Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1982, Qupperneq 37

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1982, Qupperneq 37
DV. MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER1982. 41 Sandkorn Sandkorn Sandkorn Togarinn dýri Mikið hefur verið f jargviðr- ast út af Hólmavíkurtogaran- um. Skiptar skoðanir viröast um kaupverðið en líklega er það á milli 100 og 130 milljónir króna. Til samanburöar má geta þess að annar umdeildur tog- ari, Einar Benediktsson, kostaði fimm og háifa milljón króna þegar hann kom hing- að síöastliöið vor. Kunnugir segja að hægt sé að fá skoðunarfæra skuttog- ara í röðum erlendis fyrir sex til tíu milljónir króna. Sam- kvæmt þvi mætti fá milli tíu og tuttugu togara fyrir einn Hólmadrang, að vísu notaöa. Davíð Seóla bankastjóri al- deilis ekki að hætta Sú saga hefur gengiö f jöll- i unum hærra að Davíð Ölafs- son sé í þann mund að láta af störfum sem Seðlabanka- stjóri. Hafa menn í óða önn verið að spá í eftirmann hans og ýmis stórmenni þar til nefnd. Fáum mun hins vegar hafa komið þessar bollaleggingar mcira á óvart en Davíð sjálfum. Hann er enn á góðum aldri og við hestaheilsu og er hvergi á förum. Sjálfstæðismenn hótfaóir á Suður- landi Prófkjör sjálfstæðismanna á Suöurlandi verður að ÖU- um líkindum í lok janúar. Fyrirkomulag þess hefur verið ákveðið. Suðurlandi verður skipt í fjögur svæði, Árnessýslu og Selfoss, RangárvaUasýsiu, Vestur- SkaftafeUssýslu og Vest- mannaeyjar og á kjósandinn að merkja við eitt nafn úr hverju svæði. Framboðsfrestur rennur út á laugardag en margir hafa þegar lýst yfir fram- boði. Óli Þ Guðbjartsson, Þorsteinn Pálsson og Bryn- leifur H. Steingrímsson munu keppa í Árnessýslu- hólfinu, í RangárvaUasýslu verða Sigurður Óskarsson og Eggert Haukdal í baráttunni og einnig hugsanlega Jón ÞorgUsson, í Vestur-Skafta- feUssýslu fer Siggeir Björns- son fram og í Vcstmannaeyj- um munu Guðmundur Karls- son og Árni Johnsen takast á. Hugmyndir um hótfaskiptingu hjá sjálfstæðis- mönnum á Reykjanesi Nokkuð víst er aö prófkjör verði hjá sjáifstæðismönnum á Reykjanesi. Einhverjir munu lítt hrifnir af því. Þingmennirnir þrír, Matthí- as Á. Mathiesen, Ólafur G. Einarsson og Saiome Þor- kelsdóttir, telja prófkjör í einhverri mynd óhjákvæmi- legt. Hugmyndir eru uppi um að í hugsanlegu prófkjöri verði kjördæminu skipt í fjögur hólf, Kópavog, Hafn- arfjörð, Suðumes og Innnes, þ.e. Seltjaruarnes, Garðabæ og Mosfcllssveit. Síðan verði kosið um frambjóðendur hvers svæðis um sig, þannig að kjósendur númeri viö einn úr hverju „hólfi”. Ef þetta verður niðurstaö- an, má búast við árekstrum þar sem tveir þingmanna, Ölafur G. og Salome, og fjórði maður á lista, Sigur- geir Sigurðsson, eru öU úr sama „hólfi”. Kópavogsbúar og Suður- nesjamenn munu vera hörð- ustu fylgismenn fyrrgreindr- ar hólfaskiptingar enda vUja þeír eignast fuUtrúa á þingi. Fróðlegt verður að fylgjast með framvindu mála. Fer Styrmir fram? í beinu framhaldi af fram- boðsraunum sjálfstæöis- manna á Reykjanesi, má geta þess að enn einu sinni hefur nafn Styrmis Gunnars- sonar, ritstjóra Morgun- blaðsins, komiö upp sem þmgmannsefni Kópavogs. Fram tii þessa hefur Styrm- ir hafnað framboði enda hefur Moggi sett honum stól- inn fyrir dyrnar. En eitthvað munu Styrmir og Morgun- blaðið vcra að linast í þeirri afstöðu að ritstjórinn megi ekki sitja á þingi. ...svona launar Blanda Ónefndur sendi okkur þessa vísu. Hún var ort þegar spurðist að framsókn- armenn hygðust færa Pál Pétursson í þriðja sæti list- ans í Norðurlandi vestra: ( Höllustaða hygg ég Pál höllum fæti standa drekkur sína synda skál svona launar Blanda Umsjón: Kristján Már Unnarsson. Sissa í ríki sínu, Pennanum í Hafnarstræti. DV-mynd GVA 