Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1982, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1982, Síða 21
20 DV. FÖSTUDAGUR17. DESEMBER1982. DV. FÖSTUDAGUR17. DESEMBER1982. íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Átta marka tap fyrir slöku landsliði Svía Svíþjóð sigraði ísland 28:20 í handknattleiksmótinu í Austur-Þýskalandi f gær „Það þýðir ekkert að vera að leyna því, þetta er mjög slakt hjá okkur. Bókstaflega engin stemmning inni á vellinum þó landsliðshópurinn sé mjög samstilltur utan hans. Svíar unnu með átta marka mun, 28—20, og það var framan af síðari hálfleiknum sem þeir tryggðu sér sigurinn,” sagði Karl Harry Sigurðsson, einn af fararstjór- um íslenska landsliðsins í handknatt- leik, eftir að Svíþjóð hafði sigrað ís- Heimsmet Vladimir Kuznetsov, Sovétríkj- unum, setti í gær nýtt heimsmet í snörun í lyftingum á móti í Moskvu. Hann snaraði 162,5 kg. Kuznetsov er aðeins 19 ára og keppir í millivigt. Hann bætti eldra heimsmet Alexander Aivazyan, Sovétríkjunum, um hálft kiló. land á handknattleiksmótinu, sem nú stendur yfir í Austur-Þýskalandi. Vamarleikur íslenska liösins varð því aftur að falli. Mjög lélegur og þeim Kristjáni Sigmundssyni og Brynjari Kvaran tókst aldrei að sýna sitt besta í markinu. Sóknarleikurinn aðeins skárri, þó ekki væri hægt að hrópa húrra fyrir honum. Sóknamýting 44%. Svíar eru meö sína leikreyndu garpa á þessu móti, leikmenn eins og Hellgren, Ribendahl og Basta Rasmussen, svo nokkrir séu nefndir. „Sænska liðið er alls ekki sterkt og því var þessi leikur okkur áfall. Slakur leikur, íslenska liðið miklu slakara en við höfðum gert okkur vonir um. Engin liðsheild en það er ekki svo gott að koma auga á hvað er að,” sagði Karl Harry. Framan af var leikurinn heldur jafn. Svíar þó nær alltaf með forustu. Staöan 12—10 fyrir þá í hálfleik og framan af síðari hálfleiknum náöu þeir afgerandi forustu. Tryggðu þá sigur sinn og juku svo muninn í átta mörk. Olafur Jóns- son slasaðist í leiknum. Fékk mikið högg á mjöðmina. Ekki var þó ástæða til að fara með hann á sjúkrahús en læknir mun rannsaka meiðsli hans. Þá er Gunnar Gíslason slæmur í öxl. Báðir leika í sama hominu svo þama skapast vandamál í þeim þremur leikjum sem eftir eru. Mörk Islands í leiknum skoruðu Páll Olafsson 6, Alfreð Gíslason 4, Kristján Arason 4, Þorgils Ottar Mathiesen 3, Steindór Gunnarsson, Gunnar Gísla- son og Sigurður Sveinsson eitt mark hver. Auk þessara leikmanna, og markvarðanna, sem áður eru nefndir, tóku þeir Bjami Guðmundsson, Hauk- ur Geirmundsson og Olafur Jónsson þátt í leiknum. I dag leikur íslenska liðið við B-lið Austur-Þýskalands og hefst leikurinn kl. 14 að íslenskum tíma, eða'á sama Láttu þér líða vel á fótunum! Reyndu NIKEjoggingskóna þarsem hönnun oggœði skiþta miklu mdli. Verð kr. 367 til 694. Póstsendum ÍÞRÓTTABÚÐIN Borgartúni 20. Sími 28411. / mik/u BARNAREIÐHJOL úrvali. BB VIVI frá Frakklandi. frá Ítalíu. Aldur 3—10 