Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1983, Blaðsíða 2
2
DV. MIÐVIKUDAGUR 5. JANUAR1983.
SUMIR NEITA AÐ TRÚA
— illa búnir bílar enn til trafala
Á Bæjarhálsi áttu bílar i erfiðleikum, stórír og smáir. Menn ýttu og mokuðu. í svona tilfellum gildir
samhjálpin.
OVEÐURSRAUNIR
— blaðamanns DV
Þvílíkt óveöur, hugsaði ég þegar
ég leit út um gluggann rúmlega átta í
gærmorgun. Ætli ég komist inn í
Síöumúla í vinnuna? Ég áleit þaö
strax tvísýnt en vinnan beið svo mér
var ekki til setunnar boðið. Ég fór út
í veðurofsann og frekar skreið en
gekk að bílnum sem var á stæöi fyrir
utan. Þaö tók mig um tuttugu
mínútur að moka bílnum leiö út úr
stæðinu. Ég settist inn, ræsti bílinn
ogókafstað.
Ég fór sem leið lá suður Laufás-
veg, mjög hægt, því ég sá vart út úr
augum. Þegar ég kom á móts viö
Kennaraskólann gamla, sá ég, því ég
var svo heppin að aöeins rofaði til, að
bílar sátu fastir fyrir framan mig.
Ég sneri við og ók til baka Laufás-
veginn og hugðist fara niður
Njaröargötu, beygja inn á Hring-
braut og aka svo sem leið lægi austur
Hringbraut og Miklubraut. Ég var
mjög ánægð með mig, og hugsaði
með meðaumkun til bílstjóranna
sem sátu fastir á Laufásveginum og
ekki höfðu haft vaðið fyrir neöan sig
eins og ég.
Ég var nú komin að horni
Njarðargötu og Hringbrautar — og
hægði á mér. Hríðin var kolsvört og
ég sá ekki út úr augum. Og svo gaf ég
í og snaraði mér inn á Hringbraut.
Envitimenn! Alltíeinustóðégpikk-
föst í bílalest og komst hvorki aftur á
bak né áfram. Það skóf og skóf,
þurrkumar höföu ekki við og ekkert
sást út um rúðumar. Ég kveikti á út-
varpinu: „Lýst er eftirmanni.. ..”.
„Menn eru beðnir að halda sig heima
við....” Ég slökkti á útvarpinu.
Hvað var til ráða? Það var víst
ekkert. Og ekki slotaði veörinu.
Svona beið ég í bílnum í einn og
hálfan tíma. Þá ákvað ég aö fara út
úr bílnum og reyna að sækja hjálp.
Ég skreið út úr bílnum og læsti
honum rækilega. Um það leyti rofaði
aðeins til. Og greinilegt var að bíl-
stjómm bílanna í kringum mig
fannst þetta uppátæki mitt fáránlegt
og lögðust allir sem einn á flaut-
urnar. Ég lét það ekki á mig fá og
skreiö út í sortann, og heim, því það
var ekki svo langt.
Þar fékk ég til liös við mig
aðstoðarmann og saman skeiðuðum
viö niöur á Hringbraut. Bíllinn minn
var næstum kominn í kaf. Við
skófum af honum og ég settist undir
stýri en bíllinn vildi ekki í gang. Það
kom upp úr kafinu aö púströrið var
fullt af snjó. En nú hófum við
aðgerðir. Okkur tókst að snúa
bílnum við og keyra hann upp á
eyjuna því þar var harðfenni og svo
keyrðum við á móti umferðinni, á
eyjunni, og komumst þannig aftur
upp á Njarðargötu. Þaö gullu við
húrrahróp og ákaft lófaklapp, þegar
ég ók af stað.
Og í vinnuna komst ég þótt það
tæki mig rúma þrjá tíma að komast
á ákvörðunarstað. Ekki man ég eftir
öðru eins.
-KÞ.
Bíll á rangri akrein á Miklu-
braut rétt fyrir ofan gatnamót
Grensásvegar. Yfirgefnir bílar
hér og þar. Fólk í eða við bíla
sína, bíðandi eftir því aö vera
hjálpaðáfram.
Þannig var ástandið í Reykja-
vík milli 11.00 og 12.00 í gærdag
þegar blaðamenn fóru af stað á
Bronco jeppa góöum. Oveörið
gerði ekki boð á undan sér og
kom illa við mafga sem voru á
ferðutandjra.
Fjöidi bíla komst i örugga höfn við bensínstöðina við Álfabakka. Þessir
bilar ollu engum töfum hjá snjóruðningsmönnum.
Snjóruðningsmenn höföu brugðið við
hart en fastir bílar töfðu för þeirra
verulega. Sumir höfðu að visu getaö
bjargaö sér, til dæmis voru milli 30 og
40 bílar á plani bensínstöðvarinnar við
Álfabakka í Breiðholti. Bílstjórar
þeirra höföu valið skynsamlegri leið-
ina, að vera ekkert að böðlast áf ram út
íóvissuna.
Við gatnamót Breiðholtsbrautar og
Stekkjarbakka var ástandið öllu
verra. Þar haföi mikill umferðartappi
myndast en þegar við komum var
hann í þann veginn aö leysast. Sumir
Þama situr Þórunn Jónatans i Lödunni sinni og hatði reyndar gert i
meira en tvær klukkustundir.
Föst í rúmar 2 klukkustundir:
EYDDITÍMANUM
VIÐ HANNYRÐIR
Prjónaskapur hefur löngum verið
gott móteitur við íslenska vetrinum
— konur hafa notaö þaö meira en
kariar. Yfirleitt er nú prjónaskapur-
in bundinn við hlý og notaleg híbýli
mannanna. Og svo eru sumir sem
hafa prjónadótiö með í vinnuna og
dútla við hannyrðir þegar hlé gefast.
Nú, það þýðir líka aö útgerðin er með
í bílnum á leiðinni í vinnu og úr
vinnu. Þar var hún Þórunn Jónatans
sem býr í Breiðholtinu líka heppin í
gærmorgun þegar hún var á leið niður
í Fossvog með manni sínum á Löd-
unni. Þau lögðu af stað um 9.30 en þá
var nú reyndar orðið hálf bölvað
veður. Þau komust niður að ljósun-
um á gatnamótum Breiöholtsbraut-
ar og Stekkjarbakka, þá var ekki
lengra farið vegna óveðurs, ófærðar
og bíla sem komust heldur ekki
áfram.
Klukkan 12.00 bar blaðamenn DV
að. Þama var Ladanenn. Vandræðin
voru þó alveg að leysast, húsbóndinn
að ljúka viö aö setja keðjur undir bíl-
inn og björgunar- og snjóruðnings-
menn í miklum ham við að draga,
moka og skafa. Þau voru sem sagt
búin að vera þama í tvo og hálfan
tíma en Þórunn var samt hin hress-
asta og ekki að sjá að henni leiddist
mikið. Prjónarnir höföu alveg bjarg-
að, „ég prjóna nefnilega í frimínút-
um og þess vegna vora prjónarnir
meö,” sagði hún. — Já, sumir láta
ekki hríðarmuggu eyðileggja allt
fyrirsér.
óskar að ráða b/aðburðarbörri í eftirta/in hverfi:
• Meistaravellir
• Blesugróf
• Arnarnes
• Austurbrún
• Hagar
• Nes
• Laugaráshverfi
• Kleppsholt
• Hverfisgata
• Grundarstígur
Upp/ýsingar eru gefnar í afgreiðs/u b/aðsins
Þverho/ti 11, sími 27022.