
komið til Ameríku árið 1000, og því
væri réttara fyrir Sameinuðu
þjóðirnar eftir 18 ár að minnast
þúsund ára afmælis sjóferðar hans,
ef gera ætti á annaö borð einhvern
dagamun út af fundi Ameríku.
Noel Dorr, fulltrúi írlands, bland-
aði sér í þessar umræður og sagöi að
írskir munkar hefðu ferðast til
Ameríku löngu áður en Kólumbus
komþangaö. •
Jaime de Pinies, f ulltrúi Spánar,
svaraði því og sagði að framlag Ir-
lands til Ameríku hefði aðallega
verið til lögreglunnar í New Y ork þar
sem margir írskir innflytjendur eða
írskættaðir menn hafa starfað. —
Síðar tók hann fram að hann hefði
verið að gera að gamni sínu.
Þessi þræta haföi þær óvenjulegu
afleiðingar í för með sér að Banda-
ríkin og Kúba — sem yfirleitt eru á
öndverðum meiði um öll mál —
sneru bökum saman til stuönings
ályktunar um að Sameinuöu þjóöirn-
ar mundu eftir tíu ár minnast 500 ára
afmælis landafundarKólumbusar.
Fulltrúi Islands skaut því að að
þetta væri sennilega í fyrsta sinn
sem Sameinuðu þjóðirnar stæðu
frammi fy rir samþykkt um að heiðra
nýlendustefnuna.
Fulltrúar Suður-Ameríkulandanna
brugðu þá viö og sögðu að trúin og
hugsjónin heföu drifið Kólumbus
vestur yfir haf en ekki ósk um að
gera Ameríku að nýlendu. Spænski
fulltrúinn sagði að Spáni hefði ekki
gengið þaö til að gera nýja heiminn
aö nýlendu sinni.
Þessar síðasttöldu söguskýringar
koma einhverjum kannski spánskt
fyrir sjónir.
Launadeila hjá
Sameinuðu þjóðunum
Launþegasamtök starfsfólks á
vegum Sameinuöu þjóðanna hafa hót-
að verkfalli ef kröfur þeirra um launa-
hækkanir, meiri framavonir og afnám
pólitískrar mismununar verði ekki
uppfylltar.
Það er alþjóðlegt bandalag opin-
berra starfsmanna, sem gætir hags-
muna um 30 þúsunda starfsmanna
hinna ýmsu stofnana Sameinuðu þjóð-
anna, er standa utan við starfsmanna-
félag S.þ. Hið síðarnefnda semur hins
vegar fyrir hönd 10 þúsunda starfs-
manna S.þ. og þá meðal annars þeirra
6 þúsunda sem vinna við aðal-
stöðvarnar í Ne w Y ork.
Laun hjá starfsfólki Sameinuöu þjóð-
anna hafa ekki verið hækkuð í átta ár
en nú er krafist 10% hækkunar. Þeim
hefur verið gert tilboð um 5% hækkun.
Fyrsti einkaspítalinn
Nú stendur fyrir dyrum opnun faldlega að heita Einkaspítalinn í tæki og eiga aðeins hluthafar rétt á
fyrsta einkaspítalans í Danmörku. Kaupmannahöfn. meðferð við hann. Hver daggjöldin
Hann veröur í Hörsholm og á ein- Spítalinn verður hluthafafyrir- verðaerennekkiákveðiö.
Þrfggja, fímm og sjö
daga lúxusreisur til
Þriggja, fimm og sjö daga ferðir til London.
Verð frá: 4.885 kr. Höfum gert mjög góða
samninga viö fyrsta flokks hótel m.a.:
LONDON TARA við Kensington High
Street, ST. GEORGE’S við Oxford Circus.
Ath. Ferðamiðstöðin er eina ísl. ferða-
skrifstofan með samninga við þessi ve!
staösettu hótel.
Sérhæfð þjónusta — vingjarnleg þjón-
usta.
IDNDON
B ferða..
Íii MIÐSTODIIM
AÐALSTRÆTI9 S. 28133