ára. Dekkjastærðir 121/2", 14" og 16". Fótbremsa, bögglaberi, bjalla, pumpa, keðjukassi og hjálpardekk á 12 1/2og 14" hjólum. Litir blátt og rautt. Varah/uta- og viðgerðarþjónusta. Árs ábyrgð. Sendum í póstkröfu. Aldur frá 6 ára. Dekkjastærðir 20", 22", 24", 26" og 28". Án gíra með fótbremsu, 3 gíra, 10 gíra og ISgira. Stráka- og stelpustell. Litir: si/fur, blátt o. fL l/erslunin A4A\ Suðurlandsbraut 30, sími 35320. tíma og leikur Islands og Svíþjóðar í gær. íslenska liðiö leikur svo við Rúmeniu á laugardag og Ungverja- land á sunnudag. Þá lýkur mótinu. -hsím. Valsstúlkur í ef sta sæti — í 1. deild kvenna í handknattleiknum Valsstúlkuraar, undir stjóra Jóns Péturs Jónssonar, skutust upp í efsta sætið í 1. deild kvenna í handknatt- leiknum í fyrrakvöld, þegar þær sigruðu Hauka í Hafnarfirði 25—17 eftir 14—11 í hálfleik. Þá sigraði ÍR, undir stjóra Sigurbergs Sigsteins- sonar, lið FH sama kvöld 15—14 i iþróttahúsinu í Hafnarfirði eftir 10—6 í hálfleik. Mikil keppni fjögurra efstu liðanna um íslandsmeistaratitilinn en staðan er nú þannig: Valur ÍR Fram FH Víkingur KR Haukar Þór, Ak. 8 6 8 6 1 132—100 13 2 136—116 12 1 110—85 11 1 111—86 10 4 103—109 7 5 84—95 4 6 75—116 1 6 80—124 0 Stórsigur hjá frönskum — í brunkeppni kvenna íheimsbikarnum Franska stúlkan Caroline Attia, sem á síðasta ári fór í stóraðgerð vegna meiðsla á hné, sigraði í fyrstu brun- keppni kvenna í heimsbikamum í Sansicario á ítalíu á miðvikudag. Fyrsti sigur Frakklands í keppni heimsbikarsins frá þvi í desember 1981 og sigurinn var mikill. Franskar stúlkur í fjórum af fimm fyrstu sætunum. Hin 22ja ára Attia sigraði á 1:24,57 mín. Claudine Ernonet varö önnur á 1:24,86 mín. I þriðja sæti varð Heidi Wiesler, Vestur-Þýzkalandi, en síðan komu Catharine Quittet og Francoise Bózon í fjórða og f immta sæti. „Hvernig stóð á því að ég sigraði? Eg var hreint „vitlaus” þegar ég fór af stað. 1 hvert skipti, sem frönsk stúlka hafði lokið við að fara niður brautina áður var það besti tíminn,” sagði Attia eftir keppnina. -hsím. John Geddis til Luton Luton Town keypti í gær John Geddis miðherja frá Aston Villa og Man. City fékk Peter Bodak frá Man. Utd. Ekki var minnst á kaupverð. Geddis hefur leikið áður með Luton sem lánsmaður frá Ipswich, 13 leiki og skoraði í þeim fjögur mörk. Aston Villa keypti leik- manninn frá Ipswich en Geddis tókst ekki að vinna sér fast sæti í lið Villa. Hefur þó leikið 43 leiki og skorað 12 mörk. UEFA, Knattspyrausamband Evrópu, hefur tilkynnt Aston Villa að Peter Withe, enski landsliðsmiðherjinn hjá Villa, megi leika í Evrópuleiknum við Juventus í marz. Withe var bókaður í ieik Villa og Penoral frá Uruguay í leik liðanna í Tókíó á sunnu- dag. Forráðamenn Aston Villa óttuðust að það mundi hafa áhrif í Evrópuleikjum liðsins og sneru sér því tilUEFA. rhsim. T Atli Hflmnrssnn — lið hans, Hameln, er nú efsi í 3. deildínni. Atli Hilmarsson fékk blóðeitrun Atii Hilmarsson hefur orðið að taka