Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1983, Page 21
DV. MIÐVIKUDAGUR 5. JANUAR1983.
21
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Veiddi lax
í Lokeren
— Reykjavík ekki eina borgin með laxveiðiá
Þaö er stundum sagt aö Reykjavík
sé eina borgin í Evrópu sem bjóði upp
á laxveiðiá í miðri borginni. Þaö er þó
tæplegast rétt því að nýlega lét hann
Kristján Bemburg, fréttaritari DV í
Belgíu, okkurfá þessa mynd.
Maðurinn á myndinni fer á hverjum
sunnudagsmorgni klukkan um fimm
og rennir fyrir fisk í ánni Durme, sem
er í Lokeren. Og hann krækti í þennan
væna fisk í byrjun nóvember.
Fiskisagan flaug fljótt í Belgíu og
vakti óskipta athygli manna, enda
fiskurinn óhemju vænn.
Borgin Lokeren er þó frekar kunn
fyrir knattspyrnuliðið sitt, en með því
leikur Islendingurinn Amór Guðjohn-
sen. Sagt er aö hann sé í miklu
uppáhaldi hjá íbúum Lokeren.
Þessi mynd vakti mikla athygli i Belgíu. Hún sýnir iaxinn sem veiddist i
ánni Durme sem rennur i gegnum borgina Lokeren. Borgin er kunn fyrir
knattspymuiib sitt, en með þvíieikur ísiendingurinn Amór Guðjohnsen.
Bolti, bolti, bolti,
bolti, bolti, bol...
Knattspyrnumennirnir hjá hinu
fræga þýska félagi, Bayem Miinchen,
hafa oft í mörgu aö snúast. Það er ekki
aðeins að þeir þurfi að æfa knattspymu
daglega og leika að minnsta kosti einn
leik á viku, heldur þurfa þeir að skrifa
nafnið sitt á fótbolta sem framleiddir
em af fyrirtæki einu í Miinchen.
Kappamir hafa mjög góð laun hjá
félaginu og líða ekki skort, enda standa
þeir sig yfirleitt vel á vellinum. Þetta
meö fótboltaáletrunina er þó nokkuð
merkilegt. Hver einasti leikmaður
verður að taka pennann fram og skrifa
nafnið sitt á boltana.
Nokkur þúsund boltar í hverri viku
og leikmennirnir fá líka nokkra skild-
inga í vasann fyrir vikið. Þeir seljast
líka boltamir.
Skrifað og skrifað. Leikmenn þýska knattspyrnufólagsíns Bayem
Miinchen skrifa nafnið sitt á nokkur þúsund fótboita i hverri viku.
Dálaglegt starf, en það gefur talsvert af sár. Boltarnir seljast líka eins og
heitar lummur.
Innan um öil höfuðfötin á heimili sinu. Þegar vinir og kunningjar Irta inn er
JR ekki lengi að sýna mönnum safnið sitt.
Sveinn Guðmundsson sveitarstjóri ávarpar gesti við opnun leikskólans. Oddvitinn, Magnús Karel
Hannesson, stendur honum til hægri handar.
Fagnaðarlæti á Eyrarbakka
leikskólinn í nýtt húsnæði
Leikskólinn á Eyrarbakka flutti
nýlega í nýtt húsnæði. Rekstur
skólans byrjaði áriö 1975 og þá í
leiguhúsnæði, en það hentaði frekar
illa fyrir starfsemina.
Voriö 1979 samþykkti hreppsnefnd
Eyrarbakkahrepps að ráðast í
byggingu nýs húss með kostnaöar-
þátttöku ríkissjóðs. Húsið er um 115
fermetrar að flatarmáli og er smíðað
af SG-einingahúsum á Selfossi.
Félagar í Foreldra- og styrktar-
félagi leikskólabarna á Eyrarbakka
aðstoðuöu við bygginguna og félagiö
hefur einnig fært skólanum margar
góðargjafir.
Með þessu nýja húsnæði hefur
aöstaöa í skólanum breyst mjög til
hins betra og verður vonandi
byggðarlaginu til góðs. 25 börn em
nú í leikskólanum og 11 em á
biðlista. Forstöðukona er Gyða
Sigurðardóttir.
-MKH/JGH.
Gyða Sigurðardóttir forstöðukona ásamt nokkrum nemendum leikskóians við nám og leik.
„Já, hannerskrýtinnþessimeðmyndaváHna."
OV-myndir: Magnús Karel.