Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1982, Side 10
10
Útlönd
Útlönd
Útlönd
DV. MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1982.
Útlönd
KENNEDY HÆTTIR
VIÐ FRAMBOD VEGNA
FJÖLSKYLDUMÁLA
— og nú liggur brautin bein fyrir Walter Mondale
Ted yngrí, Joan, Edward, Klara og Patríck á meðan allt lék i lyndi: Nú
koma fjölskyldumálin i veg fyrir framboð hans i forsetakosningunum
1984.
Edward Kennedy hefur aö sögn
þrjár góöar ástæöur fyrir því aö
hætta við framboð sitt í forsetakosn-
ingunum 1984. Þær eru: Klara (22
ára), Ted (21 árs) og Patrick (15
ára). Á hann að hafa rætt þessa
ákvöröun sina við böm sín heima í
Massachusetts helgina áöur en hann
birti hana opinberlega.
Þaö geröist á blaðamannafundi í
Washington í síöustu viku og sagöi
hann þar aö börnin væru mikil-
vægasta ástæöan fyrir því að hann
hygöi ekki á framboö. Hann fór
heldur ekki leynt meö aö allt um-
stangið í sambandi viö skilnað hans
og eiginkonunnar Joan heföi fengið
mikiö á hann.
Hann sagöi þó blákalt aö hann
heföi ekkert á móti því aö veröa for-
seti Bandaríkjanna, en þaö yröi aö
bíöa betri tima.
Þar sem Kennedy er úr leik virðist
nú liggja beint viö fyrir demókrata
aö velja Walter Mondale, fyrrver-
andi varaforseta, sem forsetaefni.
Skoöanakannanir síöustu mánuöina
sýna aö vísu aö hann nýtur ekki eins
mikilla vinsælda og Kennedy, en
hann er þó augljóslega annar í
rööinni af þeim sem koma til greina.
Hinir eru John Glenn, fyrrverandi
geimfari (61 árs) , Gary Hart, þing-
maöur (45 ára), Alan Cranston,
þingmaður (68 ára), Ernest Holl-
ings, þingmaður (60 ára) og Reubin
Askew, fyrrverandi fylkisstjóri i
Flórída (54 ára).
Tveggja ára
kosningabarátta
Mondale, sem er 54 ára, er af
norskum uppruna. Áöur en hann
geröist varaforseti í tíö Jimmys
Carters var hann þingmaður Minne-
sota.
Mondale hefur enn ekki tilkynnt
hvort hann vill fara í framboð eöa
ekki. Menn búast þó viö slíkri til-
kynningu á hverri stundu og efast
ekki um að hann sé til í slaginn.
Eiginlega má segja aö hann hafi
byrjaö kosningabaráttu sína fyrir
tveimur árum því aö allan þann tíma
hefur hann verið á ferö og flugi um
landiö með fyrirlestra.
Mondale nýtur víötæks stuönings
hjá flokksmaskínunni og hann á
einnig stuöning vísan hjá þó
nokkrum stéttarfélögum. Fleiri hafa
þó hingaö til stutt Kennedy, en nú er
búist viö aö Mondale taki fylgi þeirra
í arf. Þar meö er hann búinn aö koma
sér upp óhemju sterkum bakhjarli.
Lanössamtökin bandarísku, AFL—
CIO gegndu mjög miklu hlutverki í
nýafstöðnum forkosningum innan
Demókrataflokksins en samtökin
leggja nú mikla áherslu á aö auka
pólitísk áhrif sín. Þaö sama gildir
líka um þau stéttarfélög sem fá-
mennari eru.
Mondale veit aö hlutverk hans
sem varaskeifa hins óvinsæla
Carters er honum fremur til skaða
en ávinnings. Þess vegna hefur hann
að sögn starfsbræöra sinna reynt aö
halda sér utan viö sviösljósiö og forö-
ast of mikla auglýsingu í f jölmiölum.
I staöinn hefur hann kosiö fyrir-
lestraþeyting sinn um landið.
Fuglinn Fönix
Upp á síökastiö er hann þó aftur
farinn aö láta á sér kræla í fjölmiöl-
um og líkja margir endurkomu hans
á vígsvið stjórnmálanna viö upprisu
f uglsins Fönixar úr öskunni.
Hann gagnrýnir efnahagsstefnu
Reagans forseta harölega en lætur
heldur ekki skorta á nýjar hugmynd-
ir fyrir framtíðina:
— Þaö væri óheppilegt aö byggja
kosningabaráttuna á mistökum
Reagans í efnahagsmálunum, segir
einn af starfsmönnum Mondales, —
kjósendur hafa helstan áhuga á
framtíöinni.
Mondale fer ekki í grafgötur um
þaö aö hann vill leggja mikla áherslu
á hentugra menntakerfi, afvopnun
og stuöning viö vissa tegund af viö-
skiptahöftum.