sér fri frá æfingum með liði sínu, Hamein í Vestur-Þýska- landi, vegna blóðeitrunar í fæti. Hann er nú á bata- vegi en óvíst er hvort hann geti leikið næsta leik, sem verður á sunnudag. „Ég gat hreinlega ekki gengið. Læknarair komust að því að þetta var blóðeitrun,” sagði Atli í samtali viðDV. Hameln, sem leikur í 3. deild i vestur-þýska hand- knattieiknum, hefur gengið mjög vel á þessu keppnistímabili. Liðið er nú i efsta sæti i norður- deildinni, með 19 stig eftir 13 leiki. Atli er næstmarkahæsti leikmaður liðs sins, hefur skorað 50 mörk. Júgóslavneskur leikmaður er markhæstur með 75 mörk. Atli kemur heim i jólafrí eftir helgi. -KMU. ...6-pong aðal- greinin í Ólafsvík... Stærsta borðtennisdeild á tslandi er ekki í Reykja- vik eða nágrenni eins og margir gætu haldið. Sú stærsta er i Ólafsvík, en þar er orðinn geysilegur áhugi á iþróttinni. Sá sem á allan heiðurinn af því er nýi íþrótta-' kennarinn á staðnum, Stefán Konráðsson, sem er, eins og kunnugt er, einn besti borötennismaður iandsins. Hefur hann stofnað borðtennisdeild í Olafsvík og eru um 100 unglingar í henni. Stefán hefur tilkynnt að hann muni lítið sem ekkert taka þátt í stórmótum í borötennis í vetur, og ætlar að láta aöra um að slást þar i sinn stað. A hann erfitt um vik að sækja mótin frá Olafsvík og hefur hann því ákveðið að snúa sér þess meir að þjálfun í stóru deildinni sinni þar. -klp- Maradona veikur Argentinski knattspyraumaðurinn frægi, Diego Maradona, sem leikur með Barcelona á Spáni, mun ekki leika knattspyrau um óákveðinn tima. Við læknisskoðun kom i ljós að hann er með lifrarsjúk- dóm. Læknir Barcelona, Gonzalez Adrio, sagði i gær að Maradona yrði að taka sér algjöra hvíld og ekki vist bvenær hann gæti byrjað að leika knattspyrnu aftur. Maradona, sem er 21 árs og dýrasti leikmaður heims, hcfur ekki leikið frá 5. desember. Hann slasaðist þá í leik Spánarmeistara, Real Socie- dad. Hjá öðrum iæknum fengu fréttamenn þar upplýsingar að líklegt væri að Maradona mundi ekki leika næsta þrjá mánuðina vegna lifrar- sjúkdómsins. -hsím. Reykjavíkurmótinu lokið: FRAM-STULKURNAR URÐU MEISTARAR — sigruðu Val 15:13 í meistaraflokki kvenna. KR sigraði f flestum flokkum, eða þremur Fram sigraði Val 15—13 í mjög tví- sýnum úrslitaleik í meistaraflokki kvenna á Reykjavíkurmótinu í Laugardalshöll í gærkvöld: Náðu meistaratitiinum á ný, en ÍR sigraði nokkuð óvænt á mótinu i fyrra. Reykjavikurmótinu i handknattleik er nú lokið. KR sigraði í flestum flokkum á mótinu, eða þremur. Vikingur í tveimur, Fram, Þróttur, Armann og Valur í einum flokki hvert félag. Fram hafði nokkra yfirburði í fyrri hálfleik í leiknum við Vaisstúlkurnar í gærkvöld. Skoruðu þá níu mörk gegn sex. I síðari hálfleiknum mættu Vals- stúlkumar mjög ákveðnar til leiks og fóru að saxa á forskotið. Þeim tókst að jafna í 10—10 og ekki nóg með það — komust yfir 11—10. Síðan var jafnt 11—11, 12—12 og 13—13 og Valur skoraði yfirleitt á