Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1982, Side 1
Blaðamaður DV hand-
tekinn í Póllandi
— hafður í haldi í fangabfl við heimili Lech Walesa og
síðan færður í herlögreglustöð
Blaöamaöur DV, Þórir Guömunds-
son, var handtekinn viö heimili Lech
Walesa í Gdansk í Póllandi í gær og
haföur í haldi í fangabíl og á herlög-
reglustöðinni í um fjórar klukku-
stundir áöur en honum var sleppt.
Þórir var staddur í Gdansk á veg-
um DV til aö fylgjast meö minning-
arathöfninni sem þar átti að veröa til
minningar um verkamennina er létu
lífið viö uppþotiö mikla í Gdansk
1970. Varð þar lítið um mótmælaaö-
geröir því þúsundir öryggisvaröa
hersins voru á götum úti og sáu til
þess aö fólk gæti ekki hópást saman.
Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu,
var handtekinn um morguninn, en
hann hafði ætlaö aö standarvið loforö
sitt, sem hann gaf þegar fyrir mörg-
um árum, aö minnast ávallt þeirra
félaga sinna sem féllu í uppþotinu
1970 með því að halda ræöu viö minn-
isvaröann í Gdansk.
Eftir aö fréttist að Walesa haföi
verið handtekinn og aö herstjómin
hafði þannig komið í veg fyrir aö
hann gæti efnt loforð sitt fór Þórir í
leigubílaðheimili Walesa.
„Þegar kom aö húsinu rétt um
klukkan 11.30 tóku þar á móti mér
öryggisverðir frá hernum og sögöu
aö Walesa tæki ekki viö heimsókn-
um,” sagöi Þórir í morgun. „Passi
minn og leigubílstjórans sem ók mér
voru grannskoöaöir en síöan vorum
viö báöir handteknir og kastað inn í
fangabíl sem þama beið.
Þar voru fyrir 6 aörir blaöamenn. I
fangabilnum voru við látnir dúsa í
rúman hálftíma en þegar búiö var að
fylla hann þannig aö menn sátu eöa
lágu hver ofan á öörum var ekiö á
herlögreglustöðina.
Mér var haldið þarna á stööinni í
nokkrar klukkustundir og yfirheyrö-
ur hvað eftir annaö. Þegar liöa tók á
daginn var mér loks sleppt meö
þeirri ábendingu aö hyggilegast
væri fyrir mig aö koma mér lengst
frá Gdansk því önnur koma til her-
lögreglustöövarinnar gæti orðiö
lengriensúfyrri.” ÞG/-klp
Samkomulag um skuldbreytingu
Seölabankinn hefur samþykkt aö
skuldbreyting á lánum útgeröarinn-
ar verði miöuð viö 10% af trygging-
arverði skipa, í stað 7% eins og áður
var miöað viö. Þá verða olíuskuldir
útgeröarinnar teknar inn í skuld-
breytinguna. Seölabankinn
samþykkti þessar kröfur útgeröar-
manna eftir aö ríkisstjómin haföi
gengiö aö því skilyrði bankans aö
vextir á afurðalánum yrðu hækkaöir
Úr29%í33%.
Ekki hefur veriö ákveðiö hvemig
staöið veröur aö skuldbreytingu
vegna olíuskuldanna, þar sem sam-
ræma þarf við þær olíuskuldbreyt-
ingar sem fram fóru í vor. Verður
framkvæmd þeirra mála rædd við
útgerðarmenn á næstu dögum.
Samhliða því aö ríkisstjómin
ákvaö hækkun vaxta á afurðalánum
gaf Seðlabankinn vilyröi fyrir því að
afurðalán út á skreið y rðu hækkuð.
ÓEF
Láglaunabætumar brenndar
Láglaunabætumar voru brenndar
í gær. I eldsmiðju Vélsmiðjunnar
Héðins voru menn í óöa önn aö
brenna ávísanir landsmanna á lág-
launabætur þegar ljósmyndara DV
bar þar aö í gær. Ástæðan var að
sögn Halldórs V. Sigurðssonar ríkis-
endurskoðanda sú að ávísanaeyðu-
blöðin höfðu mistekist í prentun
þannig að tölvurákin var ekki á ná-
kvæmlega réttum stað. Það veldur
því aö tölvan getur ekki numiö skila-
'boðin sem ávísanirnar hafa að
geyma. Því varð að brenna upplagiö
og þrykkja nýtt.
óm
Láglaunabætumar brenndar í Vélsmiðjunni Hóðm i gser.
Mistökin
mannanna,
ekkitölvanna
— sjá Lesendurá
bls. 16 og 171
Innheimta
gengurilia
— sjá bls. 2
Heilsugæslaí
heilsuspillandi
húsnæöi
- sjá bls. 3
Ðrukkinkona
átunglinu
— sjá vinsældar-
listana á bls. 441
Davíöog
Amaldsum-
svifamestirí
veitinga-
bransanum
— sjá bls. 4
dagar tiljóla