Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1982, Qupperneq 18
18
DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. NOVEMBER1982.
Náttúrlækningabúðin
Laugavegi 25, símar 10262 og 10263
og við Óðinstorg, sími 10228.
Tii eiginmanna og unnusta:
Ef þú ætlar að gefa þinni þessa bók, kannaðu
þá fyrst, hvort hún sé ekki nú þegar búin að.
kaupa hana.
Við sendum bókina sem og aðrar vörur okkar i
póstkörfu hvert á land sem er. Þeir, sem
senda greiðslu með pöntun, losna við póst-
kröfukostnað.
Líkamsræktarbók
Jane Fonda
JANEFONMS
WORKO'JT BOOK
by Jane Fonda
with photographs
by Steve Schapiro
Bókin, sem slegið hefur öll fyrri sölumet
bóka um líkamsrækt.
- Þetta er bókin, sem á erindi til allra íslenskra kvenna.
- Bókin er á ensku, en létt aflestrar og kennslan byggir
mest á myndum og texta þeim, sem með hverri mynd
fylgir.
- Bókin er mikið notuð í líkamsræktarskólum í mörgum
löndum, einnig hér á landi.
- Bókin er því aðgengileg öllum, jafnvel þeim, sem kunna
lítið eða nánast ekkert í ensku.
- Þetta er bókin, sem þúsundir íslenskra kvenna dreymir
um að eignast.
TEPPAHÖULIN
ÁRMÚLA 22. - SÍMI 32501.
Odgr og vönduð gœðateppi.
TILKYNIMING
til notenda kapalkerfis Video-son hf.
Þár sem endurskoða þarf ýmis ákvæði núgildandi
samninga milli Video-son hf. og notenda kapal-
kerfis félagsins og samræma þarf efni samning-
anna, er hér með sagt upp öllum samningum viö
notendur kapalkerfisins. Uppsögnin er gerð með
þeim fyrirvara, er samningar áskilja og miðast
við þau tímamörk, sem í hinum einstöku samn-
ingum greinir.
A næstu mánuðum verður haft samband við not-
endur kerfisins um væntanlega endurnýjun samn-
inga. En þar til nýir samningar verða gerðir, er
gert ráð fyrir, að starfsemi félagsins verði með
svipuðum hætti og verið hefur að undanförnu.
VIDEO-SON HF.
íþróttir íþróttir íþróttir
Danir fá ekki að
vera með í stór-
mótinu í Rostock
— Austur-Þjóðver jar segja að þeir hafi ekki sótt
um að vera með í mótinu í ár
Danska landsliöið í handknattleik
karla fær ekki að vera með í
Eystrasaltskeppninni sem fram á að
fara í Austur-Þýskalandi í
desember. Danska handknattleiks-
sambandið uppgötvaði þetta í
síðustu viku þegar haft var samband
við Þjððverjana og þeir beðnir um að
senda upplýsingar um leikdaga og
leikstaði. Svarið kom um hæl, en þar
var nafn Danmerkur hvergi að finna.
Austur-Þjóöverjarnir segja að
Danir hafi sótt um að fá aö vera með
í keppninni 1983 en ekki í ár. Þessu
neita Danir og segjast hafa miðað
sitt æfingaprógramm og leiki sína
viö að mæta í mótið í Austur-Þýska-
landi.
„Þetta mót átti að vera aðal-
upphitunin fyrir forkeppni
ójympíuleikanna 1984 og það verður
mikið áfall ef við fáum ekki að vera
með í því,” segir Leif Mikkelsen,
þjálfari landsliðsins. Er hann mjög
heitur út í stjórnarmenn danska
sambandsins út af þessu máli og
kennir þeim um hvemig komið er.
Þjóðimar sem þarna mæta eru
heimsmeistararnir frá Sovét-
ríkjunum, ólympíumeistarar
Austur-Þýskalands, Rúmenar,
Tékkar, Svíar og Islendingar. Mótið
fer fram í Rostock og verður dagana
13. til 19. desember.
-klp-
Skapofsamaður-
inn Drexler...
Frá Axel Axelssyni — fréttamanni
DV í V-Þýskalandi. — Manfred
Drexler, fyrirliði Shalke 04, er nú
ahnennt taiinn mesti skapofsa-
maðurínn í „Bundesligunni”. Hann
hefur fengið að sjá rauöa spjaldið
tvisvar sinnum á stuttum tima, fyrir
að sparka viljandi í mótherja sinn,
þar sem hann hefur legið varaarlaus
á vellinum. Drexler fékk fjögurra
vikna bann á dögunum fyrír að
sparka í Wolfgang Kraus hjá Bayem
og á laugardaginn sparkaði hann
viljandi í einn leikmann Bochum.
Fyrir það fékk hann að sjá rauða
spjaldið og á hann nú yfir höfði sér
mjög þungan dóm.
-AxeI/-SOS.
Leif Mikkelsen — landsliðsþjálfari
Dana.
