Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1982, Blaðsíða 41
DV. MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1982.
45
DÆGRADVCL DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL
„VÍLA EKKIFYRIR MÉR
AÐ REKA UPP ROKUR”
— segir Guðni Guðmundsson rektor
sem einatt raular lagstúfa til að festa
orð í hugum nemenda
„Meöan ég var bam og hugsaði eins
og bam hélt ég aö heimurinn snerist
um jass og létta tónlist. Þegar mér óx
fiskur um hrygg og fór aö fá leyfi til aö
spila plötur eldri bróöur míns, Gunn-
ars, uppgötvaöi ég aö þaö var miklu
meira gaman að klassík.” Þaö er
Guðni Guðmundsson, rektor Mennta-
skólans í Reykjavík,sem þetta mælir.
Hann er mikill áhugamaöur um tón-
list, syngur m.a. ætíö mánaöarlega
með gömlum félögum úr karlakórnum
Fóstbræðmm.
,,Ég f ór á alla tónleika hvort sem þaö
var á Akureyri eöa í Reykjavík frá 17—
18 ára aldri. Þetta hefur þróast þannig
hjá mér aö ég er alveg hættur aö fara á
tónleika en er lagstur í plötuspil á ný.
Og nú á ég mínar eigin plötur. Kannski
er þetta vegna þess aö þá þarf ég
aldrei aö hlusta á neitt nema aö ég sé
viss um aö hafa gaman af, því þaö var
meö mig eins og ótal marga aðra
tslendinga aö ég byrjaði aö hlusta á
karlakóratónlist. Eftir aö ég lauk námi
söng ég meö karlakórnum Fóstbræðr-
um í 2—3 ár. Nú og svo er ég núna í
„Old boys” karlakórnum, syng einu
sinni í mánuði meö þeim, mér til
mikillar ánægju,” segir Guöni og
glottir.
— Þú söngst mikið 1 menntaskóla
var ekki svo? Mér skilst aö þú hafir
fengiö viðurkenningu fyrir aö efla
sönglífiö?
„Jú, eitthvað var þaö svoleiöis. Ég
fékk bók fyrir dygga þátttöku í
morgunsöng. Ég var sísyngjandi í
skóla. Svo gutlaöi ég iíka á gítar og
söng löngu áöur en þaö var orðið
þjóöarsport. En maöur veröur latur
meö aldrinum. Ég tek ekki í hann
nema einu sinni á ári og er þá með
blöðrur á öllum puttum enda spila ég
meira af haröfylgi en kunnáttu.”
— Hlustarðumikiðáplötur?
„Já, nokkuö. Um síðustu helgi
hlustaði ég t.d. á óperuna Ernami eftir
Verdi tvisvar sinnum í heild. Hún er
svo erfið aö hún er sjaldan flutt en þaö
er gullfallegt verk. Seinni árin hef ég
Meðan óg var barn og hugsaði eins og barn héit ég að heimurinn snerist um jass og iétta tónlist, "segir Guðni Guðmundsson.
vanist meira á kammermúsík en áöur
fyrr var ég í stórum, voldugum hljóm-
sveitum — þaö var meira þrill.”
— Þú ert líka frægur fyrir aö taka
lagið í tímum?
„Ja þegar maöur þarf aö útskýra og
„Funciculi Funicula" Guðni Guðmundsson stjórnar fjöldasöng á stúdenta-
útskrift i MR.
getur meö lagstúf fest orö eöa orða-
sambönd inn í hausinn á nemendum þá
vílar maöur ekki fyrir sér aö reka upp
smárokur og syngja. ”
— Hvaö finnst þér um þá tónlist sem
nemendur þínir hlusta mest á?
„Dægurmúsíkin sem núna er í tísku
er ekki í uppáhaldi hjá mér. Sérstak-
lega finnst mér haröa rokkið vera óþol-
andi hávaði! Aftur á móti komu
strákar í Sonus Futurae til mín og gáfu
mér plötuna sína. Eins og ég sagöi viö
þá þá finnst mér þaö heldur þægilegur
hávaði miöaö við haröa rokkið. En ég
hef ennþá dálítiö gaman af aö heyra
góöa sveiflu og Dixieland inni á milli.
Því er ekki að leyna.”
— Ert þú alveg hættur að fara á tón-
leika?
„Ég fer helst ekki út fyrir hússins
dyr. Mín útivist felst í því að ganga
fram og aftur Laufásveg, aö heiman í
vinnu og aftur heim. Sit annars bara
heima.”
— Hvemig hlustar þú helst á tónlist,
setur þú plötu á fóninn þegar þú
vaskar upp eða einbeitir þér eingöngu
aðhenni?