1 X 2-1X 2- 1 X 2 15. leikviká — leikir 4. desember 1982 Vinninqsröð: 111—111 — 21 x — 2 x 2 1. vinningur: 12 réttir — kr. 174.375.00 8923 80337(4111) 2. vinningur: 11 réttir — kr. 1.992.00 364 15255 61625 66648 91772 94810 Frá 11. viku: 2016 17224 + 61848 76452 92461 95638 95251(2/11) 5734 17473+ 61866 77529+ 92830 95639+ Frá 12. viku: 6222 17776 63432 78858 + 92832 96942 96703(2(11) 7483 20331 64007 81701 + 93466 97436+ 7797 22171 64595 + 83008 93924 97445+ 9389+ 22512 64704 87341 94106 98260+ 9674 22687 65005 90193 94118 59661 13669 25465 65239 90334 94119 60254(2(11) 14125 60270 66291 90604 94326 65676(2111) 14316 61531 66492 91033 94475 Kærufrestur er til 27. desember kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyöublöö fást hjá umboðsmönnum og á skrifstofunni í Reykja- vík. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina. Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að fram- vísa stofni eða senda stofninn og fullar upplýsing- ar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir lok kærufrests. GETRAUNIR - íþróttamiðstöðinni - REYKJAVÍK PENNINN 50 ÁRA Pappírs- og ritfangaverslunin Penn- inn á fimmtíu ára afmæli á þessu ári en fyrirtækið var stofnaö 22. desember 1932. Verslanir Pennans eru nú þrjár talsins, við Hallarmúla, Laugaveg og í Hafnarstræti, en allt frá því fyrirtækiö var stofnað, hefur það rekiö verslun þar, í hjarta miðborgarinnar. I nóvember sl. var öllum innrétting- um verslunarinnar í Hafnarstræti breytt og bætt þar við nýrri deild, bókadeild. Þar er nú glæsileg bóka- og ritfangaverslun iglfaraleið. „Jólaösin er ekki byrjuð enn, fólk er enn að skoða og velta bókunum fyrir sér,” sagði verslunarstjórinn í versl- uninni í Hafnarstræti, Sigríður Sigurö- ardóttir, eða Sissa eins og hún er köll- uð. „En þegar lætin byrja, er ekki hægt að fastsetja vinnutíma í bókaverslun. Því þá er stanslaus röð af fólki sem streymir hér inn og út og þegar af- greiðslutímanum er lokið, er öll vinnan eftir viö að gera upp og raða upp á nýtt íhillur.” Nú, á veröbólgutímum, rýkur verð- lagið auðvitað upp en það virðist þó ekki hafa áhrif á sölu í bókaverslunum. „Bók er enn besta g jöfin. Og bækur eru ódýrar nú, það verð ég að segja. Mér finnst gaman aö afgreiða bókafólk og aðstoða fólk viö að velja bækur. ” En hvað tekur þá við, þegar jólaösin er búin? Hægist þá um? „Ekki aldeil- is,” segir Sissa. „Þá tekur við salan fyrir áramótin. Það er möppur, bók- haldsgögn og þess háttar. Og eftir það tekur annað viö. Það hægist aldrei um.” óbg Norrænt vísindaráð tekur til starfa Á fundi ráðherranefndar mennta- málaráðherra á Norðurlöndum þann 1- þ.m. var gengiö frá skipun fulltrúa í norrænt vísindaráð sem taka á til starfa 1. janúar nk. Tillaga frá ráð- herranefndinni um stofnun slíks ráðs var lögð fyrir síöasta þing Noröur- landaráðs og hlaut þar stuðning. Norræna vísindaráöinu er ætlað að stuðla aö samstarfi um vísindarann- sóknir á Norðurlöndum, bæði á sviði grundvallarrannsókna og hagnýtra rannsókna, svo og samvinnu um menntun vísindamanna. I ráðinu eiga sæti fimmtán fulltrú- ar, þrír frá hverju Noröurlandaríki, skipaðir til þriggja ára. Islenskir full- trúar eru Guðmundur Magnússon há- skólarektor, dr. Helga Ögmundsdóttir læknir og dr. Vilhjálmur LúðvíkssOn, framkvæmdastjóri Rannsóknaráðs ríkisins. PÁ - - OYAMAHA NIPPON GAKKICO. LTD HAMAMATSU. JAPAN Kennslutæki og tölvuspil Þú lœrir að spila lög, en um leið fœrðu slig fgrir rétt eða ranqt. HS—500 kr. 1.400,- HS — 200 kr. 900,- Einnig ýmsar aðrar gerðir af orgel- spilum. Jólabjöllur sem spila jólalög og fleiri gerðir af spiladósum. Hljóðfæraverslun Poul Bernburg Rauðarárstíg 16 - simi 20111.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.