Eins og landiö liggur í dag viröist
margt benda til þess aö næstu for-
setakosningar veröi einvígi milli
Ronalds Reagans og Walters Mon-
dale. Mondale er þó ekki sá andstæö-
ingur sem Reagan hefur helst óskaö
sér. Hann á aö hafa sagt aö hann
langaði mjög til aö keppa viö
Kennedy:
— Ég myndi slá hann út með
mestu ánægju, er haft eftir forsetan-
um.
Mondale varaforseti og Carter forseti: Það timabil er ekki lengur neitt
gteðiefni fyrir Mondale.
Skálmöld í
Argentínu
— Herstjórnin lofar almennum
kosningum í lok næsta árs en fólkið
vill ekki bíða svo lengi
Forseti Argentínu, hershöfðinginn
Reynaldo Bignone, hefur lofaö þjóö-
inni almennum kosningum í lok
næsta árs. Á fyrstu mánuðum ársins
1984 á herinn aö skila völdunum í
hendur þeirra stjórnmálamanna
sem valdir hafa veriö af fólkinu.
Samkvæmt því sem Bignone segir
er þetta málamiðlunartillaga.
Herinn hefur stjórnað Argentínu
síöan hann hrifsaði til sín völdin 1976
og hefur átt viö vaxandi andúö aö
stríða af hálfu þeirra sem vilja kosn-
ingar og borgaralega stjórn.
Borgaralegir stjórnmálamenn
hafa krafist skjótra kosninga en
samkvæmt því sem Bignone segir er
slíkt ekki framkvæmanlegt fyrr en
„tæknilegum örðugleikum” hefur
veriö hrundið úr vegi. Lýsti forsetinn
því yfir aö hann vonaöist til að breyt-
ingarnar gætu gengiö friðsamlega.
En þaö er ólíklegt aö stjórnmála-
flokkarnir sætti sig viö aö bíða í eitt
ár.
Mestar h'kur eru taldar á því aö
perónistar vinni kosningarnar. En
flokkurinn er margklofinn. For-
menn allra flokka eru vel viö aldur
og flokkamir lítt í stakk búnir fyrir
kosningabaráttu. Þeir hafa gerst
kröfuharðari eftir aö Argentínumenn
töpuöu stríðinu við Breta um Falk-
landseyjar. Aö því stríði loknu lofaði
herinn borgaralegri stjórn á ný í
marsl984.
Sl. mánudag lamaði sólarhringsverkfall allt athafnalif i Argentinu. Búist er við að mótmælaaðgerðir 16.
desember leiði til meiriháttar götuóeirða.
Meiriháttar
aðgerðir
Ömurlegt ástand í efnahagsmál-
um, versnandi lífskjör, óánægja meö
óstjórn hersins og vonbrigði meö
ófarirnar í Falklandseyjadeilunni
hafa aukið á mótmælaölduna í
Argentínu. Einnig gerast þær raddir
Reynaldo Bignone: Rænir herinn völdunum frá honum?
háværari sem krefjast þess aö
herinn taki á sig ábyrgö á þúsundum
manna sem horfið hafa — flestir
myrtir í sambandi viö valdarán'
hersins og þeim ofsóknum sem
fylgdu í kjölfar þess.
Æ oftar slær í brýnu á milli andófs-
manna og lögreglu. Vmsar meiri-
háttar aögerðir eru í bígerð á næstu
vikum og sl. mánudag geröi 90%
meölima þriggja stærstu verkalýös-
félaganna sólarhringsverkfall sem
lamaði allt þjóöhfiö. Þann 16.
desember er áætlaö aö grípa til
víötækra mótmælaaðgerða í miöborg
Buenos Aires.
Þar munu fimm stærstu stjórn-
málaflokkarnir mótmæla því sem
þeir kalla hættulegustu kreppuna í
Argentínu á þessari öld. Þeir sem
skipuleggja mótmæhn reikna með aö
safna saman rúmlega 100.000 manns
í mótmælagöngu frá þinghúsinu til
stj órnarhaharinnar.
Herstjórnin býr sig nú undir
umfangsmiklar öryggisráöstafanir í
sambandi viö mótmælin. Er búist viö
aö afleiðingarnar leiöi til meiri
háttar götuóeirða á de Mayo törginu,
á svipaðan hátt og geröist eftir hið
tapaða stríð umFalklandseyjar.
Sundrung innan
hersins
Meö vaxandi andófi borgaralegra
afla í Argentínu vex einnig
sundrungin innan hersins. Þótt
sundrung hafi ætíð veriö fyrir hendi
á miUi flughers, sjóhers og landhers,
hefur hún aukist til muna eftir stríöiö
um Falklandseyjar. Þar þótti flug-
herinn standa sig langbest, en sjóher
og landher hafa mætt haröri
gagnrýni fyrir frammistöðu sína.
Talið er aö deildir innan hersins
undirbúi nú valdarán til aö ná völd-
unum af Bignone og stjórn hans.
Yfirmaður landhersins, Cristino
Nicolaides, er sagöur haröastur í
andstööunni gegn nýrri borgaralegri
stjórn. Þeir sem best vit hafa á mál-
unum áhta að ástandið í Argentínu
sé nú orðiö svo slæmt aö búast megi
við innbyrðis stríöi innan sjálfs hers-
ins.