Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1982, Qupperneq 2
2
DV. FÖSTUDAGUR17. DESEMBER1982.
Gatnagerðargjaldið
verður 250 þús.kr.
Lóðum undir 1.617 íbúðir verður
úthlutað í Reykjavík á næsta ári. Þar
af verða lóðir undir 1.117 íbúðir bygg-
ingarhæfar á árinu. Þessar upplýs-
ingar fékk DV frá Hjörleifi B.
Kvaran, skrifstofustjóra borgar-
verkfræöings.
Reykjavíkurborg mun úthluta
lóðum undir 1.437 íbúöir en 180 íbúða-
lóðir eru í eigu einkaaðila.
Af lóðum, sem byggingarhæfar
verða á næsta ári, eru 390 undir
einbýlishús, 283 undir raðhús og 444
íbúðir í f jölbýlishúsum.
Eftir svæðum skiptast lóöirnar
þannig að í Grafarvogi í landi Keldna
verða 250 einbýlishúsalóöir, 90 rað-
húsa og fjölbýlishúsalóðir fyrir 50
íbúðir. Þá veröur einnig á næsta ári
úthlutað 250 einbýlishúsalóöum í
Grafarvogi sem byggingarhæfar
veröa 1984 og aörar ( 250 sem
byggingarhæfar verða árið 1985.
Við Jaðarsel verður úthlutaö 30
einbýlishúsalóðum, í Ártúnsholti
lóðum undir 150 fjölbýlishúsaíbúðir,
100 fjölbýlishúsaíbúðir í nýja
miðbænum, í Selási úthlutar borgin
77 einbýlishúsalóðum, 118 raðhúsa-
lóöum og 72 íbúðum í f jölbýlishúsum.
Lóðir í eiguGunnars Jenssonar eru í
Selási. 33 þeirra eru undir einbýlis-
hús, 77 fyrir raðhús og í fjölbýli
verða 77 íbúðir.
Hjörleifur B. Kvaran sagði aö
engar ákveðnar reglur hefðu verið
ákveðnar um forgang aö lóðum
þessum. En vonast væri til, þar sem
— fyrir einbýlis-
húsalóð
— lóðum undir
1.617 íbúðir
úthlutað á
næsta ári
um svo stórá úthlutun væri að ræða,
að eftirspurn yrði fullnægt.
Lóðimar verða auglýstar fyrri
hluta næsta árs. Áætlað er að gatna-
gerðargjald fyrir einbýlishúsalóð
verði 250 þúsund krónur, á verðlagi
næsta vors. Það gjald þarf að
greiðast upp á næsta ári fyrir þær
lóöir sem verða þá byggingarhæfar.
-KMU.
MUN ÚTFLUTNINGUR TIL
FÆREYJA SENN AUKAST?
Mikill áhugi er nú fyrir því að hefja
aukinn útflutning til Færeyja. Nýlega
fór fulltrúi Utflutningsmiðstöðvar
iönaðarins til Færeyja þeirra erinda að
kanna möguleika 18 fyrirtækja á því aö
auka núverandi útflutning íslendinga
þangað eða hefja nýjan.
Niðurstöður ferðarinnar voru mjög
jákvæðar og verða frekari viðræður
um málið strax í janúar 1983. Sum
þeirra erinda er unnin voru í Færeyj-
um var hægt aö leysa strax en önnur
kalla á nánari athuganir og frekari
undirbúning. Færeyski markaðurinn
þykir á margan hátt hagstæður Islend-
ingum.
Nú er málum þannig háttað aö
f jögur íslensk fyrirtæki eiga verulega
hlutdeild í færeyska markaðnum, en
þessi fyrirtæki eru Kassagerð Reykja-
víkur h/f, Hampiðjan h/f, J. Hinriks-
son, vélaverkstæði og Sápugerðin
Friggh/f.
Þeim fyrirtækjum sem kynnu að
hafa áhuga á útflutningi til Færeyja er
bent á að hafa samband við
Utflutningsmiðstöö iðnaðarins sem
fyrst. .pÁ
Rokk gegn vfmu í kvöld:
0
Vönduð sófasett
frá Víði fyrir
viðráðanlegt veið!
Við höfum fengið nýja sendingu af
bráðfallegum sófasettum til afgreiðslu
strax.
