Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1983, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIÐ — VÍSIR
15.
73. og 9. ÁRG. —MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 1983.
>
LOGBANN A STRÆTO
Borgarfógetinn í Reykjavík kvað í
morgun upp þann úrskurð að
lögbannskrafa Verðlagsstofnunar
gegn Strætisvögnum Reykjavikur
skyldi ná fram að ganga. Verðlags-
stofnun var gert að leggja fram tíu
milljón króna tryggingu. Lögbannið
beinist gegn hækkun á strætisvagna-
fargjöldum sem kom til fram-
kvæmda fyrir nokkru. Lögbannið
kemur tU framkvæmda þegar
trygging hefur verið reidd fram hjá
fógeta.
Gísli Isleifsson, lögmaður Verð-
lagsstofnunar, spurði í þinghaldinu í
morgun hvort nægja myndi ábyrgð
fjármálaráðherra. Borgarlög-
maður , Magnús Oskarsson,
mótmælti því og sagði að ekki
samræmdist réttarreglum að annar
aðilinn geymdi tryggingarféð.
Ölafur Sigurgeirsson, fuUtrúi
borgarfógeta, kvað það sitt að meta i
hvaða formi trygging ætti að vera en
hún yrði að vera þannig aö fógeti
gæti reitt hana af hendi ef þörf kræfi.
Lögbannið kemur því til fram-
kvæmda samkvæmt þessu þegar
þess háttar trygging hefur verið lögð
fram.
Fógeti byggir lögbannsúrskurð
sinn á heimild í 2. grein laga númer
12/1981 og telur ekki útilokaö að
Verðlagsstofnun eigi þau réttindi
sem hún hyggst verja með
lögbanninu.
I lögbannsúrskurðinum felst ekki
endanlegur dómur um deilumálið
heldur verður Verðlagsstofnun að
höfða staðfestingarmál i kjölfarið.
-óbg.
Að loknu jólaleyfi ráða þeir ráðum sínum þmgrorsetarmr jon Helgason, Helgi Seljan og Sverrír Hermannsson. Nóg
virðist afskjölum á borðum GunnarsThoroddsens og Ólafs Jóhannessonar.
DV-mynd GVA,
Skýrslan um endur-
skoðun stjórnarskrár
innar birt í heild
Endurskoðun stjómarskrárinnar
er eitt helsta viðfangsefni stjóm-
málamanna nú. Skýrsla stjórnar-
skrámefndar var lögð fyrir þing-
flokkana í vikunni og birtir DV
skýrsluna í heUd í dag á fjórum
siðum. Þar er gerð grein fyrir tU-
lögum nefndarinnar um önnur atriði,
en þau sem fjalla um breytingar á
kjördæmaskipan og kosningafyrir-
komulagi.
1 blaðinu er skýrslan þannig sett
upp aö fyrst er birt hver grein
stjómarskrárinnar eins og hún er í
dag. Strax þar fyrir aftan er feit-
letruð tUlaga nefndarinnar um sömu
grein og síðan með smærra letri
útskýringar nefndarinnar. Með
þessum hætti er auðvelt að sjá aUar
breytingartiUögur.
-sjábls. 19-22
Verðabömin
háðkókinu?
— sjá Neytendur
bls.7
Kynningfram-
bjóðenda
Sjálfstæðis-
flokksinsá
Norðurlandi
eystra
— sjá bls. 4
•
Bókinstendur
alltafsér
— sjá Dægradvöl
bls. 34-35