Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1982, Page 8
Útlönd
Útlönd
DV. FÖSTUDAGUR17. DESEMBER1982.
Utlönd
Útlönd
Forust í leit að þýf inu
Leit að rúmum 600 þúsund dollur-
um, sem stoliö var úr banka fyrir sjö
árum, endaöi í flugslysi í gær, þar
sem létu lífið fjórir FBI-erindrekar,'
einkalögreglumaður og þjófurinn.
Lögreglumennimir höfðu flogiö
með Carl Johnson, þann sem pening-
unum stal, í leit að staðnum þar sem
hann sagðist hafa falið þýfið. Voru
þeir í tveggja hreyfla Cessnu, sem
rakst á símastaur og hrapaði í út-
hverf i Cincinnati í gær.
Að þessum mönnum frágengnum
veit enginn hvar peningarnir eru
faldir.
Johnson hafði stýrt tölvudeild
Chicagobanka eins en hvarf 7. ágúst
1975 um leið og saknað var 614.850
dollara úr bankanum. Kona hans
fékk hann úrskurðaðan látinn svo að
hjónaband hennar yrði ógilt, en fyrr í
þessum mánuði kom Johnson loks
fram eftir að hafa verið í felum í sjö
ár.
Komdu og. finndu þorðið
sem hentar ber
Borð við allra hæfi, sporöskjulöguð
hringformuð og ferköntuð
Margar stærðir og fjölbreytt litaúrval
Komdu og f inndu borðið sem hentar þér
Hringið eða skrifið eftir myndalista
STÁLHÚSGAGNAGERD
STEINARS HF, Sendumípóstkröfi
SKEIFUNNI 6 - SÍMAR 33590 - 35110 - 39555
Yfirvöld hættu ekki á að hleypa Walesa í ræðupúltið við minnisvarða fallinna
"verkamanna hjá Leninskipasmíðastöðinni í Gdansk.
HélduWal-
esa með
valdi frá
fundinum
— Ekkert varð af fyrirhuguðum útif undi
og Walesa náði aldrei að f lytja ræðu sína
Pólsk yfirvöld hindruðu Lech Walesa
í fyrstu tilraun hans til þess að taka sér
sína fyrri stööu sem forvígismaður
verkamanna. Beittu þau hann valdi
svo aö hann gæti ekki ávargað útifund-
inn fyrirhugaða í Gdansk í gær.
Lögreglumenn sóttu Walesa á
heimili hans í gærmorgun og fluttu
burt í svartri fólksbifreið. Skiluðu
þeir honum ekki aftur fyrr en níu
klukkustundum síðar. Þar með var
komið í veg fyrir að hann gæti verið
viðstaddur útifund við minnisvarða
fallinna verkamanna hjá Lenínskipa-
smiöastööinni.
Talsmaður lögreglunnar sagði þó aö
hann hefði hvorki verið handtekinn né
hafður í haldi. — Engin opinber
skýring var gefin á brottnámi hans.
„Sem ekki var von, því að þeir vildu
einungis halda honum frá minnis-
varðanum þennan dag,” sagöi Danuta,
eiginkona Walesa, við frettamenn.
Ekkert hafði heldur oröið af úti-
fundinum, sem boðaöur hafði verið í
óleyfi og trássi við herlagabanniö á
mannsafnaði.
Lögreglan hafði mikinn viðbúnað í
Gdansk í gær víös vegar, til þess að
koma í veg fyrir hvers kyns mótmæla-
aðgerðir í tilefni af því að tólf ár eru
liðin frá „matvöruóeirðunum” svo-
nefndu 1970, þegar tylft verkamanna
var skotin til bana. Yfirvöld höfðu
varað við því að þau mundu ekki líða
útifundinn sem boðaður hafði verið við
minnisvaröann.
Walesa hafði ætlað að flytja ræðu á
fundinum og hafði látiö hana áöur í
hendur fréttamönnum. I ræðunni
ætlaði hann að hvetja verkamenn til
þess að standa fast á réttindunum sem
áunnist höfðu áður en herlögin voru
leiddígildifyrir ári.
Frestur mannræningj-
anna rann út í nótt
Forseti Guatemala, Efrain Rios
Montt, sagði í gærkvöldi aö stjórn hans
hefði ekki enn ákveðiö hverju svara
skuli ræningjum forsetadóttur Hondúr-
as.
Hin 32 ára Xiomara Suazo var tekin
til fanga á þriöjudaginn af mönnum
sem krefjast þess aö stjómmálastefna
þeirra verði gerð kunn um alla Mið-
Ameríku. Veittu þeir frest til kl. hálf
fimm i morgun.
Sagði Montt hershöfðingi að stjómin
kynni kannski að verða viö kröfum
mannræningjanna um að birta í fjöl-
miðlum landsins stefnuskrá þeirra en
því yrði ekki svarað fyrr en fresturinn
væriaðrenna út.
Xiomara Suazo hefur búið í Guate-
mala alla sína ævi. Hún er dóttir
Roberto Suazo Cordova, forseta
Hondúras, ogfyrri eiginkonuhans.
Kohl vill fella
eígin
ríkisstjóm
Helmut Kohl kanslari, sem kom til
valda fyrir tæpum þrem mánuöum eft-
ir atkvæðagreiðslu í þinginu, ætlar í
dag að nota aðra slíka til þess að koma
sjálfum sér og ríkisstjóminni frá.
Er þetta liður í undirbúningi
stjómarinnar til þess að efna til lands-
kosninga til sambandsþingsins í vor.
Ætlar Kohl sér að tapa atkvæða-
greiðslu um vantraust í von um að
þingkosningar færi stjóm hans aukinn
meirihluta. — Til þessa sama ráðs
greip Willy Brandt þáverandi kanslari
árið 1972.
Kohl hefur lagt fyrir þingliða
stjórnarflokkanna þriggja, kristilegra
demókrata, kristilega sambandsins og
frjálslyndra demókrata, að sitja hjá
við atkvæðagreiðsluna um vantraustið
í dag. Eiga því stjórnarandstæðingar
einir leikinn.
Fari eins og Kohl ætlar mun hann að
atkvæöagreiöslu lokinni fara þess á
leit við forseta V-Þýskalands, Kari
Carstens, aö þing verði rofið og boðaö
til kosninga 6. mars.
Með þessu hyggst Kohl slá tvær flug-
ur í einu höggi: Efna loforð sitt um að
boða fljótt til þingkosninga og fá stað-
festingu kjósenda á því að stjórn hans
séþeimaðskapi.
Nýjustu skoðanakannanir þykja
benda til þess að bandalag hægri flokk-
anna beggja megi búast viö 51,6% fylgi
í kosningum færu þær fram núna. öðm
máli gegnir um kosningaspár fyrir
frjálslynda demókrata, sem hlupu úr
stjórn Schmidts kanslara og i banda-
lag með Kohl og Strauss. Þeim er spáð
fylgishruni og innan við 5% atkvæða en
það er lágmarkið sem þarf til þess að
fá fulltrúa kjörinn á sambandsþingið.