Ítalía sófasett frá Víöi
Komiðogskoðið
Trésmiðjan Víðir hf.
Síðumúla 23, Sími: 39700
Húsgagnaverslun Guðmundar
Smiðjuvegi 2, Kópavogi
Suni 45100
Tii styrktar
sjúkrastöðSÁÁ
— þrjátíu listamenn koma f ram
Rokk gegn vímu nefnast tónleikar arsson, Haraldur Þorsteinsson,
sem haldnir veröa í Háskólabíói í kvöld Tryggvi Hubner, Hjörtur Hauser,
til styrktar nýrri sjúkrastöö SÁÁ. Kristinn Svavarsson, Birgir Hrafns-
Þrjátíu manna hópur tónlistarfólks son, Pétur Hjaltested og Magnús Þór
kemur þar fram, bæði sem ein heild og Sigmundsson. Kynnir verður Þorgeir
í minni hóþum. Koma allir fram í sjálf- Ástvaldsson.
boðavinnu. ^ Framkvæmdaraðilar Tónleikanna
Meðal þeirra eru Sigurður Karlsson, eru Hljómþlötuútgáfan Veran og
sem er einn hvatamaður að tónleikun- Styrktarfélag Sogns. Verð aðgöngu-
um, Egó, Kimiwasa hreyfilistaflokkur- miöa er 150 krónur. Tónleikarnir veröa
inn, Pálmi Gunnarsson, Eyþór Gunn- kl. 18og23. -ELA
Tuttugu ogfimm barnalögá plötu
— og bók fylgir með
Bókaforlag Isafoldar hefur sent frá
sér hljómplötuna „Alli og Heiða”. Á
plötunni eru 25 barnalög eftir Asger
Pedersen sem samdi þau fyrir bama-
tíma danska sjónvarpsins. Öskar Ingi-
marsson hefur þýtt og staðfært text-
ana. Hefur Oskari tekist vel aö glæða
texta sína lífi og leik en auk þess er þar
fræöslu að finna um margvísleg efni.
Flytjendur eru: Aðalsteinn Bergdal,
Ragnheiður Steindórsdóttir og Hannes
Baldursson. Með plötunni fylgir bók
sem er að mestu leyti lagatextarnir, en
einnig er sögð saga sem tengir text-
ana. Olöf Knudsen teiknaði mynd á
plötuumslag, svo og myndskreytti hún
bókina. Utsöluverö með söluskatti er
kr.299,-
Innheimta
gengur illa
Innheimta fyrirtækja á útistand-
andi skuldum gengur nú mun tregar
en fyrr á árinu, er álit þeirra fyrir-
tækja er DV leitaði til um þetta efni.
Flestum þeim fyrirtækjum, sem
standa í miklum lánaviðskiptum, ber
saman um að vanskil hafi aukist
síöari hluta ársins. „Það er að vísu
alltaf tröppugangur á þessu og inn-
heimta gengur vanalega tregar síð-
asta mánuð ársins, en við höfum
oröiö varið við nokkur miklar ván-
efndir á kaupsamningum,” sagöi
einn innheimtustjórinn.
„Þaö er ekki hægt að neita því að
vanskil á víxlum eru nokkuð meiri en
venjulega og það virðist nokkuö
lítið um fé hjá fólki. Þetta er
vegna þess að fólk hefur spennt
bogann of hátt og treyst á aöra. En
eftir að bankamir lokuöust þá lendir
það í vanskilum og þetta gæti versn-
að ef staða bankanna lagast ekki
eftir áramót,” sagði innheimtustjóri
hjá verslunarfyrirtæki.
Erfiöar gengur einnig að inn-
heimta skattana á þessu ári en í
fyrra. Þær upplýsingar fengust hjá
Gjaldheimtunni í Reykjavík aö um
síðustu mánaðamót hefðu innheimst
rúmlega 6% minna af álögöum gjöld-
um en á sama tíma á síðasta ári. Um
síðustu mánaðamót hefðu verið
greidd 58,2% af álögðum gjöldum.
Fasteignagjöld eru reiknuð sérstak-
lega, en af þeim hefur nú innheimst
rúmlega 2% minna en á síðasta ári.
ÓEF