Fríðrik Guðmundsson, stjórnarmaður HSÍ:
Lokað á blaðamenn
„Vegna skrifa í Morgunblaðinu og
DV þann 25. nóvember, þar sem
blaðamenn skilja ekki hvers vegna
þeim var meinaður aðgangur að bún-
ingsklefa islenska liðsins að loknum
leik við Frakkland, óska ég eftir að
koma á framfæri eftirfarandi:
Að leik loknum vill þjálfari fá frið
til þess að tala við Uð sitt og einnig
teljum við æskilegt að leikmenn fái
að fara i bað og slaka á í friði í
nokkrar minútur. Eftir það er blaða-
mönnum frjálst að ræða við þá. Þá
skal minnt á blaðamannafund sem
haldinn var á skrifstofu HSÍ nú í
haust og þessi mál rædd.
Bauðst stjóm HSÍ þá tU að halda
blaðamannafund eftir hvem lands-
leik þar sem þjálfarar beggja Uða
svo og tveir íslenskir leikmenn
mundu mæta.
Þessu höfnuðu blaðamenn á þeirri
forsendu að öll blöðin gætu þá verið
með sömu svörin og viðtöl við sömu
menn. Samþykktu blaðamenn þá að
bíða með viðtöl viö leikmenn þar tU
þeir heföu faríð í bað.
Að lokum vU ég minna á orð Sig-
mundar O. Steinarssonar (SOS)
blaðamanns DV við þessar umræður
þar sem hann sagði að ísland væri
sennUega eini staöurinn í heiminum
þar sem blaðamenn gætu farið inn í
búningsklefa strax að leik loknum og
sagðist hann vera hissa á að þetta
skuU ekki hafa verið stöðvað fyrr”.
Friðrik Guðmundsson.
Ekki sagt rétt f rá
Þaö sem Friðrik Guðmundsson,
stjórnamiaður HSI, nefnir nafn mitt
í bréfi sínu til DV vil ég taka eftir-
farandifram:
Friðrik hefur eitthvað misskilið
umræður þær sem áttu sér stað á
fundi HSI , þegar blaðamannafundi
eftir landsleiki bar á góma. Blaða-
menn afþökkuðu þá fundi á þeim for-
sendum sem Friðrik segir réttUega
frá. Aftur á móti var aldrei sam-
þykkt af blaðamönnum að bíða í 25—
30 mín. með að taka viðtöl, eða þar til
leikmenn væru búnir í baði.
Ef það hefði verið samþykkt,
hvers vegna var blaðamönnum ekki
meinaður aðgangur að búningsklefa
landsliösins eftir leikina gegn V-
Þjóöverjum? Var bann Friðriks ekki
gengið í gUdi þá?
Það er rétt að ég sagði að það væri
ekki á mörgum stööum í heiminum
sem blaðamenn fengju aö fara inn í
búningsklefa eftir landsleiki, enda er
það svo erlendis þar sem blööin eru
miklu fleiri heldur en á Islandi. Eg sé
í anda 50—60 blaðamenn vera
samankomna inni í búningsklefa
eftir leiki — um 9—10 blaðamenn á
einn leikmann.
Þaö hefur aftur á móti tiðkast um
áraraðir að íslenskir blaðamenn
(þrír til f jórir!) hafi ávaUt fengið að
fara inn í búningsklefa eftir leiki
íslenskra landsliöa — bæði hér og
erlendis, þannig að þeir geti unnið
sín störf.
Friðrik segir ósatt. Þegar hann
segir í bréfi sínu að ég hafi sagst:—
vera hissa á að þetta skuU ekki hafa
verið stöðvað fyrr.
Eg sagði það aldrei. —„Stöðvað
fyrr?” Furðulegt að hann skuU segja
þetta því að það kom aldrei fram á
fundinum að ákveðið væri að meina
blaðamönnum aðgang að búnings-
klefa landsUösins. HSI hefur aldrei
gefið út þá yfirlýsingu. Hvað var þá
stöðvað?
Ef það hefði verið tUkynnt hefðu
blaðamenn DV og Morgunblaðsins
ekki gert tUraun til að komast inn í
búningsklefann.
Og ef það hefði verið samþykkt af
stjóm HSI að setja bann á blaða-
menn hefði JúUus Hafstein, for-
maður HSI, sagt þeim blaðamönn-
um þaö sem kvörtuðu við hann út af
framkomu Friðriks, þegar hann
vísaði þeim frá búningsklef anum.
Getur verið að Friörik hafi tekið
það upp hjá sjálfum sér að útiloka
blaðamenn frá búningsklefa lands-
liösins — án þess að láta JúUus Haf-
stein vita?
Að lokum þetta: Ef stjórn HSl og
landsUösþjálfari óska ekki eftir
blaöamönnum inn í búningsklefa
eftir leiki og setur reglur um það, þá
er frumskilyrði að blaöamenn séu
látnir vita um það fyrirfram, þannig
að þeir geti forðast búningsklefa
landsUðsins í framtíðmni. Það er
stjómar HSI, ef hún óskar eftir því
að hætt sé að fjalla um landsleiki í
blöðunum þannig að sjónarmið
landsUðsþjálfara og leikmanna komi
fram.
-SOS
íþróttir
íþróttir
íþrótt