„Uppvask! Fyrir 25 árum uppgötv-
aði ég aö uppþvottur var af hinu illa og
keypti uppþvottavél á vixlum og hef
ekki snert þaö siöan. En mér finnst
gott aö sitja og leggja kapal og hlusta á
tónlistina.”
— Ertþúplötusafnari?
„Ég á ekkert voöa mikiö af plötum.
En þaö sem ég á er nóg fyrir mig. Ég
safna ekki beinlínis, ekki markvisst.
Þaö kemur yfir mig ef ég er nálægt
hljómplötuverslun aö fara inn og
kaupa. En þá geri ég þaö gjaman mér
til óbóta, eyöi of miklu og foröast slíkar
verslanir í langan tíma á eftir. ”
ás.
„Plötusöfnunin var
ofsafengin leit”
— segir Guðni Rúnar Agnarsson
Guöni Rúnar Agnarsson er
þekktur maöur í hópi unnenda rokk-
tónlistar. Hann leikur þó ekki á hljóö-
færi, aö minnsta kosti ekki opinber-
lega, en hefur undanfarin ár starfaö
nokkuð viö að koma sinni uppáhalds-
dægradvöl, tónlistinni, á framfæri.
Guðni hefur í mörg ár séö um
tónlistarþáttinn Áfanga meö
Ásmundi Jónssyni. Eins hefur hann
fengist viö þaö í frítíma sínum aö
halda hljómleika og verið hjálpar-
kokkur ýmissa þekktra íslenskra
hljómsveita t.d. Þeys. Undanfariö
hefur Guöni og félagar hans gengist
fyrir tónlistar- og menningar-
viöburðum af ýmsu tagi undir nafn-
inu Upp og ofan hópurinn. Guöni er
einn af þeim sem hafa fengið
tónlistarbakteríuna og ekki læknast
af.
— Guöni hvenær sýktist þú svona
herfilega?
„Ég held að ég hafi alltaf veriö
sjúkur. Eg sé ekki neitt upphaf né
endi á tónlistaráhuganum. Þessi
ástundun og starfsemi í kringum
hana er fyrst og fremst einhver þörf.
Ég tjái mig að vissu leyti á þennan
hátt enda þótt ég leiki ekki á hljóö-
færi eða þess háttar, a.m.k. ekki
opinberlega. Mér finnst ég standa í
ööru sambandi viö tónlistina en sem
venjulegur neytandi. Þaö er eitthvaö
visst samspil milli mín og þess sem
éghlusta á.”
— Hvers konar tónlist hlustar þú
helstá?
„Ég á erfitt meö aö svara því
nákvæmlega. Ég hef tilhneigingu til
að horfa framhjá flokkun á tónlist.
Mér finnst aö þegar verið er aö setja
merkimiöa á tónlist sé um leið veriö
aö segja að ein tegund tónlistar sé
merkilegri en önnur. Ég hlusta á tón-
list án þess að hugsa um hvaða
merkimiða hægt sé aö setja á hana.
Ég hef yndi af öllum tegundum
hljómlistar. Ég býst þó viö aö hægt
sé að segja aö flestir myndu kalla þá
tónlist sem ég hlusta mest á rokk,
hvaö sem það annars þýöir. ”
— Mér skilst aö þú eigir gífurlegt
plötusafn.
„Ef til vill má segja það. Ég hef
líkast til átt mest u.þ.b. 3500 plötur.
Ég vann í hljómplötuverslun Fálk-
ans um skeiö og það var auðvelt að fá
sér plötur láta skrifa þær og draga
frá laununum. Jú, þaö var oft lítið af-
gangs. Ég hef eflaust lagt ógrynni
fjár í tónlistina, bæöi til aö kaupa
mér plötur og svo hefur maður oröiö
aö borga meö ýmsum uppátækjum
sem maöur hefur staöið fyrir. En ég
fæ ekki séö aö ég væri betur settur ef
ég ætti einbýlishús.
Aöur keypti ég geysimikiö af plöt-
um en er nú að mestu hættur því, hef
held ég ekki keypt nema tvær plötur í
ár. Ég get ekki sagt aö ég sakni þess
aö hafa ekki sífellt nýja plötu til aö
hlusta á. Mér finnst hreinlega fátt
koma út sem ég hef verulegan áhuga
á að kaupa. Auðvitað var þessi plötu-
söfnun aö vissu leyti bara ofsafengin
Guðni Rúnar átti þegar mest var
um 3500plötur.
DV-mynd: Bj. Bj.