Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1983, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1983, Blaðsíða 36
27022 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA33 SAAÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR ÞVERHOLTI 11 86611 RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12—14 MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 1983. GENGIÐ LÆKKAÐ UM NÍU PRÓSENT Gengi krónunnar var lækkaö um 9% í gær. Þessi gengislækkun er gerö til þess aö bæta fiskvinnslunni kostnaðar- auka sem leiddi af hækkun fiskverös um áramótin. Þaö er merkilegt við þessa gengislækkun aö ólíkt því sem venjulega gerist var þaö ríkisstjórnin sem lagði til gengislækkunina og bankastjóm Seölabankans sem ákvað hana. En venjulega gerir bankastjórn Seöalbankans tillögur um gengislækk- un til ríkisstjórnar. í fréttatilkynningu frá Seölabankan- um segir aö eigi viöleitni til aö bæta samkeppnisstöðu sjávarútvegs að bera árangur, án þess aö komi til verö- bólgu, telji bankaráð og stjórn Seðla- bankans aö verði aö leita allra ráöa til aö draga úr víxlverkunum launa og verölags. óbg Fimm í framboð — í prófkjöri krata á Reykjanesi Framboösfrestur í prófkjör Alþýöu- flokksins í Reykjaneskjördæmi vegna komandi alþingiskosninga er runninn út. Fimm skiluöu inn framboöum. Þau eru: Ásgeir Jóhannesson forstjóri, Gunnlaugur Stefánsson guöfræöingur, Karl Steinar Guönason alþingi-maö- ur og Kjartan Jóhannsson alþmgis- maöur, sem bjóöa sig fram í öll sæti, og Kristín Tryggvadóttir félagsmálafull- trúi, sem býöur sig fram í annað og þriöja sæti. Prófkjöriö er opið öllum stuðnings- mönnum AJþýöuflokksins og fer fram 29,—30. þessa mánaöar. ás. Vitnaleiðslum ekkilokið Rannsókn á moröinu sem f ramiö var á Kleppsvegi á nýársmorgun er enn ekki lokiö. Játning liggur fyrir í málinu en ekki hefur fengist staöfest hvort játningin kemur heim viö framburð annarra sjónarvotta aö atburöinum Þórir Oddsson vararannsóknarlög- reglustjóri ríkisins varðist allra frétta af rannsókn málsins er DV haföi sam- band viö hann í gær. Sagði hann að vitnaleiðslum í málinu væri ekki lokið. Yrði aö yfirheyra öll vitni aftur til samanburðar viö játningu Jiins grun- aöa og væri því ekki hægt aö gefa upp- lýsingar um málið á þessu stigi. ÖEF Sprengjuhótun á Hótel Borg: Við viljum ekki að neinn slasist — sagði rödd í síma Rödd í síma tilkynnti um sprengju á Hótel Borg í gærkvöldi um klukkan ellefu. MikUl viðbúnaður var af hálfu lög- reglu og var hóteUð rýmt af gestum. DV-mynd: GVA „Þaö er búiö aö koma fyrir sprengjuí hótelinu. Hún springur eft- ir hálftíma. Viö látum vita, því viö viljum ekki aö neinn slasist.” Þessi orö sagöi miðaldra karlmaöur í síma viö Guörúnu Jónsdóttur í gestamót- töku Hótel Borgar rétt fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi. Strax var haft samband viö lögregluna og hóteliö rýmt. Tuttugugestir voru á hótelinu, allt Islendingar. Þeir fóru yfir á lög- reglustööina og biöu þar á meðan lögreglan leitaöiaösprengjunni. „Hann skellti strax á er fiann var búinn a ð tilkvnna nkknr nm sprengjuna. Eg heyrði eklú aö neitj óvenjulegt væri viö manninn. Hann virtist ekki ölvaður og engin tónlist var í kringum hann, þannig aö hægt væri aö halda að um væri aö ræöa eitthvert gabb,” sagöi Guörún enn- fremur. Þaö hefur vakiö athygli aö karlmannsröddin notaöi oröiö „viö”, en þó talaöi hann ekki fyrir nein sam- tök eöa nafngreindan hóp manna. Guörún sagöi ennfremur aö hótel- gestirnir heföu tekið þessu meö jafnaöargeöi og hefðu ekld sýnt neinn asa eða hræöslu En hálftíminn sem karlmannsrödd- in gaf til aö forða mætti slysum