Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1982, Qupperneq 34
42
Andlát
Símon Eyjólfsson, Nesgötu 25 Nes-
kaupstaö, sem andaöist í Fjóröungs-
sjúkrahúsinu í Neskaupstaö þann 11.
desember sl. veröur jarösunginn frá
Norðfjarðarkirkju laugardaginn 18.
desmberkl. 2.
Júlíus Þórmundsson, bóndi, Laugabæ
Bæjarsveit, sem lést þann 8. þessa
mánaöar, verður jarösunginn frá
Bæjarkirkju laugardaginn 18. þessa
mánaöarkl. 14.
Halldór Auöunsson fyrrv. ökukenn-
ari, Faxaskjóli 18 Reykjavík, er lést í
Borgarspítalanum 7. desember, verö-
ur jarösunginn föstudaginn 17. desem-
ber kl. 10.30 í Fossvogskirkju.
Guðrún Ágústa Jónsdóttir frá Þykkva-
bæjarklaustri, Álftaveri, er látin.
Ása Jónasdóttir, Mánagötu 12, andaö-
ist 16. þ.m. í Landspítalanum.
Sólborg Guðbrandsdóttir, Kleppsvegi
20, er látin. Otförin fer fram frá Foss-
vogskirkju fimmtudaginn 23.
desemberkl. 13.30.
Júlíana Einarsdóttir, Noröurkoti
Kjalamesi, veröur jarösungin frá
Saurbæjarkirkju laugardaginn 18.
desember kl. 14.
Magnús Bjömsson lést 10. desember.
Hann var fæddur á Þingeyrum 7. maí
1908. Magnús lauk prófi frá Stýri-
mannaskólanum í Reykjavík áriö 1932.
Eftirlifandi kona hans er Guörún
Markúsdóttir. Eignuöust þau tvö böm.
Magnús starfaði um langt skeiö hjá
iandhelgisgæslunni, sem stýrimaöur
og skipstjóri. Þegar Magnús haföi
stundað störf á sjónum í rúma þrjá
áratugi fór hann í land og geröist
verslunarstjóri hjá vélsmiðjunni Héöni
í Reykjavík. tltför hans veröur gerö
frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag kl.
15.
Laufey Gísladóttir lést 9. desember.
Hún var fædd í Reykjavík 9. febrúar
1916. Laufey giftist Þorsteini Gunnars-
syni, en hann lést áriö 1966. Þau
eignuöust 4 böm. Laufey starfaöi viö
ræstingar í Austurbæjarútibúi Lands-
bankans. Otför hennar verður gerö frá
Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Jensína Björnsdóttlr andaðist 4.
desember. Hún var fædd 16. mars 1902,
dóttir Bjöms prófasts á Miklabæ í
Skagafiröi og konu hans Guöfinnu
Jensdóttur. Jensína eignaöist einn son.
Otför hennar veröur gerö frá Hall-
grímskirkju i dag kl. 13.30.
Jóhann Kr. Bjömsson lést 8. desem-
ber. Hann var fæddur í Hafnarfiröi 15.
júní 1916. Jóhann giftist Kristrúnu
Mörtu Kristjánsdóttur en hún lést áriö
1978. Þeim hjónum varð þriggja bama
auöið. Jóhann starfaöi lengst af í
Rafha. Otför hans var gerö frá Frí-
kirkjunni í Hafnarfirði í morgun kl.
10.30.
Hulda Sigrún Pétursdóttir lést 10. des-
ember. Hún var fædd 11. desember
1919. Hulda giftist Geir Gestssyni.
Þeim hjónum varö tveggja sona auðið.
Hulda vann í mörg ár hjá bæjarútgerð
Hafnarfjaröar, einnig gegndi hún ýms-
um trúnaðarstörfum fyrir verka-
kvennafélagiö Framtíðina. Otför
hennar veröur gerö frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirðií dagkl. 14.
t
Þökkum innilega öllum þeim sem auðsýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
AGNESAR ÁSTU GUÐMUNDSDÓTTUR
BJÖRK, GARÐI
Jenný K. Harðardóttir
Richard Woodhead
Oddný G. Harðardóttir
Eiríkur Hermannsson
Dagný M. Harðardóttir
Árni Þ. Snorrason
Agnes Ásta og Frank Woodhead
Þorieifur K. Árnason.
Minningarspjöld
Minningarkort Sjálfsbjargar
Reykjavík:
Reykjavíkur Apótek, Austurstræti 16. Garös
Apótek, Sogavegi 108. Verslunin Kjötborg, Ás-
vallagötu 19. Bókabúðin, Álfheimum 6. Bóka-
búö Fossvogs, Grimsbæv. Bústaðaveg. Bóka-
búöin Embla, Drafnarfelli 10. Bókabúö Safa-
mýrar, Háaleitisbraut 58—60. Innrömmun og
hannyrðir, Leirubakka 12. Kirkjuhúsiö,
Klapparstíg 27. Bókabúð Olfarsfell, Hagamel
67.
