Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1982, Blaðsíða 36
36
DV. ÞRIÐJUDAGUR 30. NOVEMBER1982.
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
DÆGRADVÖL
UTIALLA NOTTINA
„Nei, hálló. Gangiö í bæinn og látiö
fara vel um ykkur.” Eru einhverjir
komnir ? „Já, Rúna og Lalli eru inni í
stofu. Og Dísa var að hringja og
sagöi aö þau Gvendur tefðust smá-
stund vegna barnapíunnar. Nú og þiö
vitið hvernig Nikki og Nína eru.
Þeim segir maöur sko aö mæta
klukkan átta, vilji maður fá þau
klukkanniu.”
Já, Dægradvölin ætlar aö gera sér
dagamun og bregða sér á ball.
Bindishnúturinn er löngu hnýttur og
eins og þiö sáuð er partíiö okkar
komiö á fullt. Kunningjarnir
streyma inn og gömlu góðu slagar-
amir hringsóla á fóninum. Þaö
verður aö hugsa vel um liðið. Stjana
við þaö og leyfa því aö kyrja „tJti
alla nóttina”. Það er sem sagt glatt á
hjalla hjá okkur.
Skreppa á ball
íkvöld
En ballferðir eru engin nýjung.
Þær eru búnar aö vera vinsæl dægra-
dvöl í áratugi. Árshátíöir, haust-
gleöi, vorgleði, vetrarknall, sumar-
gleði og „skreppa á ball í kvöld”, allt
er þetta í hávegum haft. Og sumir
óprúttnir, ógiftir strákar kalla ball-
ferðir ,,aö kanna markaöinn.” Viö
hlustum ekki á slíkt hjal enda viljum
viö alls ekki vera aö blanda
einhverju efnahagstali inn í þetta.
Framboð og eftirspurn bíður mánu-
dagsins og brauðstritsins.
Vera í klíkunni
Jæja, klakinn er búinn og leigu-
bíllinn er að flauta. Við erum orðin
allt of sein enda stílum viö upp á aö
lenda í biðröðum. Teljum útilokað að
fara út á lifiö án þess aö hanga
dágóöa stund í kuldatrekki og
noröangarra innan um hitt fólkiö. Og
viö förum aftast. Héma megin er það
ekkert sem heitir aö kalla á dyra-
veröi og segjast vera í klíkunni.
I miðasölunni eru þaö krumpaðir
tíkallar sem dregnir eru upp úr vas-
anum. Og viti menn, þaö er búiö aö
rifa af miðanum og viö emm komin
inn. „Hérna er frakkinn, gjörðu svo
vel.”
Lubbinn í lagi
Hvað skal nú gera? Jú, klóið og
kamburinn er næsta skrefið enda
verðurlubbinnaðvera ílagi.
Leiöin liggur næst um danssalinn í
ljósadýrðinni. Ljósin blikka á okkur
og við blikkum á móti. Bara að við
rékumst á einhvern sem er með borð
svo hægt sé aö tylla sér niöur og láta
þjóninn framreiða vatn af bamum.
„Tíulítra, takk.”
Og síöan er það dansgólfið þegar
kjarkurinn er kominn. Þar reynir
maður að gera sitt besta því langt er
liðiö síöan menn vom hjá Eddu
Scheving í gömlu dönsunum. Þá var
lika eingöngu hugsaö um aö hlaupa
sem hraðast yfir dansgólfiö og vera
fyrstur í hneigingum.
Hvað um þaö, sjáum hvernig ball-
ferð okkar kemur út í máli og
myndum. Tónana höfum viö því
miður ekki. Þeir bíða morgun-
dagsins vinsæla.
Gnngid inn stu/kur nunur Gaman ud sja ykkur Ja, þad er alltaf
anægjulegt að ganga framhja kappktæddum dyravorðum. Serstak/ega
þegar þeir fjarlægja sultardropana i leidinni. Augnaradið leynir ser
heldur ekki hja stu/kunni a þessan mynd. Og þa er bara að fa ser mida
og koma ser / dansinn.
Barirnir hafa al/taf mik/ð aðdrattarafl ,Eg æt/a að fa einn tvofa/dan
gæti kappinn verið að segja a þessari skemmti/egu mynd. Eða er þetta
Playhoymerkið ..Sterku drykkirnir eru i meirihluta. Kvenfolk
drekkur mest vodka i kok en karlmennirnir brennivm, vodka og viskt
Af lettu vmunum er mest beðið um hianco. sagði ein afgreiðslu
stu/kan a barnum / Ho/lywood, og bætti við að kvenfólkið drykki ekki
eins mikið og karlmennirnir
Gish Svemn Loftsson, p/otusnuður / Broadway. setur eitt stuð/agið «# foninn ..Gomu/ og gnð log sett /
smadisko eru mjog vinsæl. Þa fellur hið svokallaða Evropusisko alltaf / goðan /arðveg. Og Bitlarnir og
Ahha fa alltaf alla ut a go/f
Biðraðarvandama/ er alþekkt fynrbæri a is/eriskum skemmtistoðum. Auðvitað verða allir nepju svona i smástund. ,,Þú þarna, vi/tu koma þér aftast i röðina og venja þig af þessu
að koma a sama tima, þannig að hægt se að hiða rauðnefjaður i kuldatrekki og norðan svindli alla tið. "