leiö án þess aö nokkuð geröist. Þá var lögreglan búin aö loka nærliggjandi götum og umkringja hótelið. Fjöl- mennt liö slökkviliösins dreif aö auk þess voru tvö björgunartæki Björgunarsveitarinnar Ingólfs höfö tiltaks. Snemma á síöasta ári var einnig hringt á Hótel Borg og tilkynnt um sprengju, þá fannst heldur engin sprengja. -JGH Sjómannafélag Reykjavíkur: HÆTTUM ÞÁTTTÖKU í VERÐ- LAGSRÁÐI Stjórn og trúnaðarmannaráð Sjó- mannafélags Reykjavíkur hafa álykt- aö aö óverjandi sé fyrir samtök sjó- manna að eiga lengur aðild að Verö- lagsráði sjávarútvegsins og einnig óverjandi aö þau ein allra launþega- samtaka séu skyld aö taka miö af reikningslegum rekstrarkostnaðL I rökstuöningi með ályktuninni er m.a. drepið á eftirfarandi atriöi: Aö meö síöustu fiskverösákvöröun hafi fulltrúar ríkisstjórnar og útgeröar- manna ákveöiö kjör sjómanna næstu mánuöi upp á sitt eindæmi. Viö verö- ákvöröun er teláð miö af miklum fjölda skipa sem gerð eru út af félagslegri þörf einstakra byggðarlaga, en þetta er á skjön við tilgang laga um verö- ákvöröun á fiski. Engar tilraunir eru geröar til aö fara nýjar leiðir en úrelt- um leiöum fylgt, segir ályktuninni, en þær leiðir enda allar í uppliafi sínu. Og því álykta stjóm og trúnaöar- mannaráö S jómannafélags Reykjavík- ur aö óverjandi sé fyrir samtök sjó- manna aö eiga lengur aöild aö Verö- lagsráði sjávarútvegsins. óbg r Afengissalan: Meirí fyrir jól, minnifyriráramót — miðað við árið á undan Hækkun á áfengi árið 1982 nemur 40,5%. Sala á áfengum drykkjum hefur aukist um 12% á Þorláksmessudag, miöað viö hækkun, en minnkaö um 8% fyrir gamlárskvöld. Allt síöastliöiö ár varö aukning á sölu borðvína og þá mikiö keypt í stærri pakkningum. Fyrir jól er mikil sala í heitum vínum eins og sérrí. Þá er líkjör, viskí og koníak talsvert keypt til jólagjafa, mesta salan er þó ávallt í brennivíni. Mikið hefur dregiö úr aö fyrirtæki gefi starfsmönnum vín daginn fyrir gamlársdag. Áfengisútsölur á landinu eru alls 9, auk þess er hótel- og póstkröfudeild. A Gamlársdag nam salan frá þremur út- sölustööum í Reykjavík 2.058.770,- krónum, en ári áður 1.553.305,-. Sé miðað viö 40% hækkun hefur salan dregist saman. Á Þorláksmessu nam áfengisútsalan 8.277.278,- krónum, en áriö 1981 var salan 5.431.541,- krónur. Afengisútsöluna viö Laugarásveg 1 stendur til aö flytja í stærra og betra húsnæöL LOKI Heyrí ég rétt að viðskipta- ráðuneytið sé kallað kofi Tómasar frænda? Þelamerkurdeilan: BROTTVIKNISKOLASTJORINN FÆR ORLOF TIL UTANFERDAR Sturla Kristjánsson, skólastjóri Þelamerkurskóla í Hörgárdal, sem vikiö var úr starfi í október, hefur fengið „svokallaö leyfi á launum eöa orlof frá janúar og út setningartíma- bil, eöa til 31. júlí,” eins og Sigurður Helgason í menntamálaráöuneytinu orðaöi þaö. „Obeint hafði hann fariö fram á þetta. Hann fór fram á ein- hvers konar bætur og sneri sér þá til stéttarfélags síns, Bandalags há- skólamanna. Orlofiö er eiginlega málamiðlunartillaga til að Ijúka málinu. Hann haföi áhuga á aö fara til Skotlands til aö kynna sér þar skólamál í dreifbýli.” Verður sú ferð kostuð af ráðuneyt- inu? „Sturla heldur launum sínum en sér sjálfur um kostnað við feröina. En aö sjálfsögðu munum við greiöa götu hans eins og annarra sem til okkarleita.” Er Sturla aö fá uppreisn æru með þessum málalokum? „Ráðherra taldi í haust ekki ann- arra kosta völ en Jeysa báða deiluað- ila frá störfum til að eðlilegt skóla- starf gæti hafist. I þessu felst ákveö- in viðurkenning á aö Sturla sé, þrátt fyrir brottvisunina, ekki óhæfur skólamaður,”sagðiSigurður. -JBH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.