Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1983, Blaðsíða 6
6
DV. MIÐVIKUDAGUR 5. JANUAR1983.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Lægsta meðaltal á einstakling er á Hvolsvelli i nóvembermánuði, krónur 650, -.
Heimilisbókhaldið
- NÓVEMBER
Upplýsingaseðlarfrá rúmlega
þrjátíu stöðum. Fimmtán
hundruð króna munurá lægsta
og hæsta meðaltali
Viö greindum frá því í gær aö lands-
meöaltal fyrir einstakling væri krónur
1220 í mat- og hreinlætisvörur í
nóvember. Þetta meöaltal er aöeins
lægra en fyrir októbermánuö, en þá
var þaö krónurl339.
Tölurnar í heimilisbókhaldinu taka
sífellt breytingum um hver mánaöa-
mót, sama hvaðan af landinu þær ber-
ast. Sums staðar er munur á milli
mánaöa harla lítill, þaö munar eitt til
tvö hundruð krónum, en á öörum stöö-
um munar allt aö eitt þúsund krónum.
En niöurstööur um meðaltal frá þeim
þrjátíu og tveimur stöðum sem
upplýsingaseölar bárust frá eru eftir-
farandi:
IMóvember — meðaltal
á einstakling:
Akranes
Akureyri
Blönduós
Bolungarvík
Dalvík
Egilsstaðir
Eskifjöröur
Fáskrúösfjöröur
Garöabær
Grímsey
Hafnarfjöröur
Hella
Hellissandur
kr. 1.171,-
kr. 1.458,-
kr. 2.164,-
kr. 1.061,-
kr. 1.361,-
kr. 1.159,-
kr. 1.078,-
kr. 763,-
kr. 920,-
kr. 995,-
kr. 1.746,-
kr. 869,-
kr. 1.360,-
Hnífsdalur
Hvammstangi
Húsavík
Hvolsvöllur
Höfn
Isafjöröur
Keflavík
Kópavogur
Laugarvatn
Mosfellssveit
Neskaupstaöur
Njarövík
kr. 1.067,-
kr. 1.421,-
kr. 1.040,-
kr. 650,-
kr. 1.599,-
kr. 1.063,-
kr. 1.545,-
kr. 1.161,-
kr. 1.151,-
kr. 1.104,-
kr. 1.013,-
kr. 1.321,-
tölur bárust of seint eftir aö uppgjör
fór fram svo meðaltal frá Njarövík er
ekki í landsmeðaltali)
Raufarhöfn kr. 1.058,-
Reykjavík kr. 1.161,-
Selfoss kr. 1.153,-
Siglufjörður kr. 1.149,-
Stykkishólmur kr. 1.271,-
Vestmannaeyjar kr. 1.305,-
Vogar kr. 1.355,-
Þorlákshöfn kr. 1.216,-
Þegar litiö er yfir þennan lista sést
aö lægst er meðaltalið á Hvolsvelli kr.
650,- sem er kr. 570,- lægra en lands-
meðaltalið. Hæsta meðaltaliö er á
Blönduósi kr. 2.164,- sem er aftur á
móti kr. 944,- hærra en landsmeðal-
taliö. Mismunur á meðaltali frá Hvols-
velli og Blönduósi er því rúmar
fimmtán hundruð krónur.
-ÞG
4- 4/ agggSgg
HIIHHHlH
Hæsta meðaltalið siðasta mánuð var á Blönduósi, kr. 2.164,- en það er tæpum þúsund krónum hærra en
landsmeðaltalið.
Júgursmyrslið
tví-dagsett
Kona nokkur kom meö dós með
júgursmyrsli hér á ritstjómina. Hún
var merkt Reykjavíkurapóteki og á
henni lítill miði sem á stóö „Notist
fyrir október 1984”. En þegar undir
miöann var gáö var þar annar sem á
stóö „Notist fyrir október 1982”.
Þótti konunni þetta nokkuð skrýtiö
og vildi vita ástæöuna.
Haraldur Sigurðsson í Reykja-
víkurapóteki sagöi þetta mistök. Á
glasið væri stimplaöurpökkunardag-
ur 18. október 1982. Því væri hægt að
rekja hvaöa mistök höfðu átt sér
staö. LeyfUegt er aö dagsetja júgur-
smyrsl tvö ár fram í tímann. Stúlkan
á stimplunarvélinni dagsetti þetta
glas hins vegar alls ekkert fram í
tímann. Þegar henni uröu ljós mis-
tök sín bjó hún til miöa með réttri
dagsetningu, en gleymdi að taka
gamla miðann af og því var smyrslið
selt svona. Haraldur baðst marg-
faldrar afsökunar á þessum mistök-
um og baö konuna sem kom með
smyrsliö hingað endUega aö hafa
samband viö sig og myndi hann þá
láta hana hafa aöra krús.
DS