Hafnarfjörður
Bókabúð Olivers Steins, Strandgötu 31. Valtýr
Guðmundsson, öldugötu 9.
Kópavogur:
Pósthúsið.
Mosfellssveit:
Bókaverslunin Snerra, Þverholti.
Minningarkort fást einnig á skrifstofu fé-
lagsins Hátúni 12 simi 17868. Við vekjum
athygli á símaþjónustu í sambandi við mrnn-
ingarkort og sendum gíróseðla ef óskað er
fyrir þeirri upphæð sem á að renna í minning-
arsjóð Sjálfsbjargar.
Minningarspjöld
Langholtskirkju
Minningarspjöld Langholtskirkju fást á eftir-
töldum stöðum: Versl. Holtablóminu Lang-
holtsvegi 126, sími 36711, Versl. S. Kárason,
Njálsgötu, sími 34095. Safnaðarheimili Lang-
holtskirkju og hjá Ragnheiði Finnsdóttur
Álfheimum 12, simi 32646.
Minningarspjöld
Kvenfélags
Hafnarfjarðarkirkju
fást í bókabúð Böðvars, Blómabúðinni
Burkna, bókabúð OUvers Steins og verslun
Þórðar Þórðarsonar.
Fundir
5. fundur framkvæmda-
stjórnar SUF haldinn sunnu-
daginn 12. des. 1982 ályktar
eftirfarandi:
Ársfjórðungur er nú Uðinn frá því að ríkis-
stjórnin setti bráðabirgðalög um efnahags-
aögerðir. Bráöabirgðalögin hafa enn ekki
fengið þinglega meðferð. Astæðan er sú að
stjórnarandstaðan heldur uppi málþófi í fjár-
hags- og viðskiptanefnd efri deUdar Alþingis
þar sem lögin eru til umfjöUunar.
Framkvæmdastjóm SUF fordæmir þá
óábyrgu afstöðu stjórnarandstöðunnar að
ætla að feUa bráðabirgðalögin og þau vmnu-
brögð sem stjórnarandstaðan viðhefur til að
tefja framgang þeirra á Alþingi. I laga-
skýringum Sigurðar Líndal lagaprófessors
kemur fram að verði bráðabirgöalögin feUd
greiðast verðbætur að fuUu á laun frá þeim
degi.
Framkvæmdastjóm SUF skorar á ríkis-
stjómma að leggja strax fram á Alþingi frum-
varp að nýju vísitölukerfi og skorar jafnframt
á þingflokk Framsóknarflokksins að kvika
hvergi frá því samkomulagi sem ríkisstjórnin
hefur áður gert um breytingar á vísitölu-
kerfinu.
Framkvæmdastjórn SUF skorar á ríkis-
stjórnina að láta reyna á það fyrir áramót
hvort þingmeirUiluti er fyrir bráðabirgðalög-
unum. Framkvæmdastjórnin telur það
ábyrgðarleysi af Alþingi að samþykkja fjár-
lög áður en bráðabirgðalögin eru afgreidd og
lýsir furöu sinni á þehn vinnubrögðum rikis-
stjórnarinnar að ákveða að greiða út lág-
launabætur áður en bráöabirgðaiögín eru
samþykkt.
Framkvæmdastjórn SUF lýsir fullum
stuðnmgi við þá ákvörðun Guðmundar G.
Þórarinssonar að segja sig úr álviðræðu-
nefnd. Framkvæmdastjómm lýsir furðu sinni
á þeim vUmubrögðum iðnaðarráðherra að
hundsa vilja meirihluta álviðræðunefndar og
að láta ekki á það reyna hvort fulltrúar
Alusuisse væru tilbúnir til að sýna í verki
þann samingsvilja að hækka raforkuverð til
álversms strax um 20% áður en samningavið-
ræður um frekari hækkun og önnur atriði
hæfust. Framkvæmdastjóm SUF fordæmir
iðnaðarráðherra fyrir þann drátt sem orðið
hefur á að komiö væri á raunhæfum við-
ræðurn um endurskoðun á samnmgi Alusuisse
og íslenska rikisms um ISAL. Framkvæmda-
stjóm SUF telur að iðnaðarráðherra beri alla
ábyrgðá því tekjutapi sem orðið hefur vegna
'dráttar á endurskoðun samnmgsms við
Alusuisse. Að lokum telur framkvæmdastjórn
SUF það skyldu þmgflokks Framsóknar-
flokksms sem ábyrgs stjórnmálaafls aö losa
Alþingi úr þeirri sjálfheldu sem það nú er í.
. FÖSTUDAGUR17. DESEMBER1982.