undan. Fram-stúlkurnar heldur óheppnar meö skot sín. Áttu mörg stangarskot. Þegar rúmar tvær mínútur voru eftir af leiknum komst Fram yfir 14— 13. Valur fékk vítakast en tókst ekki að skora. Stangarskot. Fram náöi knett- inum og gulltryggði sigurinn þegar 40 sekúndur voru til leiksloka. Skoraði þá sitt 15. mark. Guðríður Guðjónsdóttir bar mjög af í Fram-liðinu og skoraði nær öll mörk liðsins, eöa 10. Hjá Val var Erna Lúðvíksdóttir best. Skoraöi sex mörk. Dómarar Björn Kristjánsson og Karl Jóhannsson. Eftir leikinn afhenti Hákon Bjamason fyrirliða Fram, Oddnýju Sigsteinsdóttur, verðlauna- gripinn fagra, sem um er keppt, og leikmönnum verölaunapeninga. KR með flesta titla Á miðvikudagskvöld var leikið til úrslita í fjómm flokkum. I 5. flokki karla sigraöi Þróttur Ármann 6—5 og í þriðja flokki karla var einnig mjög tví- sýnn úrslitaleikur. Ármann sigraði VíkinglO—9. I öörum flokki karla sigraði KR IR nokkuð örugglega eða með 15—10 og í 1. flokki karla vann Valur öruggan sigur á KR 23—18. I þeim leik léku feðgarnir Bergur Guðnason og Guöni Bergsson með Valsliðinu. Sennilega einsdæmi hér að feðgar verði meistarar saman. -hsím. Þærsovésku HM-meistarar Stúlkurnar frá Júgóslavíu náðu ekkl að tryggja sér sigur yfir A-Þýskalaniil í síðari leik*smum í HM-keppninni í handknattlcík kvenna, sem haldið var í Búdapest. Þar með urðu þær af heimsmeistaratitlinum, sem rússnesku stúlkumar unnu. Rússland tapaði 13—16 fyrir Ungvcrjalandi í sínum síðasta leik og þurftu stúlkumar frá Júgóslavíu sigur gegn A-Þýskalandi til að verða meistarar. Leiknum lauk með jafntefii, 17—17. Lokastaðan í keppninni um heimsmeistara- titilinn varð þessi: Rússland 5 4 0 1 80-81 8 Ungverjaland 5 3 1 1 99-89 7 Júgóslavía 5 3 1 1 102-95 7 A-Þýskaland 5 2 2 1 99-89 6 Tékkóslóvakía 5 1 0 4 83-98 2 S-Kórea 5 0 0 5 112-129 0 BESTU KAUPIH! SG2 l -ss====ss======ss= o Sambyggt tæki með u * 9 9 9 r o ö O rv RK. 11.505 STG. /HETAlTYIÍ DOLBY SVSTEM | SG-2HB HUÐMBÆR HLJOM*HEIMILIS*SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGOTU 103 SIMI 25999 - 17244 ÞÚ FÆRÐ JÓLAGJÖF ÍÞRÓTTAMANNSiNS í SPÚRTU SKlÐAVÖRUR Stratch skíðabuxur, allar stœrðir. Skíða- jakkar, skiðaskór, skiðagleraugu, dúnvatt- skíðahúfur, skiðalúffur, skíðahanskar, barnaskíðasatt. BORÐTENNISVÚRUR Landsins mesta úrvai. borðtennisborð, spaðar, yfir 20 teg., grind- ur, Carbbonspaðar, hulstur, töskur, borð- tennisskór, borðtennisgúmmi, 5 teg., 4 - þykktir, net og uppistöður, fatnaður, stutt- buxur, bolir, kúlur og lim. PÓSTSENDUM SPORTVðRUVERSLUNIN wmm iMoóLFtsTturri e - sImu 12024 ◦didas SKAUTAR - SKAUTAR FÉLAGAPEYSUR _________________ NEWYORK Stœrðir 29—45. Litir: svart og hvítt. Efni: Livarpool, Arsenal, Tottenham, Westham, Stærðir 34—54. Einnig: töskur, boltar, regn- leður/vínil. Manch. Utd , Argentina, Lokeren, Stutt- gallar, iþróttaskór o.fl., o.fl. gart, Ítalia, Brasilia. INGÓLFSSTRÆTI 8, SÍM1 12024.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.