Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1983, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1983, Blaðsíða 1
Alþingi samþykkti í gærkvöldi að mótmæla ekki samþykkt Alþjóða hvalveiöiráðsins um hvalveiöibann árið 1986. Breytingartillaga meiri- hluta utanríkismálanefndar við þingsályktunartillögu um mótmæli gegn hvalveiðibarmi var samþykkt, að viðhöfðu nafnakalli, með 29 atkvæðum gegn 28, 3voru fjarver- andi. Mikil fundahöld voru tvo síðustu daga um hvalveiðimálið og skiptust flestir þingflokkar í afstöðu sinni. Aðeins Alþýðubandalagið hafði yfir- lýsta stefnu, það vildi láta banni ómótmælt. Utanríkismálanefnd, sem haföi málið til umfjöllunar síðan á mánudag, skUaði síödegis í gær tveim nefndarálitum. Meirhlutinn vUdi mótmæla hvalveiðibanni en minnUilutinn hið gagnstæða (sjá bls. 3). Eftir nokkrar umræður var gert fundarhlé tU klukkan 18.00. Þá var umræðum fram haldið tU kl. 21.00, eöa þegar mælendaskrá hafði tæmst. Þaö var gífurleg spenna í þingsölum er gengið var tU atkvæða og áhorfendapaUar þétt setnir eins og þeir höfðu verið aUan daginn. Eiður Guönason fór fram á nafnakall og gerðu gerðu aUmargir þingmenn grein fyrir atkvæði sínu. Þar kom skýrt fram að margir samþykktu nauðugir vUjugir: „Ekki um náttúruverndarmál að tefla. Hins vegar stöndum víð frammi fyrir viðskiptaþvingunum frá stórveldi. Eg neyðist tU að segja já.” „Rökstyð afstöðu mína með hugsanlegum viðbrögðum bandarískra neytenda.” „I þessu eigum við að lúta vísinda- legum rökum. Við eigum ekki aö láta erlenda þrýstUiópa segja okkur fyrir verkum.” „Ekki með glöðu geði sem ég feUst á þessa tUlögu." „Menn eru að reyna að kaupa sér frið áfölskum forsendum. Islendingar afsala sér Flestirbankar reknirmeð tapi — sjá viðskipti bls. 18 AðhaldhjáSÍS — sjá bls. 5 barsmíðaraukast — þéni konan meira en eiginmaðurinn — sjá bls. 36 Það er ekki heiglum hent að heimsœkja bóndann á Egilsstöðum í Ölfusi og hans fólk. íshröngl og jakaburður einangraði bœinn í vikutíma og er veg- urinn hafði verið ruddur stóðu eftir mannhœðarháir jakar. Sjá nánar á bls. 4. DV-mynd E. Ól. rétti sínum með því að samþykkja þetta bann.” Klukkan rúmlega 21.30 í gærkvöldi voru úrslitin ljós, hvalurinn við Island verður friðaður frá árinu 1986. Eitt atkvæði á Alþingi réð því. JBH Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf.: „ Veríð að afsafa sér lýdveldinu” „Eg álít aö þetta sé fyrsta skrefið í áttina til þess aö menn afsali sér lýðveldinu,” sagði Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., að lokinni atkvæðagreiðslu í þinginu. „Menn eru með þessari samþykkt að afsala sér því í hendur utanaðkomandi aðUa.” Hann sagði einnig að þegar þingið beygi sig fyrir einhverju ímynduðu verði ekki langt þangað tU eitthvað svipað kröfumál til þess kemur upp .” Kristján kvað ómögulegt að segja hvað út úr öllu þessu kæmi og hvort hvalveiöar gætu nokkurn tíma hafist aftur eftir að bann tekur gUdi. En hvaö verður þá um fyrirtækið Hval hf.? „Þaö verða hluthafarnir að ákveða,” segir hann. -JBH. Eyþór Einarsson, formaður Náttúruverndarráðs: Gott eitt um niður- stöðuna að segja „Eghef auðvitað bara gott eitt um þessa niðurstöðu að segja. Þetta er í fuUu samræmi við það sem Náttúruvemdarráð lagði til,” sagði Eyþór Einarsson, for- maöur Náttúmvemdarráðs, um þá ákvörðun Alþingis að mót- mæla ekki hvalveiðibanninu. Eyþór var að þvi spurður hvort hann teldi að látið hefði verið undan ágengum banda- rískum þrýstihópum í þessu máli. Hann sagðist ekki vita hvað ráðið hefði afstöðu einstakra þingmanna en hann teldi að svo hefði ekkiverið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.