Afmæli
Gefið
80 ára afimæli á í dag Soffía Sigurðar-
dóttir, Skúlaskeiði 2 Hafnarfirði. Hún
giftist Sigurði Þorsteinssyni árið 1930,
hann lést árið 1975. Soffia átti sæti í
fyrstu stjóm Landssambands sjálf-
stæöiskvenna og sat á lándsþingum
Sjálfstæöisflokksins í fjölda ára. Hefur
hún einnig starfað að slysavamamál-
um orlofsmálum og verið í ýmsum
nefndum. Hún verður að heiman í dag.
Tilkynningar
Opið hús hjá Geðhjálp
Félagið Geðhjálp, sem er félag fólks með geð-
ræn vandamál, aðstandenda þeirra og
annarra velunnara, hefir nú opnað félagsmið-
stöð að Bárugötu 11 hér í borg.
Fyrst um sinn verður þar opið hús laugar-
daga og sunnudaga frá kl. 2—6 e.h. Þar er
fyrirhugað að fólk geti hist og fengið sér kaffi,
setið þar við spii og tafl o.fl., fengið þarna
félagsskap og samlagast lífUiu í borgmni.
Þarna mun verða hægt að fá upplýsingar um
það sem helst er að finna til gagns og
skemmtunar í borginni og nágrenni. Húsnæði
þetta opnar einnig möguleika á myndun alls
konar hópa og klúbba um hinar margvislegu
þarfir og áhugamál.
Okkar von er að þessari tilraun okkar verði
vel tekið af samborgurum og aö þeir muni
styðja okkur í orði og verki svo að við megum
fá bohnagn til að auka og .eflastarfiðþama,
sem við teljum mjög brýnt.
Fjölnir gefur út plötu
FjöUiir hf. gefur nú fyrir jólin út srna fyrstu
hljómplötu. Hér er um að ræða hæggenga
plötu með tíu nýjum lögum Gunnars Þóröar-
sonar, öll sungin af Pálma Gunnarssyni.
Upptökur fóru fram í Lundúnum í október og
nógember. Hljómplatan nefnist Gunnar
Þórðarson og Pálmi Gunnarsson.
Öll lögin eru sem fyrr segir sungrn af
Pálma Gunnarssyni, en auk þess aðstoða
Shady Owens og Agnes Kristjónsdóttir við
bakraddir. Allar útsetnmgar eru eftir Gunnar
Þórðarson, sem eUinig stjórnaði upptöku í
samvinnu við Pálma Gunnarsson. Gunnar
Þórðarson leikur á gítar og Páhni Gunnars-
son á bassa, en aðrir hljóðfæraleikarar eru
enskir, og tölvuundúleikur mikið notaður.
Plötuumslag hefur Gunnar öm gert, prentun
annast Prisma hf. og pressun Alfa hf.
Ferðalög
Áramótaf erð í
Þórsmörk
Dagana 31. des. — 2. jan. verður ferð í Þórs-
mörk um áramót. Ath.: Brottför kl. 8 föstu-
dagsmorgun. Áramót í óbyggðum eru
ánægjuleg tilbreyting, sem óhætt er að mæla
með. Leitið upplýsinga á skrifstofunni, öldu-
götu 3. I ferðina kemst takmarkaður fjöldi,
tryggið ykkur far tímanlega.
Ferðafélag Islands.
Nýlega héldu þesslr tveir pfltar hluta-
veltu tfl styrktar tíldruðum á Drop-
laugarstöðum í Reykjavík. Sötnuðu
þeir 150 krónum. Þeir heita Hörður
Már Guðmundsson og Ragnar Ingi
Ragnarsson.
EIN FLASKA
ENDIST
VETURINN.
OG HRÍMIÐ
Á BÍLRÚÐUM
MEÐ RAIN-X
LOSNIÐ m
ÍSINGUNA
AFGREIÐSLA
*
SMÁ-
ÞVERHOLT111
AUGLÝSINGAR
*
SKRIFSTOFUR
Er öryggi þitt ekki
hjólbarða virði?
UUMFEROAR
RÁÐ
M OTOROLA
Alternatorar
Haukur og Ólafur
Ármúla 32 - Simi 37700.
I
Sýningar
Bókasýning
íMÍR-salnum
Sýning á bókum, frímerkjum og hljómplötum
frá Sovétríkjunum stendur nú yfir í MlR-saln-
um, Lindargötu 48, og er opin daglega kl. 16—
19, nema á laugardögum og sunnudögum kl.
14—19. Kvikmyndasýningar alla sunnudaga
kl. 16. Aðgangurókeypis.
* BERGIÐJAN KLEPPSSPÍTALA
| JÓLAMARKAÐUR
$ Skreytingar, — útiljósaseríur — jólahús og aörar
t framreiösluvörur unnar af vistfólki. Opiö alla
$ dagatil jólamillikl. 9og 17.
t Sími 38160.
♦tc-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K'K-K'K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K-K
k -Þ-Þ * * * * * ** * * -k -k *■*+