Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1983, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1983, Page 30
34 DV. MIÐVIKUDAGUH19. JANUAR1983. - DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL DÆGRADVÖL Hvað verður um bókina í fnstunda- byltingunni? — mun hún eiga í vök að ver jast fyrir auðmeltu afþreyingarefni? Háværar raddir hafa heyrst um það að bóksala hafi minnkað mikiö á jóla- bókamarkaönum. Einn heimildar- maður DV tók svo djúpt í árinni að sai- an hefði minnkað um 25—30% frá árinu áður. Sömu heimildir kenndu video- glápi um að verulegu leyti. Hvað sem því líður má benda á að bókinni hefur oft áöur verið spáð dauöa en alltaf haldið velli og vel það. Kvikmyndirnar áttu að drepa hana, sjónvarpið sömu- leiðis og nú seinast videoið og kapal- sjónvarpið. DV gerði örlitla könnun á hvernig bóksalan hefði gengið. Engar tölur eru komnar að svo stöddu um þetta mál, en skiptar skoðanir voru meðal þeirra sem við útgáfu og bók- sölu fást um hvort bókin væri á undan- haldi. Hvaö um það. Viðfangsefni okkar hér í Dægradvöl er alls ekki háð því hvort bóksala hafi minnkað eða staðið í stað á síðasta jólamarkaði, heldur ætl- um við að skyggnast inn í framtíðina meö aðstoð góðra manna. Og spyrja hvernig bókin muni standa sig í fram- tíðinni í þjóöfélagi örtölvu, sjálfvirkni og stóraukins frítíma og þar af leiðandi stóraukins framboðs á frístundaefni? Við röbbuðum við tvo menn um þessi mál. Ólafur Jónsson er kunnur sem gagnrýnandi DV og hefur að auki kannað bóklestur og lestrarvenjur. Við ræðum við hann einkum um lestrar- Bókinogfrí- stundabyltingin Texti: Árni Snævarr Myndir: Bjarnleifur Bjamleifsson -ur um bokautgáfu é töluvert bö saman um að úrgefmr tmar seu ^irienáSnnuþmáund^noghefeg , ncfnda ,olun“1í^ 4°henni. Einnig hefur i |wí heyrst Oeygt^rð heildarsala böka sé tölu- l vert minni nn ^''„rénTslsm tfðindii ef I Nokkurrar svartsýni hefur gœtt um stöðu bókarinnar nú. Þvi er haldið fram að sala bóka hafi minnkað mikið um þessi jói enda þótt ekki sóu aiiir á einu máii um það atriði. venjur og horfur í framtiðinni og stöð- una í dag. Pétur Gunnarsson þarf ekki að kynna, en hann er auk þess að vera höfundur skáldsagna og ljóða, nýorð- inn bókaútgefandi. Er í þeirri sérstöku stöðu að semja og gefa út. Hvoru- tveggja með góðum árangri! Framtíöarsýn Enda þótt vísindaskáldsagnahöfund- ar og kvikmyndagerðarmenn hafi verið ósparir á að sýna okkur framtíð- ina eins og þeir líta á hana, hefur ekki farið sérlega mikið fyrir hugleiðingum um stöðu bókarinnar í framtíðinni. Eins og fram kemur í viðtölunum hér að neðan er eins víst að „bókin” hverfi tæknilega séð og tölvur komi í staðinn. En enn munum við lesa og bókmennt- irnar hverfa ekki svo auðveldlega. Til að spá í örlög bókarinnar á örtölvuöld er sjálfsagt að taka mið af samtíman- um. Spurningunni um hvort bóklestur hafi minnkað í kjölfar videovæðingar er erfitt að svara enda engar rann- sóknir verið gerðar. En við vitum að íslendingar lesa mjög mikið og að því er virðist, tiltölulega meira en flestar aðrar þjóðir. En háværar raddir eru uppi um að videoið hafi fremur bitnað á sjoppulitteratúr og tímaritum. Seint verður úr því skorið. En við ræðum þessi mál við Pétur Gunnarsson og Ólaf Jónsson hér að neðan, og þá fyrst og fremst í ljósi þess að menn spá því að „frístundaþjóðfélag” líti dagsins ljós og bókum verði veitt harðvítug samkeppni af ýmiss konar frístunda- efni, oft tengdu tækni og kennt við auð- melta afþreyingu. PéturGunnarsson: Frístundabylt ingin handan við homið — en bókin mun halda sínu Við höfum rætt um f rístundabyltingu í Dægradvöl áður. Og eins og fram kemur hér á síðunni ætlum við að ræða hér um áhrif hennar á bókmenntimar. Og þá ekki síst áhrif væntanlegra tæknibreytinga og þeirra sem þegar eru orðnar á þennan miðil. Pétur Gunnarsson rithöfundurgaf út fyrir jólin bókina Persónur og leikend- ur. Auk þess sem hann samdi bókina gaf hann hana út sjálfur og má segja að hann hafi fylgt henni alla leið: úr huga sér yfir á blöð og síöan langleið- ina til lesenda í gegnum útgáfuna og dreifingu. Dægradvöl hitti Pétur að heimili hans og ræddi við hann um þessi mál. — Því er haldið fram að bókin sé á undanhaldi fyrir ýmsum nýjum miðl- um og eigi í vök að verjast vegna vax- andi framboðs á frístundaefni. Og því Litum við enn i bók árið2000eða fáum við iesmái eftir eigin vali á töivuskerm ? i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.