Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1983, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1983, Blaðsíða 3
DV. MIÐVIKUDAGUR 5. JANUAR1983. 3 höföu setið þama fastir svo klukku- stundum skipti. Þama hittum viö aö máh nokkra starfsmenn Rafmagnsveitu Reykja- víkur. Þeir höföu veriö beðnir aö fara af staö og hjálpa nauöstöddum og höfðu góöan bíl til starfans. Þarna var líka snjóruöningstæki og jeppi, fólk aö ýta og fólk aö bíöa. Rafmagnsveitumennirnir vom sam- mála um aö bílar væru illa búnir til aksturs viö svona aöstæöur. Þama dygöu aðeins keöjur. Svo virtist sem fólk heföi tröllatrú á radíal-sumar- dekkjum og svo reiddu sig allir á skjóta björgun ef allt væri komiö í strand. Litlu bflarnir til trafala Á Bæjarhálsinum í Arbæ var heldur bágboriö ástandiö líka. Fastir bílar í rööum og snjóruðningstæki Vega- geröarinnar komst ekkert áfram. Ökumaöur þess, Hartmann Jónsson, kvaðst eiga aö fara austur fyrir f jall en kæmist hvergi. „Það eru þessir litlu bílar sem stoppa allt,” sagöi hann og var heldur óhress yfir vanbúnaði og getuleysi landans í baráttunni við sn jó- inn. Eftir aö blaöamenn höföu ýtt ein- um Subaru út úr skafli komst Hartmann þó áfram, sjálfsagt hefur verið vel tekiö á móti honum á Hellisheiöinni en þar áttu nokkrir bílar í vandræðum. Brunnin kúpling Þrátt fyrir tilkynningar í útvarpi, þar sem mönnum var ráðlagt aö ana ekki af staö á illa búnum bílum, fóra margir. Sumir neita að trúa og læra ekki fyrr en þeir reka sig á. Svo era aörir sem göslast áfram og ætla sér jafnvel hiö ómögulega. Aö því uröum viö vitni efst á Breiðholtsbraut. Þrátt fyrir aöeins ókleifa skafla framundan ætlaöi ökumaöur smábíls eins sér alla leiö heim en komst ekki langt. Okkur tókst aö telja hann á aö snúa við og reyna aö komast sömu leiö til baka. Eftir pústra mikla gátum við ýtt bíln- um úr skaflinum og snúið honum við. Þá var líka illan þef fariö að leggja frá bílnum, — kúplingin haföi brunniö! Og þar sat hann þá og komst hvergi. Veturinn á tslandi hhfir engu, hvorki mannskepnunni né fjórfættum bíllús- um. En þaö er hægt að draga úr áhrif- unum meö því aö búa sig betur. JBH Þarna er rétti útbúnaOurinn fyrir hamagang eins og var i gær. Guðmundur Þórarinsson lögfræðingur býr i Kópavogi en vinnur í Árbæ. Hann var ekki nokkra stund að skjótast þessa leið. Á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Stekkjarbakka iBreiðholti hafðimyndast hnútur og þar sátu margir bílar sem komust hvorki afturábak nó áfram. Starfsmenn Rafmagnsveitunnar voru þar og tóku bíla í tog og snjóruðningstæki hamaðist við hreinsun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.